Morgunblaðið - 16.04.2007, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2007 3
handknattleikur
FC Köbenhavn tryggði sér umhelgina deildarmeistaratitilinn
í dönsku úrvalsdeildinni í hand-
knattleik þegar liðið lagði Kolding,
35:31, í uppgjöri toppliðanna í
næstsíðustu umferð deildarkeppn-
innar. Arnór Atlason skoraði tvö
mörk fyrir FC Köbenhavn áður en
hann meiddist. Gísli Kristjánsson
eitt fyrir Kaupmannahafnarliðið.
Fjögur efstu liðin leika til úrslitaum meistaratitilinn og er ljóst
að FC Köbenhavn leikur á móti Vi-
borg í undanúrslitunum og Kolding
leikur gegn GOG.
Ólafur Stefánsson skoraði þrjúmörk fyrir Ciudad Real, þar
af tvö úr vítaköstum, þegar liðið
burstaði Granollers, 35:25, í
spænsku úrvalsdeildinni. Ciudad
Real er í öðru sæti deildarinnar
með 43 stig en Portland San Ant-
onio er í toppsætinu með 44 stig.
Barcelona er í þriðja sætinu með
37 stig.
Íslendingaliðið Elverum er úr leikí baráttunni um norska meist-
aratitilinn í handbolta. Elverum,
sem leikur undir stjórn Axel Stef-
ánssonar, tapaði í gær fyrir
Haslum öðru sinni í 8 liða úrslit-
unum. 29:26 urðu úrslitin en
Haslum vann einnig fyrri leikinn,
33:28. Hannes Jón Jónsson var að
vanda markahæstur í liði Elverum
en hann skoraði 8 mörk og þeir
Ingimundur Ingimundarson og
Sigurður Ari Stefánsson skoruðu 2
mörk hvor.
Sergey Petraytis, leikmaður HK,fékk sitt þriðja rauða spjald á
Íslandsmótinu í handknattleik í
gær gegn Haukum. Gunnar Magn-
ússon, þjálfari HK, segist reikna
með að þar með sé Petraytis kom-
inn í fjögurra til fimm leikja bann.
Það þýðir að hann leikur ekkert
meira með HK á keppnistímabilinu
en eftir að DHL-deildinni lýkur um
næstu helgi tekur við deildabik-
arkeppnin og flytja leikmenn leik-
bönn með sér yfir í þá keppni.
Arnar Pétursson, leikmaðurHauka, fékk einnig rautt
spjald í ofangreindum leik og miss-
ir a.m.k. af lokaleik Hauka á Ís-
landsmótinu gegn Val á Ásvöllum
á laugardaginn.
Hjalti Þór Pálmason, leikmaðurVals, þurfti að fylgjast með
félögum sínum eiga við ÍR-inga af
áhorfendapöllunum. Hjalti varð fyr-
ir því óláni að handarbrotna á æf-
ingu á laugardag og er kominn með
gifs. Ljóst er að hann leikur því
ekki gegn Haukum í síðustu um-
ferð mótsins. Bein í lófa Hjalta
brotnaði er hann lenti í samstuði
við félaga sinn Ægi Jónsson.
Bjarni Fritzson skoraði 8 mörkog var markahæstur í liði Cré-
teil þegar liðið tapaði fyrir Cham-
bery, 29:26, í 8 liða úrslitum
frönsku bikarkeppninnar í hand-
bolta. Ragnar Óskarsson og fé-
lagar hans í Ivry töpuðu fyrir Par-
is, 27:23.
Fólk sport@mbl.is
Ólafur H. Gíslason, markvörður
Vals, reyndist sínum gömlu félögum
úr Breiðholtinu óþægur ljár í þúfu
en hann fór hamförum og varði tutt-
ugu og sjö skot. Ólafur varð bik-
armeistari með ÍR fyrir tveimur ár-
um síðan og er leikmönnum ÍR því
vel kunnugur. Gerði það gæfumun-
inn? ,,Aðeins að hluta til. En við
spilum fantagóða vörn. Sama gerð-
ist gegn Fram um daginn en þá
varði Pálmar tuttugu og fimm skot.
Þegar liðið spilar svona góða vörn
er það bara krafa frá liðinu að við
verjum svona vel. Síðustu tveir leik-
ir hafa sennilega verið okkar bestu
leikir í vetur. Við viljum klára mótið
á okkar eigin forsendum og sem
stendur leggja allir leikmenn sitt af
mörkum. Það er enginn einn lang-
bestur eða eitthvað þess háttar,“
sagði Ólafur.
Menn framtíðarinnar hjá ÍR
Fall er staðreynd hjá ÍR og
Fylki. Miðað við þann fjölda leik-
manna, sem ÍR hefur misst út í at-
vinnumennsku á undanförnum ár-
um, þá er kannski ekki óeðlilegt að
fall sé hlutskipti liðsins í ár. Samt
sem áður tókst félaginu að tefla
fram samkeppnisfæru liði þar sem
uppistaðan er leikmenn sem aldir
eru upp hjá ÍR. Í þessum hópi eru
margir efnilegir leikmenn eins og
Björgvin Hólmgeirsson og Davíð
Georgsson.
Gerðum okkur að fíflum
Línumaðurinn Jón H. Gunnars-
son er fyrirliði ÍR. Fannst honum
spennustigið hafa verið of hátt hjá
liðinu? ,,Ég veit ekki hvort spennan
eða pressan hafi haft úrslitaáhrif.
Þetta var auðvitað hreinn úrslita-
leikur fyrir okkur og við spiluðum
einfaldlega ekki nægilega vel. Við
höfum kannski ekki nægilega mikla
breidd en það skipti ekki máli í
þessum leik þar sem lykilmenn
klikkuðu. Við gerðum okkur bara að
fíflum, svo einfalt er það. Í vetur
hafa reynsluboltarnir klikkað meira
en ungu strákarnir sem eru alveg
ótrúlega efnilegir. Aldurinn hefur
því ekki endilega verið vandamálið
heldur frekar skortur á breidd í
leikmannahópnum. Byrjunarlið okk-
ar getur unnið hvaða lið sem er í
deildinni en það er erfitt að halda út
heila leiki með sömu mönnunum. ÍR
er það stórt félag og með það mikla
sögu að það kemur ekkert annað til
greina en að fara beint upp í efstu
deild aftur. Það er klárlega hægt að
læra mikið af þessum vetri. Þetta
fer allt í reynslubankann, sérstak-
lega hjá ungu strákunum.“
Þjálfari Vals reyndist sannspár
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari
Vals, spáði því í Morgunblaðinu,
hinn 5. mars síðastliðinn, að úrslitin
í DHL-deildinni myndu ekki ráðast
fyrr en í síðustu umferð. Hann
reyndist sannspár: ,,Já ég sagði að
þetta myndi ráðast í síðustu umferð,
mótið væri bara það jafnt og þannig
verður það. Nú eigum við bara eina
hindrun eftir. Það er mjög skemmti-
leg hindrun reyndar því Haukaliðið
er alltof gott til þess að vera í þeirri
stöðu sem það er í,“ sagði Óskar.
Lærisveinar hans voru rétt
stemmdir að þessu sinni en hvað
gerir Óskar til þess að stýra spenn-
unni á lokasprettinum? ,,Það er
bara ákveðinn kúnst að fást við það.
Ég veit ekki um neina töfralausn í
þeim efnum. Spennustigið er í raun
erfiðasta verkefnið fyrir þjálfara að
fást við. Ég reyni að ræða við leik-
menn um þær stöður sem upp
kunna að koma í leikjum.“
Stjörnumenn náðu fjórða sæt-
inu eftir sigur á Akureyringum
Stjarnan og Akureyri mættust í
Ásgarði í gærkvöldi í þýðingar-
litlum
leik. Akureyringar tryggðu sæti
sitt í deildinni með sigri á Fylki í
síðustu umferð og Stjarnan siglir
lygnan sjó um miðja deild.
Akureyringar skoruðu fyrsta
mark leiksins en eftir það tók
Stjarnan öll völd á vellinum, komst
mest átta mörkum yfir í fyrri hálf-
leik, og staðan í hálfleik var 19:12.
Það sama var upp á teningnum í
síðari hálfleik, og þegar Akureyr-
ingar náðu að saxa á muninn gáfu
Stjörnumenn aftur í og unnu að
lokum öruggan
sigur 35:31.
Munurinn á liðunum lá að mestu
í varnarleik og markvörslu. Roland
Valur varði 23 skot í marki Stjörn-
unnar en markverðir Akureyringa
vörðu aðeins 6 skot samtals.
Með sigrinum tryggði Stjarnan
sér endanlega fjórða sætið en Ak-
ureyringar enda í fimmta sæti
sama hvað gerist í lokaumferðinni
sem leikin verður eftir viku.
Morgunblaðið/Golli
Fögnuður Valsmenn sigurreifir eftir að hafa lagt ÍR-inga að velli á Seltjarnarnesi í DHL-deildinni í gær.
Ólafur sendi gömlu fé-
lagana sína niður um deild
VALSMENN færðust skrefi nær
sigri í DHL-deild karla í handknatt-
leik er þeir lögðu botnlið ÍR 35:24 á
Seltjarnarnesi í gær. Hlutskipti lið-
anna er ólíkt, því tapið var síðasti
naglinn í kistu ÍR-inga, sem eru
fallnir úr efstu deild eftir langa
veru á meðal þeirra bestu. Vals-
menn eru hins vegar enn á undan
HK-ingum í kapphlaupi félaganna
að Íslandsmeistaratitlinum. Takist
Valsmönnum að leggja Hauka í síð-
ustu umferð hampa þeir titlinum í
fyrsta skipti síðan 1998.
Eftir Kristján Jónsson
og Brynjar Víðisson
Valur á aðeins eina hindrun eftir á leið sinni að Íslandsmeistaratitlinum
!
"
#$
# %
& '' %
(
(
!
"
! ) "*
# %
& '' %