Morgunblaðið - 02.02.2006, Síða 8
GUNNAR Pettersen, þjálfari
norska landsliðsins, segir að hann
geti ekki svarað því hvort leikmenn
liðsins verði með rétt hugarfar í
leiknum gegn Íslendingum en
Norðmenn töpuðu gegn Dönum í
gær. 35:31, og er síðasti leikurinn
gegn Íslendingum. „Þið verðið að
spyrja leikmenn liðsins að því, ég
hef ekki hugmynd um hvað þeir eru
að hugsa,“ sagði Pettersen og var
ekki ánægður með margt af því sem
komið hefur fram í norskum fjöl-
miðlum á meðan Evrópumeist-
aramótið hefur staðið yfir í Sviss.
Pettersen hefur hins vegar lagt á
ráðin með danska liðinu og ætlar að
koma því til hjálpar í síðasta leikn-
um gegn Íslendingum.
„Ég sagði við Ulrik Wilberg,
þjálfara danska landsliðsins, að við
myndum gera allt til þess að leggja
Íslendinga að velli – við erum ekki
stoltir af frammistöðu okkar til
þessa en ég tel að leikmenn norska
landsliðsins vilji gera betur í síðasta
leiknum. Við höfum leikið langt
undir getu til þessa og skýringin er
einföld. Undirbúningurinn hefur
ekki verið nægur, þegar allt er talið
hef ég haft eina klukkstund þar sem
ég hef haft alla leikmenn liðsins á
sama tíma til æfinga. Ég held
reyndar að það séu margir glaðir
yfir óförum okkar á mótinu til
þessa,“ sagði Pettersen en hann tel-
ur að dagar sínir séu nánast taldir
sem þjálfari landsliðsins. Hann
hrósar íslenska liðinu fyrir hraða-
upphlaupin sem séu þess skæðasta
vopn. „Ég hef sagt það áður og segi
það nú. Íslendingar eru heimsmeist-
arar þegar kemur að hraðaupp-
hlaupum. Það er ekki nóg að hafa
leikmann á borð við Guðjón Val Sig-
urðsson sem er alltaf fyrstur upp
völlinn. Það verða að vera leikmenn
sem geta gefið á hann og íslenska
liðið er með slíka leikmenn og ís-
lenska liðið er gríðarlega gott á
þessu sviði,“ sagði Pettersen við
Morgunblaðið í gær en hann hefur
verið þjálfari liðsins frá árinu 2001.
Pettersen lofar að aðstoða Dani
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson í St. Gallen
Viggó lauk miklu lofsorði á sveitsína þegar Morgunblaðið tal-
aði við hann skömmu eftir að flaut-
að hafði verið til leiksloka.
„Allir leikmenn mínir eiga heið-
ur skilinn fyrir framgöngu sína,
þeir sýndu frábæra baráttu, menn
gáfu allt sem þeir áttu í leikinn.
Með því móti settum við Króatana
hvað eftir annað í vandræði. Við
fórum hins vegar illa með nokkur
góð færi í leiknum og síðan var
þessi staða sem kom upp á loka-
kaflanum þegar við vorum sex á
móti fjórum og létum stela af okk-
ur boltanum. Það var hræðilegt en
því breytum við ekki nú,“ sagði
Viggó.
Balic vann leikinn
fyrir Króata
Þegar upp er staðið þá eru það
nokkur smáatriði sem eru talin
saman og skilja liðin að, ekki satt?
„Rétt er það. Við fengum færin
til þess að vinna annað stigið en
fórum á stundum illa að ráði okkar
þegar möguleiki var fyrir hendi.
Til dæmis þegar Ólafur Stefánsson
skaut í slá rúmri mínútu fyrir
leikslok og gat minnkað muninn í
eitt mark, við tveimur mönnum
fleiri og um ein mínúta til leiks-
loka. Hins vegar er ekki víst að
það hefði endilega skilað öðrum úr-
slitum. Það á aldrei eftir að koma í
ljós. Hins vegar verður að segja
eins og er að Balic vann leikinn
fyrir Króata á lokasprettinum. Við
hann réðum við ekki,“ sagði Viggó.
„Það er hreint ótrúlegt að hugsa
til þess hversu leikmenn mínir hafa
leikið frábærlega í öllu mótinu. Að
þessu sinni vorum við að glíma við
ólympíumeistara Króata og vorum
stutt frá því að skella þeim, ég get
því ekki annað en verið stoltur af
mannskapnum. Andinn í hópnum
er hreint framúrskarandi þrátt fyr-
ir öll þau áföll sem við höfum þurft
að glíma við.
Þeir sem eftir standa hafa hik-
laust fyllt upp í þau skörð sem
höggvin hafa verið. Ég er afar
ánægður með að fá Ásgeir Örn
Hallgrímsson inn í hópinn, hann
stóð sig vel. Arnór Atlason hefur
verið frábær allt mótið þótt hann
hafi gert mistök undir lokin í leikn-
um í dag. Arnór verður að leika
alla leiki frá upphafi til enda þar
sem enginn getur leyst hann af
hólmi. Hann hefur lagt sig full-
komlega fram í hvern leik frá upp-
hafi til enda og því hefur enginn
ástæðu til að ásaka hann,“ sagði
Viggó og lagði þunga áherslu á orð
sín.
Viggó segir að leikaðferð ís-
lenska liðsins hafi lengst af gengið
fullkomlega upp. Ivano Balic hafi
verið haldið niðri og einnig Petar
Metlecic. „Síðan fór Balic að leika
einleik, við gerðum ákveðin varn-
armistök í þrjú eða fjögur skipti og
það voru dýr mistök. Hvað sem því
líður þá getum við samt sem áður
verið afar stolt af okkar frábæra
landsliði,“ sagði Viggó.
„Við sýndum það strax í byrjun
leiks að það var ekkert til sem
heitir virðing hjá okkur fyrir and-
stæðingnum. Strax frá byrjun voru
menn ákveðnir í að vinna leikinn.
Þessi leikur eins og aðrir hér í
keppninni sýnir öðru fremur að við
erum komnir upp með frábært lið.
Núna verðum við hins vegar að
treysta á aðra til þess að komast í
úrslitin, Króatar eiga eftir að vinna
Serba og Rússar eiga einnig eftir
að ná fram sigri á Dönum. Þegar
upp verður staðið þá getur marka-
talan skipt máli um röðun þjóð-
anna í riðlinum og þá hverjar kom-
ast í undanúrslit og hverjar ekki.
Þannig að nú er ekkert annað að
gera en að bíða og sjá.“
Nú er næsti leikur við Norð-
menn sem þið þekkið vel eftir að
hafa mætt þeim sex sinnum á síð-
ustu mánuðum. Á það eftir að
reynast erfitt að hafa leikið svo oft
við þá á skömmum tíma?
„Við göngum í Noregsleikinn af
fullri hörku. Leikir okkar við
Norðmenn á skömmum tíma eiga
ekki að skipta neinu máli nú á EM.
Flestir leikmenn mínir eru at-
vinnumenn og þekkja hvað þarf til
þess að vinna. Norðmenn hafa ekk-
ert stig í riðlinum en við fimm
þannig að við verðum að standast
þessa raun ef við ætlum að standa
undir þeirri staðreynd að vera
komnir með frábært lið. Þá verð-
um við að vinna Norðmenn.“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Viggó Sigurðsson og Bergsveinn Bergsveinsson hafa staðið í ströngu á EM í Sviss.
„Við eigum eitt
besta lið heims“
VIÐ verðskulduðum annað stig-
ið úr þessum leik og því eru það
vonbrigði að tapa með einu
marki fyrir hinu frábæra liði
Króata,“ sagði Viggó Sigurðs-
son, landsliðsþjálfari í hand-
knattleik, eftir 28:29 tap ís-
lenska landsliðsins gegn
Króötum á Evrópumeist-
aramótinu í handknattleik en
við tapið dofnaði aðeins yfir
þeim vonum íslenska landsliðs-
ins að takast það afrek að kom-
ast í undanúrslit mótsins.
Eftir Ívar Benediktsson í St. Gallen
iben@mbl.is
Viggó Sigurðsson var stoltur af sínum mönnum þrátt fyrir tap fyrir Króötum
„ÞAÐ var alveg hrikalega sárt að
tapa þessum leik,“ sagði Berg-
sveinn Bergsveinsson aðstoð-
arlandsliðsþjálfari þegar hann
gekk af leikvelli að loknu eins
marks tapi fyrir Króötum, 28:29,
á Evrópumeistaramótinu í hand-
knattleik í St. Gallen. „Strákarnir
börðust eins og ljón og eiga svo
sannarlega heiður skilið fyrir þá
miklu vinnu sem þeir lögðu í leik-
inn. Þeir gáfust aldrei upp þótt á
móti blési,“ sagði Bergsveinn
ennfremur og bætti við að menn
hefðu ekki látið hug falla þótt
enn eitt áfallið hafi riðið yfir þeg-
ar aðeins tíu mínútur voru liðnar
af leiknum. Þá rotaðist Einar
Hólmgeirsson, kom ekkert meira
við sögu og hefur að öllum lík-
indum lokið keppni á EM að
þessu sinni.
„Það kemur maður í manns
stað og ætlun okkar er að halda
ótrauðir áfram í þessari keppni.
Uppgjöf er ekki til í þessum hópi,
menn berjast fram til síðustu
stundar. Við ætlum okkur í und-
anúrslitin, hvernig sem við förum
að því. Það er verst að hér eftir
verðum við að treysta á aðra í
þeim efnum.“
Bergsveinn sagði Króatana
hafa verið klóka, sérstaklega
undir lokin. Þá hafi miklu ráðið
frammistaða Ivano Balic sem reið
baggamuninn fyrir Króatana.
„Balic er einn sá besti í heimi og
sýndi okkur það í þessum leik.
Hann er erfiður viðureignar og
þurfti að sýna allar sínar bestu
hliðar til þess að draga vagninn
fyrir sitt lið. Það má hins vegar
ekki gleyma þeirri staðreynd að
við eigum marga frábæra hand-
knattleiksmenn einnig.“
Bergsveinn sagði að leikaðferð
íslenska liðsins hafi að mörgu
leyti gengið vel, þá sérstaklega í
fyrri hálfleik en því miður hafi
það ekki verið nóg þegar upp var
staðið. „Við byrjuðum á að taka
Balic mjög framarlega á vellinum
og síðan að „skerma“ Petar
Metlicic alveg út þannig að send-
ingar út í hægra hornið á Mirza
Dzomba yrðu erfiðar. Þetta gekk
lengst af og þegar á heildina er
litið var varnarleikurinn og
markvarslan ekki okkar höf-
uðverkur að þessu sinni, heldur
kannski það að við hefðum mátt
nýta betur opin færi okkar og þá
áttum við að vera klókari á loka-
kaflanum þegar við vorum sex á
móti fjórum. Guðjón Valur Sig-
urðsson hefði kannski átt líka að
fara fyrr inn úr horninu, þegar
hann fór að stinga sér þar inn þá
lá allt inni,“ sagði Bergsveinn.
Norðmenn með hörkulið
Í dag mætir íslenska landsliðið
Norðmönnum sem eru stigalausir
í riðlinum eftir enn eitt tapið í
gærkvöld. „Nú er bara að fara á
fullri ferð í þennan leik við Norð-
menn og síðan bara að vona það
besta með úrslit annarra leikja.
Norðmenn eru með hörkulið
hvernig sem úrslit þeirra hafa
verið til þessa á mótinu, þeir hafa
tapað flestum leikjum sínum með
litlum mun. Fram undan er því
jöfn og spennandi viðureign við
Norðmennina þar sem við verð-
um að halda áfram á þeirri braut
sem við höfum verið á,“ sagði
Bergsveinn Bergsveinsson, að-
stoðarlandsliðsþjálfari í hand-
knattleik.
„Alveg
hrika-
lega
sárt tap“
Eftir Ívar Benediktsson í St. Gallen