Morgunblaðið - 22.06.2007, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.06.2007, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2007 5 bíls- ins, öll stjórn- tæki eru á rétt- um stað, tæknilega fullkomin og hann er einstaklega fallegur að inn- an. Eins og með aðra sportbíla er afar þröngt um aftursætisfarþega, enda varla gert ráð fyrir slíkum, nema um börn sé að ræða. Fram- sætin faðma framsætisfarþega og veita þann stuðning sem nauðsyn- legur er þegar reynt er á getu bíls- ins en það var sama hvað reynt var á hann í beygjum, hann lá eins og klessa á veginum. Aðeins þor öku- manns leyfði ekki meira, bíllinn leyfði það. Hröðun bílsins er með ágætum, hann er 6,6 sek. í 100 km hraða og var það stað- fest í prufukeyrslunni þrátt fyrir að 3 væru í bílnum. Þá verður líka að taka skrik- og spólvörnina af, en ef hún er á kemur talsvert hik á fyrstu metrunum og fyrsta sekúndan fer fyrir lítið. Audi TT með 3,2 lítra vél- inni er 5,7 sek. í 100 km hraða. Mikill búnaður Fjöðrunin er frábær og slag- lengdin merkilega löng og því fer bíllinn fumlaust yfir hvaða hraða- hindrun sem er og aldrei sló hún upp. Innbyggður spoiler er aftan á bílnum sem kemur upp á 120 hraða en einnig má setja hann upp með stjórntakka. Miklu afli verða að fylgja góðar bremsur og þær fylgja svo sannarlega í Audi TT, hef ekki kynnst þeim betri. Hljómtækin í bílnum er stórgóð og stillingar í stýri snjallar og frumlegar, skrun- takkar sem skipta um rás og hljóm- styrk. Skottið kemur mikið á óvart því a.m.k. 2 farþegar geta tekið með sér golfsett, óvenjustórt miðað við sportbíl. Aðalljósin hafa beygjustýr- ingu og beygja því með bílnum og tryggja aukið öryggi, að sjálfsögðu Xenon ljós. Gæði kosta Öll þau herlegheit sem boðin eru í Audi TT hljóta að kosta sitt, minni bróðirinn með 2 l. vélinni kostar 5,3 milljónir og stærri bróðirinn með 3,2 l. vélinni og fjórhjóladrifinu 6,9 milljónir. Þetta telst vera helsti ókostur Audi TT, en þeir sem kjósa að eiga sportbíl með öllu láta það ekki trufla sig, þeir fá allavega mik- ið fyrir peninginn. Audi bílar eru geysivel smíðaðir, endast vel og hafa gott endursöluverð. Hróður Audi vex bara með þessum nýja Audi TT. Þeir sem kjósa sér sport- bíl hafa úr ýmsu að velja, en hægt er t.d. að kaupa Opel OPC (240 hö) eða Subaru WRX (230 hö) fyrir inn- an við 3 milljónir, en þeir eru nokk- uð hráir og skortir fágun og búnað þann sem Audi TT skartar. Einnig má fá BMW M5 (507 hö) eða Mercedes Benz SLK55 AMG (360 hö) sitt hvorum megin við 10 millj- ónir. Audi TT er þarna á milli og sómir sér vel. Rými Pláss fyrir tvö golfsett eða stóra ferðatösku. Sjálfskiptur Líka S-tronic beinskipting. Sportlegur Fallegur framendi en umdeildur afturendi. Audi Stendur fyrir gæði. Vél: 2,0 lítra 4 strokka Turbo bensínvél. 200 hestöfl Eldsneytisnotkun: 7,7 l/100 km í blönduðum akstri Útblástur, CO2: 183 g/km í blönduðum akstri Stærð: L: 4.178 mm. B: 1.842. H: 1.352. Eigin þyngd: 1.260 kg Staðalbúnaður: Leður- áklæði á sætum. Skrið- vörn, Bose hljóðkerfi m. 9 hátölurum. 16" álfelgur. Beygjustýrð Xenon ljós. Hraðastillt vindskeið. Fjarstýrð samlæsing. Loftpúðar f. ökumann og farþega. Rafmagn í rúðum, speglum og sætum. Geislaspilari, hraðastillir, hiti í sætum, hitastýrð miðstöð m. kælingu. Verð. 5.290.000 kr. Umboð: Hekla Audi TT Forester 2.590.000,- Forester PLUS 2.890.000,- Forester LUX 3.190.000,- Subaru Forester sameinar það besta úr fólksbíl og jeppa. Hann er lipur í akstri eins og fólksbíll en hefur dráttar- og drifkraft á við marga stærri jeppa. „Mér finnst stundum eins og ég sé á tveimur bílum. Ég kemst í þröng stæði innanbæjar en dríf síðan í torfærum á landsbyggðinni eins og ekkert sé.“ Forester liggur mjög vel á veginum en er samt með mun meiri veghæð en aðrir jepplingar. Hann er á svipuðu verði og venjulegur fólksbíll þrátt fyrir að vera með 158 hestafla vél, sem er mun meiri kraftur en í mörgum stærri jeppum. „Maður er orðinn of góðu vanur á Forester. Það er í raun ótrúlegt hvað maður fær rosalega mikið fyrir lítið.“ Subaru hefur verið seldur á Íslandi í yfir 30 ár. Reynslan af bílnum við þær erfiðu og óvenjulegu aðstæður sem hér eru hefur gert Subaru að samnefnara fyrir endingu, hörku og úthald. Raunar er hvergi selt meira af Subaru miðað við höfðatölu en einmitt á Íslandi. Það ætti enginn að kaupa sér bíl án þess að koma fyrst og reynsluaka Subaru. Spyrðu bara Subarueigendur. Þeir vita af hverju Subaru eru sennilega gáfulegustu bílakaup sem þú gerir: „Hey, þetta er Ísland!“ Opið: Mán. 10 - 18, þri.-fös. 9 - 18, lau. 12 - 16.Sævarhöfða 2 Sími 525-8000 Akureyri 464-7940 Njarðvík 421-8808 Höfn í Hornafirði 478-1990 Umboðsmenn um land allt 200.000 kr. ferðapakki fylgir öllum nýjum Forester. innifalið: Upphækkun, heilsársdekk og dráttarbeisli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.