Morgunblaðið - 04.04.2006, Qupperneq 1
2006 ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL BLAÐ C
SKALLAGRÍMUR KNÚÐI FRAM ODDALEIK / C4
GUNNAR Þór Gunnarsson er kominn með leik-
heimild með sænska liðinu Hammarby. Síðustu
pappírarnir voru undirritaðir í gær, en Gunnar
samþykkti tilboð frá félaginu um helgina og gild-
ir samningur hans til þriggja ára.
Gunnar Þór leikur í kvöld sinn fyrsta alvöru-
leik með liðinu þegar það tekur á móti Helsing-
borg í lokaleiknum í fyrstu umferð sænsku úr-
valsdeildarinnar. Anders Linderoth, þjálfari
Hammarby, sagði á heimasíðu félagsins í gær, að
Gunnar yrði í byrjunarliðinu í treyju númer 16 - í
stöðu vinstri bakvarðar. ,,Ég er ekkert stressað-
ur fyrir þennan leik heldur hlakkar mig bara til.
Það hefur ekki snjóað meira hérna í Svíþjóð í ein-
hver 50 ár en við æfðum á vellinum í gær og ég
held hann verði allt í lagi. Lítið um grænt gras en
völlurinn er sléttur,“ sagði Gunnar Þór við Morg-
unblaðið í gær.
Gunnar Þór beint
í Hammarbyliðið
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N AB L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
Tvær breytingar eru á leikmanna-hópnum frá leiknum gegn Eng-
lendingum í síðasta mánuði sem
Englendingar höfðu betur í, 1:0. Ást-
hildur Helgadóttir fyrirliði kemur
inn í hópinn að nýju en hún gat ekki
leikið með Englendingum vegna
meiðsla sem hún hefur nú jafnað sig
á. Þá tekur Sandra Sigurðardóttir,
Stjörnunni, sæti Guðbjargar Gunn-
arsdóttur, markvarðar úr Val, sem
meiddist á hné á dögunum.
Hópurinn er þannig skipaður að
markverðir eru Þóra B. Helgadóttir,
Breiðabliki (42) og Sandra Sigurðar-
dóttir, Stjörnunni (1).
Aðrir leikmenn: Ásthildur Helga-
dóttir, Breiðabliki (61), Olga Fær-
seth, KR (53), Guðlaug Jónsdóttir,
Breiðabliki (51), Edda Garðarsdótt-
ir, Breiðabliki (37), Guðrún S. Gunn-
arsdóttir, Breiðabliki (27), Margrét
Lára Viðarsdóttir, Val (19), Dóra
Stefánsdóttir, Val (17), Hólmfríður
Magnúsdóttir, KR (15), Dóra María
Lárusdóttir, Val (13), Erla S. Arnar-
dóttir, Mallbackens (9), Ásta Árna-
dóttir, Val (6), Ólína G. Viðarsdóttir,
Breiðabliki (6), Laufey Jóhannsdótt-
ir, Val (5), Greta Mjöll Samúelsdótt-
ir, Breiðabliki (2) og Harpa Þor-
steinsdóttir, Stjörnunni (1).
TONI Schumacher, fyrrverandi landsliðsmarkvörð-
ur Þjóðverja í knattspyrnu – sem lék í marki þeirra í
heimsmeistarakeppninni á Spáni 1982 og í Mexíkó
1986, segist vera nokkuð viss um að Jens Lehmann
muni verja mark Þjóðverja á heimsmeistaramótinu
í Þýskalandi í sumar, en ekki Oliver Kahn.
Slagurinn um mark-
varðarstöðuna er orðinn
að hálfgerðri sápuóperu í
þýskum fjölmiðlum og
Schumacher segir að hún
muni halda áfram þegar
landsliðsþjálfarinn Jürg-
en Klinsmann tilkynni þá
ákvörðun sína að Leh-
mann verði aðalmark-
vörður liðsins. Lehmann
hefur sjaldan leikið betur
en á þessu tímabili með
Arsenal.
,,Ég get ekki séð neina
ástæðu fyrir því að velja
ekki Kahn Ég hef það
sterklega á tilfinningunni
að Lehmann verði fyrir valinu. Jens var svo sallaró-
legur í öllum viðtölum eftir leik Arsenal og Juventus
á dögunum og það var alveg eins og hann vissi að
yrði hann aðalmarkvörður landsliðsins á HM,“ sagði
Schumacher við þýska netmiðilinn Sport 1.
Klinsmann hefur staðfest að hann muni taka
ákvörðun um markvarðarstöðuna í byrjun maí áður
en hann tilkynnir 23 manna hópinn.
Sjálfur hefur Oliver Kahn látið hafa eftir sér að
hann verði í markinu. Kahn hefur ekki þótt leika vel
í marki Bæjara á tímabilinu og mörkin tvö sem Bay-
ern fékk á sig gegn Köln um nýliðna helgi voru að
hluta til skráð á hans reikning. Meiðsli í mjöðm hafa
líklega spilað þar inn í. Kahn var skipt út af í hálf-
leik.,,Samkeppni er af hinu góða en ef Kahn er
svona sannfærður um að standa í markinu á HM þá
hefði hann ekki átt að spila meiddur í leiknum á móti
Köln,“ sagði Schumacher.
Schumacher
veðjar á
Lehmann
Reuters
Jens Lehmann
LEIKMENN Skautafélags Akur-
eyrar, SA, unnu liðsmenn Skauta-
félags Reykjavíkur, SR, 5:3, í fyrsta
leik liðanna í úrslitakeppni karla í
íshokkíi í gærkvöldi, en liðin mætt-
ust á svellinu í Skautahöllinni í
Laugardal. SA byrjaði betur og
vann fyrsta leikhluta 1:2, en SR
svaraði að bragði í öðrum leikhluta
með því að jafna í 3:3. Leikmenn SA
voru hins vegar útsjónarsamari í
þriðja og síðasta leikhluta og gerðu
þá tvö mörk án þess að SR næði að
svara fyrir sig. Það liðið sem fyrr
vinnur þrjá leiki verður Íslands-
meistari.
Morgunblaðið/Sverrir
SA sótti
sigur suðurJörundur velur liðið sem
mætir Hollendingum
JÖRUNDUR Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu,
hefur valið 18 manna hóp fyrir vináttuleik Íslendinga gegn Hollend-
ingum sem háður verður í Zwolle í Hollandi 12. þessa mánaðar.
Tvær breytingar á landsliði kvenna í knattspyrnu frá leiknum við Englendinga