Morgunblaðið - 14.04.2007, Side 1

Morgunblaðið - 14.04.2007, Side 1
laugardagur 14. 4. 2007 börn FJAÐRABÁTAR NÚ GETIÐ ÞIÐ BÚIÐ TIL EINFALDAN BÁT ÚR VIÐARBÚT OG FJÖÐUR » 3 Íslensk bæjarnöfn í feluleik í verðlaunaleik vikunnar » 2 Hæ! Ég heiti Katrín Eva og ég bý á Dalvík. Ég óska eftir pennavinkonu (mega vera strákar) helst á aldrinum 10–11 ára. Áhugamál mín eru dýr, íþróttir og tölvuleikir. Ég vona að ég fái mikið af bréfum. Kveðja, Katrín Eva Reykjalín Guðmundsdóttir Ásvegi 9 620 Dalvík Hæ, hæ! Ég heiti Darri og óska eftir pennavini/vin- konu. Mér er alveg sama hvort það er strákur eða stelpa á aldrinum 9–11 ára. Sjálfur verð ég 10 ára í apríl. Áhugamál mín eru íþróttir, motorcross, dýr og vinir. Ég vona að ég eignist fullt af penna- vinum eða -vinkonum. Kveðja, Darri Gunnarsson Stapavegi 7 900 Vestmannaeyjum Hæ, hæ! Ég heiti Þorgerður og er 10 ára. Ég óska eftir pennavinum á aldrinum 10–12 ára, helst stelpu. Ég hef aldrei áður átt pennavin, og mig langar rosalega að prófa það. Áhugamál mín eru dýr, dans, vinir, náttúran og föt. Með bestu kveðju, Þorgerður Atladóttir Boðagranda 4 107 Reykjavík Pennavinir Um síðustu helgi bar Færeyingurinn Jógvan Hansen sigur úr býtum í X-Factor keppninni sem hefur verið sýnd á Stöð 2 síðan í haust. Hann sigraði örugglega með 70% atkvæða en í úrslitunum tókst hann á við bestu vinkonur sínar, Hara systur. Við hittum Jógvan á hárgreiðslustofu sinni og spurðum hann út í X-Factor ævintýrið, sönginn og æskuna. » 3 Morgunblaðið/Ómar X-Factor Færeyingurinn Jógvan Hansen sigraði örugglega með yfir 70 prósenta atkvæða í X-Factor keppninni um síðustu helgi. X-Factor stjarnan Jógvan Impala-hjörtur lifir í hjörðum á sléttum Afríku. Ef rándýr ræðst á hjörðina stökkva impala-hirtirnir í allar áttir til að rugla rándýrið í ríminu. Impala-hirtir stökkva bæði hærra og lengra en nokkur maður getur stokkið. Úr bókinni Stafróf dýranna eftir Halldór Á. Elvarsson Impala Hvaða skugga á Tryggur? Horfðu vel á hundinn Trygg, sem stendur húsbóndahollur við hlið eiganda síns, og athugaðu hvort þú getur fundið út hvaða skugga hann á. Lausn aftast. Andra dreymir um að verða heimsþekktur óperusöngvari en gagnrýnendur eru allir á sama máli um að Andri geti hvorki sungið né hafi ákveðinn „x-factor“. Andri lætur sér ekki segj- ast og heldur áfram að eltast við drauminn. Nú er bara spurn- ing hvort þið getið hjálpað honum að finna 10 hlaupandi X á síðum Barnablaðsins. Það er aldrei að vita nema þá fyrst öðl- ist hann þennan eftirsótta „x-factor“. Óperusöngvari án „x-factors“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.