Morgunblaðið - 04.05.2007, Page 1
föstudagur 4. 5. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
HK vann Stjörnuna í fyrsta úrslitaleiknum >> 3
KOBE BRYANT ER ÓHRESS
GAGNRÝNIR UPPBYGGINGUNA HJÁ LA LAKERS SEM
ER FALLIÐ ÚR KEPPNI Í NBA-DEILDINNI >> 2
RAGNA Ingólfsdóttir náði þriðja
sætinu og hlaut þar með brons-
verðlaun í einliðaleik kvenna á Evr-
ópumótaröðinni í badminton 2006-
2007 sem lauk um síðustu helgi.
Ragna vann tvö mót á tímabilinu,
opna tékkneska mótið og síðan Ice-
land International sem fram fór hér
á landi. Hún fékk samtals 470 stig á
mótum vetrarins en tvær enskar
konur enduðu fyrir ofan Rögnu. Jill
Pittard sigraði og fékk samtals 520
stig og Elizabeth Cann varð í öðru
sæti með 500 stig.
Ragna varð önnur á móti í Ung-
verjalandi og í 3.-4. sæti á mótum í
Króatíu, Noregi og Slóvakíu. Eina
mótið þar sem Ragna komst ekki í
undanúrslit var opna sænska mótið.
Ragna endaði 70 stigum á undan
næsta keppanda sem var Sara Pers-
son frá Svíþjóð en hún hlaut 400
stig. þar á eftir komu Susan Hughes
frá Skotlandi með 380 stig og Kati
Tolmoff frá Eistlandi með 300 stig.
Alls fengu 168 konur stig á móta-
röðinni í vetur en auk Rögnu eru
níu íslenskar í þeim hópi. Þær
fengu allar 10 stig fyrir þátttöku
sína á mótinu í Reykjavík og enda í
127.-168. sæti ásamt fjölda annarra.
Ragna er í 75.-77. sæti ásamt
Tinnu Helgadóttur í tvíliðaleik en
þær fengu 80 stig fyrir að hafna í
öðru sæti á Iceland International,
eina mótinu sem þær tóku þátt í.
Ragna með brons á
Evrópumótaröðinni
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„Ég er að sjálfsögðu ánægður með
hringinn og það voru höggin með
löngu járnunum sem gengu gríð-
arlega vel. Fyrsta upphafshöggið í
morgun var slakt en ég náði samt
sem áður fugli og þannig var þessi
hringur. Það gekk flest upp. Einu
slæmu kaflarnir voru þrípútt á 2.
og 14. flöt en þar fékk ég skolla,“
sagði Birgir Leifur Hafþórsson í
gærkvöldi en hann er í 14. sæti eft-
ir fyrsta keppnisdaginn.
„Eigum við ekki að segja að
hringurinn í dag sé sárabót frá því í
Meistaradeildarleiknum í gær þar
sem mínir menn í Manchester
United töpuðu. Ég horfði á leikinn
á veitingahúsi með fjölmörgum eld-
heitum stuðningsmönnum AC Mil-
an og ég var ekkert að flagga því að
ég væri stuðningsmaður Man.
Utd.“
Birgir segir að aðstæður hafi
verið fullkomnar. „Það sáu allir
rigninguna sem var á fótboltaleikn-
um en við fengum skýjað veður og
logn. Það gerist ekki betra og völl-
urinn tekur vel við boltanum eftir
rigninguna undanfarna daga. Þessi
völlur er um 6.600 metrar á lengd
og það þýðir lítið annað en að vera
með „dræver“ á teig á löngu braut-
unum. Ég hélt að skorið yrði ekki
svona gott eftir að hafa leikið æf-
ingahring á vellinum. Þetta er
langur og þröngur skógarvöllur en
þegar ég sá að besta skor dagsins,
hjá Svíanum Joakim Bäckström,
var 62 högg trúði ég varla mínum
eigin augum. Sem dæmi má nefna
að 6. og 7. braut eru par 4 sem eru
um 480 metrar á lengd. Þar sláum
við með „dræver“ og 4 járni. Ég
„klíndi“ boltanum alveg upp við
stöng á 6. í innáhögginu og þessi
högg virkuðu vel í dag.“ Birgir fékk
fínan stuðning frá nokkrum Íslend-
ingum sem mættu á völlinn og
studdu við bakið á eina íslenska
kylfingnum á Evrópumótaröðinni.
„Það voru nokkrir Íslendingar að
fylgjast með okkar ráshóp og ég
fann vel fyrir stuðningi þeirra .
Þetta var gott klapplið og vonandi
mæta fleiri Íslendingar á næstu
dögum. Byrjunin lofar góðu en ég
hef ekki verið sáttur við sjálfan mig
á æfingum undanfarna daga. Það
small síðan allt saman á réttum
tíma,“ sagði Birgir.
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Einbeittur Birgir Leifur Hafþórsson horfir á eftir kúlunni í Mílanó í gær en þar gekk flest upp hjá honum. Sárabót
eftir ósigur Manchester United í gær, sagði Birgir Leifur við Morgunblaðið.
„Það gekk
flest upp“
BIRGIR Leifur Hafþórsson at-
vinnukylfingur úr GKG lék mjög
vel á fyrsta keppnisdegi opna
ítalska meistaramótsins í golfi í
gær þar sem hann fékk sjö fugla og
lék á 65 höggum eða fimm höggum
undir pari. Birgir er í 14. sæti af
alls 156 kylfingum og margir af
þekktustu kylfingum Evrópu eru á
meðal keppenda á mótinu.