Morgunblaðið - 29.01.2007, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2007 13
ERLENT
Gaza-borg. AFP. | Leiðtogar stríðandi
fylkinga í Palestínu tóku í gær vel í
boð Abdullah, konungs Saudi-
Arabíu, um að binda enda á deiluna
og koma til Mekka til viðræðna um
lausn mála. Deilan hefur kostað 26
manns lífið og 60 manns til viðbótar
hafa særst síðan á fimmtudagskvöld.
Miklar óeirðir hafa verið í Gaza
síðan á fimmtudagskvöld og þær
urðu til þess að Abdullah bauðst til
þess í gær að hafa milligöngu um
friðarviðræður og lagði til að þær
færu fram í Mekka. Þar gætu leið-
togar stríðandi fylkinga rætt málin
án afskipta annarra.
Khaled Meshaal, fulltrúi Hamas-
samtaka Palestínumanna, sem er í
útlegð í Damascus, og Mahmud Abb-
as, leiðtogi Fatah-hreyfingarinnar
og forseti Palestínu, tóku boðinu
fagnandi en áður hafði Ismail Han-
iya, forsætisráð-
herra úr Hamas-
hreyfingunni,
hvatt til þess að
vopnin yrðu lögð
niður. Hann höfð-
aði til allra Pal-
estínumanna og
bað fólk um að
leggja sitt af
mörkum til að
hætta átökunum.
Orð hans breyttu ekki því að með-
limur Hamas týndi lífi í óeirðum í
Khan Yunes síðdegis í gær og í Nabl-
us á Vesturbakkanum rændu liðs-
menn Fatah 11 manns úr Hamas-
hreyfingunni. Sjö þeirra var síðar
sleppt.
Mikil spenna hefur verið í Gaza að
undanförnu og hafa ásakanirnar
gengið á víxl.
Leiðtogar taka vel boði um
friðarviðræður í Mekka
Friður Gengið í
Ramallah í gær.
VINDMYLLUR
hafa gegnt
veigamiklu hlut-
verki varðandi
ýmsa uppbygg-
ingu í Hollandi
en staða þeirra
nú er mun veiga-
minni en áður,
þótt enn séu þær
þjóðartákn. Til
að vekja athygli
á mikilvægi þeirra var ákveðið að
árið í ár yrði helgað þeim og því er
2007 ár vindmyllnanna í Hollandi,
en menningarmálaráðherrann ýtti
vindmylluárinu úr vör við sérstaka
athöfn um helgina.
Fyrst er getið um vindmyllu í
Hollandi 1407. „Þær hafa haldið
okkur þurrum,“ segir Leo Ende-
dijk, formaður samtaka um vernd-
un hollenskra vindmyllna. Það má
til sanns vegar færa en í óveðrinu á
dögunum voru margar myllur í
norðurhluta landsins notaðar til að
lækka vatnsyfirborðið, sem nálg-
aðist hættumörk.
Fyrsta rafmagnsdælustöðin var
reist 1928 og hafa rafmagnsdælur
víða komið í staðinn fyrir myll-
urnar. Nú eru 1.050 myllur í Hol-
landi en til samanburðar voru þær
um 9.000 um miðja 19. öld.
Árið helgað
vindmyllum
600 ár Vindmyllur
einkenna Holland.
SINN Féin, stjórnmálaarmur Írska
lýðveldishersins (IRA), samþykkti í
fjölmennri atkvæðagreiðslu á
flokksfundi í Dublin í gær að styðja
bresku lögregluna á Norður-
Írlandi. Þetta er söguleg ákvörðun
sem eykur líkur á samstarfi við
mótmælendur.
Já hjá Sinn Féin
ÍRASKAR öryggissveitir og banda-
rískir hermenn felldu að minnsta
kosti 250 uppreisnarmenn í grennd
við borgina Najaf í Írak í gær. Haft
var eftir íröskum liðsforingja að
allt að 500 uppreisnarmenn hefðu
farist í loftárásunum.
Mikið mannfall
BAN Ki-moon er nú í fyrsta sinn
staddur í Afríku sem fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna. Hann flytur ávarp á ráð-
stefnu Afríkuráðsins í Eþíópíu í
dag. Ban hóf heimsóknina í Kongó.
Ban í Afríku
FLUTNINGASKIP strandaði í
slæmu veðri skammt frá Algeciras
á Suður-Spáni í gær. Olía lak úr
skipinu og varð hennar vart á ná-
lægri strönd.
Skipið er skráð í Panama. Það
var með 14 manna áhöfn og var öll-
um bjargað í land.
Olía á ströndina
TALSMENN breska flugfélagsins British
Airways tilkynntu í gær að allt flug félagsins
á morgun og miðvikudag félli niður vegna yf-
irvofandi verkfalls.
Í tilkynningu frá British Airways segir að
félagið hafi þegar aflýst öllu flugi næstu tvo
daga til að gefa farþegum sínum svigrúm til
að breyta ferðaáætlunum sínum. Þeir sem
hafi keypt miða geti breytt áætlaðri flugferð
án kostnaðar eða fengið miðann end-
urgreiddan. Um er að ræða um 1.300 flug-
ferðir í innanlands- og utanlandsflugi frá
Heathrow og Gatwick. Verkföll hafa líka ver-
ið boðuð 5.–7. febrúar og 12.–14. febrúar.
Allt flug BA fellt
niður í tvo daga
FYRIR tæplega
tveimur mán-
uðum sendi kona
á suðurströnd
Englands tösku
til vinar síns í
Suður-Afríku.
Maðurinn fékk
aldrei töskuna og
komið hefur í ljós
að hún eða öllu
heldur innihald
hennar er nánast í bæjardyrum
sendanda eftir að hafa verið á ferð-
inni í um sex vikur.
Konan býr í Sidmouth í Devon á
Englandi. Taskan var send þaðan
til Antwerpen í Belgíu og þar fór
hún í gám sem fór í flutningaskipið
Napoli. Skipið flutti 2.323 gáma en
það strandaði í óveðrinu við suð-
vesturströnd Englands á dögunum
og fóru margir gámar í sjóinn.
Vörur úr þeim rak á land og hugðu
margir sér gott til glóðarinnar í
fjörunni. Þar á meðal var nágranni
umræddrar konu og honum brá
þegar hann gekk fram á mynd af
konunni og vini hennar frá Afríku.
„Það er með ólíkindum að taskan
skuli hafa farið eins langt og raun
ber vitni og innihaldi hennar hafi
svo skolað á land nánast í dyragætt-
inni hjá mér,“ sagði konan.
Farangurinn í langferð og rak
síðan á land rétt hjá sendanda
Vinna Ströndin
hreinsuð.
BENEDIKT XVI páfi flutti hefð-
bundin blessunarorð sín á sunnu-
degi á torgi Péturskirkjunnar í
gær. Hann óskaði meðal annars eft-
ir friði á meðal stríðandi fylkinga á
Gazasvæðinu og hvatti kristna
menn í Líbanon til að koma á við-
ræðum. Tvö börn slepptu síðan
tveimur friðardúfum frá svölunum.
Reuters
Óskað eftir friði
Washington. AFP.| Fjölmennir mót-
mælafundir gegn Íraksstríðinu voru
í Bandaríkjunum á laugardag og
kröfðust fundarmenn þess að banda-
ríska þingið klippti á útgjöld vegna
stríðsins og kæmi í veg fyrir fjölgun
bandarískra hermanna í Írak eins og
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hefur fyrirskipað.
Meira en 3.000 hafa týnt lífi
Mótmælafundir voru meðal ann-
ars í Los Angeles, San Francisco og
Washington. Skipuleggjendur fund-
arins við þinghúsið í Washington
sögðu að um 500.000 manns hefðu
sótt fundinn. Á meðal mótmælenda
voru gamlir hermenn, ættingjar lát-
inna hermanna og leikarar, og kröfð-
ust þeir þess að bandaríska herliðið
yrði kallað heim frá Írak.
Sjö bandarískir hermenn týndu
lífi í Írak á laugardag og þar með var
tala látinna bandarískra hermanna í
landinu komin í 3.068 síðan innrásin
var gerð í mars 2003. „Bandarískir
landar okkar deyja á meðan við
stöndum hérna,“ sagði leikarinn
Sean Penn. Hann bætti við að mót-
mælunum yrði haldið áfram þar til
þingið hefði samþykkt að hætta fjár-
framlögum til stríðsins í Írak og
bandarísku hermennirnir hefðu ver-
ið kallaðir heim.
Stefnan skýr
Utanríkisnefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings samþykkti sl. mið-
vikudag ályktun þar sem hún hafnar
áformum Bush Bandaríkjaforseta
um að fjölga í liði Bandaríkjahers í
Írak um 21.500 hermenn, en álykt-
unin er ekki bindandi. Medea Ben-
jamin, stofnandi kvennafriðarhreyf-
ingarinnar CodePink, sagði að
ályktunin væri góð en nægði ekki
mótmælendum stríðsins.
Samkvæmt skoðanakönnun
Newsweek á laugardag þarf þingið
að taka fastar á Bush Bandaríkja-
forseta varðandi Íraksstríðið. 64%
svarenda sögðu að þingið hefði ekki
verið nógu ákveðið í málinu en 27%
töldu að svo hefði verið. Á föstudag
áréttaði Bush að það væri hann sem
tæki ákvarðanirnar og daginn eftir
sagði Gordon Johndroe, talsmaður
Hvíta hússins, að forsetinn væri
áfram staðfastur í málinu. „Hann
skilur að Bandaríkjamenn vilja sjá
endalok stríðsins í Írak og nýja áætl-
unin er gerð með það fyrir augum.“
Ekki mótmælt stríði í 34 ár
Leikkonan Jane Fonda var í hópi
mótmælenda í Washington og ávarp-
aði viðstadda. Hún sagði að hún hefði
ekki mótmælt stríði í 34 ár eða síðan
hún mótmælti Víetnamstríðinu í
heimsókn í Hanoi 1972, „en þögn er
ekki lengur valkostur“. Hún sagði
ennfremur að hún væri leið yfir því
að mótmæli væru nauðsynleg en
Bandaríkjamenn hefðu ekkert lært
af Víetnamstríðinu.
Ekkert lært og þögn
ekki lengur valkostur
Fjölmenni á mótmælafundum í Los Angeles, San Francisco
og Washington í Bandaríkjunum gegn Íraksstríðinu
Reuters
Fjölmenni Skipuleggjendur mótmælafundarins við þinghúsið í Wash-
ington sögðu að um 500.000 manns hefðu sótt fundinn.