Morgunblaðið - 08.11.2007, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Rafal Ulatowski,
fyrrum knatt-
spyrnuþjálfari
hjá Leikni á Fá-
skrúðsfirði og
Þrótti í Reykja-
vík, hefur verið
ráðinn þjálfari
pólska meistaral-
iðsins Zaglebie Lubin, eftir að að-
alþjálfarinn hætti störfum og réð sig
til LA Galaxy, liðs Davids Beck-
hams í Bandaríkjunum. Ulatowski,
sem er 34 ára, hafði verið aðstoð-
arþjálfari Lubin um skeið. Hann var
þjálfari og leikmaður Leiknis á Fá-
skrúðsfirði árið 2000 og árið eftir
varð kvennalið Þróttar R. meistari í
1. deild undir hans stjórn. Hann
þjálfaði einnig yngri flokka hjá
Þrótturum.
Arne Niemeyer, einn reyndastiog traustasti leikmaður þýska
handknattleiksliðsins GWD Minden
hefur ákveðið að ganga til liðs við
HSV Hamburg á næsta sumri. Þetta
er mikið áfall fyrir Minden-liðið, sem
Einar Örn Jónsson leikur með, þar
sem Niemeyer hefur verið einn besti
leikmaður liðsins, alinn upp innan
raða þess auk þess sem faðir hans
lék með Minden-liðinu á sinni tíð og
þjálfaði það um tíma í kringum alda-
mótin.
Benny Lenn-artsson, frá-
farandi þjálfari
norska knatt-
spyrnuliðsins
Start, sagði við
netútgáfu
Fædrelands-
vennen í gær að
vítaspyrna sem
Jóhannes Harðarson fékk á sig í
uppbótartíma í leik gegn Ströms-
godset í september, væri eitt af
þeim atvikum sem hefðu fellt liðið úr
úrvalsdeildinni. Start féll á dögunum
í 1. deild eftir tap í lokaumferðinni,
en liðið hafði aldrei verið í fallsæti á
tímabilinu.
Netútgáfa Adresseavisen hafðisamband við Jóhannes vegna
ummæla þjálfarans. Jóhannes
kvaðst sjálfur hafa verið mjög
svekktur yfir vítaspyrnunni, sem
hann hefði talið rangan dóm. „Mér
fannst ég heldur ekki verðskulda að
vera settur út úr hópnum í síðustu
leikjunum,“ sagði Jóhannes, sem
ekki fékk tækifæri í liðinu eftir
þetta. Jóhannes staðfesti jafnframt
við Adresseavisen að hann myndi
leika með Start í 1. deildinni á næsta
ári en hann er samningsbundinn fé-
laginu eitt ár til viðbótar.
Geir Þorsteinsson, formaðurKnattspyrnusambands Ís-
lands, verður eftirlitsmaður UEFA
á leik Bayern München og Bolton
Wanderers í UEFA-bikarnum í
kvöld. Leikurinn fer fram á hinum
glæsilega heimavelli Bayern, Alli-
anz Arena en hann rúmar 70 þúsund
manns.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
Meiðslin settu heldur betur strik í
reikninginn hjá Ásthildi á tíma-
bilinu en keppni í sænsku úrvals-
deildinni lauk um síðustu helgi. Ást-
hildur hóf tímabilið með látum og
skoraði 8 mörk í fyrstu 11 umferð-
unum með Ldb Malmö en meiðsli í
hné urðu þess valdandi að hún kom
aðeins við sögu í tveimur leikjum
eftir það með Malmö og missti af
sjö síðustu leikjum liðsins þar sem
hún gekkst undir aðgerð í ágúst
þar sem liðþófi í hægra hné var
fjarlægður.
Þjösnaðist of mikið á hnénu
,,Það var í leik gegn AIK í lok
apríl sem ég fann fyrst fyrir meiðsl-
unum. Ég hélt hins vegar áfram að
spila þrátt fyrir að ég væri að drep-
ast í hnénu. Ég ákvað að harka af
mér í gegnum landsleikina í lok júní
en fór í speglun í byrjun ágúst. Ég
hef ekki náð mér eftir það og
læknar segja að það sé vegna þess
að ég þjösnaðist svo á þessu. Ég
hef varla getað skokkað en eftir að
fór í sprautumeðferð hef ég lagast
mikið og get loks farið að hreyfa
mig en þá er tímabilið búið. Þetta
var því ansi fúlt tímabil hjá mér eft-
ir að hafa byrjað það svo vel,“ sagði
Ásthildur í samtali við Morgunblað-
ið en hún sleit krossband í hægra
hné fyrir þremur árum og hefur
síðan átt í erfiðleikum með hnéð
vegna brjóskskemmda.
Hún hefur leikið með liði Malmö
frá árinu 2003 og hefur svo sann-
arlega látið mikið að sér kveða með
liðinu frá þeim tíma og hefur verið
meðal bestu leikmanna í sænsku
úrvalsdeildinni, sem er talin en sú
sterkasta í heimi. Í fyrra átti hún
líklega sitt besta tímabil, skoraði 19
mörk í 21 leik og var tilnefnd sem
ein af þremur bestu sóknarmönn-
unum í deildinni og skaut meðal
annars hinni frábæru Mörtu frá
Brasilíu ref fyrir rass.
Bíða mín verkefni á Íslandi
Samningur Ásthildar við Ldb
Malmö er runninn út en forráða-
menn félagsins hafa boðið henni
nýjan samning – gerðu það strax í
maí og hafa ítrekað beiðni sína.
,,Ég er búin að tjá þeim að það
sé fáránlegt að skrifa undir nýjan
samning þegar svona mikil óvissa
er um hnéð á mér. Mér þykir ólík-
legt eins og staðan er í dag að ég
verði áfram hjá liðinu því ég vil
geta tekið þátt í öllum æfingunum
af 100% krafti en hnéð kemur ekki
til með að þola það álag sem því
fylgir. Ég veit að Malmö mun ekki
gefa sig og menn frá félaginu munu
örugglega hringja í mig á hverjum
degi eins og þeir gerðu í fyrra en
ég reikna ekki með því að vera
áfram hér úti í Svíþjóð. Heima á Ís-
landi bíða verkefni sem ég þarf að
sinna,“ segir Ásthildur, sem hefur
haslað sér völl í stjórnmálunum en
hún fékk ársleyfi frá störfum í bæj-
arstjórn Kópavogs til að sinna
knattspyrnunni. Ásthildur er for-
maður Íþrótta- og tómstundaráðs
Kópavogs en hún er verkfræðingur
að mennt.
Ekki þessi virði
að eyðileggja á sér hnéð
Ásthildur, sem er 31 árs og er
leikjahæsti leikmaður íslenska
landsliðsins frá upphafi með 69
leiki, segir hugsanlegt að knatt-
spyrnuferli sínum sé lokið. ,,Ég er
komin á það stig að ég á erfitt með
að ganga og þá fer maður að hugsa;
nei, það er ekki þess virði að eyði-
leggja á sér hnéð. Það er því alveg
inni í myndinni að ég segi hreinlega
skilið við fótboltann því mér finnst
ekki ástæða til að taka stóra
áhættu. Ég er afar þakklát fyrir
þann feril sem ég hef átt og ég fer
ekkert að gráta ef það verður nið-
urstaðan að ég hætti. Ég er hins
vegar svekkt með þetta tímabil því
það byrjaði svo vel og að það skyldi
dragast svo á langinn að fara í
speglunina,“ sagði Ásthildur sem á
glæsilegan feril að baki. Það yrði
svo sannarlega mikill sjónarsviptir
af Ásthildi ef hún neyddist til að
hætta en hún hefur verið í far-
arbroddi íslenskra íþróttakvenna
um árabil – mikil og góð fyrirmynd
og frábær íþróttakona.
Leggur Ásthildur
skóna á hilluna?
Þrír kostir í stöðunni: Áfram hjá Malmö, spila á Íslandi eða hætta vegna meiðsla
ÁSTHILDUR Helgadóttir, fyrirliði
íslenska landsliðsins í knattspyrnu
og leikmaður sænska úrvalsdeild-
arliðsins Ldb Malmö, þarf hugs-
anlega að leggja knattspyrnuskóna
á hilluna vegna meiðsla í hné. Í
samtali við Morgunblaðið sagðist
hún hafa um þrjá kosti að velja. Að
halda áfram hjá Malmö, sem hefur
boðið henni nýjan samning, koma
heim og spila með íslensku liði eða
hreinlega að hætta knattspyrnuiðk-
un.
Á ferð Ásthildur Helgadóttir er hér í leik með Ldb Malmö – á í höggi við Jenny Curtsdotter, leikmann Djurgården.
Í HNOTSKURN
»Ásthildur er 31 árs. Hún erleikjahæsti leikmaður ís-
lenska landsliðsins frá upphafi
með 69 leiki og hefur skorað í
þeim 23 mörk.
»Ásthildur hefur leikið 152leiki í efstu deild á Íslandi
með Breiðabliki, KR og ÍBV
og skoraði í þeim 135 mörk.
»Ásthildur gekk í raðirMalmö 2003 og hefur leik-
ið 58 leiki með því í úrvals-
deildinni og skorað í þeim 46
mörk.
TEITUR Þórðarson er einn
þriggja knattspyrnuþjálfara
sem helst eru orðaðir við
norska úrvalsdeildarfélagið
Aalesund. Per Joar Hansen
hætti þar störfum á dög-
unum eftir að hafa skilið við
liðið í öruggri höfn í deild-
inni. Liðið kom uppúr 1.
deild og hafnaði í 11. sætinu,
og var ekki í teljandi fall-
hættu á lokasprettinum.
Teiti var sagt upp störfum
hjá KR í lok júlí en hann hef-
ur mikla reynslu af norsku
úrvals-
deildinni
og hefur
þar þjálf-
að Brann,
Lilleström
og Lyn í
samtals tíu
ár.
„Já, ég
hef mikinn
áhuga á að
þjálfa Aalesund en félagið
hefur ekki haft samband við
mig. Það er rétt að ég og
Reidar Vågnes, yfirmaður
knattspyrnumála hjá félag-
inu, erum góðir vinir og ég
fór með KR-Akademíuna á
mót í Aalesund í fyrra. Þá
kynntist ég félaginu dálítið,“
sagði Teitur við staðarblaðið
Sunnmörsposten.
Auk hans eru norsku þjálf-
ararnir Harald Aabrekk og
Tor Thodesen sterklega orð-
aðir við stöðuna. Einn lykil-
manna Aalesund er Keflvík-
ingurinn Haraldur Freyr
Guðmundsson.
Teitur orðaður við Aalesund
Teitur
Þórðarson
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í knattspyrnu
tekur þátt í Algarve-bikarnum í Portúgal í
mars á komandi ári og verður því meðal þátt-
takenda þar annað árið í röð. Ísland verður í C-
riðli ásamt Póllandi, Portúgal og Írlandi en
átta af bestu þjóðum heims skipa A- og B-riðil
mótsins. Það fer fram dagana 3.-13. mars.
„Þetta er mjög ánægjulegt því það tókst vel
til hjá okkur á þessu móti á þessu ári. Það var
þá ómetanlegt fyrir mig að geta verið með liðið
í tíu daga og spilað fjóra hörku landsleiki, þar
sem ég náði að prófa mig áfram með það.
Þarna spilum við gegn þremur liðum sem eiga
að vera svipuð og þau sem við mætum um sum-
arið, og ef við stöndum okkur, fáum við leik
gegn mjög sterku liði í lok-
in,“ sagði Sigurður Ragnar
Eyjólfsson landsliðsþjálfari
við Morgunblaðið í gær.
Íslenska liðið tók þátt í
mótinu í mars á þessu ári og
tapaði þá fyrir Ítalíu, 1:2,
gerði jafntefli, 1:1, við Ír-
land en vann Portúgal 5:1 og
loks Kínverja 4:1 í leik um
níunda sæti mótsins.
Þátttakan í Algarve-
bikarnum er mikilvægur liður í undirbúningi
liðsins fyrir leikina gegn Serbum, Slóvenum og
Grikkjum í undankeppni EM í maí og júní.
Konurnar aftur til Portúgals
Margrét Lára
Viðarsdóttir