Morgunblaðið - 04.04.2006, Síða 4
Það var ótrúlegt að sjá til meist-araliðs Keflavíkur í fjórða leik-
hluta þar sem liðið náði aðeins að
skora 8 stig gegn 22 stigum Borg-
nesinga. Sóknarleikur Keflavíkur
var í molum á þessum tíma og mikið
af tæknilegum mistökum sem leik-
menn liðsins gerðu en það verður
ekki tekið af Skallagrímsliðinu að
það fann nokkur tromp upp í erminni
þegar mest á reyndi.
Lokakafli leiksins var gríðarlega
spennandi en Keflavík var með fimm
stiga forskot í upphafi fjórða leik-
hluta, 77:72.
Makedóníumennirnir Dimitar
Karadovski og Jovan Zdravevski
tóku til sinna ráða og skoruðu tvær 3
stiga körfur og breyttu stöðunni í
78:77. Og þeir félagar voru aftur á
ferðinni er þeir settu niður tvær 3
stiga körfur í röð og komu heimalið-
inu í 88:85 er um tvær mínútur voru
eftir af leiknum. Á síðustu mínútum
leiksins gekk mikið á en pressuvörn
Keflavíkur gekk ekki upp og Hafþór
Gunnarsson og Axel Kárason sáu um
að skora síðustu stig leiksins og
tryggja liðinu oddaleik í Keflavík á
fimmtudaginn. Lokatölur 94:85.
„Keflvíkingar voru búnir að
pressa okkur allan völlinn nánast frá
upphafi og það var farið að draga af
þeim í lokin. Ég held að það hafi
hjálpað okkur að þeir voru orðnir
þreyttir. Skotvalið var líka betra hjá
okkur eftir því sem leið á leikinn. Í
upphafi síðari hálfleiks vorum við að
taka léleg skot eftir að hafa brotið
pressuvörnina á bak aftur. Þegar við
fórum að hægja aðeins á leiknum og
nýta okkur George Byrd í vítateign-
um og fá meiri hreyfingu á boltann
lagaðist leikur okkar. Ég er rosalega
stoltur af strákunum að koma sér í
þá aðstöðu að leika oddaleik gegn Ís-
landsmeisturunum. Liðið er ungt og
reynslulaust, en hugarfarið þarf að
vera í lagi í oddaleiknum,“ bætti Val-
ur við.
Keflvíkingar hafa eflaust rifjað
upp margt í gær sem fór úrskeiðis
hjá liðinu enda var liðið til alls líklegt
í upphafi síðari hálfleiks. Þar fór
Vlad Boeriu á kostum og raðaði nið-
ur stigunum og var maðurinn á bak
við 10 stiga forskot liðsins, 66:56, en
Boeriu nýtti sér það vel að Byrd stóð
í vítateignum í vörninni og fylgdi
honum ekki eftir þegar hann fór út
að 3 stiga línunni. Boeriu skoraði alls
19 stig í leiknum. Eftir þessa rispu
var eins og að hungrið væri ekki
nógu mikið til þess að slá Borgnes-
inga út af laginu. Heimaliðið svaraði
fyrir sig með gríðarlega góðri
skorpu undir lok þriðja leikhluta þar
sem Axel Kárason og Byrd fóru mik-
inn.
Ekki má gleyma framlagi leik-
stjórnandans Dimitar Karadovski í
liði Borgnesinga sem lagði sitt af
mörkum og skoraði alls 22 stig, flest
úr skotum utan við 3ja stiga línuna.
„Dimitar er meiddur og hefur ekki
getað beitt sér að fullu. Hann vill
hinsvegar ekki ræða það að hvíla á
þessum tímapunkti tímabilsins.
Hann er sárþjáður en gerir eins og
hann getur. Í þessum leik var hann
gríðarlega góður og getur gert enn
meira ef hann fær tvo daga til þess
að jafna sig fyrir oddaleikinn. Það
verða ekki erfiðar æfingar hjá okkur
næstu daga,“ sagði Valur Ingimund-
arson.
Leikmenn Keflavíkurliðsins voru
lengi í búningsherbergjum sínum
eftir leikinn og gafst ekki færi á að
ræða við leikmenn eða þjálfara liðs-
ins, Sigurð Ingimundarson, eftir
leikinn. Sigurður leyndi því ekki á
meðan leikurinn fór fram að hann
var langt frá því að vera sáttur við
úrvinnslu leikmanna á þeim atriðum
sem lögð voru upp fyrir leikinn. Í
fjórða leikhluta náði liðið alls ekki að
leika eins og það getur gert best.
Skotvalið var slakt, varnarleikurinn
gloppóttur og tæknileg mistök í
sóknarleiknum voru mörg. Það verð-
ur því spennandi að sjá hvernig liðin
mæta til leiks í oddaleikinn á
fimmtudaginn á heimavelli Keflavík-
ur.
Skallagrímur
svaraði fyrir sig
Morgunblaðið/Svanur Steinarsson
Jovan Zdravevski, leikmaður Skallagríms, á auðum sjó. Vlad
Boeriu og AJ Moye fá ekkert við hann ráðið.
„ÞETTA 50 stiga tap í Keflavík í
þriðja leiknum snerti mig ekki
og við vorum löngu búnir að
gleyma þeim leik. Við lærðum
margt af þeim leik en við sýnd-
um að við getum gert góða hluti.
En ég ætla að spara yfirlýsing-
arnar fyrir oddaleikinn í Kefla-
vík, við mætum þar til leiks með
sömu markmið og áherslur og
fyrir alla aðra leiki,“ sagði Valur
Ingimundarson, þjálfari Skalla-
gríms úr Borgarnesi, eftir 94:85
sigur liðsins gegn Íslandsmeist-
araliði Keflavíkur í gær. Liðin
eigast við í oddaleik um hvort
þeirra mætir Njarðvíkingum í
úrslitum Íslandsmótsins og
miðað við stemmninguna í her-
búðum Borgnesinga í gær getur
allt gerst í framhaldinu.
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
FYLKIR sigraði norska 2. deildar-
liðið Randeberg, 4:2, í æfingaleik í
Portúgal í gær. Haukur Ingi Guðna-
son, Páll Einarsson og Daninn Peter
Gravesen voru á skotskónum fyrir
Árbæjarliðið en fjórða markið var
sjálfsmark.
HELGI Valur Daníelsson lék allan
leikinn fyrir Öster þegar liðið gerði
markalaust jafntefli við IFK Gauta-
borg í fyrstu umferð sænsku úrvals-
deildarinnar í gær. Hjálmar Jónsson
er á sjúkralista IFK.
EMIL Hallfreðsson var ekki í leik-
mannahópi Malmö FF í gær þegar
liðið fékk aðeins eitt stig úr úr við-
ureign sinni við Häcken, 1:1, á
heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu.
SIGURÐUR Ari Stefánsson skor-
aði fjögur mörk fyrir Elverum sem
tapaði fyrir Sandefjord, 35:29, í
norsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik í fyrrakvöld. Elverum er í átt-
unda sæti en ein umferð er eftir af
deildarkeppninni.
KRISTINN Björgúlfsson skoraði
tvö mörk fyrir Runar sem tapaði fyr-
ir Drammen, 25:24. Tapið gerði það
af verkum að Runar er fallið úr úr-
valsdeildinni en liðið er í næstneðsta
sæti úrvalsdeildarinnar.
ANNA Úrsúla Guðmundsdóttir
skoraði eitt mark og Nína Björk
Arnfinnsdóttir fyrir Levanger þeg-
ar lið þeirra tapaði fyrir Stabæk,
26:24, í lokaumferð norsku úrvals-
deildarinnar. Lavanger hafnaði í 10.
sæti af 12 liðum og þarf að spila tvo
aukaleiki við liðið sem endar í þriðja
sæti 1. deildarinnar um laust sæti í
úrvalsdeildinni.
HALLDÓR Jóhann Sigfússon
skoraði fimm mörk fyrir Essen þeg-
ar liðið burstaði Aledekerk, 34:21, í
þýsku 3. deildinni í handknattleik í
fyrradag. Essen hefur unnið alla 26
leiki sína í deildinni.
FLORIAN Kehrmann, hornamað-
ur Lemgo og þýska landsliðsins,
meiddist á hné í leik Lemgo og
Gummersbach í fyrradag. Í fyrstu
var óttast að krossband hefði slitnað
en við skoðun í gær kom í ljós að svo
var ekki. Hann verður hins vegar frá
keppni í 4–6 vikur sem þýðir að hann
missir nær örugglega af úrslitaleikj-
um Lemgo og Göppingen í EHF-
keppninni en leikirnir fara fram 23.
og 30. apríl.
LUKE Young, fyrirliði Charlton,
meiddist á ökkla í leiknum gegn
West Ham í fyrradag og er talið víst
að hann missi af leik Charlton gegn
Middlesbrough í undanúrslitum
ensku bikarkeppninnar sem fram fer
12. þessa mánaðar.
ARSENAL hefur augastað á
franska miðjumanninum Yoann
Gourcuff sem leikur með Rennes.
Gourcuff er 19 ára gamall og hefur
vakið mikla athygli í frönsku 1. deild-
inni á tímabilinu. Arsenal er ekki
eina liðið sem hefur sýnt hefur pilti
áhuga. Ítölsku liðin AC Milan og
Juventus ku vera spennt að fá leik-
manninn eftir því sem fram kemur í
ítalska íþróttablaðinu Gazzetta dello
Sport.
INIGO Idiankez, leikmaður Derby
County, var í gær útnefndur besti
leikmaður marsmánaðar í ensku 1.
deildinni. Idiankez, sem er 32 ára
gamall spænskur miðjumaður, skor-
aði þrjú mörk í fjórum leikjum
Derby í mánuðinum og er hann
markahæsti leikmaður Derby á leik-
tíðinni með 11 mörk.
ÞRÍR gamalkunnir þýskir lands-
liðsmenn hafa verið skipaðir sendi-
herrar heimaborga sinna í Þýska-
landi – í sambandi við heims-
meistarakeppnina í sumar. Það eru
þeir Siegfried Held, fyrrverandi
landsliðsþjálfari Íslands, í Dort-
mund, Uwe Seeler í Hamborg og
Gerd Müller í München.
FÓLK
JOVAN Zdravevski, framherji
Skallagríms, skoraði 21 stig gegn
Keflavík í gær og gerði mikilvæga
þriggja stiga körfu í 4. leikhluta er
hann kom Borgnesingum yfir,
88:85, þegar aðeins um tvær mín-
útur lifðu af leiknum. Makedóníu-
maðurinn var illviðráðanlegur í
sókn sem vörn á lokakafla leiksins
og hann lét ekki segja sér það tvisv-
ar að skjóta þegar færi gafst.
Jovan sagði að munurinn á úti-
velli og heimavelli væri gríðarlegur
en hann var samt sem áður handviss
um að hægt væri að leggja Íslands-
meistarana að velli á þeirra eigin
heimavelli – þrátt fyrir 50 stiga tap-
leikinn á dögunum.
„Við getum verið skynsamir og
nýtt styrk okkar. Ef við gerum það
getum við unnið öll lið. Í þessum leik
náðum við að gera það sem við erum
bestir í. Ég held að við getum alveg
haldið áfram með þá hluti í Kefla-
vík. Ef við náum að halda í við
Keflavík í oddaleiknum fram undir
lokin er ég ekki í vafa um að við
vinnum,“ sagði Zdravevski en hann
hafði gaman af því að ræða við
stuðningsmenn Keflavíkur og fékk
hann orð í eyra undir lok leiksins.
„Svona á körfuboltinn að vera. Mér
finnst þetta frábært, að fá áhorf-
endur með í leikinn og mér er alveg
sama hvað þeir segja við mig og um
mig. Ég reyni bara að hafa gaman
af leiknum,“ sagði Makedóníumað-
urinn Kovan Zdravevski.
Höfum engu að tapa
Hafþór Gunnarsson, leikmaður
Skallagríms, sagði að margt hefði
verið rætt og ritað eftir tapleikinn í
Keflavík og var hann greinilega
ósáttur við margt sem þar fór fram.
„Við vorum byrjaðir að hvetja okk-
ur áfram í lok leiksins í Keflavík.
Ætluðum okkur að jafna metin á
heimavelli og fá annað tækifæri í
oddaleik í Keflavík. Það gekk upp
og við notuðum einnig þá umfjöllun
sem við fengum um okkur til þess að
hvetja okkur áfram. Morgunblaðið
sagði að við værum eins og ungbörn
og það fór ekki vel í okkur,“ sagði
Hafþór. „Við höfum engu að tapa úr
þessu. Mætum Íslandsmeistaralið-
inu á þeirra heimavelli í oddaleik í
undanúrslitum. Það gerist ekki
betra,“ sagði Hafþór Gunnarsson.
„Svona á körfubolti að vera“