Morgunblaðið - 09.04.2008, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.04.2008, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 3 Valur hafnaðibeiðni frá LdB Malmö um að fá Guðbjörgu Gunnarsdóttur landsliðsmark- vörð í knatt- spyrnu lánaða í fyrstu leiki tíma- bilsins. Guðbjörg staðfesti þetta í viðtali við Fótbolti.net í gær en degi eftir að hún hefði átt að fara til Sví- þjóðar sleit hún hásin í leik með Val gegn KR og er úr leik það sem eftir er tímabilsins.    Geir Þorsteinsson, formaðurKnattspyrnusambands Ís- lands, var eftirlitsmaður Knatt- spyrnusambands Evrópu, UEFA, á leik Chelsea og Fenerbahce á Stam- ford Bridge í gærkvöldi.    Japaninn Hiroshi Hoketsu verðurmeðal keppenda í hesta- mennsku á Ólympíuleikunum í Pek- ing í sumar. Hann verður vænt- anlega meðal elstu keppenda því hann er 67 ára gamall og elsti Jap- aninn sem keppt hefur á leikunum. Hann hefur einu sinni áður keppt á Ólympíuleikum en það var fyrir 44 árum í Tókýó.    Ólafur Stefánsson er í 12. sæti yf-ir markahæstu leikmenn í Meistaradeild Evrópu í handknatt- leik. Ólafur hefur skorað 70 mörk fyrir Ciudad Real í keppninni en lið- ið er komið með annan fótinn í úrslit eftir sjö marka sigur á Hamborg í fyrri viðureign liðanna í undan- úrslitum keppninnar. Makedón- íumaðurinn Kiril Lazarov, Croatia Zagreb, er markhæstur en hann hefur skorað 95 mörk, næstur kem- ur Iker Romero, Barcelona, með 83 mörk og Kóreumaðurinn Kyung- Shin Yoon, Hamborg, er þriðji með 81 mark.    Tiger Woodser sá kylf- ingur sem flestir fylgjast með í að- draganda fyrsta stórmóts ársins, Mastersmótsins, sem hefst á fimmtudag á Augusta- vellinum. Woods verður í ráshóp með Argentínumanninum Angel Cabrera og Ástralanum Stuart Appleby fyrstu tvo keppnisdagana. Woods hefur sigrað á 13 stórmótum og hann hefur fjórum sinnum sigrað á Mastersmótinu (1997, 2001, 2002, 2005) og er hann bjartsýnn á góðan árangur á Mastersmótinu. „Völl- urinn er frekar mjúkur og það ger- ist ekki oft. Ég er viss um að hrað- inn á flötunum verður meiri á fimmtudag þegar keppni hefst og Augusta er alltaf í fullkomnu ástandi,“ sagði Woods í gær en um 40.000 áhorfendur fylgdust með æf- ingadegi keppenda. Zach Johnson hefur titil að verja á mótinu. Fólk folk@mbl.is ÞÓRIR Ólafsson lék sinn fyrsta leik í fjóra mánuði fyrir N-Lübbecke í gærkvöld þegar liðið steinlá fyrir meistaraliði Kiel, 46:27, í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Þórir, sem viðbeinsbrotnaði í desember, náði ekki að skora en með liði N-Lübbecke leikur einnig landsliðsmarkvörðurinn Birkir Ívar Guð- mundsson. Sænski landsliðsmaðurinn Kim Andersson fór á kostum í liði Kiel en vinstri handar stór- skyttan skoraði 12 mörk og næstur kom Igor Anic með 11. Christian Hildebrand var atkvæðamestur hjá Lüb- becke með 7 mörk. Með sigrinum komst Kiel á toppinn. Liðið hefur 48 stig, Flens- burg 47 og Hamborg 44 en sjö umferðir eru eftir. Lübbecke er í 15. sæti af 18 liðum með 14 stig. Þórir aftur í slaginn Þórir Ólafsson AÐALSTEINN Eyjólfsson mun taka við hinu unga og efnilega kvennaliði Fylkis í handknattleik og hefur hann gert þriggja ára samning við Fylki. Hann mun jafnframt þjálfa unglingaflokk kvenna og vera yfirþjálfari allra yngri flokka félagsins. Fylkis- menn segja hann taka við góðu búi af Guðríði Guðjónsdóttur sem hafi unnið frábært starf fyrir félagið. Aðalsteinn sagði að nýja starfið legðist vel í hann, Fylkir væri ungt félag með góða umgjörð. Spurður hvort ætlunin væri að byggja upp í rólegheitunum eða kaupa leikmenn til að ná ef til vill skjótari árangri sagði Aðalsteinn: „Ég vil byggja upp sterkan kjarna af félagsmönnum en ef það þarf að styrkja hópinn eitthvað þá þarf bara að athuga það. Það þarf að styrkja stoðirnar og byggja ofan á það og við viljum ekki fá hingað málaliða til að leysa einhvern skammtímavanda. Hérna eru ungar stelpur í meistaraflokki og síðan er góður fjórði flokkur sem hlúa þarf enn frekar að.“ Aðalsteinn til Fylkis NETÚTGÁFA enska dagblaðsins Daily Mail segir í gær að Björg- ólfur Guðmundsson, stjórnarformaður og aðaleigandi West Ham, hafi fyrirskipað knattspyrnustjóranum Alan Curbishley að lækka launakostnaðinn hjá félaginu fyrir næsta tímabil. Farið er yfir leik- mannakaup sem Eggert Magnússon hafði umsjón með, en þá hafi háar upphæðir verið greiddar fyrir leikmenn og samið við þá um verulega góð laun. Þar sé meðal annars um að ræða Freddie Ljung- berg, Craig Bellamy, Kieron Dyer, Luis Boa Morte og Matthew Upson. Curbishley segir að mjög erfitt sé að gera áætlanir um leik- mannamálin í augnablikinu vegna þess hve margir leikmenn hafi verið frá keppni vegna meiðsla í vetur. Enn er möguleiki á að Craig Bellamy nái að spila með West Ham áður en tímabilið er úti, en James Collins, Danny Gabbiadon, Julien Faubert, Lee Bowyer, Calum Davenport og Kieron Dyer eru allir úr leik fram yfir þann tíma. Lægri laun hjá West Ham Leikur Liverpool og Arsenal bauð upp á allt sem prýða þarf góðan fótboltaleik, gífurlegan hraða, baráttu, frábær mörk og miklar sviptingar. Arsenal hóf leik- inn á Anfield með miklum krafti og eftir 14 mínútur lá boltinn í mark Liverpool. Abou Diaby batt endahnútinn á vel út- færða sókn og skoraði með föstu skoti í nærhornið sem fór í Reina markvörð Liverpool og inn. Arsenal var miklu betri fyrsta hálftímann en eftir að finnski varnarmaðurinn Sami Hyypia jafnaði með glæsilegu skallamarki eftir hornspyrnu á 30. mínútu náðu heima- menn betri tökum á leiknum og það sem eftir lifði leiksins höfðu þeir frumkvæð- ið. Eftir 20 mínútna leik í seinni hálfleik kom Spánverjinn Fernando Torres Liv- erpool yfir með gull af marki. Hann sneri af sér varnarmann og þrumu- fleygur hans fór efst upp í hornið. Ar- sene Wenger, stjóri Arsenal, var fljótur að bregðast við. Hann skellti Robin van Persie og Theo Walcott inn á og tíu mín- útum seinna jafnaði Emmanuel Adeba- yor metin, 2:2, eftir frábæra rispu hjá Walcott. Enski táningurinn fékk bolt- ann rétt utan eigin vítateigs. Hann brunaði í átt að marki Liverpool, lék á hvern leikmanninn á fætur öðrum og lagði boltann á Adebayor sem skoraði af öryggi. Arsenal menn voru varla hættir að fagna markinu þegar vítaspyrna var dæmd á liðið. Ryan Babel var felldur innan teigs og fyrirliðinn Steven Gerr- ard skoraði af öryggi, 3:2, og á lokamín- útunni rak Babel síðasta naglann í lík- kistu Lundúnaliðsins þegar hann komst í gegnum fáliðaða vörn Arsenal og inn- siglaði sigur sinna manna. Liverpool er þar með komið í undan- úrslit Meistaradeildarinnar í þriðja sinn á síðustu fjórum árum en fimmfaldir Evrópumeistarar töpuðu fyrir AC Mil- an í úrslitaleik í fyrra. Chelsea og Liver- pool mætast í þriðja sinn í undanúrslit- um og á Chelsea harma að hefna því Liverpool hefur í bæði skiptin haft bet- ur, í fyrra og fyrir þremur árum. Hafði nógu gott sjálfstraust til að skora úr vítinu Fyrirliðinn Steven Gerrard var að vonum ánægður með úrslitin en var hundóánægður með sína frammistöðu. ,,Þetta var ein versta frammistaða mín í Liverpool-treyjunni en ég hafði samt nógu gott sjálfstraust til að skora úr vítinu. Liðsheildin var frábær en ég neita því ekki að við áttum lengi vel á brattann að sækja gegn Arsenal sem fyrri hluta leiksins yfirspilaði okkur en við náðum að koma til baka og vinna frábæran sigur,“ sagði Gerrard eftir leikinn. Rafael Benítez hefur náð mögnuðum árangri með Liverpool í Meistaradeild- inni en undir hans stjórn hefur liðið unnið Evrópumeistaratitilinn einu sinni og liðið komst í úrslit í fyrra en varð að láta í minni pokann gegn AC Milan. Höfðum trúnna ,,Það sem mestu máli skipti var að leikmenn mínir höfðu trúna og liðs- heildin var mögnuð. Við létum mótlætið ekki slá okkur út af laginu og við vissum að við þyrftum að leggja mikið á okkur til að komast áfram og það gerðu leik- menn mínir,“ sagði Benítez. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, gat ekki leynt vonbrigðum sín- um en strákarnir hans voru ekki nema nokkrar mínútur frá því að komast í undanúrslitin. Wenger var ekki hress með vítaspyrnuna sem Liverpool fékk en hans menn voru rændir vítaspyrnu í fyrri leiknum þegar Aleksandr Hleb var greinilega felldur. Þetta var ekki vítaspyrna ,,Ósigurinn réðist af rangri ákvörðun dómarans og það er erfitt að kyngja þessu. Allar stórar ákvarðanir dómar- anna voru gegn okkur. Það er erfitt að skilja það því þetta var ekki vítaspyrna í kvöld og í síðustu viku var um klára vítaspyrnu að ræða,“ sagði Wenger Ballack og Lampard tryggðu Chelsea sigurinn Michael Ballack og Frank Lampard tryggðu Chelsea farseðilinn í undanúr- slitin en Chelsea hafði betur gegn Fe- nerbache, 2:0. Ballack skoraði fyrra markið með skalla strax á 5. mínútu og undir lok leiksins bætti Lampard öðru marki við. ,,Þetta var erfitt og ég verð að hrósa liði Fenerbache sem gerði okkur lífið leitt. Það var léttir að gera út um leikinn undir lokin og ég held að sigur okkar í þessu einvígi hafi verið verðskuldaður,“ sagði Frank Lampard eftir leikinn. Um viðureignina við Liverpool sagði Lamp- ard: ,,Við eigum að kannast vel við þá og þeir gera það sama við okkur. Það er ótrúlegt að mæta Liverpool aftur á þessum stað í keppninni. Það verða erf- iðir leikir og mikilvægt fyrir okkur að vera jafn vel einbeittir í þeim leikjum og við vorum í kvöld.“ Cudicini meiddist og Essien í banni á Anfield Sigurinn reyndist dýrkeyptur en Carlo Cudicini markvörður þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik vegna meiðsla og leysti Hilarío hann af hólmi og þá fékk Ghanamaðurinn Michael Es- sien gult spjald sem þýðir að hann verð- ur í banni í fyrri leiknum gegn Liver- pool sem fram fer á Anfield. Gerrard: Minn versti leikur en úrslitin frábær Liverpool betur gegn Arsenal í mögnuðum leik og mætir Chelsea í undanúrslitum Reuters Fögnuður Steven Gerrard, Fernando Torres, Ryan Babel og Dirk Kuyt fagna sigrinum á Arsenal á Anfield í gær. LIVERPOOL og Chelsea eigast við í undanúrslitum Meistaradeildarinnar en liðin höfðu betur gegn mótherjum sínum í síðari leikjunum í átta liða úr- slitunum í gærkvöld. Liverpool lagði Arsenal í frábærum fótboltaleik á An- field, 4:2, og samanlagt, 5:3, og Chelsea vann enn einn heimaleikinn en Lundúnaliðið hafði betur á móti Fenerbache, 2:0, og samanlagt, 3:2. Liverpool og Chelsea eigast við í fyrri undanúrslitaleiknum á Anfield.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.