Morgunblaðið - 05.07.2007, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 3
Magnús Þór Magnússon, semverið hefur varamarkvörður
Víkings í Landsbankadeildinni í
sumar, hefur ákveðið að hætta hjá
félaginu. Þetta gerist í kjölfar þess
að Ingvar Þór Kale hefur náð sér af
meiðslum og tekið sæti Magnúsar á
bekknum, en Bjarni Þórður Hall-
dórsson er sem stendur aðalmark-
vörður liðsins. Magnús, sem er 23
ára, lék í tveimur leikjum fyrir Vík-
ing í sumar.
Rúrik Gísla-son lék í
gær sinn fysta
leik með danska
liðinu Viborg en
hann samdi til
þriggja ára við
danska úrvals-
deildarliðið í
fyrradag. Rúrik
lék allan seinni hálfleikinn í framlín-
unni þegar liðið tapaði, 1:0, í æfinga-
leik gegn AGF. Kári Árnason lék
allan tímann á miðjunni hjá AGF en
bæði lið leika í úrvalsdeildinni sem
hefst síðar í mánuðinum.
Ólafur IngiSkúlason
lék fimm síðustu
mínúturnar með
Helsingborg þeg-
ar liðið sigraði
Hammarby, 4:2, í
sænsku úrvals-
deildinni í gær.
Heiðar Geir Júl-
íusson lék fyrstu 78 mínúturnar fyr-
ir Hammarby en Gunnar Þór Gunn-
arsson síðasta hálftímann.
Helsingborg er í áttunda sæti í
deildinni en Hammarby er í því
sjötta.
John Terry, fyrirliði Chelsea ogenska landsliðsins, segir að
Chelsea muni á næsta tímabili ná
Englandsmeistaratitlinum aftur frá
Manchester United. „Bara það að
tala um þetta fær blóðið í æðum mín-
um til að sjóða. Við vorum óheppnir
með meiðsli á síðustu leiktíð en það
stoðar lítið að reyna að halda því
fram að við hefðum unnið titilinn ef
menn hefðu haldist heilir, þótt ég sé
sannfærður um það. Þess vegna er
ég enn staðráðnari í að vinna titilinn
á næstu leiktíð,“ sagði varnarmað-
urinn sterki.
Forráðamenn Sheffield Unitedhafa áfrýjað til hæstaréttar úr-
skurði sérstaks dómstóls frá því í
fyrradag sem vísaði frá kæru Shef-
field United á hendur West Ham.
Sheffield United fór fram á að stig
yrðu dæmd af West Ham en félagið
taldi að West Ham hefði gerst brot-
legt við reglur þegar félagið festi
kaup á argentísku leikmönnunum
Carlos Tévez og Javier Mascherano
á síðustu leiktíð. Dómstóllinn sem
úrskurðaði í kærumálinu í gær var
skipaður þremur mönnum og fyrir
honum fór fyrrverandi hæstarétt-
ardómari, Sir Philip Otten.
Ítölsku bikarmeistararnir í Romagengu í gær frá kaupum á Mauri
Esposito frá Cagliari. Roma greiðir
fjórar milljónir evra, 340 milljónir
króna, fyrir kantmanninn sem mun
fá 1,4 milljónir evra í árslaun, 120
milljónir króna.
Alþjóða ólympíunefndin, tilkynntií gærkvöld að ákveðið hefði
verið að vetrarólympíuleikarnir árið
2014 verði í rússnesku borginni
Sochi við Svartahaf. Verður þetta í
fyrsta skipti sem vetrarólymp-
íuleikar fara fram í Rússlandi.
Guðrún Jóhannsdóttir varð í 28.sæti í skylmingum með höggs-
verði á Evrópumótinu í Gent í Belg-
íu í gær. Þorbjörg Ágústdóttir varð
í 45. sæti
Fólk sport@mbl.is
ir, sem verða á ferð-
þeir Fernando Tor-
hefur keypt frá Atle-
r punda, og Eduardo
al keypti frá Dinamo
a.
eysu nr. 9 og stuðn-
nntir eftir að sjá þá
gur verðmunur er á
nn eitthvað að segja
?
mörk í 214 leikjum á
leikjum fyrir Spán.
mörk í 118 leikjum í
dsleikjum fyrir Kró-
k í 36 leikjum á sl.
Da Silva skoraði 33
.
rókar í peysum nr. 9
rpool og Arsenal
Eduardo da Silva,
leikmaður Arsenal.
Í DAG verður dregið í riðla fyrir Evrópu-
keppni meistaraliða kvenna í knatt-
spyrnu og eru Íslandsmeistarar Vals í
efsta styrkleikaflokki ásamt níu öðrum
félögum.
Drátturinn er svæðaskiptur og er Val-
ur í hópi með liðum frá norður- og
vesturhluta Evrópu. Á því svæði eru þrjú
lið í hverjum styrkleikaflokki og þau eru
eftirtalin:
1. flokkur: Everton (Englandi), Valur,
Neulenbach (Austurríki).
2. flokkur: Zuchwil (Sviss), ADO Den
Haag (Hollandi), Uczniowski (Póllandi)
3. flokkur: Hibernian (Skotlandi),
Gintra (Litháen), Honka (Finnlandi).
4. flokkur: KÍ (Færeyjum), Mayo
(Spáni), Glentoran (N-Írlandi).
Eitt lið úr hverjum flokki verður dreg-
ið í hvern riðil og Valur
getur því ekki mætt
Everton eða Neulen-
bach. Fjögur lið eru í
hverjum riðli, sem
verður leikinn á heima-
velli einhvers liðsins,
og kemst eitt þeirra
áfram í 16 liða úrslit
keppninnar.
Valur og Breiðablik
hafa staðið sig frábær-
lega í keppninni undanfarin tvö ár en
Valskonur komust í 8 liða úrslitin haustið
2005 og Breiðablik lék sama leik síðasta
haust. Það verður því gaman að fylgjast
með því hvað Margrét Lára Viðarsdóttir
og samherjar hennar hjá Val gera í
Meistaradeildinni í ár.
Valskonur í efsta styrkleika-
flokki í Meistaradeild Evrópu
Margrét Lára
Viðarsdóttir
1:0 (32.) Vjekoslav Svadumovic sóknarmaður Skagamanna var aðsleppa innfyrir vörn Keflvíkinga þegar svo virðist sem Ómar Jó-
hannsson markvörður Keflvíkinga komi við hann en Svadumovic lá og dæmt
var víti. Bjarni Guðjónsson tók það, kom Ómari markverði úr jafnvægi og
skoraði í hægra meginn.
2:0 (80.) Keflvíkingar sparka boltanum útaf svo að Skagamenn gætuhugað að meiddum leikmanni sínum. Skagamenn taka síðan inn-
kast, boltinn berst til Bjarna, sem lék framhjá tveimur Keflvíkingum og
skaut frá miðju yfir Ómar markvörð sem var kominn út úr markinu til að
taka við boltanum.
2:1 (81.) Eftir stífa sókn Keflvíkinga barst boltinn út úr vítateignum áHallgrím Jónasson, sem þrumaði að marki Skagamanna, boltinn
kom við á leikmanni en rataði í vinstra hornið.
Fernando Torres,
leikmaður Liverpool.
Morgunblaðið/Golli
erji Vals, er hér á undan Ásgrími Albertssyni, varnarmanni HK, og skorar ann-
ærkvöld og sitt sjöunda í Landsbankadeildinni á tímabilinu.
komust í 4:1 hafi þeir farið að gera
flóknari hluti. „Það var alls ekki ætl-
unin að bakka neitt heldur ætluðum
við að sækja áfram,“ sagði Willum.
Helgi með sjö mörk
Helgi Sigurðsson gerði sitt sjöunda
mark í deildinni í gær. „Baldur sá að
ég hljóp inn í teiginn og var snöggur
að taka aukaspyrnuna. Svo náði ég
að teygja tána í boltann og vippa hon-
um snyrtilega efst í hornið,“ sagði
Helgi þegar hann lýsti markinu.
„Við náðum að skora tvö mörk í
fyrri hálfleik og það gaf okkur þægi-
lega stöðu. Síðan fengum við snemma
í seinni hálfleik á okkur mark og það
setti smá þrýsting á okkur á nýjan
leik, en við sýndum mikinn styrk með
því að svara því með tveimur mörk-
um. Við erum mjög sáttir að fá þrjú
stig og ná að skora fjögur mörk á úti-
velli. Það er auðvitað alltaf gaman að
skora og sérstaklega í sigurleikjum,“
sagði Helgi.
„VIÐ náðum ágætis köflum í þessum
leik og það er komið ágætis sjálfs-
traust í liðið,“ sagði Willum Þór Þórs-
son, þjálfari Valsmanna, eftir að liðið
lagði HK 4:1 í Kópavoginum í gær-
kvöldi.
„Við vorum full værukærir í upp-
hafi leiks, vorum ekki nógu nálægt
mönnunum. Þeir komu hins vegar
mjög ákveðnir til leiks og ætluðu að
selja sig dýrt. Við vissum að þeir yrðu
fastir fyrir enda mjög skiljanlegt þar
sem hvert stig í deildinni er dýrmætt.
Ég er ánægður með hvernig við
náðum að vinna okkur inn í leikinn
eftir rólegar upphafsmínútur. Síðan
náum við að setja tvö mörk en þeir
minnkuðu muninn og ekkert við því
að gera. Eitt af því jákvæða við leik-
inn var hve mikinn styrk við sýndum
eftir að þeir minnkuðu muninn, við
létum það ekki slá okkur út af laginu,
en héldum bara áfram,“ sagði Will-
um.
Hann sagði að eftir að hans menn
Sýndum styrk eftir markið
verða að mörkum. Það var fullt af já-
kvæðum hlutum í leik okkar og vís-
bendingar um að við séum að styrkja
leik okkur,“ sagði Guðjón eftir leikinn
og telur lið sitt hafa bætt sig að und-
anförnu. „Við sígum nú í rétta átt. Við
höfum unnið þrjá síðustu leiki og bara
fengið á okkur tvö mörk í þeim, það er
mjög jákvætt en við þurfum að þróa
leik okkar áfram, þurfum að vera
beinskeittari og nákvæmari þegar við
sækjum fram völlinn. Stundum vantar
bara hársbreidd til að láta hlaup og
sendingu ná saman, þegar við náum
því eigum eftir að skora fleiri mörk og
særa liðin enn frekar.“
Baldur Sigurðsson, sem bar fyrir-
liðaband Keflavíkur í fjarveru Jónasar
Guðna Sævarssonar, sem var meidd-
ur, leit marki Bjarna ekki sömu augum
og Guðjón. „Ég veit ekki hvað ég má
segja. Það veit hver sem sá þennan
leik að þetta var hneyksli. Í fyrsta lagi
kemur Ómar markmaður ekki við leik-
manninn þegar vítið var dæmt. Í öðru
er Bjarni að reyna skora, maður með
þessa spyrnugetu, fyrrverandi at-
vinnumaður og einn besti spyrnumað-
urinn í deildinni, hann horfir á Ómar
markmann og skýtur yfir hann. Þetta
er ekki flóknara en svo, mjög óheið-
arlegt og við erum mjög ósáttir, ég hef
aldrei séð annað eins. Af hverju þurfti
hann að skjóta svona, af hverju rúllaði
hann ekki boltanum til hans?,“ spurði
Baldur eftir leikinn.
Guðjón Þórðarson þjálfari Skaga-
manna sagði Bjarna ekki hafa reynt að
skora. „Það var gott að vinna leikinn
en leiðinlegt að vinna hann á þessu
marki. Við áttum samt að vera búnir
að klára hann áður, gerum fullt af fag-
legum hlutum og sköpuðum okkur
færi, sem við áttum að skora úr en
gerðum ekki. Svo kemur þetta leið-
indaatvik. Það er ljóst undir þessum
kringumstæðum að hann tekur inn-
kastið, gefur á Bjarna, sem ætlar að
sparka aftur fyrir endamörk en þá
kemur leikmaður og pressar á hann
svo að Bjarni hreinlega hittir ekki
boltann. Þetta sést glögglega ef það er
skoðað og þeir sem væna Bjarna um
óheiðarleika þekkja hann ekki mikið
því hann er mjög heiðarlegur leikmað-
ur að eðlisfari og þótti atvikið mjög
leitt. Mér fannst atvikið setja alltof
mikið mark á hann. Því miður gerast
svona atvik í fótboltaleikjum og við
verðum bara að halda áfram.
Ég spilaði leikinn eins og ég ætlaði,
vera skipulagður í vörninni og verjast
vel og það fór þannig. Það er engin op-
in færi hjá Keflavík, meira vonarbolt-
ar, sem eru að detta inn í teiginn.
Vissulega varði markvörður okkar vel
eitt sinnið en að öðru leiti kemur ekk-
ert úr opnu spili. Ég vann mína heima-
vinnu með Keflavíkurliðið, nánast vissi
hvað þeir ætluðu að gera og hvernig
þeir myndu spila svo það var ljóst frá
mínum bæjardyrum hverju við áttum
von á. Það er kannski leiðinlegt að
vinna leikinn undir þessum kringum-
stæðum en ég hefði viljað sá færi
Vafasamt
mark í ÍA-sigri
VAFASAMASTA mark sem skoraði
hefur verið í efstu deild undanfarin
ár, ef ekki lengur, að mati undirrit-
aðs, átti sér stað á Akranesi þegar
Keflvíkingar komu í heimsókn. Það
skoraði Bjarni Guðjónsson gegn
grandalausum Keflvíkingum sem
höfðu sparkað boltanum útaf svo
hægt væri að huga að meiddum leik-
manni ÍA. Markið var að sjálfsögðu
dæmt gilt, ekkert annað í stöðunni og
ÍA vann 2:1. Keflvíkingar urðu því að
sjá eftir þriðja sætinu á meðan
Skagamenn færðu sig upp í fjórða.
Eftir Stefán Stefánsson
ÍA
Páll Gísli Jónsson
Árni Thor Guðmundsson
Guðjón Heiðar Sveinsson
Bjarni Guðjónsson
Vjekoslav Svadumovic
Þórður Guðjónsson
KEFLAVÍK
Ómar Jóhannsson
Guðmundur Viðar Mete
Marco Kotilainen
Baldur Sigurðsson
Hallgrímur Jónasson
Símun E. Samuelsen