Morgunblaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ úrslit HANDKNATTLEIKUR Grótta – Stjarnan 20:26 Seltjarnarnes, úrvalsdeild kvenna, DHL- deildin, þriðjudagur 9. janúar 2007. Gangur leiksins: 0:2, 2:7, 4:10, 6:14, 7:16, 9:16, 11:19, 15:20, 16:23, 18:24, 20:26. Mörk Gróttu: Natasa Damljanovic 8/4, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 6, Ragna Karen Sigurðardóttir 3, Þórunn Frið- riksdóttir 2, Arndís María Erlingsdóttir 1. Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 11 (þar af fjögur aftur til mótherja). Utan vallar: Aldrei. Mörk Stjörnunnar: Kristín Guðmunds- dóttir 6, Kristín Clausen 4, Anna Blöndal 4, Rakel Dögg Bragadóttir 4/2, Elísabet Gunnarsdóttir 3, Jóna Margrét Ragn- arsdóttir 3, Ásdís Sigurðardóttir 1, Alina Patrace 1. Varin skot: Florentina Grecu 15/1 (þar af sex aftur til mótherja), Helga Vala Jóns- dóttir 1/1. Utan vallar: 8 mínútur. Áhorfendur: Um 250. Dómarar: Helgi Rafn Hallsson og Sig- urjón Þórðarson. Ágætir. Valur – HK 29:29 Laugardalshöll: Mörk Vals: Ágústa Edda Björnsdóttir 10, Brynja Steinsen 6, Sigurlaug Rúnars- dóttir 3, Drífa Skúladóttir 3, Hafrún Kristjánsdóttir 2, Guðrún Drífa Hólm- geirsdóttir 2, Katrín Andrésdóttir 2, Arna Grímsdóttir 1. Mörk HK: Auksé Vysniauskaité 8, Arna Sif Pálsdóttir 7, Tatjana Zukovska 6, Auður Jónsdóttir 6, Elísa Viðarsdóttir 1, Rut Jónsdóttir 1. Akureyri – Fram 13:19 Staðan: Valur 11 8 2 1 298:254 18 Stjarnan 10 8 0 2 310:214 16 Grótta 12 8 0 4 306:280 16 Haukar 11 7 0 4 319:270 14 ÍBV 9 5 1 3 241:227 11 Fram 12 4 3 5 276:301 11 HK 11 3 1 7 287:338 7 FH 11 2 1 8 241:295 5 Akureyri 11 0 0 11 203:302 0 KÖRFUKNATTLEIKUR ÍR – Skallagrímur 92:88 Seljaskóli, Lýsingarbikarkeppni karla, 8- liða úrslit, þriðjudagur 9. janúar 2007: Gangur leiksins: 0:3, 7:7, 7:17, 14:17, 16:24, 27:26, 34:28, 38:36, 38:45, 43:49, 50:51, 50:53, 52.55, 61:55, 61:61, 73:61, 73:64, 75:72, 82:77, 84:81, 92:88. Stig ÍR: Hreggviður Magnússon 32, Nate Brown 17, Steinar Arason 15, Eiríkur Önundarson 8, Fannar Helgason 7, Sveinbjörn Claessen 7, Ómar Sævarsson 4, Ólafur Sigurðsson 2. Fráköst: 28 í sókn, 10 í vörn. Stig Skallagríms: Darrell Flake 25, Jov- an Zdravevski 18, Axel Kárason 15, Di- mitar Karadzovski 8, Finnur Jónsson 8, Hafþór Gunnarsson 8, Pétur Sigurðsson 6. Fráköst: 19 í sókn, 8 í vörn. Villur: ÍR 17 – Skallagrímur 21. Áhorfendur: Um 350 Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Egg- ert Þór Aðalsteinsson. Stóðu sig ágæt- lega í fremur erfiðum leik. FSu – Keflavík 77:117 Selfoss: Stig FSu: Vésteinn Sveinsson 16, Hörður Hreiðarsson 14, Björgvin Valentínusar- son 12, Gissur Helguson 10, Emil Jó- hannsson 7, Áskell Jónsson 6, Alexander Dungal 4, Ari Gylfason 3, Hjörtur Hall- dórsson 2. Stig Keflavíkur: Ismail Muhammad 31, Halldór Halldórsson 17, Sebastian Hernmenier 17, Sigurður Þorsteinsson 10, Magnús Gunnarsson 10, Þröstur Jó- hannsson 6, Jón Gauti Jónsson 4, Jón Nordal Hafsteinsson 4, Sverrir Þór Sverrisson 3, Arnar Freyr Jónsson 2.  ÍR, Keflavík, Grindavík og Hamar/Sel- foss leika í undanúrslitum keppninnar, en dregið verður í dag. NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: New Orleans – LA Clippers .............90:10 Chicago – Houston.............................77:84 Denver – Milwaukee........................104:92 KNATTSPYRNA England Deildabikarkeppnin, 8 liða úrslit: Liverpool – Arsenal............................. 3:6 Robbie Fowler 33., Steven Gerrard 68., Sami Hyypiä 80. – Julio Baptista 40., 45., 60., 84., Jeremie Aliadiere 27., Alexandre Song 44. – 42.614.  Arsenal mætir Tottenham í undanúr- slitum. Bikarkeppnin, 3. umferð: Reading – Burnley............................... 3:2 Leroy Lita 27., Shane Long 37., Sam Sodje 55. – Ade Akinbiyi 69., Garreth O’Connor 90. – 11.514.  Reading mætir Birmingham eða New- castle á útivelli í 4. umferð. Barnet – Colchester ............................ 2:1 Ismail Yakubu 62., Jason Puncheon 80. – Jamie Cureton 35. – 3.075.  Barnet mætir Peterborough eða Plymouth á heimavelli í 4. umferð. Ítalía Bikarkeppnin, 8 liða úrslit, fyrri leikur: Empoli – Inter Mílanó......................... 0:2 Adriano 71., Cordoba 90. Spánn Bikarkeppnin, 16 liða úrslit, fyrri leik- ur: Atletico Madrid – Osasuna ................. 1:1 Fernando Torres 73. – Webo 36. í kvöld HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, DHL-deildin: Ásvellir: Haukar – ÍBV..........................19 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, Iceland Express: Grindavík: UMFG – Hamar..............19.15 Keflavík: Keflavík – Breiðablik ........19.15 F jöldi mætra manna og kvenna hefur undanfarnar vikur skorað á mig að gefa kost á mér til embættis for- manns Knattspyrnu- sambands Íslands (KSÍ) á þingi þess sem fram fer 10. febrúar. Að vandlega yf- irlögðu ráði og að höfðu samráði við fjöl- skyldu mína, vini og aðra helstu bakhjarla hef ég ákveðið að verða ekki við áskor- ununum og verð því ekki í kjöri til for- manns KSÍ á væntanlegu þingi. Um leið lýsi ég yfir fullum stuðningi við Geir Þor- steinsson til starfans og trúi því og treysti að um þann sómapilt megi nást breið samstaða. Leiðin er greið, Geir. Á undanförnum árum hafa tilkynn- ingar í líkingu við þessa, hálfgerðar „ekki fréttir“, verið áberandi vegna ýmissa framboða, þá sérstaklega á sviði Alþingis og sveitarstjórna. Nú er meira að segja farið að bera á slíkum „ekki fréttum“ vegna væntanlegra kosninga til embættis formanns KSÍ. Sem kunnugt er hefur for- maður síðustu 17 ára, Eggert Magn- ússon, ákveðið að hætta vegna annarra og annasamari starfa. Flest bendir til að að- eins einn gefið kost á sér til embættisins, þ.e. fyrrgreindur Geir Þorsteinsson. Hann hefur verið nánasti samstarfs- maður fráfarandi formanns lengst af hans formannstíð. Minna má á að svipaður háttur var hafður á þegar Josep Blatter tók við for- setaembætti Alþjóða knattspyrnu- sambandsins (FIFA) fyrir brátt níu ár- um. Blatter var framkvæmdastjóri FIFA og helsti samverkamaður fráfarandi for- seta, João Havelange. Blatter fékk reynd- ar mótframboð. Lengi hefur gustað af þessum tveimur heiðursmönnum, Eggerti og Geir, enda hafa þeir rekið KSÍ af miklum dugnaði, festu og metnaði. Öðru hverju hafa menn innan hreyfingarinnar haft á orði að tími væri kominn til að „hreinsa út“ hjá KSÍ, líta undir teppið á skrifstofunni og alltént sópa undan því. Allar slíkar raddir hafa verið hjáróma, ekki átt marga stuðnings- menn þegar á hólminn hefur komið. Egg- ert hefur verið sterkur formaður og notið fyrir vikið mikils stuðnings enda óeig- ingjarnt starf hans styrkt hreyfinguna til muna. Ein þessara hjáróma radda varð á vegi mínum fyrir nokkrum árum þegar maður einn nærri því lagði mig í einelti á líkams- ræktarstöð á höfuðborgarsvæðinu – stöð sem ég villtist inn á í nokkur skipti með fögur fyrirheit í huga. Illu heilli sagði einn gesta stöðvarinnar þessum manni að ég væri íþróttafréttamaður á Morg- unblaðinu. Það var eins við manninn mælt, knattspyrnuáhugamaðurinn, sem sagðist vera einn innsti koppur í búri í knattspyrnufélagi á höfuðborgarsvæðinu, mátti ekki sjá mig í stöðinni án þess að elta mig um salinn. Mestur tími hans fór í að segja mér frá væntanlegu framboði til formanns og stjórnar KSÍ sem hann og nokkrir félagar væru að vinna að. Ekki var vanþörf, að hans mati, á að gera hall- arbyltingu hjá KSÍ og nú væri verið að leggja drög að henni. Milli þess sem hann hélt hvern fyrirlesturinn yfir hversu rík þörf væri á að „hreinsa til“ innan KSÍ þá fjargviðraðist maðurinn út í ýmsar skoð- anir samstarfsmanna minna á málefnum KSÍ og vali íslenska landsliðsins í knatt- spyrnu karla. Um þær mundir hafði einn ástsælasti knattspyrnumaður þess tíma ekki komið til greina í landsliðið svo árum skipti og það þótti byltingarmanninum ótækt. „Þið Moggamenn eru taglhnýt- ingar forystu KSÍ og segið og skrifið ekk- ert annað en það sem henni geðjast að,“ var meðal þess sem hann lét sér um munn falla. Fljótlega komst ég að því að lítt tjónkaði að malda í móinn við mann- greyið; á hann var runninn bylting- arhamur og ekki var laust við að mað- urinn ýjaði að því að „hreinsa út“ á Mogganum um leið og skúrað yrði út í Laugardalnum. Ég reyndi að leiða mann- inn hjá mér, en áfram hélt söngurinn og margir hljómar hans voru ekki fagrir. Væri hann réttur var ljóst að ekki var vanþörf á að skipta um forystu KSÍ. Stóru orðin voru síst spöruð og ljóst að framundan var tími breiðu spjótanna. Eins og glöggum samferðamönnum mínum er ljóst þá flosnaði ég upp úr lík- amsræktinni. Síðan hef ég ekki hitt þenn- an væntanlegan byltingarforingja og allt bendir til þess að byltingin hafi runnið út í sandinn, alltént hefur lítið farið fyrir bylt- ingarfréttum úr Laugardalnum. Ekki er ósennilegt miðað við þau stuttu kynni sem ég hafði af manninum að hann kenni Egg- erti um að ekkert varð úr. Þegar Eggert tilkynnti þá ákvörðun sína í nóvemberlok að hann hygðist hætta sem formaður KSÍ á þinginu í febrúar opnuðust dyr fyrir fyrrgreindan bylting- arforingja, hans félaga og marga aðra sem óánægðir hafa verið og fundið margt að störfum Eggerts. Inn um þær dyr vill enginn þeirra ganga þótt þeim muni sjálf- sagt ekki bjóðast betra tækifæri til þess næstu árin, jafnvel áratugina, sé tekið mið af því að KSÍ hefur aðeins haft tvo formenn síðustu 33 árin. Óánægjan og á stundum stóryrði virðist aðeins hafa verið innantómt hjóm í myrkri. Samstaðan virðist algjör innan stærsta sérsambands Íþrótta- og Ólympíusam- bands Íslands. Það hlýtur að ylja fráfar- andi formanni KSÍ að skilja við hreyf- inguna í svo góðu ástandi, jafn út á við sem inn á við og raun ber vitni um. Leiðin er greið, Geir Á VELLINUM Ívar Benediktsson iben@mbl.is FRAMARAR, nýliðarnir í úrvalsdeildinni í knattspyrnu, hafa fengið til reynslu tvo sóknarmenn frá sænskum fyrstudeild- arliðum. Það eru Patrik Redo frá Trelle- borg og Bobo Bola frá Landskrona. Bola kom á mánudag og verður til laugardags en Redo kom í gær og verður til mánu- dags. Báðir taka þeir þátt í æfingaleik Fram gegn Fylki í Egilshöllinni annað kvöld. Redo er 25 ára gamall og hefur leikið með Trelleborg í 1. deildinni undanfarin þrjú ár og skorað alls átta mörk í 59 leikj- um. Þar af lék hann aðeins sex leiki á síð- asta ári og missti mikið úr vegna meiðsla. Þar á undan lék Redo í tvö ár með Halms- tad í úrvalsdeildinni, spilaði sex leiki fyrir félagið og skoraði eitt mark. Bola er 21 árs og er frá Afríkuríkinu Rúanda þar sem hann hefur spilað með A- landsliðinu. Hann kom til Landskrona 2005 frá heimalandi sínu og skoraði þá eitt mark í sjö leikjum í sænsku úrvalsdeild- inni. Á síðasta ári gerði Bola tvö mörk í 16 leikjum með liðinu í 1. deildinni en var að- eins þrisvar í byrjunarliðinu. „Bola leit mjög vel út á fyrstu æfingu með okkur og við höfum fengið mjög góð meðmæli með Redo, m.a. frá okkar leik- manni, Reyni Leóssyni, sem spilaði með honum í Trelleborg í fyrra. Við stefnum að því að fá þrjá framherja í okkar raðir og ætlum að reyna að ganga endanlega frá þeim málum í þessum mánuði. Þegar það verður í höfn verðum við komnir með mjög þéttan leikmannahóp fyrir sumarið,“ sagði Brynjar Jóhannesson, framkvæmdastjóri Fram, við Morgunblaðið. Tveir sóknarmenn til reynslu hjá Frömurum SERBNESKUR knattsp Branezac að nafni, kom til og verður til reynslu hjá Fy dag er annar leikmaður væ inn en hann er danskur og holm. Þeir leika báðir með F að kvöld þegar þeir mæta Egilshöllinni, og spila síða arliðinu á sunnudaginn en þ um í æfingaleik. Branezac er þrítugur Se íu, og hefur spilað um árab Júgóslavíu og síðan Ser Þar spilaði hann með Sart Obilic, Napredak og Cukar milli lék hann eitt tímabil verjalandi og hálft tímab Bosníu. Síðast spilaði Br Penang í Malasíu. Besta tím Fylkir me í tveimur íþróttir Sænski landsliðsmaðurinn íknattspyrnu, Christian „Chippen“ Wilhelmsson, hefur samið við ítalska liðið Róma og mun hann leika sem lánsmaður út leiktíðina með Róma. Ítalska fé- lagið getur síðan keypt hinn 27 ára gamla kantmann frá Nantes í að lánstímanum liðnum.    Argentínska landsliðið í hand-knattleik, sem tekur þátt í HM, er komið til Þýskalands til að undirbúa sig fyrir keppnina. Liðið verður í æfingabúðum í Dessau undir stjórn þjálfarans Maurizio Torres. Argentína, sem leikur í riðli með Þýskalandi, Pól- landi og Brasilíu á HM, leikur þrjá æfingaleiki við þýsk lið.    FrancisObikwelu frá Portúgal var valinn frjáls- íþróttamaður ársins í kjöri þar sem að fulltrúar 15 frjálsíþrótta- sambanda, blaðamenn og almenn- ingur tóku þátt. Obikwelu er spretthlaupari en hann vann til silfurverðlauna á Ólympíu- leikunum í Aþenu árið 2004 og á EM í Gautaborg sigraði hann í tveimur greinum og hljóp 100 metra undir 10 sekúndum. Besti árangur hans í greininni er 9,86 sekúndur en á árinu 2006 vann hann 16 sinnum í 100 metra hlaupi og 6 sinnum í 200 metra hlaupi. „Þetta er mikil viðurkenning og ég er ótrúlega stoltur,“ sagði Obikwelu við Reuters fréttastof- una. Hann er fæddur í Nígeríu en fékk ríkisborgararétt í Portúgal árið 2001. Kringlukastarinn Virg- ilijus Alekna frá Litháen varð annar í kjörinu og norski spjót- kastarinn Andreas Thorkildsen varð þriðji.    Lars Lag-erbäck, þjálfari sænska lands- liðsins í knatt- spyrnu, hefur sett sig í sam- band við Hen- rik Larsson, leikmann Man- chester United, og beðið hann um að leika með sænska landsliðinu á ný. Sænska dagblaðið Aftonbladet greinir frá því að Lagerbäck leggi mikla áherslu á að fá Larsson í lið- ið á ný. Hann lék síðast með sænska landsliðinu á HM í Þýska- landi þar sem að Svíar féllu úr leik í 8-liða úrslitum gegn Þjóðverjum. Larsson hefur leikið 93 landsleiki frá árinu 1993 og skorað 36 mörk. Fólk sport@mbl.is TÆKNINEFND á vegum Alþjóða- knattspyrnusambandsins, FIFA, hefur farið yfir upptökur frá leikjum heimsmeistaramótsins í Þýskalandi sl. sumar. Í greinargerð nefndar kemur m.a. fram að margir leikmenn hafi gert sér upp meiðsli í leikjum til þess eins að stöðva hraðar sóknir andstæðinganna. Tækninefndin nefnir að smáá- rekstrar á milli leikmanna hafi orðið til þess að þeir legðust niður líkt og þeir væru mikið meiddir. Að mati þeirra sem fóru yfir gang mála á HM var í flestum tilvikum um að ræða „bragð“ til þess að hægja á sóknarleik andstæðinganna. Boltan- um var spyrnt út af og leikurinn stöðvaður. Leikmenn fengu síðan meðhöndlun fyrir utan hliðarlínuna og komu inn á fullfrískir skömmu síðar. Leikaraskapur á HM GRAEME Souness, fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool, Rang- ers, Blackburn og Newcastle, segist hafa lagt inn 20 milljóna punda til- boð, sem samsvarar um 2,8 millj- örðum króna, til að eignast meiri- hlutann í enska félaginu Wolves. Áður hafði Jez Moxey, stjórn- arformaður Úlfanna, neitað því að Souness hefði áhuga á að eignast félagið en Souness segir í viðtali við breska blaðið Express Star að hann skilji ekki hvers vegna Moxey haldi þessu fram. Sir Jack Hayward er eigandi Úlfanna, sem eru í 9. sæti fyrstu deildarinnar.. Souness vill eignast Wolves ÁSTRALAR, fyrstu mótherjar Ís- lendinga í úrslitakeppni heims- meistaramótsins í handknattleik í Þýskalandi hinn 20. janúar, mættu Grænlendingum í vináttulandsleik í gærkvöld. Leikið var í Rödding í Danmörku þar sem bæði liðin búa sig undir HM, en bæði eru með danskan þjálfara. Grænlendingar unnu mjög öruggan sigur, 35:26, og hefndu þar með fyrir ósigur gegn Áströlum í úrslitakeppni HM í Portúgal fyrir fjórum árum. Ástr- alar dvelja í Danmörku til 18. jan- úar og spila þar æfingaleiki en Grænlendingar eru á leið til Frakk- lands þar sem þeir verða í æf- ingabúðum fram að keppninni. Ástralar steinlágu gegn Grænlendingum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.