Morgunblaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 1
föstudagur 23. 2. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Barcelona þarf kraftaverk gegn Liverpool á Anfield >> 4
KONUR DÆMDU SAMAN
INDÍANA SÓLVEIG MARQUEZ OG GEORGÍA OLGA
KRISTIANSEN SKRÁÐU NÖFN SÍN Í SÖGUBÆKURNAR >> 2
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Einar sagði leiðinlegt að hafa ekki
getað mætt heimsmeisturum Þjóð-
verja eins og þeir óskuðu eftir þar
sem það væri ekki á hverjum degi
sem heimsmeistarar óskuðu eftir að
spila við íslenska landsliðið. Þá væri
gaman að leika við þá um þessar
mundir. Mikill áhugi væri fyrir
þýska landsliðinu í heimalandinu
eftir að það vann heimsmeistaratit-
ilinn á heimavelli fyrir skömmu.
Leikirnir tveir sem þýska liðið leik-
ur verða kveðjuleikir fyrir tvo
sterkustu leikmenn landsliðsins síð-
ustu ár, þá Markus Baur og
Christian Schwarzer. Þeir hafa báð-
ir ákveðið að hætta að leika með
landsliðinu.
Í staðinn leikur íslenska lands-
liðið á fjögurra þjóða móti í París
um páskahelgina ásamt landsliði
heimamanna, Pólverjum sem unnu
silfurverðlauna á heimsmeistara-
mótinu og Túnisbúum.
Einar sagðist reikna með að ís-
lenska landsliðið komi saman í
Þýskalandi á skírdag áður en það
heldur yfir til Parísar en leikið
verður í Bercy-íþróttahöllinni. Leik-
ið verður við Pólverja föstudaginn
6. apríl, daginn eftir við Frakka og í
lokaleiknum mætir íslenska liðið
Túnis.
Íslenska landsliðið mætti öllum
þessum þremur þjóðum á nýaf-
stöðnu heimsmeistaramóti. Leikirn-
ir við Frakka og Túnisbúa unnust
en viðureignin við Pólverja tapaðist
naumlega.
Einar sagðist ekki eiga von á
öðru en að Alfreð Gíslason, lands-
liðsþjálfari, gæti stillt upp sínu
sterkasta liði á Frakklandsmótinu,
a.m.k. eins og staðan væri núna.
Ekki er útilokað að Einar Hólm-
geirsson geti tekið þátt í mótinu en
hann mun vera á góðum batavegi
eftir að hafa meiðst í lok desember.
Meiðslin voru alvarleg og missti
hann þar með af heimsmeistara-
mótinu af þeim sökum. Faðir Ein-
ars, Hólmgeir Einarsson, sagði í
samtali við Morgunblaðið á dög-
unum að bati sonar síns væri góður
og væri hann heldur á undan áætl-
un en hitt og er jafnvel búist við að
Einar geti farið að leika á ný með
Grosswallstadt í þýska handknatt-
leiknum upp úr miðjum mars.
Ósennilegt er að Jaliesky Garcia
verði klár í slaginn í París þar sem
hann hefur enn ekki náð sér eftir
að krossband í öðru hné hans slitn-
aði á haustmánuðum.
Varð að afþakka tvo lands-
leiki við heimsmeistarana
Morgunblaðið/Günter Schröder
Skorað Alexander Petersson skorar mark í leik í Dortmund gegn Þjóðverjum á heimsmeistaramótinu HM í Þýskalandi.
HEIMSMEISTARAR Þjóðverja í
handknattleik karla óskuðu eftir að
mæta íslenska landsliðinu í tvígang
um páskahelgina, en HSÍ gat ekki
orðið við beiðni Þjóðverja vegna
þess að fyrir nokkru var ákveðið að
íslenska landsliðið taki þátt í fjög-
urra þjóða móti í París um páska-
helgina. „Við hefðum hugsanlega
getað mætt Þjóðverjum á skírdag
áður en haldið verður yfir til Par-
ísar, en einn leikur nægði Þjóð-
verjum ekki og því varð ekkert af
þessu. Ég held að Þjóðverjar hafi í
staðinn snúið sér til Norðmanna og
leika við þá tvo leiki um páskana,“
sagði Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Handknattleikslandsliðið gat ekki orðið við beiðni Þjóðverja – tekur þátt í móti í París um páskana
AXEL Stefánsson, hand-
knattleiksþjálfari, hefur fram-
lengt samning sinn við norska
úrvalsdeildarfélagið Elverum
til vorsins 2008. Forráðamenn
Elverum staðfestu þetta í gær
en í fyrri samningi Axels sem
gerður var síðasta sumar var
ákvæði um að hann yrði end-
urskoðaður í febrúarmánuði,
með tilliti til næsta tímabils.
„Axel hefur unnið mjög ná-
ið með stjórn, íþróttaforystu
og styrktaraðilum félagsins
og það var
því ekki
nokkur
vafi á að
óskað var
eftir
áframhald-
andi sam-
vinnu,“
segir á vef
Elverum.
Lið Elverum er í níunda
sæti af tólf liðum í norsku úr-
valsdeildinni þegar 17 um-
ferðir af 22 eru búnar. Það er í
baráttu um að komast í átta
liða úrslit en er jafnframt ekki
sloppið úr fallhættu. Með lið-
inu leika fjórir Íslendingar,
þeir Sigurður Ari Stefánsson,
Ingimundur Ingimundarson,
Hörður Flóki Ólafsson og
Hannes Jón Jónsson. Hannes
hefur slegið í gegn með liðinu
eftir að hann kom frá Ajax í
Danmörku um áramótin og
hefur skorað 53 mörk í fyrstu
fimm leikjunum.
Axel Stefánsson
Axel framlengdi
samninginn við Elverum
NORSKA blaðið Stavanger
Aftenblad greinir frá því að
forráðamenn norska úrvals-
deildarliðsins Viking hafi
augastað á Gylfa Einarssyni.
Gylfi er á mála hjá Leeds
United en hefur lítið fengið að
spreyta sig með liðinu sem sit-
ur á botni ensku 1. deildar-
innar.Uwe Rösler þjálfar Vik-
ing en hann og Gyfli léku
saman hjá Lilleström.
,,Það er fleri norsk félög
sem hafa sýnt áhuga á að fá
Gylfa en við höfum ákveðið að
hann verði hjá Leeds til loka
leiktíðar. Hann er ekki á leið
til Viking sem stendur en það
er aldrei að vita hvað fram-
tíðin ber í skaut sér,“ segir
Jim Solbakken umboðsmaður
Gylfa í samtali við Stavanger
Aftenblad.
Hannes Þ. og
Birkir hjá Viking
Hannes Þ. Sigurðsson gerði
nýlega samning við Viking en
er ekki orðinn löglegur með
liðinu og þá var fyrir hjá liðinu
Birkir Bjarnason.
Gylfi, sem hefur verið mikið
frá vegna meiðsla á tímabilinu
er nú heill heilu, hefur aðeins
komið við sögu í þremur leikj-
um Leeds á leiktíðinni og þá
öll skiptin sem varamaður.
Gylfi gekk í raðir Leeds frá
Lilleström árið 2004 og gerði
tveggja ára samning og hann
framlengdi samninginn um
tvö og hálft í janúar í fyrra.
Viking með augastað
á Gylfa Einarssyni