Morgunblaðið - 29.01.2007, Page 40
40 MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 8 LEYFÐ
FORELDRAR kl. 10 B.i. 12
TENACIOUS D IN: THE PICK OF D... kl. 8 B.i. 12
KÖLD SLÓÐ kl. 10:15 B.i. 12
/ KEFLAVÍK
BLOOD DIAMOND kl. 8 B.i. 16 ára
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
BABEL kl. 8 B.i. 16 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
/ AKUREYRI
ÓSKARSTILNEFNINGAR
m.a. fyrir aðalhlutverk karla/ Leonardo dicaprio5
FRÁ LEIKSTJÓRA
“THE LAST SAMURAI”
ÆVINTÝRALEG SPENNA OG HASAR.
STYÐST VIÐ RAUNVERULEGA ATBURÐI
SÝND Í HÁSKÓLAB
BLOOD DIAMOND kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
FORELDRAR kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
BABEL kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
CHILDREN OF MEN kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:30 B.i. 16 ára
THE HOLIDAY kl. 6 B.i. 7 ára
THE DEPARTED kl. 8:30 B.i. 16 ára
FRÁBÆR
BARNA-OG
FJÖLSKYLDU-
MYND FRÁ
HÖFUNDI
STÚART LITLA.
ATH! BÓKIN SEM MYNDIN ER BYGGÐ Á HEFUR VERIÐ ENDURÚTGEFIN
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
eeee
H.J. MBL.
eeee
B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
ÓSKARSTILNEFNINGAR
m.a. fyrir besta handrit ársins3
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
HJÁLPIN BERST
AÐ OFAN
SÝND BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
eeee
L.I.B. - TOPP5.IS
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Strákarnir og stelpurnar okkar
Mánudagurinn 22. janúar 2007 er
dagurinn, sem strákarnir okkar
lögðu Evrópumeistara Frakka á
sannfærandi hátt. Ég var búinn að
fyrirgefa þeim leikinn við Úkraínu
og hugsa mér alls konar huggunar-
orð og setningar. Það er ekki hægt
að ætlast til að þeir eigi alltaf góðan
dag. Ef menn ætla að verða heims-
meistarar munar þá ekki um að
klára Frakkana strax.
Leikurinn við Úkraínu skiptir
ekki máli, ef meiningin er að slátra
Frökkum. Ef til vill verður tap gegn
Úkraínu til þess að þeir bíti í skjald-
arrendurnar og geri út af við Frakk-
ana. Þótt ég vonaði, þá óraði mig
ekki fyrir því, að þeir myndu ganga
frá Frökkunum, enda mun ég fyr-
irgefa þeim hvað sem er eftir þetta.
Ísleska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu sem er, eftir því sem ég best
veit, hærra skrifað í alþjóðlegum
stöðlum en karlalandsliðið, mun eft-
irleiðis fá sömu dagpeninga og karl-
arnir í keppnisferðum erlendis. Við
þetta hækka dagpeningarnir hjá
stúlkunum, þótt undarlegt megi
virðast.
Landslið Íslands í badminton,
skipað strákum og stelpum, var að
gera það gott í gær. Hver veit nema
það hafi verið strákunum okkar í
handboltanum vítamínssprauta.
Þórhallur Hróðmarsson.
„Frjálslyndi“ flokkurinn
ÉG hef fylgst með þessari umræðu,
ef umræðu skyldi kalla, um Frjáls-
lynda flokkinn. Það sem stendur upp
úr að mínu áliti er tvennt.
Í fyrra lagi pólitískt klúður for-
mannsins að lýsa yfir stuðningi við
annan af frambjóðendum til varafor-
manns. Svona gera „alvöru“ for-
menn ekki.
Í seinna lagi er að það er alveg
greinilegt að það er ekki mark tak-
andi á núverandi varaformanni.
Hann segir eitt í dag og annað á
morgun. Hann er eini aðilinn í þess-
ari „deilu“ sem er ákaflega orðljótur
um það fólk sem hann lítur á sem
andstæðinga sína. Svo mörg voru
þau orð.
Páll.
Frábær þjónusta
ÉG fór rétt fyrir síðustu jól á hár-
snyrtistofu á Nýbýlavegi sem heitir
Gott útlit. Þar var mér sýnd fram-
úrskarandi þjónusta og gott viðmót
og var ég mjög ánægður með þessa
góðu stofu og mun ég örugglega
halda áfram að þiggja þjónustu þar í
framtíðinni.
Hafliði Helgason.
Fá úrræði
Út af nauðgunum og líkamsáraásum
í miðbænum og Laugaveginum hafa
verið fá úrræði til þessa nema að
auka gæslu, herða löggæslu og setja
upp eftirlitsmyndavélar. Nú vill svo
óheppilega til að flestir pöbbar og
skemmtistaðir þjappast saman á
litlu svæði og til að laga þetta mæli
ég með því að það verði bannað að
selja neitt sterkara en sherry á veit-
ingahúsum á Laugaveginum og í
hjarta borginnar. Þessi aðferð hefur
verið notuð erlendis með mjög góð-
um árangri. Þá mundu staðirnir lík-
lega dreifa sér víðar. En eins og er
er þetta óviðunandi ástand og mikið
álag á lögreglu.
Jón Guðmundsson,
Skarphéðinsgötu 16
.
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
90ára af-mæli. Í
dag, 29. janúar,
verður níræður
Ingólfur Rögn-
valdsson, fyrr-
verandi verk-
stjóri í Hamri,
Kambsvegi 16,
áður á Bakk-
astíg 5 í Reykja-
vík. Hann og kona hans, Hólmfríður
Jónasdóttir, verða að heiman.
70ára af-mæli. Í
dag, 29. janúar,
er sjötug Erla
Jóhannsdóttir,
Eyvindará 2,
Egilsstöðum.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira lesendum sín-
um að kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudags- og mánudags-
blað. Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn ábyrgð-
armanns og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569-1100 eða
sent á netfangið ritstjorn-
@mbl.is.
Hægt er að senda tilkynningar í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda
efni til Morgunblaðsins – þá birt-
ist valkosturinn Árnað heilla
ásamt frekari upplýsingum.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
Ekki er sjálfgefið aðvera í fremstu
röð og það gerist ekki
sjálfkrafa. Að baki
liggur þrotlaus vinna
og þegar áfanganum
er náð gengur ekki að
slaka á, ætli menn sér
að halda sér á meðal
þeirra bestu eða kom-
ast alla leið á toppinn.
Mikilvægt er að hafa
þetta í huga þegar
rætt er um gengi ís-
lenska karlalandsliðs-
ins í handbolta, en það
hefur enn einu sinni
kætt þjóðarsálina, nú
með frábærri frammi-
stöðu í heimsmeistarakeppninni í
handbolta.
Í þessu sambandi er vert að minn-
ast þess að til að komast í úr-
slitakeppni þeirra bestu urðu Ís-
lendingar að hafa betur í tveimur
leikjum á móti Svíum, sem hafa ver-
ið í hópi þeirra allra bestu und-
anfarna tvo áratugi og hafa alltaf
verið með á HM þar til nú.
Það er líka hollt að hafa í huga að
á efsta stigi handboltans eru hlut-
irnir fljótir að breytast og ekkert er
öruggt fyrr en leikurinn er búinn.
Leikur Íslendinga á móti Slóvenum
um helgina er nærtækt dæmi, en
„strákarnir okkar“ urðu að sigra til
þess að tryggja sæti í átta liða úrslit-
um. Þeir höfðu und-
irtökin lengst af, náðu
mest fimm marka for-
ystu, þegar 10 mínútur
voru til leiksloka, en
misstu forystuna niður
í eitt mark áður en yfir
lauk. En þeir gerðu það
sem þeir þurftu til að
komast lengra og það
er aðalatriðið. „Strák-
arnir okkar“ eru í hópi
átta bestu liða heims og
í sjálfu sér er það stór-
kostlegur árangur.
Allt íþróttastarf
byggist á samvinnu
allra sem hlut eiga að
máli. Undirstöðurnar,
það er starf íþróttafélaganna, verða
að vera sterkar með árangur lands-
liða í huga. Sérsambandanna er síð-
an að fylgja á eftir með verkefnum
fyrir landsliðin. Það getur reynst
þrautin þyngri og til dæmis eru ekki
mörg ár síðan Handknattleiks-
sambandið stóð frammi fyrir því að
þurfa hugsanlega að hætta við ferð
landsliðsins til útlanda vegna fjár-
skorts.
Stundum hefur gengið vel hjá
landsliðinu og stundum ekki eins vel,
en menn þar á bæ reyna alltaf að
gera sitt besta. Stuðningur við HSÍ
og landsliðið í blíðu og stríðu skiptir
miklu máli, ef menn vilja liðið áfram
í fremstu röð.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er mánudagur
29. janúar, 29. dagur
ársins 2007
Orð dagsins: Jesús horfði á þá og sagði: „Fyrir
mönnum eru engin ráð til þessa, en fyrir Guði.
Guð megnar allt.“ (Mk. 10, 27.)
Það tókst engum að slá EivørPálsdóttur söngkonu við á
Planet Awards tónlistarverð-
launahátíðinni sem haldin var í Þórs-
höfn í Færeyjum í gærkvöldi og
hlaut hún titilinn besta söngkona
ársins annað árið í röð.
Færeyska veftímaritið Sosialurin
skýrði frá því að 2006 hefði verið
besta tónleikaár Eivarar til þessa.
Hún hélt tónleika víða og hlaut verð-
laun í Danmörku.
Eivør gat ekki tekið á móti verð-
laununum þar sem hún var stödd er-
lendis, hún hélt nýlega tónleika í
Skotlandi og mun halda til Írlands í
upptökuver.
Jón Tyril sem lék með Eivöru á
clickhaze tók á móti verðlaununum
fyrir hennar hönd og bar við-
stöddum kveðju hennar.
Söngvarinn, lagasmiðurinn ogleikarinn Tom Waits gekk að
dómssátt í máli sem hann hafði höfð-
að gegn þýska bílaframleiðendanum
Adam Opel AG og auglýsingastof-
unni sem gerði auglýsingu 2005 þar
sem hermt var eftir söngstíl hans og
rödd.
Opel segir að tónlistin hafi ekki
verið hugsuð sem eftirlíking af verk-
um Tom
Waits.
Waits
sagði að
hann hefði
hafnað
mörgum
óskum
Opels um
að fá að
nota tónlist
hans í
þessari auglýsingu.
Opel sagði að þessi tónlist væri
eftir Brahms.
Samkvæmt fréttavef BBC hefur
ekki verið gefið upp hversu háa upp-
hæð Waits þáði í dómssáttinni en
lögmaður hans sagði að þeirri upp-
Fólk folk@mbl.is