Morgunblaðið - 18.04.2006, Side 1
2006 ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL BLAÐ B
NJARÐVÍKINGAR ÍSLANDSMEISTARAR Í KÖRFUKNATTLEIK KARLA/B4
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N AB L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
HÖRÐUR Sveinsson skoraði
fyrra mark Silkeborg í 2:1 sigri á
Horsens í dönsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í fyrradag. Hörður
skoraði fyrsta mark leiksins á 16.
mínútu með glæsilegri hjólhesta-
spyrnu en þetta var fimmta mark
Keflvíkingsins í átta leikjum með
liðinu.
Hörður lék allan leikinn í fram-
línu Silkeborg og Bjarni Ólafur
Eiríksson lék allan leikinn í stöðu
vinstri bakvarðar.
Með sigrinum komst Silkeborg
upp í sjötta sæti deildarinnar.
Liðið hefur 33 stig eftir 28 leiki.
Glæsimark
Harðar fyrir
Silkeborg
EINAR Örn Jónsson, landsliðs-
maður í handknattleik og leik-
maður spænska fyrstudeildarliðs-
ins Torrevieja, er undir smásjá
forráðamanna þýska fyrstudeild-
arliðsins GWD Minden, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Hyggj-
ast þeir gera Einari Erni tilboð á
næstu dögum um að koma til liðsins
í sumar. Framkvæmdastjóri GWD
Minden og þjálfari liðsins, Richard
Ratka, hafa á undanförnum vikum
fylgst grannt með Einari Erni og í
lok síðustu viku voru þeir í Magde-
burg þar sem íslenska landsliðið
var við æfingar. Ræddu þeir við
Einar Örn, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, um hugsanlegan
samning.
Einar Örn hefur í vetur leikið
með Torrevieja en er laus mála þar
við lok keppnistímabilsins í vor.
Áhugi mun vera hjá forsvars-
mönnum spænska liðsins á að gera
nýjan samning við Einar enda hef-
ur hann leikið vel á keppnistíma-
bilinu og er m.a. einn markahæsti
leikmaður liðsins. Nýtt tilboð hefur
hins vegar ekki litið dagsins ljós,
eftir því sem næst verður komist.
Einar Örn mun hafa áhuga á að
leika í Þýskalandi á nýjan leik en
hann lék við góðan orðstír um
þriggja ára skeið hjá Wallau
Massenheim, frá 2002 til 2005.
Einn Íslendingur er þegar hjá
Minden, Snorri Steinn Guðjónsson,
en forsvarsmenn liðsins hafa góða
reynslu af íslenskum handknatt-
leiksmönnum þar sem ekki færri en
átta íslenskir leikmenn hafa verið á
mála hjá Minden á síðustu þremur
áratugum.
Einar Örn
undir smásjá
GWD Minden
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Eiður var í byrjunarliði Chelseaþegar liðið gerði markalaust
jafntefli við Birmingham hinn 1. apr-
íl. Honum var skipt út af á 68. mínútu
en í leikjunum þremur á eftir gegn
West Ham, Bolton og Everton hefur
hann ekki verið valinn í leikmanna-
hópinn.
„Ég er ekkert meiddur eða veikur.
Ég hef bara ekki verið valinn í hóp-
inn og maður verður bara að taka
því. Ég hef áður lent í þessu en hef
alltaf komið sterkur til baka. Auðvit-
að vill maður spila alla leiki en það er
ekki í mínum höndum að ákveða
það,“ sagði Eiður Smári í samtali við
Morgunblaðið í gær. Eiður segir fátt
geta komið í veg fyrir að Chelsea
verði Englandsmeistari. „Þetta er
nánast í höfn hjá okkur en við þurf-
um samt eitt stig til viðbótar og með-
an svo er getum við ekki byrjað að
fagna alveg strax en óneitanlega er
staða okkar mjög vænleg.“
Spurður út í framtíðina hjá
Chelsea sagði Eiður: „Ég er á samn-
ingi við Chelsea til 2008 og meira veit
ég ekki.“
Hann hefur verið í herbúðum
Chelsea í sex ár og af þeim leik-
mönnum sem eru á mála hjá félaginu
í dag hefur landsliðsfyrirliðinn þjón-
að því lengst allra. Eiður hefur leikið
samtals 262 leiki fyrir Chelsea og
skorað í þeim leikjum 78 mörk.
Eiður ekki í
náðinni hjá
Mourinho
EIÐUR Smári Guðjohnsen var ekki í leikmannahópi Englandsmeist-
ara Chelsea þriðja leikinn í röð þegar liðið lagði Everton á heima-
velli sínum, Stamford Bridge, í gær, 3:0.
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.isVALUR reið ekki feitum hesti frá
fyrri leik sínum gegn rúmenska lið-
inu Tomis Constanta í undan-
úrslitum Áskorendakeppni kvenna í
handknattleik en liðin áttust við í
Rúmeníu á páskadag. Constanta
vann 12 marka sigur, 37:25, en stað-
an í leikhléi var 21:8.
Rúmensku leikmennirnir áttu
ekki í miklum erfiðleikum með að
komast í gegnum vörn Vals en Valur
lék vörnina framarlega í fyrri hálf-
leiknum. Staðan eftir 10 mínútna
leik var 7:3 en þá settu þær rúm-
ensku í gírinn. Þær skoruðu 14 mörk
gegn 5 á lokakafla fyrri hálfleiksins
og gerðu út um leikinn.
Í seinni hálfleik lagaðist leikur
Valsliðsins til mikilla muna. Liðið fór
í 6:0 vörn og gekk Valsstúlkum
miklu betur að eiga við þær rúm-
ensku. Seinni hálfleikur endaði
17:16, Constanta í vil.
Sjö vítaköst fóru í súginn hjá Val
en Ágústa Edda Björnsdóttir var
markahæst Valskvenna með 8 mörk,
Alla Georgjísdóttir kom næst með 6
og Drífa Skúladóttir skoraði 5.
Berglind Íris Hansdóttir varði 16
skot í markinu. Það er því ljóst að á
brattann verður að sækja fyrir Val
þegar liðin eigast við í Laugardals-
höllinni á sunnudag en með hjálp
fyrirtækja verður ókeypis aðgangur
að leiknum og vonandi fjölmennir
fólk og styður við bakið á Val.
Ljósmynd/Aleksandar Djorovic
Hafrún Kristjánsdóttir, línumaður úr Val, sækir hér að marki rúmenska liðsins Tomis Constanta í Evrópuleiknum í Rúmeníu.
Tólf marka
tap Vals í
Rúmeníu
ALAN Shearer, framherji Newcastle, óttast að
leikurinn gegn Sunderland í gær hafi verið sinn
síðasti á löngum og glæsilegum ferli. Shearer
varð fyrir meiðslum í hné skömmu eftir að hafa
skorað eitt af fjórum mörkum liðsins og við
fyrstu skoðun bendir allt til þess að hann geti
ekki verið með í síðustu þremur leikjum New-
castle á tímabilinu.
„Þetta lítur ekki vel út. Það er haldið að lið-
band sé rifið og reynist svo vera er ég hræddur
um að þetta sé búið hjá mér,“ sagði hinn 35 ára
gamli fyrirliði Newcastle sem fyrr á leiktíðinni
gaf það út að hann ætlaði að leggja knatt-
spyrnuskóna á hilluna í sumar.
Shearer hefur verið í herbúðum Newcastle í 10
ár og skorað 206 mörk í 404 leikjum. Hann hóf
ferilinn hjá Southampton og fór þaðan til Black-
burn en samtals hefur hann leikið 733 leiki og
skorað í þeim leikjum 379 mörk. Þá lék hann 63
leiki fyrir enska landsliðið og skoraði 30 mörk.
Ferillinn á enda
hjá Shearer?