Morgunblaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 25.09.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 33 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan er opin kl. 9-16.30. Jóga kl. 9 og kl. 19. Postulínsmálun kl. 13. Leshópur kl. 13.30. Árskógar 4 | Bað kl. 9.30, handavinna kl. 8-16, smíði/útskurður kl. 9-16.30, leikfimi kl. 9, Boccia kl. 9.45. Dalbraut 18-20 | Félagsvist alla þriðjudaga kl. 14. Dalbraut 18-20 | Opin vinnustofa kl. 9-12. Félag eldri borgara Kópavogi, ferðanefnd | Skrán- ing er hafin í félagsmiðstöðvunum í haustlitaferð 4. október nk. Brottför frá Gullsmára kl. 13.15 og Gjá- bakka kl. 13.30. Leið: Heiðmörk – Nesjavellir – Íra- foss – að Þingvallavatni. Kaffihlaðborð Valhöll – síð- an dansað. Ekið í Bolabás – Hakið – Kjósarskarðs- veg – Kjós og Kjalarnes. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skemmtikvöld verður föstudaginn 28. sept. kl. 20, gamanmál, söngur, og kaffiveitingar og dans. Skák kl. 13. Fé- lagsvist kl. 20. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og 9.55. Gler- og postulínsmálun kl. 9.30, handavinna kl. 10, leiðbeinandi verður við til kl. 17. Jóga kl. 10.50, há- degisverður kl. 11.40, tréskurður kl. 13, leikfimi kl. 13, ganga kl. 14. Kaffi á könnunni til kl. 16. Stólajóga kl. 17, jóga á dýnum kl. 17.50. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 9 vefnaður. Kl. 9.15 jóga. Kl. 9.30 myndlistarhópur. Kl. 10 ganga. Kl. 11 leikfimi. Kl. 11.40 hádegisverður. Kl. 13 búta- saumur. Kl. 14 haustfagnaður með ýmsum uppá- komum. Kl. 18.15 jóga Kl. 20 handavinnukvöld. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl. 9- 16, m.a. glerskurður, leiðsögn veitir Vigdís Hansen. Kl. 10.30 ganga um nágrennið. Kl. 13 postulíns- námskeið kennari Sigurbjörg Sigurjónsd. Á fimm- tud. frá kl. 12.30 myndlist. Dansæfingar kl. 10 miðvikud. 3. okt. S. 575-7720. Hraunbær 105 | Kl. 9 handavinna. Kl. 9 glerskurð- ur. Kl. 9 hjúkrunarfræðingur. Kl. 10 Boccia. Kl. 11 leikfimi. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 12.15 Bónusbíllinn. Kl. 15 kaffi. Hraunsel | Félagsmiðstöðin opnuð kl. 9. Mynd- mennt kl. 10, leikfimi kl. 11.30, bridds kl. 13, mynd- mennt kl. 13. Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur kl. 9-13 hjá Sig- rúnu. Jóga kl. 9-11, Björg F. Helgistund kl. 13.30 í 18.15. Æskulýðsstarf Meme fyrir 9-10 bekk kl. 19.30-21.30. (www.digraneskirkja.is) Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð eftir stundina. Kirkjustarf eldri borgara kl. 13-16. Lárus S. Marinusson, heilsuþjálfari á Reykja- lundi, fjallar um efnið ,,musteri sálarinnar“. Kaffi- veitingar. Helgistund í kirkju. Umsjón Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni. Fríkirkjan Kefas | Almenn bænastund kl. 20. Hægt er að senda inn bænarefni á kefas@kefas.is Fríkirkjan Kefas | Almenn bænastund kl. 20.30. Beðið verður m.a. fyrir innsendum bænarefnum sem hægt er að senda á kefas@kefas.is eða með því að hringja í síma kirkjunnar. Grafarvogskirkja | Helgistund, handavinna, spilað og spjallað kl. 13.30. Kaffiveitingar. Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir eldri borgara, kl. 13.30-16. Helgistund, handavinna, spil og spjall. Kaffiveitingar. Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12-12.30. Veit- ingar kl. 12.30 í safnaðarheimili. Hallgrímskirkja | Starf fyrir eldri borgara þriðju- daga og föstudaga kl. 11-14. Leikfimi, veitingar og spjall. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Hveragerðiskirkja | Mömmumorgnar alla þriðju- daga kl. 10. Mömmumorgnar eru samverustundir mæðra og feðra, sem eru heima með börn undir leikskólaaldri. Laugarneskirkja | Kvöldsöngur kl. 20, Þorvaldur Halldórsson leiðir sönginn og sóknarprestur flytur Guðsorð og bæn. Kl. 20.30 ganga 12 spora hópar til verka um leið og trúfræðsla sr. Bjarna hefst sem á þessu hausti ber yfirskriftina „Gæði náinna tengsla – Um grunngildi kristinnar kynlífssiðfræði.“ Selfosskirkja | Kirkjuskóli í Félagsmiðstöðinni við Tryggvagötu kl. 14. TTT (tíu til tólf ára) starf í safn- aðarheimili kirkjunnar kl. 15. Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð kl. 12.30, 400 kr. Opið fyrir alla. Spil- að kl. 13-16, vist, bridds og lomber, púttgræjur á staðnum. Kaffi kl. 14.45. Akstur fyrir þá sem vilja, uppl. í s. 895-0169. Ytri-Njarðvíkurkirkja | Foreldramorgun þriðjudag- inn 25. september kl. 10.30. Umsjón hefur Þorbjörg Kristín Þorgrímsdóttir. umsjón séra Ólafs Jóhannssonar. Námskeið í myndlist kl. 13.30 hjá Ágústu. Böðun fyrir hádegi, hádegisverður kl. 11.30. Hársnyrting. Hæðargarður 31 | Í haust er hægt að fara í World Class-hópinn, læra klaustursaum eða bútasaum, fara í gönguferð, læra á tölvu, syngja, skera út, skreyta borð, lesa bókmenntir, læra magadans, hláturjóga, skapandi skrif, framsögn. S. 568-3132. Íslenska bútasaumsfélagið | Aukaaðalfundur í safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju, kl. 20. Endur- skoðaðir ársreikningar 2006 lagðir fram, önnur mál. Kynning á starfandi nefndum innan félagsins. Samstarfi bútasaumsfélaga innan EQA í máli og myndum. Sýning á veggmyndum: Heitt og kalt frá félögum innan EQA. Korpúlfar Grafarvogi | Félagsvist á Korpúlfs- stöðum kl. 13.30, á morgun. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Handverk og bóka- stofa kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Norðurbrún 1 | Myndlist kl. 9-12, postulín kl. 13-16, opin handavinnustofa kl. 13-16. Opin smíðastofa kl. 9-16. Sjálfsbjörg – félag fatlaðra á höfuðborgarsvæð- inu | Uno spil í kvöld í Hátúni 12. Allir velkomnir. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9-16 myndmennt. Kl. 10.15-11.45 enska. Kl. 11.45- 12.45 hádegisverður. Kl. 13.30-14.30 leshópur. Kl. 13-14 spurt og spjallað /myndbandasýning. Kl. 13-16 bútasaumur. Kl. 13-16 frjáls spil. Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, handa- vinna kl. 9, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofur opnaðar kl. 9, morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, upplestur kl. 12.30, félagsvist kl. 14. Skráning á námskeið, uppl. í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 bænastund og samvera, kl. 12 Bónusbíllinn, Kl. 16.45 bókabíllinn. Kirkjustarf Árbæjarkirkja. | Foreldramorgunn kl. 10-12. Sam- vera foreldra með ung börn. Spjall, fræðsla og sam- vera. STN (starf með 6-9 ára börnum) kl. 15-16. TTT (starf með 10-12 ára börnum) kl. 16-17. Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta kl. 17.30. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl 11. Kirkjustarf aldr- aðra kl. 12, málsverður. Helgistund, sr. Yrsa Þórðar- dóttir, samvera, kaffi. KFUM&K fyrir 10-12 ára kl. 17- Brúðkaup | Hinn 7. júlí síð- astliðinn voru gefin saman í hjónaband af séra Geir Waage Þórður Ingi Guðjónsson og Fe Galicia Isorena, til heimilis í Fífuseli 32, 109 Reykjavík. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ættar- mót og fleira lesendum sínum að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánu- dagsblað. dagbók Í dag er þriðjudagur 25. september, 268. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.) Háskólinn í Reykjavík ogMannréttindaskrifstofa Ís-lands efna til ráðstefnudagana 27. og 28. sept- ember í samstarfi við Öryrkjabandalag Íslands og Landssamtökin Þroska- hjálp Yfirskrift ráðstefnunnar er Mann- réttindi fólks með fatlanir – frá fé- lagslegri stefnumörkun til jafnra rétt- inda en ráðstefnan er hluti af dagskrá Evrópuárs jafnra tækifæra. Nýr sáttmáli um mannréttindi Oddný Mjöll Arnardóttir prófessor við HR er einn af skipuleggjendum ráðstefnunnar: „Ráðstefnan er haldin í tilefni af því að í lok árs 2006 var sam- þykktur nýr mannréttindasáttmáli á vegum Sameinuðu þjóðanna sem lýtur sérstaklega að mannréttindum fatl- aðra,“ segir Oddný Mjöll. „Sáttmálinn er fyrsti stóri mannréttindasáttmálinn sem SÞ samþykkja á 21. öldinni, og er m.a. merkilegur fyrir þær sakir að þar eru ekki útlistuð ný mannréttindi held- ur þau mannréttindi sem þegar eru viðurkennd aðlöguð til að endurspegla aðstöðu fólks með fatlanir. Þetta er líka fyrsti alþjóðasáttmálinn sem Evr- ópusambandið sem heild gerist aðili að sem um leið hefur áhrif á Evrópurétt og landsrétt aðildarríkjanna.“ Dagskrá ráðstefnunnar er þríþætt: „Fyrst skoðum við sáttmála SÞ sem slíkan, síðan eru áhrifum í Evrópurétti gerð skil, og loks skoðuð áhrif sáttmál- ans á innanríkisrétt,“ segir Oddný Mjöll. „Félagsmálaráðherra opnar ráðstefnuna, en fyrirlesarar eru 15 talsins, þar af 11 gestir frá útlöndum sem allir eru mjög framarlega á sínu sviði.“ Meðal fyrirlesara nefnir Oddný Mjöll próf. Michael Stein frá Har- vardháskóla og Gerard Quinn prófess- or við Írlandsháskóla en báðir léku þeir stórt hlutverk í undirbúningi sátt- málans. „Einnig má nefna Davíð Þór Björgvinsson dómara við Mannrétt- indadómstól Evrópu, og Colm O’C- inneide sem er fulltrúi í eftirlitsnefnd félagsmálasáttmála Evrópu,“ segir Oddný Mjöll. Heimasíða ráðstefnunnar er á slóð- inni www.disabilityrights.is. Aðgangur er öllum opinn og er þáttökugjaldi stillt mjög í hóf. Ráðstefnan fer fram í húsi Háskólans í Reykjavík og eru fyr- irlestrar túlkaðir á íslenskt táknmál. Mannréttindi | Ráðstefna við Háskólann í Reykjavík 27. og 28. september Fötlun og jafnrétti  Oddný Mjöll Arnardóttir fædd- ist 1970 og ólst upp í Mosfellsbæ. Hún lauk stúdentsprófi 1989 frá Mennta- skólanum að Laug- arvatni, kandidats- prófi frá lagadeild HÍ 1994 og dokt- orsprófi frá Edinborgarháskóla 2002. Hún hefur starfað við lögmennsku, rannsóknir og kennslu og varð pró- fessor við Háskólann í Reykjavík 2006. Eiginmaður Oddnýar Mjallar er Gylfi Gíslason framkvæmdastjóri og eiga þau tvo syni. Tónlist Fríkirkjan í Reykjavík | Hópurinn Sjan Áron verður með tónleika kl. 20 en hann sam- anstendur af Heiðu Árnadóttur söngkonu, Hilmari Jenssyni gítarleikara, Ananta Roo- sens fiðluleikara og Joachim Badenhorst klarinettuleikara. Flutt verður tónlist eftir meðlimi Sjan Áron. Salurinn, Kópavogi | Tríóið Frisell Projekt sem leitt er af trommaranum Scott McLe- more leikur eigin túlkanir á tónlist eftir bandaríska gítarleikarann Bill Frisell kl. 20. Aðrir meðlimir Frisell Projekt eru Róbert Þórhallsson á bassa og Sunna Gunnlaugs- dóttir á píanó og Wurlitzer-rafpíanó. Myndlist Ráðhús Reykjavíkur | 13 félagsmenn sýna rennd trélistaverk, þversnið af þróun vinnu og hönnun í trérennismíði á Íslandi undan- farin ár. Sýningin stendur til 30. sept. og er opin kl. 12-18 alla daga. Dans Næsti bar | Tangókvöld á þriðjudögum kl. 20-23. Fyrsta klukkutímann er kennsla en svo æfing undir leiðsögn kennara. Verð 500 kr. Nánari uppl. á: www.tangoadventure- .com Fyrirlestrar og fundir Grand Hótel Reykjavík | Crohns og Colitis Ulcerosa samtökin, verða með fræðslufund á Grand Hótel, Sigtúni 28, í kvöld kl 20. Gestur fundarins er Svava Engilbertsdóttir næringarráðgjafi og ber fyrirlestur hennar yfirskriftina Matur, næring og melting. Kaffi og umræður í lok fundar. Sagnfræðingafélag Íslands | Hádegisfyrir- lestraröð Sagnfræðingafélagsins heldur áfram með erindi Magnúsar Árna Magnús- sonar Evrópufræðings: „Erum við þá Róm- verjar núna?“ Fyrirlesturinn fer fram í fyrir- lestrasal Þjóðminjasafnsins kl. 12.05-12.55. ÖBÍ efsta hæð | Hugarfar Félag fólks með heilaskaða, aðstandendur þess og áhuga- fólk um málefnið verður með félagsfund í kvöld kl. 20, í sal Öryrkjabandalagsins, Há- túni 10, efstu hæð. Fyrirlesturinn flytur Ólöf Bjarnadóttir, læknir á Reykjalundi. Umræð- ur á eftir. FYRIRSÆTA skartar hér hönnun úr vor- og sumar-línu Alessandro Del- l’Acqua’s fyrir árið 2008. Nú stendur yfir tískuvika í Milano þar sem helstu hönnuðir heims kynna tískuna fyrir næsta ár. Á tískupallinum Fyrir næsta sumar Reuters FRÉTTIR FÖSTUDAGINN 21. sept. síðastlið- inn um klukkan 14:38 varð umferð- aróhapp á mótum Kringlumýrar- brautar og Laugavegar í Reykja- vík, en umferð þar er stjórnað með umferðarljósum. Lentu þar saman fólksbifreið af Toyota-gerð, blá að lit, sem ekið var norður Kringlu- mýrarbraut, og lögreglubifreið sem ekið hafði verið austur Laugaveg. Þeir vegfarendur sem kunna að hafa orðið vitni að óhappinu eru beðnir að hafa samband við lög- reglu í síma 444-1000. Lýst eftir vitnum STOFNUN Vigdísar Finnboga- dóttur í samvinnu við íslensku- kennslu fyrir erlenda stúdenta við Háskóla Íslands býður til dagskrár í tilefni af evrópska tungumáladeg- inum 26. september. Dagskrá fer fram í hátíðasal HÍ á morgun, 26. september, kl. 12.15. Nemendur frá hinum ýmsu lönd- um munu segja stuttlega frá heima- landi sínu og bregða upp svipmynd að heiman. Að því loknu lesa þau ljóð á eigin tungumáli. Brugðið verður upp myndum frá m.a. Dan- mörku, Bretlandi, Þýskalandi, Spáni, Úkraínu, Póllandi. Markmiðið með deginum er fyrst og fremst að vekja athygli á hinum ýmsu tungumálum sem töluð eru í Evrópu og vekja fólk til vitundar um menningarlegan fjölbreytileika. Einnig er lögð áhersla á mikilvægi þess að búa yfir góðri tungumála- kunnáttu. Haldið er upp á daginn með ýmsum hætti víða um Evrópu, segir í fréttatilkynningu. Evrópski tungu- máladagurinn DR. Yvonne Fulbright, kynfræð- ingur sen nýlega lauk doktorsprófi við New York University, flytur opinberan fyrirlestur á vegum hjúkrunarfræðideildar Háskóla Ís- lands, Fræðslusamtaka um kynlíf og barneignir og Kynfræðifélags Íslands. Fulbright mun fjalla um viðtöl sem hún átti við íslenskar konur 20-24 ára um upplifun þeirra af kynfræðslu mæðra sinna. Fyrirlesturinn fer fram fimmtu- daginn 27. september kl. 15 í stofu 103 í Eirbergi, Eiríksgötu 34. Aðgangur er ókeypis. Kynfræðsla ís- lenskra mæðra COVCELL-verkefnið stendur fyrir ráðstefnu í Háskóla Íslands um samskipti fjarnema. Hún fer fram 28. og 29. september í Norræna húsinu og Lögbergi og er öllum op- in. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni eru Carol A. Chapelle, einn þekkt- asti fræðimaður heims á sviði fjar- kennslu tungumála, og Ana M. Gim- eno Sanz, forseti EUROCALL. Markmiðið með COVCELL- verkefninu er að koma til móts við þarfir fjarnema í tungumálanámi fyrir samskipti sín á milli en vitað er að það kemur fjarnemum til góða að hitta félaga sína öðru hverju til að ræða sameiginleg vandamál og vinna saman að lausn verkefna. Jafnframt gefur COV- CELL-verkefnið kennurum færi á að hafa samskipti við einstaka nema eða marga saman. Matthew Whelpton, við ensku- skor hugvísindadeildar HÍ, stýrir verkefninu. Aðalsamstarfsaðili hans innan háskólans er Birna Arn- björnsdóttir, dósent og verkefn- isstjóri vefnámskeiðsins Icelandic Online. Aðrir þátttakendur í verk- efninu eru frá Humboldt-háskóla í Berlín, Ca’ Foscari-háskóla í Fen- eyjum, Háskólanum í Baskalandi í San Sebastian og íslenska tölvufyr- irtækinu ODG ehf. Rætt um sam- skipti fjarnema

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.