Morgunblaðið - 29.01.2007, Page 2
2 MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
mánudagur 29. 1. 2007
fasteignir mbl.is
Góðar lausnir,
vandaðar vörur
FASTEIGNALÁN
Í MYNTKÖRFU
Nánari upplýsingar hjá lánafulltrúum Frjálsa
og á www.frjalsi.is, þar sem einnig er hægt
að reikna greiðslubyrði.
3,4%
Miðað við myntkörfu 3, Libor vextir 21.09.2006
Lánstímialltað40ár
Snjórinn hlífir viðkvæmum plöntum fyrir kulda » 37
fasteignir
AF KÖLDUM KERFUM
„NÝIR ORKUGJAFAR ÞURFA AÐ MENGA SÁRALÍTIÐ OG VERA SJÁLF-
BÆRIR,“ SEGIR M.A. Í GREIN SIGURÐAR GRÉTARS GUÐMUNDSSONAR >> 10
Prologus í Súðarvogi vinnur að
hönnun og framleiðslu-
húsgagna. Guðmundur Ein-
arsson iðnhönnuður og fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins
lærði á Ítalíu og í Bandaríkj-
unum. „Ég sá að ítölsk fyr-
irtæki störfuðu saman en sér-
hæfðu sig hvert á sínu sviði.
Þetta höfum við reynt að gera
og teljum að hafi tekist.“ | 30
Morgunblaðið/G.Rúnar
Morgunblaðið/G.Rúnar
Prologus hannar
hágæðahúsgögn
Nýr vefur fyrir fasteignaeigendur og fagmenn er að verða til. Þóra Jóns-
dóttir eðlis- og tölvunarfræðingur á hugmyndina að þessum vef og er að
búa hann til um þessar mundir. | 2
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðhaldsbók.is -
nýr vefur í bígerð!
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 24/25
Staksteinar 8 Minningar 26/31
Veður 8 Brids 31
Viðskipti 11 Menning 33/35
Úr verinu 12 Leikhús 34
Erlent 13 Myndasögur 36
Menning 14/15 Bíó 38/41
Vesturland 16 Staður og stund 38
Landið 16 Víkverji 40
Daglegt líf 18/21 Velvakandi 40
Forystugrein 22 Ljósvakinn 40
* * *
Innlent
Frjálslyndi flokkurinn virðist
ætla að gera innflytjendamál að einu
kosningamála sinna. Í fréttaskýr-
ingu kemur fram að svo virðist sem
flokkurinn gæti fetað sömu braut og
danski Þjóðarflokkurinn og norski
Framfaraflokkurinn, sem báðir
byrjuðu sem frjálslyndir hægri-
flokkar en einkennast nú af harðri
afstöðu gegn innflytjendum. Danski
þjóðarflokkurinn varð til þegar
Framfaraflokkurinn klofnaði árið
1995 en þá vildi formaður flokksins
enn herða á stefnu gegn innflutningi
fólks. » Forsíða
Sveitarfélögin og fjármálaráðu-
neytið ræða nú skiptingu fjármagns-
tekna. Sveitarfélögin fá í framtíðinni
hugsanlega hluta af tekjuskatti
einkahlutafélaga. Þau hafa á liðnum
árum tapað skatttekjum vegna mik-
illar fjölgunar einkahlutafélaga. Þau
eru nú um 26.000. Halldór Hall-
dórsson, bæjarstjóri á Ísafirði og
formaður Sambands sveitarfélaga,
segist gera sér góðar vonir um að
samningar takist. » Baksíða
Hinn forni fjandi landsmanna,
hafísinn, lokaði Dýrafirði í gær og
lónaði úti fyrir Þingeyrarþorpi.
Fjörðurinn var nánast ófær og muna
elstu menn varla svo mikinn ís á firð-
inum. Í ískönnunarflugi í gær sást að
ísdreifar voru líka á nærliggjandi
fjörðum. » Forsíða
Íslendingar og Danir mætast í
átta liða úrslitum á HM í handbolta
á morgun. Leikið verður í Hamborg.
Sigurliðið er komið í undanúrslit og
mætir því liði sem sigrar í leik Pól-
verja og Rússa. „Leikurinn við Dani
verður járn í járn,“ sagði Alfreð
Gíslason landsliðsþjálfari í gær. Ís-
lenska liðið tapaði leik við Þýskaland
sem hafði litla þýðingu. » Baksíða
Erlent
Leiðtogar stríðandi fylkinga í
Palestínu tóku í gær vel í boð Abd-
ullah, konungs Saudi-Arabíu, um að
binda enda á deiluna og koma til
Mekka til viðræðna um lausn mála.
Deilan hefur kostað 26 manns lífið
og 60 manns til viðbótar hafa særst
síðan á fimmtudagskvöld. » 13
Fjölmennir mótmælafundir gegn
Íraksstríðinu voru í Bandaríkjunum
á laugardag og kröfðust fundarmenn
þess að bandaríska þingið klippti á
útgjöld vegna stríðsins og kæmi í
veg fyrir fjölgun bandarískra her-
manna í Írak. » 13
LISTI yfir 100 sjálfbærustu fyr-
irtæki heims var kynntur á heims-
viðskiptaráðstefnunni í Davos í
Sviss í vikunni. Meðal fyrirtækja á
listanum eru Alcoa og Alcan, sem
bæði reka álver hér á landi.
Umræddur listi byggist á úttekt-
um á 1.800 stærstu fyrirtækjum
heims. Þar komast þau fyrirtæki
að sem talin eru sýna framúrskar-
andi árangur, ábyrga umhverfis-
og samfélagsstefnu og hafa víðtæk
efnahagsleg áhrif.
Norðurlöndin eiga 11 fyrirtæki á
listanum. Ekkert íslenskt fyrirtæki
er á honum enn sem komið er, en
þarna eru fyrirtæki á borð við
Nokia, Scania, Storebrand og Nova
Nordisk. Frá Bretlandi eru á list-
anum fyrirtæki eins og Marks &
Spencer, sem Baugur átti eitt sinn
hlut í, Sainsbury, British Airways,
Unilever og Cable & Wirelss, sem
Björgólfur Thor Björgólfsson
sýndi á sínum tíma áhuga á að fjár-
festa í.
Vodafone dettur út
Af heimsþekktum risum á listan-
um má nefna Coca Cola, Nike,
Walt Disney, Air France – KLM,
Toyota, Eastman Kodak, Goldman
Sachs, Mitsubishi, General Electr-
ic, Google, Hewlett-Packard og JP
Morgan. Meðal þeirra sem duttu af
listanum að þessu sinni voru Bank
of America, Canon, Ericsson,
Deutsche Telekom, Glaxosmith-
kline, Skanska, UPS, Cadbury
Schweppes og Vodafone.
Alcoa og Alcan meðal 100
sjálfbærustu fyrirtækjanna
Morgunblaðið/Kristinn
Árangur Á listanum eru fyrirtæki sem talin eru sýna framúrskarandi
árangur, ábyrga umhverfisstefnu og hafa víðtæk efnahagsleg áhrif.
HÉRAÐSDÓMUR Austurlands
hefur dæmt karlmann í tólf mánaða
óskilorðsbundið fangelsi fyrir hús-
brot og kynferðisbrot.
Hann var sakfelldur fyrir að hafa í
maí á síðasta ári brotist inn á heimili
konu þar sem hún lá sofandi í rúmi
sínu við hlið eiginmanns síns og
reynt að hafa þar við hana samfarir.
Segir í dómnum: „Með þessari hátt-
semi sinni braut ákærði gróflega
gegn friðhelgi heimilis brotaþola og
fjölskyldu hennar, sem öll var í fasta-
svefni þegar ákærði fór óboðinn inn í
húsið, svo og gegn kynfrelsi brota-
þola … Ekki þykja efni til að skil-
orðsbinda refsinguna.“
Málsatvik voru þau að lögreglu
barst kl. 6.59 að morgni 21. maí 2006
tilkynning um að kona á Fáskrúðs-
firði óskaði eftir aðstoð lögreglu
vegna ókunnugs manns sem væri á
heimili hennar og hefði leitað á hana
þar sem hún lá sofandi. Vitna-
skýrslum konunnar og ákærða bar
ekki saman um hvernig það hefði at-
vikast að hann endaði í rúmi hennar.
Hélt ákærði því m.a. fram að konan
hefði kysst hann „blautum kossum“
um nóttina en ákærði, konan og eig-
inmaður hennar höfðu verið að
skemmta sér. Hún hefði orðrétt sagt
„komdu upp í“, þegar hann kom inn í
svefnherbergið um morguninn, eftir
að samkvæmi í bílskúr þeirra hafði
lokið. Konan skýrði töluvert öðruvísi
frá málsatvikum og var framburður
hennar metinn trúverðugur, m.a.
með hliðsjón af öðrum vitnum.
Nokkuð leið þar til konan undir-
gekkst læknisrannsókn. Sagði hún
lækni sem hún leitaði til 24. maí að
hún hefði tilkynnt lögreglu um atvik-
ið, en lögreglan hefði lítið aðhafst. Í
vottorði læknisins segir að vegna
gruns um nauðgun hefði verið skyn-
samlegra að senda konuna á neyð-
armóttöku.
Dóminn kváðu upp Ragnheiður
Bragadóttir, Allan Vagn Magnússon
og Sandra Baldvinsdóttir.
Dæmdur fyrir að brjóta
gegn friðhelgi heimilisins
Í HNOTSKURN
» Ákært var m.a. fyrir til-raun til brots gegn 196. gr.
almennra hegningarlaga.
Greinin leggur bann við mis-
neytingu, þ.e. að misnota sér
ástand þess sem getur ekki
spornað við verknaðinum. Há-
marksrefsing er sex ár.
» Frumvarp til breytinga ákynferðisbrotakafla al-
mennra hegningarlaga, skv.
tillögum prófessors Ragnheið-
ar Bragadóttur, liggur nú fyr-
ir Alþingi.
ÞÓ AÐ hlýrri vindar blási nú um landið er rétt að
klæða sig vel, eins og þessi kona sem gekk meðfram
kirkjugarðinum við Suðurgötu í Reykjavík í gær. Það
væsir ekki um barnið í vagninum sem pakkaður er inn í
vatns- og vindhelda hlíf, svona til að fullvíst sé að vatn
og vindar komist ekki að hvítvoðungnum.
Í dag er gert ráð fyrir suðlægum áttum, en súld og
rigningu sunnan- og vestanlands. Hlýjast verður á
Norðurlandi þar sem hitinn getur hæst farið í tíu stig,
en það verður að teljast talsvert miðað við árstíma.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Vel varin við kirkjugarð
„ÞAÐ er slangur af loðnu hérna
norðurfrá eða hefur verið það,“ sagði
Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðing-
ur og leiðangursstjóri á rannsókna-
skipinu Árna Friðrikssyni, við Morg-
unblaðið í gærkvöldi.
Síðasta loðnuvertíð var sú slak-
asta í mörg ár, heildaraflinn um
230.000 tonn, og þar sem kvótinn er
ekki mikill bíða loðnusjómenn eftir
góðu fréttunum, en loðnuleit stóð yf-
ir í haust og hófst svo aftur eftir ára-
mót með misjöfnum árangri.
Örlítil bið
Árni Friðriksson lét úr höfn á
Reyðarfirði á föstudag og er nú suð-
austur af Langanesi í ljómandi góðu
veðri. Hjálmar Vilhjálmsson segir að
leiðangursmenn séu búnir að vinna
sig norður eftir og séu á leið aftur til
baka, en of snemmt sé að segja til um
loðnumagnið. Flotinn verði því að
bíða enn um sinn, „ekki mjög lengi
en aðeins“, segir Hjálmar.
Slangur
af loðnu
mánudagur 29. 1. 2007
íþróttir mbl.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
íþróttir
Hamar/Selfoss og ÍR í bikarúrslitum í körfu>> 11
STERKT SUNDMÓT
METUNUM RIGNDI Á ALÞJÓÐLEGU SUNDMÓTI SEM
SUNDFÉLAGIÐ ÆGIR HÉLT Í LAUGARDALNUM
GUÐJÓN Valur Sigurðsson og Al-
exander Petersson hafa spilað lang-
mest af íslensku leikmönnunum í
þeim sjö leikjum sem liðið hefur
leikið til þessa á HM í Þýskalandi.
Af 420 leikmínútum Íslands hefur
Guðjón Valur leikið í 404 mínútur
og Alexander í 388 mínútur. Þeir
voru líka þeir einu af hinum hefð-
bundnu byrjunarliðsmönnum sem
hófu leikinn í gær, og Guðjón lék
allar 60 mínúturnar og Alexander í
45 mínútur. Næstur á eftir þeim var
Ólafur Stefánsson sem spilaði í 39
mínútur.
Í heildina er Ólafur þriðji í liðinu
en hann hefur spilað alls í 319 mín-
útur. Logi Geirsson hefur leikið í
263 mínútur,
Birkir Ívar Guð-
mundsson í 244,
Snorri Steinn
Guðjónsson í
225, Sigfús Sig-
urðsson í 194,
Róbert Gunn-
arsson í 155, Ás-
geir Örn Hall-
grímsson í 152,
Sverre Jakobsson í 149, Róland
Valur Eradze í 125, Vignir Svav-
arsson í 85, Arnór Atlason í 85,
Markús Máni Michaelsson í 65,
Hreiðar Guðmundsson í 53 og
Ragnar Óskarsson hefur spilað
minnst, eða í 26 mínútur samtals.
Guðjón Valur
hefur spilað mest
Eftir Ívar Benediktsson í Dortmund
iben@mbl.is
Danir unnu Tékka í gærkvöldi, 33:29,
og náðu þar með öðru sæti í milliriðli 2
og mæta þar af leiðandi Íslandi sem
hafnaði í þriðja sæti í milliriðli 1. Í
öðrum leikjum 8-liða úrslita mætast
Evrópumeistarar Frakka og silfurlið
síðasta heimsmeistaramóts, Króatar,
einnig í Hamburg á morgun. Í Köln
leiða saman hesta sína Þýskaland og
heimsmeistarar Spánverja annars-
vegar og Pólland og Rússland hins-
vegar.
Ljóst er að sigurliðið úr viðureign
Íslands og Danmerkur mætir sigur-
liðinu úr viðureign Pólverja og Rússa
í leik í Hamburg á fimmtudag. Taplið-
in úr fyrrgreindum viðureignum
mætast á sama stað fyrr þann sama
dag.
„Leikurinn við Dani verður járn í
járn þar sem liðin þekkjast nokkuð
vel og leika skemmtilegan handbolta.
Ég bíð því bara spenntur,“ sagði Al-
freð.
Spurður hvort möguleiki á sæti í
undanúrslitum væri góður sagði Al-
freð einungis að um jafna möguleika
væri að ræða.
Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfari
Dana, sagði í samtali við TV2 í Dan-
mörku í gær hann teldi sig einnig eiga
helmings möguleika á því að komast í
úrslit.
„Eigum góða möguleika“
„Danir eru með lið sem við eigum
bara góðan möguleika á að vinna,
þannig að sú staðreynd að við mætum
Dönum er eins góð og hún getur orð-
ið,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson í
samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi.
„Það er fyrst og fremst tilhlökkun í
mér að fara í þennan leik á þriðjudag-
inn,“ sagði Guðjón ennfremur. Hann
fékk þungt högg á lærið aftur í leikn-
um við Þjóðverja í gær en sagði að
það myndi ekki aftra sér frá því að
taka þátt í viðureigninni við Dani. „Ég
verð klár í slaginn.“
Íslendingar hefja keppni í 8-liða úrslitum HM í handknattleik í Hamborg annað kvöld
Orrusta við Dani
Morgunblaðið/Günter Schröder
Ábúðarfullur Alfreð Gíslason mun nú leggjast yfir leiki Dana á heimsmeistarmótinu en íslenska liðið mætir þeim í næsta leik.
„ÞAÐ er alveg frábært að fá Dani í
hreinum úrslitaleik um sæti í und-
anúrslitum og ég er viss um að
þetta verður tvísýnn og jafn leikur
þar sem við eigum jafna möguleika
og þeir á sigri,“ sagði Alfreð Gísla-
son, landsliðsþjálfari í gærkvöldi
þegar ljóst var að íslenska lands-
liðið í handknattleik mætir Dönum í
8-liða úrslitum í Hamborg. Ekki var
ljóst í gærkvöld hvort leikurinn
verður kl. 16.30 eða 19 en síðari
tímasetningin þótti líklegri.
Guðjón Valur