Morgunblaðið - 07.11.2007, Qupperneq 1
miðvikudagur 7.
11. 2007
íþróttir mbl.is
íþróttir
Fjölmargir íslenskir handknattleiksmenn í Danmörku >> 4
MARKAREGN?
SIR ALEX FERGUSON SEGIR AÐ MANCHESTER UNITED
OG ARSENAL SÉU TVÖ AF BESTU LIÐUM EVRÓPU >> 2
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
KR-INGAR hafa samið við tvo nýja leikmenn,
Guðjón Baldvinsson, sóknarmann úr Stjörnunni,
og Gunnar Örn Jónsson, kantmann úr Breiða-
bliki, sem munu ganga form-
lega til liðs við KR á næstu
dögum. Rúnar Kristinsson
yfirmaður knattspyrnumála
hjá KR staðfesti við Morgun-
blaðið að samningar við leik-
mennina væru í höfn og sam-
komulag hefði verið gert við
Stjörnuna um Guðjón. Gunn-
ar Örn er hinsvegar laus und-
an samningi sínum við
Breiðablik um áramótin.
Guðjón samdi við KR til
fimm ára en hann er 21 árs sóknarmaður sem
hefur leikið með Stjörnunni allan sinn feril.
Hann skoraði 12 mörk fyrir Stjörnuna í 16 leikj-
um í 1. deildinni í sumar, og fjögur mörk að auki
í bikarkeppninni, og hefur alls gert 33 mörk í 49
deildaleikjum fyrir Garðabæjarliðið undanfarin
þrjú ár. Guðjón á að baki 7 leiki með 21-árs
landsliði Íslands og 5 leiki með U17 ára landslið-
inu.
Gunnar Örn samdi við KR til þriggja ára.
Hann er 22 ára og hefur aðallega spilað á hægri
kantinum en hann lék með Fjölni og Breiðabliki
í yngri flokkunum og með meistaraflokki
Breiðabliks frá 2002. Hann var lánaður til 1.
deildarliðs Fjölnis seinni hluta tímabilsins 2006.
Gunnar Örn lék 16 leiki með Blikum í úrvals-
deildinni í sumar og skoraði eitt mark en hann á
að baki 10 leiki með yngri landsliðum Íslands.
Guðjón og
Gunnar
Örn til KR
Gunnar Örn
Jónsson
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
NÝLIÐAR Fjölnis fengu góðan liðsstyrk í
gær en tveir ,,reynsluboltar“, Ágúst Gylfason
og Óli Stefán Flóventsson, hafa ákveðið að
ganga í raðir Grafarvogsliðsins sem leikur í
fyrsta sinn í efstu deild á næstu leiktíð.
Ágúst, sem er 36 ára gamall, kemur frá
KR-ingum en hann hefur leikið samtals 175
leiki í efstu deild með Val, Fram og KR og
,,Fyrir okkur er það mikill fengur að fá
þessa leikmenn. Stefnan var að halda þeim
hópi sem var í sumar og bæta inn í hann
mönnum með reynslu. Ég held að þetta sé
með betri kostunum sem við gátum fengið.
Þeir Ágúst og Óli Stefán eru báðir sterkir
leikmenn, hafa mikla reynslu og eru frábærir
karakterar. Ég er virkilega ánægður með að
hafa fengið þá til okkar. Þetta er mikill feng-
ur,“ sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari
Fjölnismanna, við Morgunblaðið í gær.
skorað 33 mörk og þá lék hann í nokkur ár
með Brann í Noregi og var um tíma á mála
hjá Solothurn í Sviss.
Óli Stefán er 32 ára gamall sem hefur verið
í herbúðum Grindvíkinga í fjölda ára. Hann
hefur leikið 183 leiki með liðinu í efstu deild
og skorað í þeim 32 mörk. Hann lék alla 22
leiki Grindvíkinga í 1. deildinni í sumar en
Suðurnesjaliðið bar sigur úr býtum í deildinni
og endurheimti sæti sitt í Landsbankadeild-
inni.
Ágúst og Óli Stefán í Fjölni
JÓN Arnór Stefánsson og félagar hans í ítalska
körfuknattleiksliðinu Lottomatica Róma töpuðu
á útivelli í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld
gegn tyrkneska liðinu Fenerbahce í Istanbúl.
Bæði lið höfðu tapað fyrstu tveimur leikjunum í
riðlakeppninni en Fenerbahce sigraði Róma,
85:66. Jón Arnór var næststighæstur í liði Róma
en hann skoraði 13 stig og að auki lét hann mik-
ið að sér kveða í fráköstunum.
Íslenski landsliðsbakvörðurinn tók 5 fráköst
en hann lék í 28 mínútur af alls 40. Skotnýting
hans var þokkaleg en hann hitti úr öllum 7 víta-
skotum sínum í leiknum, en aðeins 3 af alls 9
skotum hans utan af velli fóru rétta leið. Róma
hefur því tapað fyrstu þremur leikjunum í
Meistaradeildinni en liðið er í C-riðli ásamt
Panathinaikos, Barcelona, Partizan Belgrade,
Fenerbahce, Real Madrid, Brose Baskets og
Chorale Roanne.
Jón hefur leikið vel með Róma í fyrstu þrem-
ur leikjunum en hann er með 17,3 stig að með-
altali í þessum leikjum og er hann stigahæsti
leikmaður liðsins í Meistaradeildinni.
Tap hjá Róma
Reuters
Markamet Yossi Benayoun leikmaður Liverpool skoraði þrennu í 8:0-sigri enska liðsins gegn Besiktas frá Tyrklandi í gær á Anfield. Liver-
pool á nú markametið í Meistaradeildinni en Arsenal frá Englandi og ítalska liðið Juventus deildu áður metinu með 7:0-sigrum. »3