Morgunblaðið - 09.04.2008, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
8 liða úrslit, síðari leikir:
Liverpool – Arsenal .................................4:2
Sami Hyypiä 30., Fernando Torres 69.,
Steven Gerrard (víti) 85., Ryan Babel 90 –
Abou Diaby 13., Emmanuel Adebayor 84. –
38.369.
Liverpool sigraði 5:3 samanlagt.
Chelsea – Fenerbache..............................2:0
Michael Ballack 4., Frank Lampard 87. –
41.985.
Chelsea sigraði 3:2 samanlagt.
England
West Ham – Portsmouth .........................0:1
Niko Kranjcar 61. – 33.629.
Staðan:
Man. Utd 33 24 5 4 70:17 77
Chelsea 33 22 8 3 58:23 74
Arsenal 33 20 11 2 63:27 71
Liverpool 33 17 12 4 57:25 63
Everton 33 18 6 9 49:27 60
Portsmouth 33 16 8 9 47:33 56
Aston Villa 33 14 10 9 56:44 52
Blackburn 33 13 12 8 43:39 51
Man. City 33 13 10 10 37:39 49
West Ham 33 12 8 13 35:40 44
Tottenham 33 10 10 13 62:56 40
Newcastle 33 10 8 15 40:58 38
Sunderland 33 10 6 17 32:50 36
Middlesbro 33 8 11 14 30:47 35
Wigan 33 9 7 17 30:47 34
Reading 33 9 5 19 37:61 32
Birmingham 33 7 9 17 38:51 30
Bolton 33 6 8 19 30:52 26
Fulham 33 4 12 17 30:56 24
Derby 33 1 8 24 16:68 11
1. deild:
Blackpool – WBA ......................................1:3
Sheff. Utd – Sheff. Wed. ...........................2:2
Staðan:
WBA 41 20 10 11 81:52 70
Bristol City 42 19 13 10 49:49 70
Stoke City 42 18 15 9 64:53 69
Hull 41 19 11 11 59:41 68
Watford 41 18 14 9 60:48 68
Cr. Palace 42 15 17 10 48:40 62
Wolves 40 16 13 11 47:45 61
Ipswich 41 16 12 13 58:51 60
Charlton 42 16 12 14 58:52 60
Plymouth 42 16 11 15 54:46 59
Burnley 42 15 13 14 55:57 58
Sheff. Utd 42 14 15 13 48:46 57
Cardiff 40 14 14 12 47:44 56
QPR 42 13 15 14 58:60 54
Preston 42 15 9 18 45:47 54
Norwich 42 14 10 18 43:51 52
Blackpool 42 11 17 14 55:56 50
Coventry 42 13 10 19 44:56 49
Southampton 42 12 13 17 51:67 49
Sheff. Wed. 42 12 12 18 45:50 48
Leicester 42 11 14 17 39:41 47
Barnsley 40 11 13 16 43:57 46
Scunthorpe 42 9 12 21 39:62 39
Colchester 42 7 15 20 57:76 36
2. deild:
Carlisle – Swansea ....................................0:0
Nottingham Forest – Bristol R. ..............1:1
Southend – Brighton.................................2:0
Staða efstu liða:
Swansea 42 24 11 7 74:38 83
Carlisle 42 23 10 9 60:37 79
Doncaster 42 21 10 11 59:38 73
Southend 42 21 8 13 66:51 71
Nottingham F. 42 18 16 8 57:30 70
Leeds 41 23 10 8 64:34 64
Lengjubikar kvenna
B-deild:
Afturelding – ÍR........................................1:2
Staðan:
HK/Víkingur 2 2 0 0 6:0 6
Fjölnir 2 1 1 0 5:1 4
Þór/KA 2 1 1 0 4:1 4
Þróttur R. 2 1 0 1 2:4 3
ÍR 3 1 0 2 3:8 3
Afturelding 3 0 0 3 3:8 0
BLAK
Úrslitakeppni karla, undanúrslit, annar
leikur:
Þróttur R. – KA.........................................3:2
(23:25, 27:25, 19:25, 25:19, 15:12)
Þróttur sigraði 2:0.
ÍS – Stjarnan .............................................1:3
(26:24, 20:25, 16:25, 0:25)
Stjarnan sigraði 2:0.
HANDKNATTLEIKUR
Þýskaland
Wilhelmshavener – Nordhorn .............25:32
Kiel – N-Lübbecke................................46:27
Staða efstu liða:
Flensburg 27 23 1 3 933:747 47
Kiel 26 23 0 3 864:704 46
Hamburg 27 20 4 3 861:724 44
Nordhorn 27 17 4 6 846:765 38
RN Löwen 27 18 2 7 872:771 38
Gummersbach 28 15 3 10 873:825 33
Lemgo 27 15 2 10 801:768 32
Grosswallstadt 27 12 1 14 773:823 25
Magdeburg 27 12 1 14 814:788 25
Göppingen 27 11 2 14 744:748 24
Melsungen 28 10 2 16 896:962 22
Wetzlar 27 7 6 14 718:775 20
Balingen 27 9 2 16 745:818 20
í kvöld
KÖRFUKNATTLEIKUR
Iceland Express-deildin, undanúrslit
karla, annar leikur:
Seljaskóli: ÍR – Keflavík.......................19.15
íþróttir
HANNES Þ. Sigurðsson er markahæstur í
sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu ásamt
nokkrum öðrum eftir að hafa skorað tvö mörk fyr-
ir Sundsvall gegn Hammarby í fyrrakvöld. En lið
hans tapaði þrátt fyrir það leiknum í Stokkhólmi,
5:3.
Hannes fær góða dóma fyrir frammistöðu sína
og þjálfari Sundsvall, Per Joar Hansen, lýsti yfir
mikilli ánægju með hann.
„Það er dýrmætt fyrir okkur að Hannes skuli
skora mörk og sóknarleikur okkar er stundum
virkilega góður,“ sagði Hansen við dagblaðið
Sundsvalls Tidning. „Það er erfitt að sjá eitthvað
jákvætt við það að skora í svona leik. Það er mikill
vilji í liðinu og við sköpuðum okkur mörg mark-
tækifæri. Við spiluðum mjög vel í fyrri hálfleik en
í þeim seinni var of langt bil á milli okkar manna
og leikmenn Hammarby fóru létt með að spila
framhjá okkur,“ sagði Hannes við Sundsvalls
Tidning.
Átta leikmenn með tvö mörk
Átta leikmenn hafa skorað tvö mörk í tveimur
fyrstu umferðunum í Svíþjóð. Auk Hannesar eru
það Martin Fribrock hjá Helsingborg, Christoffer
Andersson hjá Helsingborg, Stean Ishizaki hjá
Elfsborg, Magnus Andersson hjá Trelleborg, Nic-
las Alexandersson hjá IFK Gautaborg, Johan
Oremo hjá Gefle og Sebastian Rajalakso hjá Djur-
gården.
Ragnar Sigurðsson hjá IFK Gautaborg er á
markalistanum með eitt mark og þá eru Jóhann
B. Guðmundsson hjá GAIS og Hjálmar Jónsson
hjá IFK Gautaborg í hópi þeirra sem eru með
skráðar stoðsendingar, þ.e. hafa lagt upp mörk í
fyrstu tveimur umferðunum.
„Dýrmætt að Hannes skuli skora“
LEIKMENN og þjálfari, Birgir
Björnsson, íslenska landsliðsins í
handknattleik, sem náðu fyrstir til
að leggja Dani að velli í landsleik,
hittust í hádeginu í gær að Hótel
Loftleiðum til að halda upp á að 40
ár voru liðin frá sigurleiknum á Dön-
um í Laugardalshöllinni, sunnudag-
inn 7. apríl 1968, 15:10. Landsliðið
sem lagði Dani að velli var þannig
skipað að Þorsteinn Björnsson,
Fram, og Emil Karlsson, KR, voru
markverðir, en aðrir leikmenn voru
Ingólfur Óskarsson, Fram, fyrirliði,
Ágúst Ögmundsson, Val, Gísli Blön-
dal, KR, Jón Hjaltalín Magnússon,
Víkingi, Þórður Sigursson, Haukum,
Björgvin Björgvinsson, Fram, Sig-
urður Einarsson, Fram, Sigurbergur
Sigsteinsson, Fram, og Geir Hall-
steinsson, FH.
Björgvin, Emil og Gísli léku þá
sinn fyrsta landsleik.
Alltaf með yfirhöndina
Íslenska liðið náði að leika mjög
vel í leiknum og var alltaf með yf-
irhöndina og þegar staðan var 13:8
tóku Danir það til bragðs að setja
leikmann til höfuðs Geir. Það dugði
lítið því að íslensku leikmennirnir
undir stjórn Ingólfs gáfu ekkert eft-
ir og fögnuðu öruggum sigri og var
stemmningin gríðarleg í Laugar-
dalshöllinni er sigurinn var í höfn.
Jón Hjaltalín skoraði fimm mörk í
leiknum, Geir fjögur, Sigurbergur
tvö og Ingólfur, Sigurður, Þórður og
Björgvin eitt hver.
Þorsteinn lék sinn 25. landsleik í
röð frá 1964.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Þeir lögðu Dani Nokkrir leikmenn sem lögðu Dani að velli í landsleik í handknattleik 1968 komu sman í gær – Geir Hallsteinsson, Birgir Björnsson þjálfari,
Þórður Sigurðsson, Sigurður Einarsson, Jón Hjaltalín Magnússon, Ingólfur Óskarsson, Hannes Þ. Sigurðsson landsliðsnefndarmaður og Ágúst Ögmundsson.
Þá lágu
Danir í
því …
GRASRÓTIN í körfuknattleiks-
hreyfingunni á Íslandi hefur á und-
anförnum árum aðstoðað við að
koma upplýsingum á framfæri um
gang mála í leikjum í efstu deildum í
karla og kvennaflokki.
Frumkvöðlar úr röðum KKÍ hafa í
gegnum tíðina verið óhræddir við að
takast á við stór verkefni á borð við
skráningu tölfræðiþátta í hverjum
einasta leik í efstu deild karla og
kvenna.
Þessar upplýsingar hafa síðan leg-
ið fyrir á heimasíðu KKÍ skömmu
eftir leikina og allt er þetta gert í
sjálfboðavinnu.
Og nýverið tók KKÍ enn eitt risa-
skref í miðlun upplýsinga á netinu.
Um miðjan síðasta mánuð tók KKÍ
notkun nýtt mótakerfi sem uppfyllti
kröfur sambandsins. Gamla móta-
kerfið var komið til ára sinna og
uppfyllti ekki lengur þær kröfur sem
gerðar eru. Samið var við fyrirtæki
frá Litháen sem hefur á und-
anförnum starfað fyrir Alþjóða-
körfuknattleikssambandið, FIBA, og
var KKÍ því ekki að finna upp hjólið
í þessu samhengi.
Bylting
Kerfið sem um ræðir ber nafnið
SmartStat/CMS og er frá fyrirtæk-
inu MBT. Þetta kerfi er í notkun
m.a. á Spáni, Litháen, Finnlandi,
Slóveníu og fleiri lönd munu bætast
í hópinn á næstu misserum.
Með nýja mótakerfinu getur gras-
rótin í körfuknattleikshreyfingunni
miðlað upplýsingum beint frá keppn-
isstöðunum og er óhætt að segja að
um byltingu sé að ræða.
Kerfið var prófað í fyrsta sinn
hinn 18. mars sl. og vissulega voru
nokkrir hnökrar á fyrstu leikjunum
sem voru í „beinni“ útsendingu á vef
KKÍ. Frá þeim tíma hefur þekkingin
aukist á nýja kerfinu og á allra síð-
ustu dögum hefur þetta nýja kerfi
sannað tilverurétt sinn svo um mun-
ar. Á undanförnum vikum hafa
margir spennandi leikir farið fram í
úrslitakeppni karla og kvenna, auk
úrslitaleikja í 1. deild karla. Boðið
hefur verið upp á beinar lýsingar frá
þessum leikjum í gegnum nýja
mótakerfið og er óhætt að segja að
vel hafi tekist til.
Spenna við tölvuna
Sá sem þetta ritar sat sem „límd-
ur“ fyrir framan tölvuskjáinn þegar
FSu tryggði sér sæti í úrvalsdeild að
ári í þriðja úrslitaleiknum gegn Val.
Sá leikur var í „beinni“ útsendingu á
vef KKÍ þar sem að allar nauðsyn-
legar upplýsingar runnu yfir skjá-
inn. Vissulega er hraðinn mikill á
meðan leikirnir standa yfir og ef-
laust eru rangar upplýsingar slegnar
inn af og til. En það skiptir engum
máli ef það er lagfært í leikslok. Og
það er spennandi að bíða eftir „nýj-
ustu“ tölum úr leikjunum sem detta
sjálfkrafa inn í mótakerfið.
Ég óska grasrótinni, sjálfboðalið-
unum og körfuknattleikshreyfing-
unni til hamingju með þetta frábæra
mótakerfi sem opnar nýjar víddir í
miðlun upplýsinga frá kappleikjum.
Íslandsmeistaralið KR í körfu-
knattleik karla féll óvænt úr leik í 8
liða úrslitum Iceland Express-
deildarinnar gegn ÍR á fimmtudag í
síðustu viku. KR-ingar eru eflaust
enn að sleikja sárin en þeir geta ver-
ið stoltir af þeirri umgjörð sem for-
svarsmenn félagsins og grasrót fé-
lagsins hefur búið til á undanförnum
misserum. KR-TV er dæmi um
þrekvirki sem hvílir á herðum fárra.
KR-ingar tóku þá ákvörðun að sýna
beint frá leikjum karlaliðsins og var
hægt að nálgast þá útsendingu á
netinu. Myndgæðin og upptakan frá
leikjunum var vissulega ekki eins og
á „atvinnusjónvarpsstöðvunum“ en
viljinn var fyrir hendi.
Þeir sem lýstu leikjunum voru
langt frá því hlutlausir og leyndu því
ekki að KR-hjartað sló í þeirra lýs-
ingum. Og það er ekki hægt að
kvarta yfir þessum atriðum.
„Reddum þessu“
KR-ingar nýttu sér brautryðj-
endastarf sem önnur félög höfðu
unnið á þessu sviði. Breiðablik í
Kópavogi reið á vaðið í beinum sjón-
varpsútsendingum á netinu og KFÍ
á Ísafirði fylgdi síðan í kjölfarið.
Önnur félög hafa síðan þróað ýmsar
aðferðir við að koma upptökum frá
sínum liðum á netið og er mikil
gróska á þessu sviði hjá íslenskum
liðum.
Það er ánægjulegt að sjá hve mik-
ill kraftur er í upplýsingamiðlun hjá
körfuknattleikshreyfingunni og þar
á bæ bíða menn ekki eftir því að
hlutirnir séu gerðir fyrir þá.
Menn „redda“ sér sjálfir.
(H)rós í hnappagat KKÍ
Á vellinum
Sigurður Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is