Morgunblaðið - 25.09.2007, Page 9

Morgunblaðið - 25.09.2007, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 9 FRÉTTIR www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Mikið úrval af fallegum bolum str. 38 - 56 Ný sending af samfellum Póstsendum Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Laugavegi 53, s. 552 1555 TÍSKUVAL Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16 Glæsilegar yfirhafnir Stuttar og síðar Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Opið laugardag í Bæjarlind kl. 10-16 – Eddufelli kl. 10-14 Svartar buxur, 3 síddir. Opið virka daga 10-18 Villeroy & Boch / kringlunni / 533 1919 sa la t á h ö ld o st a h n íf u r kökuspaði STÍLHREIN ÁHÖLD FRÁ WMF Frábærar hettukápur, vind- og vatnsvarðar Laugavegi 63 • S: 551 4422 LANDSNET hf. hefur nú eignast allt meginflutningskerfi raforku í landinu, þ.e. raflínur sem flytja 66 kílóvolta spennu og hærri. Einnig er Orkuveita Reykjavíkur (OR) komin inn sem nýr hluthafi í Landsneti hf. Stjórn Landsnets hf. var heimilað á hluthafafundi sem haldinn var í gær að hækka hlutafé félagsins um 400 milljónir með útgáfu nýrra hluta til Orkuveitunnar gegn því að hún legði tilteknar eignir inn í Landsnet hf. Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, sagði fyrirtækið hafa keypt raflínur af Orkuveitu Reykja- víkur sem væru hluti af meginflutn- ingskerfinu. „Við greiddum fyrir þær 1.313 milljónir króna. Þar af greiddum við um 900 milljónir í peningum og 400 milljónir með hlutafé í Landsneti,“ sagði Þórður. Eignirnar sem Landsnet keypti af OR eru fyrst og fremst Nesjavalla- lína og Hnoðraholtslína sem liggur meðfram ÍSAL- línunum frá að- veitustöð Lands- nets við Hamra- nes sunnan Hafnarfjarðar í aðveitustöð Orkuveitunnar við Hnoðraholt. Hnoðraholtslína var hluti af 130 kílóvolta dreifi- kerfi Orkuveitunnar. Auk þess keypti Landsnet línur og strengi sem liggja frá tveimur spennistöðv- um á Vesturlandi og til Akraness. Með í kaupunum fylgja einnig hlutir í spennistöðvum og annað tilheyr- andi. Við innkomu Orkuveitu Reykja- víkur í hluthafahóp lækkaði eignar- hlutur þeirra sem fyrir voru hlut- fallslega. Nú er eignarhlutur hvers og eins eiganda Landsnets sem hér segir: Landsvirkjun 64,73%, Rafmagns- veitur ríkisins 22,51%, Orkuveita Reykjavíkur 6,78% og Orkubú Vest- fjarða 5,98%. Engin breyting varð á stjórn Landsnets við innkomu Orkuveit- unnar í Landsnet. Landsnet hf. var stofnað á grund- velli raforkulaga sem samþykkt voru 2003. Hlutverk Landsnets er að annast flutning raforku og kerf- isstjórnun samkvæmt ákvæðum raf- orkulaga og má það einnig reka raf- orkumarkað. Landsnet starfar í sérleyfisumhverfi og er starfsemi fyrirtækisins háð eftirliti Orkustofn- unar. Landsvirkjun, Rafmagnsveitur ríkisins og Orkubú Vestfjarða lögðu flutningsvirki sín inn sem hlutafé í fyrirtækið á sínum tíma. Allar dreifi- veitur og stórnotendur eru tengd við flutningskerfi Landsnets hf. Allar virkjanir sem eru 7,0 MW og stærri eiga að tengjast flutningskerfinu. Landsnet eignast allt meginflutningsnet raforku Orkuveita Reykjavíkur seldi raflínur fyrir 1,3 milljarða, þar af voru 400 milljónir greiddar með hlutafé í Landsneti hf. Þórður Guðmundsson TVEIR karlmenn voru í Héraðs- dómi Austurlands dæmdir í skilorðs- bundið fangelsi, annar í 45 daga og hinn í fjóra mánuði, fyrir að hafa á sjómannadagsdansleik á Höfn í Hornafirði júní ráðist á mann og báðir slegið hann hnefahögg í höf- uðið og hent honum í gólfið og veist að honum þar, með þeim afleiðingum að hann hlaut 2 cm. langan skurð vinstra megin á höfði, blæðingu und- ir húð og mar á allstóru svæði vinstra megin á höfði, húðblæðingu neðan við vinstra auga og húðrispu frá vinstra auga niður á kinnbein. Mennirnir, sem báðir eru á þrí- tugsaldri, játuðu brot sitt og sam- þykktu að greiða fórnarlambinu skaðabætur. Þeir hafa báðir hlotið dóma áður en sá sem vægari dóminn hlaut hefur ekki gerst sekur um lík- amsárás áður. Sá sem hlaut þyngri refsingu braut með árásinni skilorð frá árinu 2005. Skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás Fáðu úrslitin send í símann þinn FRAMKVÆMDUM miðar vel í Austurhöfninni í Reykjavík, að sögn Sigurðar Ragnarssonar, fram- kvæmdastjóra Austurhafnarverk- efnisins fyrir hönd Íslenskra að- alverktaka. Hann sagði að byggingarframkvæmdirnar yrðu þær umfangsmestu í landinu að Kárahnjúkaverkefninu loknu. Um eða yfir 300 manns vinna nú að verkinu. Á verkstaðnum við Reykjavíkurhöfn eru um 150 manns að störfum og 50-100 víðsvegar annars staðar hér á landi. Að auki vinna um 100 manns í Danmörku við verkefnið. Líklega verður byrjað í þessari viku á fyrstu veggjum tónlistar- hússins sem reistir verða ofan jarð- ar. Unnið hefur verið að því að gera stálþil úr 16 metra löngum stál- plötum og eru þær reknar um 13 metra niður á klöpp. Þilið mun loka sjóinn frá vinnusvæðinu. Fyrir inn- an verður byggð stærsta bíla- geymsla landsins á tveimur hæðum fyrir um 1.600 bíla. Kjallarinn mun ná 8-9 metra nið- ur fyrir núverandi landhæð. Ofan á bílakjallaranum verður byggt hót- el, skrifstofubygging og nýjar höf- uðstöðvar Landsbanka Íslands. Reka niður stál- þil við höfnina Morgunblaðið/Kristinn Framkvæmd Innan við stálþilið verður byggð stærsta bílageymsla lands- ins. Hún verður á tveimur hæðum neðanjarðar og mun rúma um 1.600 bíla. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.