Morgunblaðið - 29.01.2007, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2007 41
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
BLOOD DIAMOND kl. 8 - 10:50 B.i. 16 DIGITAL
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL
CHARLOTTE´S WEB m/ensku tali kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ DIGITAL
THE PRESTIGE kl. 8 - 10:30 B.i. 12
HAPPY FEET m/ensku tali kl. 5:50 LEYFÐ DIGITAL
/ KRINGLUNNI
ÓSKARSTILNEFNING
besta teiknimynd ársins1
eeee
H.J. Mbl.
ÓSKARSTILNEFNINGAR
m.a. sem besta mynd ársins7
/ ÁLFABAKKA
BLOOD DIAMOND kl. 5:30 - 8 - 10:50 B.i.16 .ára.
BLOOD DIAMOND VIP kl. 8 - 10.50
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 4:10 - 5:50 LEYFÐ
FORELDRAR kl. 6 - 8 - 10
THE PRESTIGE kl. 8:30 - 10:50 B.i.12 .ára.
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
BABEL kl. 8 - 10:50 B.i.16 .ára.
BABEL VIP kl. 5
STRANGER THAN FICTION kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ
HAPPY FEET m/ensku tali kl. 3:30 LEYFÐ
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ
ÓSKARSTILNEFNINGAR2
eeee
B.B.A. PANAMA.IS
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
RÁS 2
eeee
B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
GOLDEN GLOBE TILNEFNING
BESTI LEIKARI : WILL FERRELL
eeee
L.I.B. TOPP5.IS
eeee
S.V. MBL.
ÓSKARSTILNEFNINGAR2SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
BÍÓI
ÓSKARSTIL-
NEFNINGAR5
MARTIN SCORSESE
BESTI LEIKSTJÓRINN
eeee
LIB - TOPP5.IS
eeeee
- B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
- PANAMA.IS
eeee
- LIB, TOPP5.IS
GOLDEN GLOBE
BESTA MYND ÁRSINS
eeee
H.J. MBL.
MEÐ CHRISTIAN BALE, HUGH JACKMAN OG
ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANUM MICHAEL CAINE.
eeee
Þ.T. KVIKMYNDIR.IS
eeee
FRÉTTABLAÐIÐ
FRÁ ÞEIM SÖMU
OG GERÐU
VERÐLAUNA-
MYNDINA
BÖRN
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Atburðir sem virðast tilviljanakenndir
eru það ekki. Þess í stað eru þeir bein
afleiðing samkomulags sem þú hefur
gert við sjálfan þig eða aðra, meðvitað
eða ómeðvitað. Taktu aftur við stjórn-
inni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Einhver sem gegnir lykilhlutverki í
viðfangsefnum nautsins kemur til
skjalanna í vikunni. Þú ert í rétta gírn-
um til þess að taka leiðbeiningum og
jafnvel forystu viðkomandi. Eyddu
deginum í dag með virðingu og þakk-
læti í huga.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ef veröldin er leiksvið er tvíburinn
snillingur í því að breyta sér í "per-
sónuna" sem þarf til þess að breyta nú-
verandi atburðarás í yndislega og róm-
antíska sögu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Viðteknar venjur eru mismunandi frá
fjölskyldu til fjölskyldu, vinnustað til
vinnustaðar, manneskju til manneskju.
Þú færð að kynnast reglum einhvers
annars í dag. Eitthvað fyndið gerist
óvænt eftir miðjn dag,
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ekkert samband er fullkomið. Að tak-
ast á við galla náins samband af rausn-
arskap og ljónslegu hugrekki gæti
breytt því sem brotið er í meiriháttar
áhrifavald í lífi þínu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan er nú þegar góð í því að gera
við hluti og fegra þá. Miðlaðu sköp-
unargáfu þinni til annarra í veröldinni.
Það þýðir að þú þarft að taka þá
áhættu að vera hafnað. Þú ert tilbúin.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hlutirnir sem gera heimili vogarinnar
viðkunnalegra, auka líka sjálfstraust
hennar. Bættu nokkrum sterkum litum
við, til dæmis rauðum eða fjólubláum,
með málningu, hillum eða nýjum púð-
um. Þú hressist bara með því einu að
horfa á þá.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Daður er til í ýmsum myndum. Það
sem aðrir myndu kalla átök eru ekkert
annað en vingjarnlegt hjal í þínum
augum. Félagar sem drekinn velur um
helgina passa honum einstaklega vel.
Einhleypir: Láttu einhvern hafa fyrir
því að fá símanúmerið þitt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Sérhver hugsun bogmannsins miðast
að því að ná árangri. Þó að maður fari
rétt að öllu er flókið að láta sig dreyma
um tiltekna niðurstöðu. Til þess að öðl-
ast það sem maður vill þarf maður að
spyrja hvað? í stað hvernig?
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitinni tekst að hvetja þrjóskan
einstakling með því að beita gömlu
góðu gulrótinni. Gættu þess samt að
verðlauna viðkomandi á endanum, ann-
að væri hrein illska.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Að vera innan um fólk sem trúir á þig
og hvetur hefur áhrif á viðhorf þitt og
þar með hæfileika og framleiðni.
Reyndu ljón eða bogmann.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hugsast getur að svokallaður "óvinur"
sé ómeðvitað viðhorf eða trú sem fisk-
urinn er ekki til í að sleppa. Him-
intunglin gefa honum óvænta innsýn í
það sem aðrir eru að hugsa. Þannig sér
hann hlutina í réttu ljósi.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Afstöður himintunglanna
vita á gott í vina-
samböndum, ekki síst þeim
af skrýtnari og óvenjulegri
gerðinni. Fólk sem hittist í
fyrsta sinn lætur eins og
aldagamlir vinir. Því afslappaðri sem
samskiptin eru því viðkunnalegri verða
þau.
„ÞAÐ er eins gott að þeir finni ekki
olíu, þá fyrst fáum við að finna fyrir
því.“ Eitthvað á þessa leið segir Afr-
íkubúi þar sem hann stendur, gam-
all og hrumur, í rjúkandi þorpsrúst-
unum, í miðju blóðbaðinu þar sem
uppreisnarmenn hafa gengið á milli
bols og höfuðs á íbúunum. Líkin
liggja eins og hráviði um allt.
Áhorfandinn fær ekki séð hvernig
ástandið getur orðið verra, þó svo
að olía og aðrar náttúruauðlindir
hafi gert frumbyggjum Afríku meiri
bölvun en gagn. Viðurstyggð níð-
ingsverka miskunnarlausra upp-
reisnarmanna á saklausum borg-
urum í Síerra Leóne er einmitt
sterkasti þáttur Blóðdemants. Þeir
minna á óhugnanlegar heimild-
armyndir um ástandið í nágranna-
ríkinu Líberíu (Liberia: An Uncicil
War (’04)) og Týndu börnin (’05),
titillinn vísar til mannrána upp-
reisnarmanna í Úganda sem góma
árlega í þúsundatali unglinga á
bilinu 8–14 ára og þjálfa þá upp í að
gerast morðingjar og illvirkjar und-
ir yfirskini föðurlandsástar og
hetjudýrkunar. Börn og óharðnaðir
unglingar eru auðsveip og nýtast
vel ribböldunum sem kenna þeim að
handleika drápsvopn og ota þeim
síðan í fremstu víglínu í linnulausum
átökunum um alla álfuna. Í lok
Blóðdemants kemur fram að í dag
eru um 200.000 börn undir vopnum í
klóm uppreisnarseggja víðs vegar
um álfuna.
Titillinn vísar til risastórs dem-
ants sem fiskimaðurinn Solomon
(Hounsou) finnur og felur eftir að
hann er gripinn af uppreisn-
armönnum er þeir ráðast inn í þorp-
ið hans. Solomon er fluttur í nauð-
ungarvinnu í demantanámu en syni
hans er rænt af ribböldunum, sem
fara eyðandi hendi undir merkjum
byltingarmanna, en kona hans og
dætur ná naumlega að flýja til skóg-
ar.
Aðalsögupersónan er Danny Arc-
her (Di Caprio), fyrrverandi Róde-
síubúi sem barn að aldri horfði á
fjölskyldu sína myrta af inn-
fæddum, en hefur síðan haft ým-
islegt óhreint mjöl í pokahorninu.
Gerst málaliði og að undanförnu
demantasmyglari sem starfar undir
stjórn ofurstans (Vosloo), sem kem-
ur eðalsteinunum í verð á heims-
markaðnum. Þá kemur við sögu
blaðakonan Maddy (Connelly), sem
er fulltrúi samvisku umheimsins í
þessum spillta og guðsvolaða heims-
hluta. Hún er að kanna demant-
asmyglið úr stríðshrjáðu landinu,
hagnaðurinn af því fer óskiptur í
hendur spilltra ráðamanna og til að
fjármagna vopnakaup uppreisn-
arseggja.
Í sameiningu og með miklum
fórnarkostnaði tekst þeim Maddy,
Solomon og Archer að fletta ofan af
ferli þessara svokölluðu „átakagim-
steina“, sem uppreisnarmenn nota
til að fjármagna stríðsbröltið.
Nafn myndarinnar, Blóðdem-
antur, minnir óneitanlega á löngu
gengnar ævintýramyndir og það er
kostur og galli að höfundarnir eru
að daðra við slíka kvikmyndagerð
en jafnframt er hún þrungin boð-
skap og fær bíógesti til að velta fyr-
ir sér hroðalegu ástandinu í lönd-
unum sunnan til í Afríku, en þessir
þættir blandast ekki vel saman.
Týndu börnin, Liberia: An Uncivil
War, Hotel Rwanda, Shake Hand
with the Devil, allt eru þettar nýleg-
ar og firnaöflugar myndir um óþol-
andi ástand sem íbúar Afríku verða
að horfast í augu við á hverjum degi
og þessi verk hafa engu breytt, því
miður. Við fyllumst skelfingu um
stund, síðan tekur lífsbaráttan við
eins og ekkert hafi í skorist. Von-
andi, einn góðan veðurdag, hafa
myndir á borð við Blóðdemant ein-
hver varanleg áhrif á hugsunarhátt
Vesturlandabúa.
Blóðdemantur dregur sannarlega
upp dökka mynd og trúverðuga af
djöfulskapnum, landið er sann-
arlega á valdi illra afla sem einskis
svífast til að blóðmjólka auðlind-
irnar á meðan alþýðan býr við
kröpp kjör, miskunnarlaust stríð og
líf hennar er einskis virði í barátt-
unni um völdin yfir auðnum.
Sem afþreying og ævintýramynd
virkar Blóðdemantur jafnvel enn
betur, hröð og æsispennandi, nánast
aldrei dauður punktur í allri fram-
vindunni, þótt löng sé. Við fáum líka
að kynnast vanda íbúanna innan frá,
fjölskyldusaga Solomons er
grimmdarleg lýsing á atburðum
sem sífellt eru að endurtaka sig.
Dugleysi „alþjóðasamfélagsins“ er
undirstrikað líkt og aðgerðaleysi
stórvelda sem halda að sér höndum
að öðru leyti en að selja „sínum
mönnum“ vopn til að halda hild-
arleiknum gangandi. Vitandi að þau
fá greitt í blóðpeningum.
Di Caprio er réttur maður á rétt-
um stað sem harðjaxlinn Archer,
sem reynist vera með hjartað á rétt-
um stað þegar í nauðirnar rekur. Di
Caprio leikur hlutverkið trúverð-
uglega, er bæði slægur refur og
stormandi hetja: Minnir á kappa á
borð við Errol Flynn og hans máta
á öldinni sem leið. Maður sér engan
af hans kynslóð, nema ef vera skyldi
Johnny Depp, ná að lita persónuna
jafnsterkum litum, annan en þetta
hæfileikaríka glæsimenni.
Hounsou hreif kvikmynda-
húsgesti upp úr skónum í In Am-
erica, hann gefur Di Caprio ekkert
eftir, þessir herramenn og stórleik-
arar eiga, ásamt umhverfinu, ríkan
þátt í að gera Blóðdemant mik-
ilfenglega fyrir augu og eyru. Con-
nelly stendur þeim nokkuð að baki
en leikarar í minni hlutverkum eru
yfirhöfuð framúrskarandi. Sama
verður sagt um klippingu, hljóð og
töku og mögnuð tónlist James Hor-
ners sveipar mynd hins mistæka
Zwicks epískum glæsibrag. Hún er
stórkostleg afþreying sem vekur
áhorfandann til umhugsunar, þótt
þessir þættir fléttist ekki alltaf sam-
viskusamlega saman.
Demantar „Di Caprio er réttur maður á réttum stað sem harðjaxlinn Arc-
her, sem reynist vera með hjartað á réttum stað þegar í nauðirnar rekur,“
segir m.a í dómnum.
Demantar eyðast aldrei
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Háskólabíó
Blóðdemantur/Blood Diamond
Leikstjóri: Edward Zwick. Aðalleikendur:
Leonardo DiCaprio, Jennifer Connelly, Dji-
mon Hounsou, Michael Sheen, Arnold
Vosloo, David Harewood, Basil Wallace,
Ntare Mwine. 135 mín. Bandaríkin
2006.
Sæbjörn Valdimarsson
hæð yrði varið til góðgerðarmála.
„Ég er feginn að vera ekki lengur
í bílasölubransanum,“ sagði Waits.
Í fyrra höfðaði hann svipað mál
gegn bílaframleiðendum Wolkswa-
gen-Audi í Barcelona á Spáni, en
bílaframleiðandinn notaði eft-
irhermu til að líkja eftir söngrödd
hans í auglýsingu fyrirtækisins.
Eftirherman söng lagið „Innocent
When You Dream“ en Tom Waits
hefur aldrei gefið leyfi fyrir því að
nokkurt lag hans væri notað í aug-
lýsingum.
Fegurðardrottning Bandaríkj-anna, Tara Connel, segist vera
allt önnur manneskja síðan hún
gekk í gegnum meðferð, segir á vef-
síðu People. „Ég er allt önnur mann-
eskja eftir meðferðina. Fyrir með-
ferð vissi ég varla hver ég var, mér
leið eins og ég væri í lausu lofti og ég
þurfti eitthvað til að ná mér niður á
jörðina,“ sagði hún.
Connel er fædd í Kentucky og er
nýorðin 21 árs. Hún skráði sig í með-
ferð í desember eftir mikil partý-
höld, lauslæti og óáreiðanleika. Hún
var 31 dag í meðferð, þar á meðal yf-
ir jól og áramót.
„Ég hélt að ég þyrfti ekki að fara í
meðferð en eftir á sé ég að ég þjáist
af alkóhólisma.“
Conner tapaði nærri því titili sín-
um sem fegursta kona Bandaríkjana
vegna hegðunar sinnar.