Morgunblaðið - 25.09.2007, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Shoot’em Up kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára
Shoot’em Up kl. 4 - 6 - 8 - 10 LÚXUS
Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 4 - 6
Hairspray kl. 5:30 - 8 - 10:30
Vacancy kl. 8 - 10 B.i. 14 ára
Veðramót kl. 5:40 B.i. 14 ára
Knocked Up kl. 8 - 10:40 B.i. 14 ára
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 4
The Simpsons m/ísl. tali kl. 3:45
Chuck and Larry kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára
Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 6
Hairspray kl. 8
Knocked Up kl. 10:10 B.i. 14 ára
– Sími 564 0000 –Sími 462 3500
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
* Gildir á allar
sýningar í Regn-
boganum merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Sími 551 9000
Shoot’em Up kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára
Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 6
Vacancy kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Veðramót kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Rush Hour kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
eeee
- A.M.G., SÉÐ OG HEYRT
eeee
- H.J., MBL
eeee
- Ó.H.T., RÁS 2
SAGAN SEM MÁTTI EKKI SEGJA
eeee
- E.E., DV
eeee
- S.V., MBL
eeee
- S.G., Rás 2
eeee
- R.H., FBL
Chris
TuCker
jaCkie
ChaN
- Kauptu bíómiðann á netinu -
HVERSU LANGT MYNDIRU
GANGA FYRIR BESTA
VIN ÞINN?
- T.V., KVIKMYNDIR.IS
eeee
- R.V.E., FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
- S.V., MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd með
íslensku tali
Verð aðeins600 kr.
Stórskemmtilegt ævintýri í
undirdjúpunum fyrir alla fjölskylduna.
ENGIN
FORTÍÐ,
ENGU
AÐ TAPA
Hasar og adrenalín flæði frá upphafi til enda
Ef þeim tekst ekki að sleppa þá verða
þau fórnarlömb í „snuff“ mynd.
Óhuggnalegasti spennutryllir ársins
eee
- L.I.B., Topp5.is
55.000
G
ESTIR
eee
„Stórskemmtileg og snarbrjáluð hasarmynd
þar sem aldrei er langt í húmorinn.“
T.V. Kvikmyndir.is
HUGMYNDIN að láta Sandler
leika homma (þó að það sé bara í
plati), er ein sú versta síðan
Schwarzenegger var á steypirnum
í Junior. Til að koma málum Sand-
lers í þetta horf leikur hann nagl-
ann og slökkviliðsmanninn Chuck,
sem samþykkir að ganga í það
heilaga með ekkjumanninum
Larry (James), vinnufélaga sínum
og besta vini. Larry, sem er nýbú-
inn að bjarga líftóru Chucks, fær
ekki borgið tryggingamálum eftir
fráfall konunnar öðru vísi en hann
gifti sig og hvað á Chuck að gera
þegar hann er beðinn fallega?
Sjálfsagt er hægt að finna hrá-
efni í gamanmynd í kringumstæð-
unum, en til þess þarf að hafa upp
á fyndnum og frumlegum penna,
og hann er greinilega ófundinn.
Þeir Dugan og Barry Fanaro eru
engir I.A.L, Diamond og Billy Wil-
der, aðkoma Alexanders Payne
(Sideways), að skrifunum, dugar
ekki til.
Chuck and Larry er oftar vand-
ræðaleg en fyndin, smekklaus
frekar en ádeilin. Sandler setur
aðallega upp svipinn sem bjargaði
honum í gegnum myndir á borð
við Anger Management, en er
leiðigjarn að þessu sinni, hvort
sem hann er trúr sinni kynhneigð
eða sem gagnkynhneigður að leika
homma. James er ögn skárri, en
jafn ágætir leikarar og Buscemi
og Rhames, eru daufir eins og aðr-
ir. Boðskapurinn í lokakaflanum,
þegar Chuck fer að prédika og
myndin að taka sig alvarlega,
missir marks og engin leið að líta
á hana öðruvísi en sem mislukkaða
vitleysu.
Misheppnuð „Chuck and Larry er oftar vandræðaleg en fyndin, smekk-
laus frekar en ádeilin,“ segir Sæbjörn Valdimarsson meðal annars í dómi.
Það sem maður á ekki
að gera fyrir vini sína
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Háskólabíó,
Laugarásbíó, Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Dennis Dugan. Aðalleikarar:
Adam Sandler, Kevin James, Jessica
Biel, Ving Rhames. 111 mín. Bandaríkin
2007.
I Now Pronounce You Chuck and Larry
Sæbjörn Valdimarsson
EF ÞIG hefur lengi alltaf langað að sjá heiminn með
augum Jóns Gnarr þá er tækifærið núna … eða svona
næstum því. Gleraugu Jóns standa nefnilega hæst-
bjóðanda til boða á vef útvarpsþáttarins Frá A til J
sem útvarpað er á föstudögum á Rás 2.
Útvarpsþátturinn hóf göngu sína fyrr í mánuðinum
en þáttastjórnendur eru leikararnir Atli Þór Alberts-
son og Jóhann G. Jóhannsson.
Að sögn Atla Þórs er einn aðalgestur í hverjum
þætti og viðkomandi er fenginn til að gefa einhvern
persónulegan hlut, sem svo boðinn er upp. Gesturinn
ræður einnig hvert ágóði sölunnar rennur.
Býður einhver betur?
Jón Gnarr var gestur þeirra félaga síðastliðinn
föstudag og gaf gleraugun sín, þau hin sömu og hann
bar í uppistandinu Ég var einu sinni nörd og í ófáum
þáttum Fóstbræðra.
Ágóði af sölu gleraugnanna rennur óskiptur í minn-
ingarsjóð Þórðar Inga sem lést um helgina eftir slys í
sundlaug Kópavogs í vor.
Samkvæmt heimasíðu þáttarins á Ragnheiður Sig-
urðardóttir í Kópavogi hæsta boð hingað til, en hún
er tilbúin að greiða 20 þúsund krónur fyrir gler-
augun.
Tekið er á móti móttilboðum á netfanginu aj@ruv-
.is og einnig er hægt að fylgjast með gangi mála á
vefsíðu þáttarins, www.ruv.is/aj.
Gleraugu Jóns seld hæstbjóðanda
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gjafmildur Jón Gnarr, með gleraugun góðu.
ÞAU Fergie og Will.i.am í
hljómsveitinni Black Eyed
Peas eru þekkt fyrir að klæð-
ast óhefðbundnum klæðnaði á
sviði.
Sveitin hélt tónleika í Al-
maty í Kasakstan í liðinni viku
og brá því á það ráð að klæðast
nýjum útgáfum af þjóðbúningi
landsins.
Það væri fróðlegt að sjá
hvernig útreið íslenski þjóð-
búningurinn fengi legðu þau
Fergie og Will leið sína upp á
Íslands strendur.
Klædd við
hæfi í
Kasakstan
Reuters