Morgunblaðið - 08.11.2007, Síða 1
fimmtudagur 8. 11. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Fagn Eiðs Smára og Ronaldinhos útskýrt >> 3
SKÓRNIR Á HILLUNA?
ÞRÍR KOSTIR Í STÖÐUNNI HJÁ ÁSTHILDI HELGADÓTTUR – ÁFRAM
HJÁ MALMÖ, SPILA Á ÍSLANDI EÐA HÆTTA VEGNA MEIÐSLA >> 4
BIRGIR Leifur
Hafþórsson, at-
vinnukylfingur
úr GKG, lék á
pari vallar eða 72
höggum á fyrsta
keppnisdegi á úr-
tökumótinu fyrir
Evrópumótaröð-
ina á Spáni.
Hann er í 17.-27.
sæti en David
Dixon frá Englandi er efstur á 5
höggum undir pari. Um er að ræða
2. stig úrtökumótsins en leikið er á
fjórum völlum samtímis og keppir
Birgir á Arcos Gardens-vellinum.
Alls taka 308 kylfingar þátt á 2.
stigi úrtökumótsins og aðeins 74
þeirra komast áfram á lokaúrtök-
umótið. Á Arcos Gardens-vellinum
komast 19 efstu áfram á lokaúrtök-
umótið.
Birgir komst í gegnum 2. og 3.
stig úrtökumótsins í fyrra og end-
aði í hópi 35 efstu á lokaúrtök-
umótinu sem tryggði honum keppn-
isrétt á 18 mótum á mótaröðinni á
þessu ári. Birgir vann sér inn um
6,7 milljónir kr. á tímabilinu sem er
hans besti árangur en hann var
samt sem áður langt frá því að
tryggja sér keppnisrétt á mótaröð-
inni. Aðeins 115 efstu á peningalist-
anum fá sjálfkrafa keppnisrétt á
næstu leiktíð en Birgir var í 184.
sæti og vantaði um 12 milljónir kr. í
verðlaunafé til þess að ná inn á lista
yfir 115 efstu. Frá árinu 1997 hefur
Birgir Leifur tekið þátt á úrtöku-
mótinu fyrir Evrópumótaröðina.
Allt lagt
undir á
Spáni
Birgir Leifur
Hafþórsson.
AP
Skytturnar þrjár Thierry Henry og Ronaldinho fagna Lionel Messi eftir að Argentínumaðurinn skoraði annað mark Barcelona gegn skoska liðinu Rang-
ers í Meistaradeildinni í gærkvöld. Eiður Smári Guðjohnsen fékk að spreyta sig síðustu 20 mínúturnar hjá Börsungum sem eru í góðri stöðu. »3
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„ÞAÐ má segja að ég hafi verið að
hugsa um þetta í 10 ár og núna er
komið að því,“ sagði Pétur Ingvars-
son í gær eftir að tilkynnt var um
starfslok hans sem þjálfara úrvals-
deildarliðs Hamars í körfuknattleik.
Ágúst Björgvinsson tekur við þjálf-
un liðsins og segir Pétur að brott-
hvarf hans sé í mesta bróðerni við
stjórn og leikmenn félagsins. „Ég
tók við Hamarsliðinu sumarið 1998
og það hafa fáir þjálfarar enst svona
lengi hjá sama félaginu. Ég hef svo
sem ekki gert það upp við mig hvort
ég sé alfarið hættur í þjálfun. Það
sem ég er að glíma við núna er að
elda kvöldmatinn fyrir fjölskylduna
og síðan var ég líka að skoða sjón-
varpsdagskrána. Þetta eru hlutir
sem ég hef ekki gert mikið af und-
anfarin ár,“ sagði Pétur í léttum tón.
„Ég ætla ekki að vera með neinar
yfirlýsingar um framhaldið hjá mér.
Ef eitthvað spennandi kemur upp á
næstunni þá skoða ég það en ég er í
góðu starfi hér í Hveragerði sem
íþrótta- og tómstundafulltrúi. Ég
mun sinna því áfram.“
Pétur hefur þjálfað Hamarsliðið
frá árinu 1998 en félagið lék fyrst í
úrvalsdeild veturinn 1999-2000.
Þetta var því 9. tímabilið hjá Pétri í
efstu deild með liðið en Hamar hef-
ur sex sinnum komist í úrslita-
keppnina og tvívegis leikið til úrslita
í bikarkeppni KKÍ. Sigurður Ingi-
mundarson er sá þjálfari sem hefur
verið lengst hjá sama félaginu en
hann hefur stýrt Keflavík frá árinu
1997, að einu ári undanskildu, og er
þetta 11. tímabil hans sem þjálfari
Keflavíkurliðsins. Jón Kr. Gíslason
var þjálfari Keflavíkur í 7 tímabil,
1988-1996 en þessir þrír þjálfarar
hafa verið hvað lengst í starfi sam-
fellt hjá sama félaginu.
Ágúst tekur við Hamarsliðinu í
10. sæti Iceland Express-deildar-
innar en félagið hefur unnið einn
leik í fyrstu fjórum umferðunum.
Ágúst þjálfaði lið Vals í efstu deild
um tíma veturinn 2002-2003, og
hann tók tímabundið við þjálfun
Hauka veturinn 2005-2006. Kvenna-
lið Hauka náði frábærum árangri
undir hans stjórn á síðasta tímabili
en liðið vann alla titla sem voru í
boði á Íslandi en Haukar urðu tví-
vegis Íslandsmeistarar undir hans
stjórn.
„Hef hugsað þetta í tíu ár“
Ágúst Björgvinsson tekur við þjálfun Hamars Pétur Ingvarsson hættir eftir að hafa stýrt liðinu
samfellt í áratug „Ég er ekki hættur í þjálfun“ Aðeins Sigurður Ingimundarson skákar Pétri
Pétur
Ingvarsson
Ágúst
Björgvinsson