Morgunblaðið - 02.02.2006, Page 4
EM Í HANDKNATTLEIK
4 C FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Íslenska landsliðið þarf því að stóla áað úrslit í lokaumferð milliriðilsins
verði hagstæð til þess að komast í
undanúrslit keppninnar. Króatar eru
efstir með 8 stig, Rússar í öðru sæti
með 6 stig, Danir og Íslendingar eru
með 5 stig, Serbía/Svartfjallaland
með 2 stig og Norðmenn eru án stiga.
Í dag mætast Danir og Rússar,
Króatía – Serbía/Svartfjallaland og
Íslendingar og Norðmenn. Það er
spennandi dagur fram undan í St.
Gallen og enn er von um sæti í undan-
úrslitum í Zürich.
Viggó Sigurðsson, þjálfari íslenska
landsliðsins, stendur frammi fyrir
mikilli áskorun eftir leikinn gegn
Króatíu því að hann þarf að finna leið-
ir til þess að stappa stálinu í leikmenn
liðsins. Vonbrigðin eru án efa gríð-
arleg eftir naumt tap gegn einni
sterkustu handknattleiksþjóð síðustu
ára.
Arnór Atlason mun aldrei gleyma
lokakafla leiksins enda veit hann það
best sjálfur að hann tók ranga
ákvörðun er hann reyndi að senda á
Ólaf Stefánsson þegar rúm mínúta
var eftir af leiknum. Arnór fram-
kvæmdi sendinguna eins og hann er
vanur að gera en Balic las hreyfingar
Arnórs eins og bók löngu áður en
sendingin var framkvæmd. Á meðan
stóð Ásgeir Örn Hallgrímsson aleinn
í hægra horninu. En Arnór veit það
að hann nýtur fyllsta trausts þjálfara
íslenska landsliðsins og einnig félaga
sinna.
Arnór mun læra af þessu atviki, án
efa, enda hann var niðurbrotinn í
leikslok eftir að hafa fengið tveggja
mínútna brottvísun er hann braut á
Balic í hraðaupphlaupi og Mirza
Dzomba skoraði síðasta mark Króata
úr vítakasti. Enn og aftur var ís-
lenska landsliðið nálægt því að stíga
stórt skref á stórmóti en púsluspilið
gekk ekki upp. Örlög liðsins eru ekki
lengur í þeirra höndum og fyrirliðinn
Ólafur Stefánsson er ekki bjartsýnn á
að hlutirnir muni falla liðinu í hag síð-
asta keppnisdaginn.
Í raun er ekki hægt að segja að ís-
lenska liðið hafi leikið illa gegn Kró-
atíu í St. Gallen í gær. Þvert á móti.
Það rétta er að Íslendingar voru
sjálfum sér verstir og köstuðu mögu-
leikanum frá sér. Arnór Atlason get-
ur huggað sig við þá staðreynd að
hann var ekki sá eini sem gerði mis-
tök, langt frá því. Af mörgu er að
taka.
Kannski hefðu hlutirnir fallið ís-
lenska liðinu í hag ef Ólafur Stefáns-
son hefði ekki skotið í slá í hraðaupp-
hlaupi í stöðunni 20:20 og íslenska
liðið var einum fleira á þeim tíma. At-
vikin eru mörg sem íslensku leik-
mennirnir hafa rifjað upp er þeir
lögðust til svefns í gær.
Vignir Svavarsson hefur eflaust
hugsað um það er hann var rekinn út
af eftir að hafa verið skamma stund í
vörninni – staðan var þá 22:21,
Króötum í vil.
Guðjón Valur Sigurðsson reyndi að
vippa yfir Vlado Zola, markvörð
Króata, en hitti ekki markið í stöð-
unni 26:24. Kannski að Guðjón hafi
rennt yfir það atvik seint í gærkvöldi.
Snorri Steinn Guðjónsson klikkaði á
vítakasti í fyrri hálfleik eftir að hafa
ávallt fundið réttu leiðina í vítunum í
síðustu tveimur leikjum. Það munaði
aðeins þessu eina marki þegar upp
var staðið. Arnór er því ekki „blóra-
böggull“ – þvert á móti.
Ekki verður af íslenska liðinu tekið
að það lagði sig svo sannarlega fram
og kom króatíska liðinu í opna
skjöldu með „óhefðbundnum“ varn-
arleik. Ákefðin og baráttan var gríð-
arleg í íslenska liðinu.
Einar Hólmgeirsson fann loksins
„fjölina sína“ á gula dúknum í St.
Gallen en varð að játa sig sigraðan
eftir gríðarlegt höfuðhögg sem varð
til þess að hann lék ekki meira með
liðinu. Ásgeir Örn Hallgrímsson
leysti Einar af hólmi í kjölfarið og
skilaði svo sannarlega sínu í vörn sem
sókn. Lánleysi íslenska liðsins lýsir
sér best í því að hafa misst Alexander
Petersson og Einar Hólmgeirsson
með aðeins tveggja daga millibili. Það
eru kannski skilaboð um að Evrópu-
meistaramótið í Sviss, árið 2006, hafi
ekki átt að vera mótið þar sem að ís-
lenska landsliðið átti að springa út.
Ekkert lið á EM má við slíkum áföll-
um og hvað þá 300.000 manna smá-
þjóð sem vakið hefur athygli fyrir
framgöngu sína í Sviss.
Birkir Ívar Guðmundsson sýndi
það í gær að hann hefur náð að
„stimpla“ sig inn sem markvörður á
alþjóðlegan mælikvarða. Hann fór á
kostum þegar hann kom aftur í mark-
ið í seinni hálfleik kveikti neistann í
íslenska liðinu á ný – en eins og áður
segir, hafa eflaust margir leikmenn
íslenska landsliðsins átt erfitt með að
sofna í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Róbert Gunnarsson, línu-
maðurinn sterki, skorar eitt
af mörkum sínum af línunni
gegn Króötum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Vonsviknir leikmenn – Guðjón Valur Sigurðsson, Sigurður Egg-
ertsson, Hreiðar Leví Guðmundsson og Heimir Árnason.
!
"
# $ %&
'
()*(
Íslendingar
voru sjálfum
sér verstir
HETJULEG barátta íslenska landsliðsins í handknattleik dugði ekki
til gegn ólympíumeistaraliði Króatíu í gær, í öðrum leik liðsins í
milliriðli á Evrópumeistaramótinu í St. Gallen í Sviss. Króatar sigr-
uðu með minnsta mun, 29:28, en vonir íslenska liðsins um sigur
urðu að engu er Ivano Balic komst inn í sendingu Arnórs Atlasonar
mínútu fyrir leikslok. En á þeim tíma lék íslenska liðið með full-
skipað lið gegn fjórum varnarmönnum Króatíu. Aðeins tvö mörk
skildu liðin á þeim tíma, 28:26.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson í St.Gallen
Birkir Ívar Guðmundsson,
17/1 (þar af fóru 5 til mót-
herja);
10 (2) langskot, 1 gegnumbrot,
3 (2) eftir hraðaupphlaup, 2 (1)
af línu og 1 vítakast.
Hreiðar Guðmundsson, 3
(þar af 1 til mótherja); 1 lang-
skot, 2 (1) úr horni.
Valdo Sola, 13 (þar af 3 til
mótherja);
7 (1) langskot, 1 (1) eftir gegn-
umbrot, 2 (1) eftir hraðaupp-
hlaup, 2 úr horni, 1 vítakast.
Þannig
vörðu þeir
*+ (-
(
(1
6(
4(#.(
( !&(! 2&( ( 7 1(
1- )(&
5&
16( (
( 2& ( . 8
(9( :&(7
(8 ()
„ÞAÐ er satt að sárt er það að hafa
ekki fengið stig út úr þessum leik
þar sem allir leikmenn lögðu sig
fullkomlega fram í þetta verk, en
svona er þetta nú,“ sagði bar-
áttumaðurinn Róbert Gunnarsson,
sem eins og vanalega stóð í ströngu
þegar leikið var við Króata í St.
Gallen í gær. Róbert skoraði þrjú
mörk í leiknum, þar á meðal eitt al-
veg stórglæsilegt þegar hann kast-
aði sér aftur á bak inn í teiginn og
kastaði boltanum í netið án þess að
Valdo Sola, markvörður Króata,
fengi rönd við reist.
„Við sýndum það í þessum leik að
við getum alveg unnið svo sterkt lið
sem Króatar eru. Því eru það geysi-
leg vonbrigði að hafa ekki náð að
vinna að minnsta kosti eitt stig. Á
heildina litið vorum við afar
óheppnir að hafa ekki tekist að
nýta betur þá mörgu kafla í leikn-
um þegar við vorum einum leik-
manni fleiri, sem var nokkuð oft.
Úrsli
þurfa
leiks
til að
til þe
svona
átti e
sínum
„K
og öl
svo la
sem e
ert e
taka
„Nýttum ekki vel m
Eftir Ívar Benediktsson í St. Gallen
iben@mbl.is