Morgunblaðið - 02.02.2006, Page 7
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 C 7
FÓLK
THIERRY Henry sló í gærkvöld
markametið hjá Arsenal í ensku
deildakeppninni í knattspyrnu.
Hann skoraði sitt 151. mark fyrir fé-
lagið í tapleik gegn West Ham, 2:3,
en Cliff Bastin skoraði 150 mörk fyr-
ir Arsenal á sínum tíma.
RINI Coolen, þjálfari hollenska
knattspyrnuliðsins Twente, sagði
starfi sínu lausu í gær í kjölfarið á
slöku gengi liðsins í úrvalsdeildinni
að undanförnu. Arnar Þór Viðars-
son er nýgenginn til liðs við Twente.
Það er aðstoðarþjálfarinn, Jan van
Staa, sem stýrir liðinu út þetta tíma-
bil en Coolen hafði fyrir nokkru til-
kynnt að hann myndi hætta störfum
í vor.
TOTTENHAM keypti miðvallar-
leikmanninn Danny Murphy frá
Charlton seint í fyrrakvöld fyrir 2
milljónir punda, 216 milljónir króna,
á síðustu stundu áður en lokað var
fyrir félagaskiptin í knattspyrnunni.
Murphy er 28 ára og lék frábærlega
með Charlton í upphafi tímabilsins.
Charlton keypti Murphy frá Liver-
pool árið 2004 fyrir 2,5 milljónir
punda en hann skoraði fjögur mörk
fyrir Charlton í úrvalsdeildinni í vet-
ur.
WEST Ham hefur fengið varnar-
manninn Lionel Scaloni að láni frá
spænska liðinu Deportivo La Cor-
una út leiktíðina. Scaloni, sem er 27
ára Argentínumaður, spilaði átta
leiki með La Coruna í spænsku
deildinni í vetur. Scaloni getur einn-
ig spilað á miðjunni.
WBA keypti miðjumanninn Nigel
Quashie frá Southampton fyrir 1,4
milljónir punda, um 160 milljónir
króna, rétt áður en lokað var fyrir fé-
lagaskiptin í fyrrakvöld. Quashie
hefur leikið með bæði Southampton
og Portsmouth í ensku úrvalsdeild-
inni. Hann samdi við WBA til hálfs
fjórða árs.
BIRMINGHAM keypti Dudley
„DJ“ Campbell frá Brentford fyrir
500 þúsund pund, 54 milljónir króna.
Campbell var hetja Brentford um
síðustu helgi, skoraði bæði mörkin
þegar 2. deildar liðið sló Sunderland
út úr bikarkeppninni. Campbell er
24 ára sóknarmaður og er nú samn-
ingsbundinn Birmingham til ársins
2009.
SPARTAK Moskva hefur keypt
hollenska sóknarmanninn Quincy
Owusu-Abeyie frá Arsenal. Abeyie
er 19 ára en hann gekk til liðs við
Arsenal frá Ajax árið 2002 og spilaði
23 leiki með aðalliði Arsenal.
ATLI Rúnar Hólmbergsson, sem
lék með Keflavík í úrvalsdeildinni í
knattspyrnu síðasta sumar, er geng-
inn til liðs við 3. deildar lið Víðis í
Garði en hann kom þaðan til Keflvík-
inga fyrir síðasta tímabil.
LEISEL Jones frá Ástralíu setti í
fyrradag heimsmet í 200 metra
bringusundi er hún synti á 2.20,54 og
bætti þar með eigið met um 1,18 sek-
úndur. Metið setti hún í Melbourne á
úrtökumóti fyrir samveldisleikana.
ELSA Guðrún Jónsdóttir varð í
58. sæti af 82 keppendum í 5 km
skíðagöngu með hefðbundinni aðferð
á heimsmeistaramóti unglinga í
Slóveníu í gær. Hún varð 2 mínútum
og 10 sekúndum á eftir sigurvegar-
anum, Astrid Jakobsen frá Noregi.
Áður hafði Elsa hafnað í 53. sæti af
77 í sprettgöngu.
ELSA fékk 159 FIS-punkta fyrir
gönguna í gær og hækkar sig stöð-
ugt en hún hefur á þessu ári farið úr
283 punktum í 167, samkvæmt nýj-
um lista sem birtur var í gær. Þá hef-
ur hún hækkað sig úr 724. sæti í 441.
sæti á heimslistanum.
IGOR Beljanski, leikmaður með
úrvalsdeildarliði Snæfells úr Stykk-
ishólmi, hefur verið úrskurðaður í
eins leiks bann af aganefnd Körfu-
knattleikssambands Íslands, vegna
atviks í leik Snæfells og Njarðvíkur í
bikarkeppninni 22. janúar. Beljanski
verður í banni þegar Snæfell mætir
Grindavík í úrvalsdeildinni 9. febr-
úar.
Dóra hafnaði jafnframt tveimurtilboðum frá sænskum úrvals-
deildarliðum, Jitex og Bälinge, en
hún hefur á síðustu vikum dvalið við
æfingar hjá þessum þremur félögum
og Örebro að auki.
„Það má segja að þetta hafi farið á
besta veg. Mér leist best á Malmö,
bæði aðstæður og styrk liðsins, og
það samræmdist best mínum metn-
aði að fara þangað. Það hefði getað
verið ágætur kostur að fara til bæði
Jitex og Bälinge en Malmö stendur
þessum félögum mun framar, hvað
varðar styrk og hefð,“ sagði Dóra við
Morgunblaðið í gær.
Sæti í byrjunarliðinu
ekki sjálfgefið
Hún fer fljótlega alfarin til Sví-
þjóðar. „Já, ég vil komast þangað
sem fyrst, ekki veitir af til þess að
kynnast nýjum samherjum, og svo
þarf ég heldur betur að hafa fyrir því
að komast í þetta sterka lið. Það er
langt frá því að vera sjálfgefið að
eiga sæti í byrjunarliðinu, það eru
fjölmargir góðir leikmenn hjá
Malmö, margar sænskar landsliðs-
konur, svo þetta verður erfitt en
skemmtilegt.“
Keppni í Svíþjóð hefst 17. apríl en
þá leikur Malmö sannkallaðan stór-
leik gegn Svíþjóðarmeisturum og
fyrrum Evrópumeisturum Umeå á
útivelli. Þessi tvö lið voru í sérflokki í
deildinni á síðasta ári en Umeå er oft
kallað „Chelsea kvennafótboltans“,
enda með sannkallað úrvalslið
margra af snjöllustu knattspyrnu-
kvenna heims.
Auðveldara eftir
frammistöðu Ásthildar
Ásthildur Helgadóttir, landsliðs-
fyrirliði Íslands, er nýkomin heim
eftir að hafa leikið með Malmö í rúm-
lega tvö ár. „Ásthildur hjálpaði mér
mikið, og eftir frammistöðu hennar
með liðinu var án efa auðveldara fyr-
ir mig að komast þangað,“ sagði
Dóra en Ásthildur var í hópi marka-
hæstu leikmanna sænsku úrvals-
deildarinnar á síðasta ári með 17
mörk í 22 leikjum.
Dóra er tvítug og er uppalin í Val.
Hún hefur spilað með meistaraflokki
Hlíðarendaliðsins frá 16 ára aldri og
var í lykilhlutverki í Íslandsmeist-
araliði félagsins 2004 og í fræknum
árangri liðsins í Evrópukeppninni
síðasta haust. Dóra varð enn fremur
bikarmeistari með Val 2001 og 2003.
Hún hefur spilað 64 leiki með liðinu í
efstu deild og skorað 22 mörk og á 16
A-landsleiki að baki, auk 43 leikja
með yngri landsliðum Íslands.
Það verða tveir Íslendingar í hin-
um ljósbláa búningi Malmö FF í ár
því Emil Hallfreðsson er kominn til
karlaliðs félagsins sem lánsmaður
frá Tottenham.
Dóra Stefánsdóttir gekk til liðs við til Malmö FF
„Samræmdist best
mínum metnaði“
DÓRA Stefánsdóttir, landsliðs-
kona í knattspyrnu úr Val, hefur
samþykkt tilboð frá sænska
stórliðinu Malmö FF. Samningur
hennar við félagið er til eins árs,
með ákvæði um framlengingu
til eins árs í viðbót. Malmö FF
hafnaði í öðru sæti sænsku úr-
valsdeildarinnar á síðasta ári,
en deildin er talin sú sterkasta í
heiminum um þessar mundir.
Morgunblaðið/Eggert
Dóra Stefánsdóttir
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
HVORKI Manchester United né
Liverpool náðu að nýta sér stiga-
missi Chelsea í ensku úrvalsdeild-
inni í gærkvöld. Chelsea gerði jafn-
tefli við Aston Villa á útivelli, 1:1,
en jók samt forskotið í 15 stig því
Manchester United tapaði í Black-
burn, 4:3, og Liverpool missti unn-
inn leik gegn Birmingham niður í
jafntefli, 1:1, á heimavelli.
David Bentley var maður kvölds-
ins, sólarhring eftir að hann var
keyptur til Blackburn frá Arsenal.
Bentley skoraði þrennu í bráðfjör-
ugum leik gegn United og lið hans
komst í 4:1. Ruud van Nistelrooy
kom inn á sem varamaður og svar-
aði tvisvar en það var ekki nóg. Rio
Ferdinand hjá United var rekinn af
velli undir lok leiksins.
Eiður Smári Guðjohnsen var í liði
Chelsea en fór af velli á 86. mínútu.
Arjen Robben kom Chelsea
snemma yfir en Luke Moore jafnaði
fyrir Villa á 77. mínútu.
Liverpool var manni fleiri gegn
Birmingham í rúman klukkutíma
eftir að Damien Johnson fékk rauða
spjaldið fyrir gróft brot á Daniel
Agger, sem lék sinn fyrsta leik fyrir
Liverpool. Steven Gerrard virtist
hafa tryggt Liverpool sigurinn með
marki en Xabi Alonso varð fyrir því
að skora sjálfsmark undir lok leiks-
ins, 1:1. Alonso var tvívegis hárs-
breidd frá því að kvitta fyrir það á
síðustu mínútunum.
Robbie Fowler kom inná hjá Liv-
erpool á 64. mínútu, við gífurlegan
fögnuð á Anfield. Á lokasekúndum
leiksins skoraði hann glæsimark
með hjólhestaspyrnu en því miður
fyrir hann og Liverpool var það
dæmt af vegna rangstöðu.
AP
David Bentley, sem Blackburn keypti frá Arsenal á þriðjudaginn, þakkaði fyrir sig og skoraði þrjú
mörk fyrir liðið gegn Manchester United í sigurleik á Ewood Park í Blackburn í gærkvöldi, 4:3.
Bentley
afgreiddi
United