Morgunblaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2007 3
pyrnumaður, Sasa
landsins í gærkvöld
ylki næstu dagana. Í
æntanlegur í Árbæ-
g heitir Mads Beier-
Fylkismönnum ann-
Fram í æfingaleik í
n aftur með Árbæj-
þá mætir það Hauk-
rbi, fæddur í Króat-
bil í úrvalsdeildinni í
bíu/Svartfjallalandi.
tid, Sutjeska Niksic,
ricki Belgrad. Inn á
l með MTK í Ung-
bil með Glasinac í
ranezac með liðinu
mabilið hans í Júgó-
slavíu var 1999–2000 þegar hann skoraði 12
mörk fyrir Sutjeska Niksic sem þá varð í fjórða
sæti deildarinnar. Fyrir utan það hefur hann
mest skorað fjögur mörk á einu tímabili í deild-
inni.
Beierholm er 22 ára miðjumaður, uppalinn
hjá Vejle og spilaði síðast með SönderjyskE
þar sem hann lék sex leiki í dönsku úrvalsdeild-
inni á síðasta tímabili. Beierholm lék á sínum
tíma 37 leiki með yngri landsliðum Danmerkur
og í ágúst 2001 varð hann yngsti leikmaðurinn í
sögu dönsku úrvalsdeildarinnar þegar hann
lék 16 ára gamall með Vejle. Tveimur vikum
síðar varð hann jafnframt yngsti markaskorari
deildarinnar frá upphafi þegar hann gerði
mark gegn Viborg en það tímabil, 2001–2002,
spilaði Beierholm 27 leiki með Vejle í úrvals-
deildinni. Eftir það lék hann með Vejle í 1.
deild og fór þaðan til SönderjyskE.
eð Serba og Dana
r æfingaleikjum
Sven GöranEriksson,
fyrrverandi þjálf-
ari enska lands-
liðsins í knatt-
spyrnu, segir að
hann sé ekki að
taka við þjálfun
franska liðsins
Marseille.
Franskir fjölmiðlar hafa greint frá
því í fréttum undanfarna daga að
Eriksson hafi rætt við forsvarsmenn
Marseille að undanförnu. „Ég hef
ekki tekið ákvörðun um að þjálfa
Marseille,“ segir Eriksson í viðtali
við La Provence en hann var stadd-
ur á æfingamóti í Dubai þar sem
hann sá leik Marseille og Lazio frá
Ítalíu.
Hollendingurinn René Meulen-steen, sem hætti óvænt störf-
um sem þjálfari danska knatt-
spyrnuliðsins Bröndby á dögunum,
segir í viðtali við hollenskt dagblað í
gær að Bröndby sé „sjúklingur“ sem
þurfi bráðameðhöndlun. Hannes Þ.
Sigurðsson leikur með liðinu en
Meulensteen segir m.a. að innra
starf félagsins sé í molum. Liðsand-
inn sé í molum og marga sérfræð-
inga þurfi til þess að laga ástandið
hjá félaginu.
Mikill áhugi er fyrir landsleikjumDana og Frakka í handknatt-
leik karla sem fram fara í Skjern og
Horsens í kvöld og annað kvöld.
Uppselt er á báðar viðureignir, sem
verða þær síðustu sem Danir leika
fyrir heimsmeistaramótið sem hefst
í Þýskalandi 19. janúar. Í gær varð
Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfari
Dana, að gera eina breytingu á
landsliði sínu þegar skyttan Bo
Spellerberg heltist úr lestinni vegna
meiðsla og Lars Møller Madsen var
kallaður inn í 16 manna HM-hópinn í
staðinn.
Jacob Andreasen, landsliðsþjálf-ari Grænlendinga í handknatt-
leik karla, hefur framlengt samning
sinn við grænlenska handknattleiks-
sambandið fram á mitt árið 2009.
Grænlendingar búa sig nú undir
þátttöku í heimsmeistaramótinu í
handknattleik sem hefst í Þýska-
landi síðar í þessum mánuði hvar
þeir leika í riðli með Slóveníu, Túnis
og Katar. Grænlenska landsliðið er í
æfingabúðum í Silkeborg.
Sænska karlalandsliðið í knatt-spyrnu kom til Venesúela í nótt
en Svíar, sem eru í riðli með Íslend-
ingum í undankeppni EM, verða í
æfingabúðum í S-Ameríku næstu
vikurnar og leika þrjá leiki. Á sunnu-
daginn mæta þeir Venesúela og þeir
mæta síðan Ekvador í tveimur leikj-
um 18. og 21. janúar.
Didier Drogba og Ricardo Car-valho verða í leikbanni í liði
Chelsea í kvöld þegar liðið sækir
heim þriðjudeildarliðið Wycombe í
fyrri viðureign liðanna í undan-
úrslitum deildabikarkeppninnar.
Þar sem bæði John Terry og Khalid
Boulahrouz eru meiddir er líklegt
að miðvarðapar Englandsmeist-
aranna verði skipað þeim Michael
Essien og Paulo Ferreira.
Readingkomst í 4.
umferð ensku
bikarkeppninnar
í knattspyrnu í
gærkvöldi með
því að sigra
Burnley, 3:2. Ívar
Ingimarsson var
aðeins annar tveggja fastamanna
Reading sem tóku þátt í leiknum og
hann fór af velli á 74. mínútu. Brynj-
ar Björn Gunnarsson var hvíldur
vegna smávægilegra meiðsla. Leroy
Lita, Shane Long og Sam Sodje
skoruðu fyrir Reading.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
Gylfi gekkst undir aðgerð á mjöðm í
september og var frá æfingum í
nokkrar vikur en ekki vildi betur til
en svo að þegar hann var rétt kominn
á ferðina að nýju þá reif hann vöðva í
framanverðu læri.
Hálfgerð martröð
,,Þetta er búin að vera hálfgerð
martröð hjá mér en nú ætla ég ekki að
horfa til baka lengur og svekkja mig
meira. Ég ætla að líta fram á veginn
og nú má segja að nýr kafli sé að hefj-
ast hjá mér. Nú er aðalmálið að kom-
ast í gott líkamlegt form sem allra
fyrst. Það getur vel verið að ég verði í
hópnum um næstu helgi. Það verður
bara að koma í ljós. Eins og hlutirnir
hafa gengið hjá liðinu þá ætti að vera
ágætur möguleiki á að vinna sér sæti í
liðinu og ég stefni ótrauður á það,“
sagði Gylfi við Morgunblaðið en hann
hefur aðeins náð að spila einn leik
með Leeds-liðinu á tímabilinu.
Þetta hefur hvorki gengið né rekið
hjá Leeds á tímabilinu. Leeds, sem
tapaði úrslitaleik fyrir Watford um
sæti í úrvalsdeildinni síðastliðið vor,
situr í næstneðsta sæti deildarinnar
en Leeds hefur aðeins unnið sjö af 27
leikjum sínum í deildinni.
,,Við getum sjálfum okkur um
kennt hvernig komið er en það er
óhætt að segja að mikið hafi gengið á.
Síðan ég kom til félagsins fyrir tveim-
ur árum eru aðeins fimm leikmenn
sem spila með liðinu í dag og þá hefur
gengið töluvert á utan vallar,“ segir
Gylfi sem á eitt og hálft ár eftir af
samningi sínum við Leeds.
Gylfi ber Dennis Wise, knatt-
spyrnustjóra Leeds, söguna nokkuð
vel en hann tók við stjórastöðunni hjá
félaginu í stað Kevins Blackwell í
október. ,,Wise er ekki eins harður og
hann var sem leikmaður. Hann er ró-
legur og yfirvegaður. Hann leggur
mikið upp á að menn séu í líkamlega
góðu formi og keyrslan er mikil á æf-
ingunum.“
Tore Andre Flo góður
Leeds fékk góðan liðsstyrk á dög-
unum þegar norski framherjinn Tore
Andre Flo gekk til liðs við félagið og
vonast Gylfi eftir því að hann nái að
blása lífi í sóknarleik liðsins.
,,Hann er búinn að vera mjög frísk-
ur á æfingunum. Hann er að jafna sig
eftir erfið meiðsli en það fer ekki á
milli mála að hann kann þetta allt
saman og er hæfileikaríkur. Það hef-
ur vantað mann í liðið eins og hann
sem getur haldið boltanum frammi.
Gylfi Einarsson loks
orðinn heill af meiðslum
Morgunblaðið/Golli
Fagnað Gylfi Einarsson og Eiður Smári Guðjohnsen fagna marki í landsleik gegn Ungverjum.
GYLFI Einarsson, knattspyrnumað-
ur hjá enska 1. deildarliðinu Leeds
United, hefur ekki átt sjö dagana
sæla á yfirstandandi leiktíð. Hann
hefur verið frá meira og minna allt
tímabilið vegna meiðsla en nú vonast
hann til að þess að bjartari tímar séu
framundan. Hann byrjaði að æfa að
nýju í vikunni og segist klár í slaginn
ef kallið kemur.
Hefur aðeins náð að spila einn leik með Leeds á tímabilinu
SAMUEL Eto’o, knattspyrnumaðurinn
snjalli frá Kamerún, fær að hefja æfingar
á ný með Barcelona á mánudaginn kemur.
Eto’o, sem hefur þrjú ár í röð verið kjör-
inn besti knattspyrnumaður Afríku
meiddist illa í lok september og reiknað
var með að hann yrði frá æfingum og
keppni í fimm mánuði.
Eiður Smári Guðjohnsen hefur leyst
Eto’o af hólmi í fremstu víglínu hjá Barce-
lona og skorað alls tíu mörk fyrir félagið á
tímabilinu.
„Við fórum yfir stöðuna hjá Eto’o og all-
ir voru sammála því að hann gæti byrjað
að æfa á ný. Hann er gífurlega viljasterk-
ur, ætlar sér að byrja sem fyrst að spila og
skora mörk og allt frá því hann meiddist
hefur hugarfarið verið eins og hjá sönnum
sigurvegara. Hann vill alltaf sigrast á
öllu,“ sagði Ramon Cu-
gat, yfirlæknir Barce-
lona, í gær.
Cugat tók fram að
Eto’o mætti ekki byrja
að sparka bolta alveg
strax og lögð yrði
áhersla á að byggja upp
líkamlegan styrkleika
hans á ný.
Eto’o lýsti því yfir
fyrir skömmu að þrátt fyrir fjarveruna
væri hann sannfærður um að hann gæti
staðið uppi sem markakóngur spænsku 1.
deildarinnar í vor. Hann hafði skorað
fjögur mörk fyrir Barcelona í deildinni
þegar hann meiddist. Eto’o varð marka-
kóngur deildarinnar í fyrra þegar hann
skoraði 26 mörk í 34 leikjum.
Eto’o fær að hefja æfingar
á ný á mánudaginn
Samuel Eto’o
JULIO Baptista hrökk heldur betur í
gang í gærkvöld þegar hann skoraði
fjögur mörk fyrir Arsenal í mögn-
uðum sigri liðsins gegn Liverpool á
Anfield, 6:3. Brasilíumaðurinn, sem
er í láni frá Real Madrid og hefur
ekki náð að festa sig í sessi hjá Lund-
únaliðinu, tryggði þar með Arsenal
sæti í undanúrslitum deildabikarsins
þar sem liðið mætir nágrönnum sín-
um í Tottenham.
Þetta var annar sigur Arsenal
gegn Liverpool á Anfield á aðeins
fjórum dögum. Arsenal sigraði þar,
3:1, í enska bikarnum á laugardag-
inn og hefur því slegið Liverpool út
úr báðum ensku bikarmótunum, með
fræknum útisigrum, og með því að
skora níu mörk gegn fjórum.
Baptista hefði getað gert enn
fleiri mörk því Jerzy Dudek, mark-
vörður Liverpool, varði frá honum
vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik
en þá var staðan orðin 4:1. Jeremie
Aliadiere og Alexandre Song skor-
uðu hin mörk Arsenal en þeir Robbie
Fowler, Steven Gerrard og Sami
Hyypiä skoruðu fyrir Liverpool.
Bæði liðin hvíldu marga af sínum
fastamönnum, sérstaklega Arsenal
sem tefldi fram hálfgerðu unglinga-
liði með Kolo Toure, 25 ára, sem
reyndasta mann.
„Ég bjóst aldrei við því að við
myndum skora sex mörk í þessum
leik. Mér fannst við eiga möguleika á
að komast áfram í keppninni en
markaflóðið kom mér á óvart. Ég
hef alltaf haft trú á að Julio myndi
ná sér á strik, hann býr yfir miklum
andlegum styrk og fellur mjög vel
inn í liðsheild,“ sagði Arsene Wen-
ger, knattspyrnustjóri Arsenal, eftir
leikinn.
Ferna frá Baptista felldi Liverpool