Morgunblaðið - 29.01.2007, Side 14
14 MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
MIÐASALA á Blúshátíð í
Reykjavík, sem verður haldin
3. til 6. apríl næstkomandi,
hefst föstudaginn 9. febrúar á
vefsvæðinu www.midi.is.
Meðal gesta á Blúshátíð
verður Ronnie Baker Brooks,
ein skærasta ungstjarnan í
amerískum blús. Þá snýr Zora
Young aftur til landsins.
Norska blúsdúóið Jolly Jum-
per & Big Moe kemur í fyrsta
sinn og íslenskir gestir verða fjölmargir, t.d.
Andrea Gylfadóttir og Lay Low.
Tónleikar verða á Nordica hóteli og Fríkirkj-
unni og klúbbur Blúshátíðar verður á Domo.
Tónlist
Miðasala á Blús-
hátíð í Reykjavík
Andrea
Gylfadóttir
FYRSTA sérfræðileiðsögn
Þjóðminjasafnsins á árinu
verður á morgun, þriðjudag,
klukkan 12:10.
Þá mun dr. Anna Lísa Rún-
arsdóttir mannfræðingur segja
frá sýningunni, Á tímum torf-
bæja: híbýlahættir og efnis-
menning í íslenska torfbænum
frá 1850, sem nú stendur yfir í
Forsalnum á 2. hæð Þjóð-
minjasafnsins.
Á sýningunni eru kynntar niðurstöður viðamik-
illar rannsóknar sem Anna Lísa vann á lífi í torf-
bæjunum á tímabilinu 1850 til búsetuloka fram yf-
ir 1950.
Leiðsögn
Lífið í íslenskum
torfbæjum frá 1850
Íslenskur
torfbær
MYRKIR músíkdagar halda
áfram og í kvöld, mánudags-
kvöld, kl. 20 flytja Hljómeyki
og Frank Aarnink slagverks-
leikari tónlist eftir Úlfar Inga
Haraldsson í Seltjarnar-
neskirkju. Stjórnandi er
Magnús Ragnarsson.
Annað kvöld, þriðjudags-
kvöld, eru svo Michael Clarke
barítón og Þórarinn Stef-
ánsson píanóleikari með tón-
leika í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit og hefjast
þeir einnig kl. 20.
Þar flytja þeir m.a verk úr Söngbók Garðars
Hólm eftir Gunnar Reyni Sveinsson.
Tónleikar
Verk úr Söngbók
Garðars Hólm
Seltjarnar-
neskirkja
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
STÆRSTA kaupstefna tónlist-
argeirans, Midem, var haldin í
Cannes í síðustu viku. Íslendingar
voru með sérstakan bás fjórða árið í
röð og voru 17 fyrirtæki og samtök
skráð á básinn, en alls sóttu yfir 40
Íslendingar hátíðina og er það fjöl-
mennasti hópurinn hingað til. „Það
hefur aldrei gengið betur. Þetta var
fjórða árið okkar þarna og við erum
farin að taka eftir því að fólk er farið
að koma sérstaklega til okkar til að
biðja um okkar tónlist,“ segir Sig-
fríður Björnsdóttir, framkvæmda-
stjóri Íslensku tónverkamiðstöðv-
arinnar. Hún segir ekki mikið um að
skrifað sé undir sölu- eða dreifing-
arsamninga á hátíðinni sjálfri, en
góð sambönd myndist hins vegar
sem oft leiði eitthvað af sér.
Mikill áhugi
Sigfríður segir að Íslendingar hafi
klárlega verið með flottasta básinn á
hátíðinni. „Lay Low spilaði á básn-
um í flottu boði sem Reykjavík-
urborg hélt fyrir íslenska tónlistar-
útflytjendur og gesti þeirra. Þetta
vakti mikla athygli, við vorum með
þurrís og það gaus upp úr glösum
auk þess sem við vorum með kok-
teila og fínar gjafir. Þetta var mjög
gaman og Lay Low vakti mikla at-
hygli,“ segir Sigfríður, en Reykja-
vík! og Fabúla spiluðu einnig í boð-
inu. Samkvæmt upplýsingum frá
Cod Music eru viðræður um svokall-
aðan framsalssamning hafnar við
erlend fyrirtæki vegna bæði Lay
Low og Reykjavík! í kjölfar Midem.
Fleiri íslenskir listamenn vöktu
athygli á hátiðinni og sem dæmi má
nefna að Gísli Þór Guðmundsson,
umboðsmaður hljómsveitarinnar
Sign skrifaði undir útgáfusamning
við þýska fyrirtækið Freibank.
Ásmundur Jónsson hjá Smekk-
leysu segir að mikill áhugi sé fyrir
hljómsveitinni Diktu í Bandaríkj-
unum og fyrir Jagúar í Japan. Ás-
mundur var einnig ánægður með
samning sem hann gerði við Indie
Mobile um dreifingu á öllum plötum
Smekkleysu í farsíma, auk þess sem
fyrirtækið er að ganga frá samn-
ingum um að koma um 100 mynd-
böndum sem gerð hafa verið í gegn-
um tíðina í heimsdreifingu í gegnum
iTunes og nýtt kanadískt fyrirtæki.
Þá náði Gunnlaugur Briem samn-
ingum í Þýskalandi og Skandinavíu
þar sem unnið verður að 30 ára af-
mælisútgáfu Mezzoforte.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson frá
Dimmu á í viðræðum við aðila í
Bretlandi, Kanada, Þýskalandi og
Japan og loks gerði Óttar Felix
Hauksson hjá Zonet samning í Kína
og Benelux löndunum um útgáfu á
Robertino.
Jón Leifs á DVD
Sigfríður segir að sígild íslensk
tónlist hafi einnig vakið töluverða
athygli á hátíðinni. „Þessi samtíma-
tónlistarbransi er hins vegar rosa-
lega erfiður þannig að við vorum
ekki að kynna einstök verk eða ein-
stakar útgáfur, heldur vorum við
fyrst og fremst að kynna bækling-
inn okkar,“ segir hún. „Tónabíó gaf
aftur á móti nýlega út á DVD bíó-
myndina Tár úr steini um Jón Leifs.
Það skiptir okkur rosalegu máli því
stór verk eftir Jón Leifs eru spiluð
erlendis á hverju einasta ári, þó að
fólk hér fái því miður alltof lítið að
heyra af því. En við vorum með brot
úr myndinni á skjám á básnum og
svo sýndum við líka brot frá frum-
flutningi á Eddu sem vakti tölu-
verða athygli,“ segir Sigfríður að
lokum.
Íslensk tónlist vakti mikla athygli á Midem-kaupstefnunni í Cannes
Aldrei gengið betur
HOLLYWOOD
stjörnur sem
leika á sviði í
London eru að
eyðileggja
breskt leikhús
sagði hið þekkta
leikritaskáld Sir
Alan Ayckbourn
á föstudaginn í
viðtali við Times.
Bandarískar stjörnur sem eru
lokkaðar í West End leik-
húshverfið til að selja miða eru
óhæfar í sviðsleik, bæla niður nýja
hæfileika og skilja leikhúsgesti eft-
ir með vonbrigðin ein, sagði
Ayckbourn.
„Það sem er að gerast er að leik-
húsin eru að fyllast af aðdáendum
stjarnanna og það sem þeir upplifa
í leikhúsinu er léleg frammistaða,
þeir ganga út fullir af vonbrigðum
og það er annað áfall fyrir leik-
húsin, því fullt af fólki mun ekki
fara aftur.“
Hann sagði að í staðinn fyrir að
kenna stjörnunum sínum um fari
aðdáendur heim með þá hugmynd
að þeir hafi einfaldlega ekki gam-
an af leikhúsi, að þeir njóti ekki lif-
andi sviðsleiks.
Ayckbourn er á því að West End
framleiðendur séu ekki tilbúnir til
að taka áhættu og nota nýja hæfi-
leikaríka leikara og byggja upp
sína eigin leikara við húsin.
„Í staðinn sjáum við sjónvarps-
stjörnur,“ sagði hann.
Fyrir utan Kevin Spacey, sem
hann segir einn af fáum bandarísk-
um kvikmyndaleikurum sem geti
leikið á sviðið, hæðist hann að
þeim verstu fyrir að hafa ekki hug-
mynd um hvað þeir eigi að gera
við handleggina á sér.
„Bretland er fullt af hæfi-
leikaríku fólki. Ungir leikarar hafa
aldrei verið betri, en þeir eru
hundleiðir á að sjá starfinu sínu
sópað í burtu af fólki sem hefur
eingöngu fengið tækifæri fyrir
framan sjónvarpstökuvélar.“
The Times taldi svo upp nokkrar
góðar og slæmar stjörnur sem hafa
komið fram á sviði á West End.
Kevin Spacey, Woody Harrelson,
Nicole Kidman og Gwyneth Palt-
row var hrósað fyrir frammistöðu
sína en Glenn Close, Matt Damon,
Jerry Hall, Madonna, Matthew
Perry og David Schwimmer þóttu
hræðileg.
AFP greinir frá.
Lélegar
stjörnur á
leiksviði
Fræga fólkið að eyði-
leggja breskt leikhús
Kevin Spacey
SJÓNVARPIÐ hefur bráðlega sýn-
ingar á átján stundarfjórðungs-
löngum sjónvarpsþáttum um ís-
lenskt tónlistarlíf undir heitinu
Tónlist er lífið.
„Við sýnum tvo kortersþætti sam-
an í hvert skipti. Hver þáttur er
byggður upp þannig að u.þ.b. helm-
ingurinn er tónlist og hitt talað orð.
Þá er rætt við viðkomandi listamenn
um tónlist, en það er ekki verið að
fjalla mikið um feril þeirra eða per-
sónulegt líf heldur hvað þeir eru að
fara með sinni list,“ segir Ari Trausti
Guðmundsson, rithöfundur og nátt-
úrufræðingur, en hann er umsjón-
armaður þáttanna.
„Þættirnir taka á nokkuð breiðu
tónlistarsviði, frá þjóðlagaskotinni
tónlist til djass og klassíkur. Við
slepptum rokki og poppi því við urð-
um að afmarka okkur.
Í klassíkinni fjöllum við t.d. um
kórastarf, kirkjutónlist, einleikara
og óperu. Við fylgjum einleikara eftir
frá því að hann byrjar að æfa tón-
verk og þangað til hann flytur það á
tónleikum til að sýna hvernig þetta
ferli er. Við fylgjum líka eftir upp-
setningu á Öskubusku í Íslensku óp-
erunni.“
Ari segir þættina eiga að sýna þá
grósku og breidd sem einkennir tón-
listarlífið í landinu. Efni þáttanna
var tekið upp víða um land, t.d. á
Dalvík, Flúðum og í Keflavík, en
einnig á Englandi, í Ungverjalandi,
Þýskalandi, Færeyjum og á Spáni.
„Þetta verða þættir fyrir alla og
tilgangurinn er að vekja áhuga fólks
á allri þessari tónlist.“
Frumkvæði að sjónvarpsþátt-
unum, Tónlist er lífið, höfðu Vigdís
Esradóttir, forstöðumaður Salarins,
og Jónas Ingimundarson píanóleik-
ari, en kvikmyndafyrirtækið Lífs-
mynd ehf. tók að sér framleiðslu
þáttanna undir stjórn Valdimars
Leifssonar kvikmyndagerðarmanns.
„Ég og Valdimar vorum með vís-
indaþætti í Sjónvarpinu sem voru
byggðir upp á svipaðan hátt og Tón-
list er lífið og Jónasi og Vígdísi leist
það vel á formið á þeim að þau leit-
uðu til okkar. Við erum báðir miklir
áhugamenn um tónlist svo okkur
þótti þetta skemmtilegt verkefni
sem við höfum nú unnið að í tvö ár,“
segir Ari.
Stýrihópur til mótunar
Settur var á fót stýrihópur til að
móta þættina skipaður þeim dr.
Ágústi Einarssyni, rektor Háskólans
á Bifröst, Guðrúnu J. Bachmann,
kynningarstjóra Háskóla Íslands,
Guðna Franzsyni tónlistarmanni,
Jónasi og Vigdísi ásamt Ara Trausta.
Verkefnið hlaut styrk frá Alþingi
og menntamálaráðuneytinu, en að
auki studdu Salurinn, Icelandair og
fjöldi annarra aðila gerð þáttanna
með ýmsu móti.
Fyrsti þátturinn verður sýndur
11. febrúar og þar koma fram Helga
Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari á
Dalvík og framúrstefnutónlist-
armaðurinn Hilmar Jensson.
Ari Trausti Guðmundsson er umsjónarmaður nýrrar sjónvarpsþáttaraðar um íslenska tónlist
Tilgangur þátt-
anna að vekja
áhuga á tónlist
Morgunblaðið/Eggert
Tónlist Ari Trausti Guðmundsson er umsjónarmaður sjónvarpsþáttarað-
arinnar Tónlist er lífið sem sýnd verður í Sjónvarpinu í febrúar.
TÓNLISTARKONAN Lay Low spilaði á stærstu kaupstefnu tónlistargeir-
ans, Midem, sem var haldin í Cannes í síðustu viku. Íslendingar voru með
sérstakan bás fjórða árið í röð og voru 17 fyrirtæki og samtök skráð þar.
Lay Low á Midem