Morgunblaðið - 12.02.2006, Side 15
12.2.2006 | 15
2. Hefur þú fengið „trukk“ inn í líf þitt?
1. „Lilja er systir Péturs og að fara að giftast Berki. Hún er í rauninni ein af röddum samviskunnar í þessari mynd, eins konarlím í fjölskyldunni; henni er mikið í mun að allt sé í lagi, enda sjálf á viðkvæmum tímamótum í sínu lífi. Hún horfir með
hryllingi á hjónaband Ástu og Péturs leysast upp vegna þess að hún lítur upp til þeirra beggja; hjónaband þeirra var henni að vissu
leyti fyrirmynd. Lilja segir sitthvað við Pétur sem hann vill ekkert endilega heyra en hún neyðir hann til að horfast í augu við. Hún er
eins og íslenskar konur eru margar, sterkur karakter, ákveðin og fylgin sér, jafnvel pínu stjórnsöm.“
2. „Höfum við ekki öll orðið fyrir einhverjum lífstrukki? Hann þarf ekkert endilega að vera slæmur; trukkar geta verið góðir,valdið breytingum sem kannski voru nauðsynlegar og jákvæðar en maður var ekki tilbúinn til að viðurkenna. Ég hef þurft
að endurskoða líf mitt eftir að hafa orðið fyrir trukki, segjum t.d. við sambandsslit, en það er alltaf upphafið að einhverju nýju og get-
ur orðið til góðs. Ástvinamissir og önnur slík áföll eru hins vegar erfiðari.“
ELMA LÍSA GUNNARSDÓTTIR Lilja
1. „Anna er um tvítugt og svolítiðað leika sér að lífinu. Hún hefur
engum skyldum að gegna gagnvart einum
eða neinum nema sjálfri sér. Hún er, gæti
ég ímyndað mér, í hléi frá skólanámi og
vinnur fyrir sér sem ritari á augnlækna-
stofunni hjá Pétri á meðan hún er að
reyna að átta sig á því hvað hún vill gera í
lífinu. Og þegar Pétur lendir í krísu í sínu
lífi fer hann inn í líf Önnu og tekur krísuna með sér sem hefur öðruvísi áhrif á hana
en hann vegna þess að þau eru stödd á ólíkum stöðum í lífinu. Mér finnst ég skilja
Önnu ágætlega á einhvern hátt. Pétur er trukkurinn sem keyrir inn í hennar líf.“
2. „Já, ég hef sjálf orðið fyrir svona trukki án þess ég vilji tjá mig um það ísmáatriðum. Ég get þó sagt að trukkurinn var í rauninni ég sjálf, því ég fór
ekki nógu vel með mig. En ég lærði bara af því. Maður þarf að hlusta á sjálfan sig.“
LAUFEY
ELÍASDÓTTIRAnna
1. „Börkur starfar sem múrari, erekkert óskaplega flókinn karakter
og gott að hafa hann í kringum sig því
hann er tiltölulega einföld og góð sál.
Hann er að fara að ganga í hjónaband með
systur Péturs og hefja fjölskyldulíf á sama
tíma og hann horfir upp á upplausn þessa
hjónabands og fjölskyldu sem stendur
honum nærri. Börkur er „nó búllsjitt“-
maður sem vill ekki flækja málin, er ást-
fanginn af Lilju og hlakkar til að kvænast
henni. Þeirra samband er þó heldur ekki
dans á rósum; þau höfðu hætt áður við brúðkaup og rofin milli Péturs og Ástu hafa
áhrif á þau.“
2. „Já, ég hef fengið trukk inn í líf mitt, ekki nákvæmlega svona trukk, entrukk samt. Það var skelfileg reynsla. Maður á sér líf, sem maður heldur að
sé raunveruleikinn, en kemst svo allt í einu að því að þannig er það ekki. Það hlýtur
alltaf að vera rosalegt áfall, en veltur á hverjum og einum hvernig hann vinnur sig
út úr því. Í tilfelli Péturs felst vinnan í því að setjast niður og komast að niðurstöðu
um hvað skipti hann í rauninni máli í lífinu. Stundum þarf að kyngja stoltinu og
halda áfram, en stundum er betra að gera það ekki og breyta.“
ÓLAFUR
DARRI
ÓLAFSSONBörkur