Morgunblaðið - 02.02.2006, Side 3
EM Í HANDKNATTLEIK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 C 3
ÓLAFUR Stefánsson skoraði
600. mark Íslands á Evrópu-
móti landsliða þegar hann
skoraði jöfnunarmarkið gegn
Krótatíu í gærkvöldi, 18:18.
Ólafur skoraði átta mörk í
leiknum, en hann hefur skorað
8 mörk í þeim þremur leikjum
sem hann hefur leikið á EM í
Sviss og alls hefur hann skorað
124 mörk í Evrópukeppninni.
Ólafur hefur verið með í fjór-
um EM – í Króatíu 2000, Sví-
þjóð 2002, Sllóveníu 2004 og nú
í Sviss.
Ólafur með
600.
markið
á EM
ALEXANDER Petersson,
landsliðsmaður í handknatt-
leik, yfirgaf íslenska landsliðið
í St. Gallen árdegis í gær. Al-
exander kjálkabrotnaði í fyrri
hálfleik í sigurleiknum við
Rússa í fyrradag. Fór hann
einn akandi til síns heima í
Þýskalandi þar sem hann hitti
lækni handknattleiksliðsins
Grosswallstadt, sem Alexand-
er leikur með. „Alexander
treysti sér til þess að fara
einn til Þýskalands og því
varð það úr,“ sagði Jóhann
Ingi Gunnarsson, formaður
landsliðsnefndar HSÍ, við
Morgunblaðið í gær.
Um leið og það var ljóst í
fyrrakvöld að Alexander væri
brotinn var haft samband við
þjálfara hans hjá félaginu og
honum greint frá málavöxtum.
Ljóst er að Alexander fer í að-
gerð vegna kjálkabrotsins á
næstu dögum þar sem kjálk-
inn verður að öllum líkindum
spengdur saman. Eftir því sem
Morgunblaðið kemst næst get-
ur liðið allt að vika áður en
slík aðgerð verður gerð ef
mikil bólga er fyrir hendi í
kringum brotið. Þá er sjálf-
sagt að láta hana hjaðna áður
en aðgerð er gerð.
Að jafnaði tekur það sex til
átta vikur fyrir kjálkann að
gróa saman, að sögn Stefáns
Eggertssonar, læknis og föður
Ólafs Stefánssonar, sem stadd-
ur er í St. Gallen til þess að
fylgjast með mótinu og Morg-
unblaðið hitti á morgungöngu
í gær.
Alexander leikur því vænt-
anlega ekki aftur með Gross-
wallstadt fyrr en í apríl og
mun því ná lokaspretti þýsku
1. deildarinnar í vor.
Petersson
ók til Þýska-
lands
Alexander Petersson í
leiknum gegn Rússum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ég hélt að úrslitin væru ráðinþegar Króatarnir komust fjór-
um mörkum yfir en eins og leik-
urinn þróaðist í lokin áttum við
möguleika á að jafna. Það var grát-
legt að sjá þegar Arnór henti bolt-
anum í hendurnar á Króötunum í
sókninni sem við gátum minnkað
muninn í eitt mark, tveimur mönn-
um fleiri. Það á hreinlega ekki að
vera hægt að gera svona í stöðunni
sex á móti fjórum.“
„Annars voru strákarnir sjálfum
sér verstir í þessum leik. Þeir gerðu
sig seka um allt of marga feila og yf-
irleitt er það ávísun á tap þegar and-
stæðingurinn er jafnsterkur og raun
bar vitni. Íslenska liðið fór illa með
mörg hraðaupphlaup, bæði misnot-
uðu menn færin eða sendingarnar
rötuðu ekki rétta leið og oftar en
ekki klikkuðu hraðaupphlaupin á
mjög mikilvægum augnablikum í
leiknum.“
Áfall að missa Einar
Guðjón segir að það hafi verið af-
ar slæmt að missa Einar Hólmgeirs-
son meiddan út af eftir aðeins tíu
mínútna leik. ,,Það var mikið áfall að
missa Einar út úr leiknum. Hann
virtist finna sig vel, var búinn að
skora tvö frábær mörk og stóð vakt-
ina vel í vörninni. Þetta var kjafts-
högg ofan í það að Alexander Pet-
ersson var úr leik og þegar Einar
fór út af þurfti enn að hrófla við
varnarleiknum. Það kom í ljós í
vörninni að Petersson skildi eftir sig
skarð sem mönnum tókst ekki að
brúa, með fullri virðingu fyrir þeim.
Það þurfti mikla hjálp í þessari
stöðu sem ekki þurfti að þegar Pet-
erssons naut við. Ég verð þó af gefa
Ásgeiri Erni plús. Hann kom inn
kaldur af bekknum og gerði eins vel
og hann gat.“
Balic ekki tekinn
nógu stíft
Ivano Balic, leikstjórnandi Króat-
anna, fór mikinn í leiknum, einkum í
seinni hálfleik. Hefði ekki verið ráð
að taka hann úr umferð?
,,Ég hefði viljað sjá menn taka
Balic miklu fastari tökum. Hann
hélt Króötunum lengi vel algjörlega
á floti, bæði skoraði hann góð mörk
og ekki síður spilaði hann félaga
sína uppi. Balic fékk að leika allt of
lausum hala og mér hefði fundist vel
koma til greina að taka hann úr um-
ferð eða klippa algjörlega á hann
fengi boltann. Þá skoruðu Króatarn-
ir allt of oft hjá okkur manni færri.“
Þurftum toppleik frá
einum til viðbótar
Guðjón sagði að Ólafur Stefáns-
son hefði upp á sitt eindæmi haldið
íslensku sókninni á floti lungann úr
leiknum. ,,Óli átti frábæran leik eins
og á móti Rússunum og Guðjón Val-
ur skilaði einnig mjög góðum leik.
Arnór var því miður mjög veikur all-
an tímann. Hann skoraði reyndar
tvö góð mörk í seinni hálfleik en í
þeim fyrri var lítil sem engin ógnun
frá honum og svo gerði hann allt of
mikið af mistökum. Í leik eins og
þessum er einfaldlega allt oft lítið að
tveir menn skili frábærum leik. Ef
einn til viðbótar, Snorri eða Arnór
sem dæmi, hefðu skilað leik í líkingu
við það sem Óli og Guðjón gerðu þá
hefðum við farið langt með að sigra.
Markvarslan í fyrri hálfleik var ansi
slök og miðað við það þá fannst mér
gott að fara með jafntefli inn í leik-
hléið. Birkir kom svo frábær inn í
seinni hálfleik og á köflum hélt hann
okkur inni í leiknum.“
Kannski þreytumerki
„Mér fannst leikurinn í heildina
frekar hægur og það var greinilegt
að liðin báru mikla virðingu hvort
fyrir öðru. Króatarnir lögðu sinn
leik upp mjög vandað. Þeir spiluðu
agað og þeir gera það aldrei nema
móti liðum sem þeir vita að eru þeim
hættuleg. Ég veit ekki hvort um
þreytumerki var að ræða en það er
vel hægt að halda þegar maður met-
ur frammistöðu Snorra Steins og
Arnórs. Það hefur mætt gríðarlega
mikið á þeim og ekki nema eðlilegt
að þeir finni kannski fyrir þreytu.
Snorri var í mjög strangri gæslu hjá
króatísku varnarmönnunum en Arn-
ór náði sér því miður ekki á strik.“
Geri kröfu á að liðið
vinni Norðmenn
Hvernig metur þú stöðu íslenska
liðsins eftir þennan ósigur?
,,Nú er þetta ekki lengur í okkar
höndum að komast í undanúrslitin.
Rússar og Króatar tryggja sér sæti
í undanúrslitunum með sigri en það
er ekkert sjálfgefið að þeim takist
það. Mér sýnist að Króötunum nægi
jafntefli á móti Serbunum til að
komast áfram og væntanlega ná
þeir því en ég get alveg séð fyrir
mér að Danir geti tekið stig af Rúss-
unum. Það eina sem okkar menn
geta gert í stöðunni er að leggja
Norðmennina að velli og ég geri
kröfu til liðsins að það geri það og ég
veit að strákarnir gera þá kröfu líka.
Ef liðið tapar þá man enginn eftir
sigrinum á Rússum. Við erum með
betra lið en Norðmenn og höfum
gott tak á þeim eftir síðustu rimmur
liðanna. Með sigri á Norðmönnum
er ljóst að Ísland verður í hópi sex
efstu þjóða á mótinu, sem er frábær
árangur. Ég hef hins vegar ekki gef-
ið upp alla von um að Ísland komist í
undanúrslitin þar sem mér finnst
liðið eiga heima.“
Guðjón Árnason eftir ósigurinn á móti Króötum
Hef ekki gefið
upp alla von um
undanúrslitin
„MAÐUR var svo sem alveg við því búinn að svona færi og það er
engin skömm að tapa fyrir þessu frábæra liði Króata. Mistökin voru
hins vegar allt of mörg og þar skildi á milli liðanna. Þessi leikur var
ekki nándar nærri eins góður hjá íslenska liðinu og í sigrinum frá-
bæra á Rússum, en engu að síður barðist liðið hetjulega og var ekki
langt frá því að fá stig,“ sagði Guðjón Árnason, eftir eins marks
ósigur gegn ólympíumeisturum Króata í St.Gallen í gærkvöld.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Balic, leikstjórnandi Króata, gerði Íslendingum lífið leitt. Hér er eitt mark hans í uppsiglingu, án
þess að Sigfús Sigurðsson, Vignir Svavarsson og Birkir Ívar Guðmundsson kæmu vörnum við.
DANIR eru ekki af baki dottnir á
Evrópumótinu í handknattleik og
setja stefnuna greinilega í undan-
úrslit. Í gær lögðu þeir Norðmenn
35:31 og eru í þriðja sæti millirið-
ilsins. Þeir mæta Rússum í dag og
með sigri komast þeir í undan-
úrslit og hugsanlega dugar jafn-
tefli þeim.
Norðmenn byrjuðu betur í gær,
komust í 3:1 en Danir voru ekki
lengi að átt sig á hlutunum og
náðu 8:5 forystu og voru 17:15 yf-
ir í leikhléi. Danir höfðu síðan
frumkvæðið allan leikinn en Norð-
menn voru aldrei langt undan, en
náðu ekki að jafna metin. Norð-
menn eru því án stiga í milliriðl-
inum og mæta Íslendingum í dag.
Jesper Jensen var markahæstur
hjá Dönum í gær, gerði 8 mörk í 9
skottilraunum og hann skoraði úr
öllum fimm vítaköstum sínum í
leiknum. Lars Rasmussen gerði 7
mörk, þar af 4 úr fimm vítaköst-
um.
Hjá Norðmönnum var það
Kristian Kjelling sem skoraði
mest, 9 mörk, en hann misnotaði
vítakastið sem hann tók í leiknum.
Håvard Tvedten gerði 7 mörk fyr-
ir Norðmenn og Frank Loke sex.
Danir
ekki af
baki
dottnir