Morgunblaðið - 09.04.2008, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Hermann Hreiðarsson var í byrj-
unarliði Portsmouth sem sótti Ís-
lendingaliðið West Ham heim í
London í ensku úrvalsdeildinni í
gær. Leikurinn átti að fara fram
um sl. helgi en þar sem að Portsmo-
uth lék í undanúrslitum ensku bik-
arkeppninnar á laugardag var
leiknum frestað.
Króatinn Niko Kranjcar skoraði
sigurmarkið á 61. mínútu eftir góð-
an undirbúning Arnolds Mvuemba
en þetta var fimmta mark Kranjc-
ars á leiktíðinni. Portsmouth, sem
leikur til úrslita í ensku bik-
arkeppninni um miðjan maí, er í 6.
sæti með 56 stig
eftir sigurinn í
gær en West
Ham er með 44
stig.
Þetta er níundi
útisigur
Portsmouth á
leiktíðinni og að-
eins Chelsea er
með betri árang-
ur á útivelli.
West Ham var mun sterkari aðilinn
í fyrri hálfleik en leikmönnum liðs-
ins tókst ekki að koma boltanum í
netið hjá Portsmouth. Dean Ashton
átti besta færi leiksins fyrir West
Ham en David James, markvörður
Portsmouth, sá við honum.
Á fréttavefnum Setanta fær ís-
lenski landsliðsmaðurinn 6,5 í ein-
kunn en maður leiksins, Niko
Kranjcar, fær 7,5 í einkunn hjá Set-
anta. Portsmouth mætir Newcastle
um næstu helgi í ensku úrvalsdeild-
inni á heimavelli en West Ham sæk-
ir Bolton heim. Portsmouth er fjór-
um stigum á eftir Everton sem er í
fimmta sæti deildarinnar. Aston
Villa er í sjöunda sæti með 52 stig
og Blackburn þar fyrir neðan með
51 stig.
Kranjcar tryggði Portsmouth sigur
Hermann
Hreiðarsson
SÆNSKU meistararnir í Umeå eru
komnir í úrslit í Evrópukeppni
kvenna í knattspyrnu í fimmta
skipti. Umeå gerði markalaust jafn-
tefli við Lyon frá Frakklandi á
heimavelli um síðustu helgi en liðin
höfðu áður gert jafntefli, 1:1, í
Frakklandi. Svíarnir komust því
áfram á útimarkinu.
Lyon sló Evrópumeistara síðasta
árs, Arsenal, nokkuð óvænt út í 8-
liða úrslitunum. Með Lyon leikur
kjarninn úr franska landsliðinu sem
berst við það íslenska um sæti í úr-
slitum Evrópukeppni landsliða.
Frankfurt verður andstæðingur
Umeå í úrslitaleiknum en þýsku
meistararnir unnu Bardolino frá
Ítalíu örugglega, 3:0, frammi fyrir
ríflega 12 þúsund áhorfendum og 7:2
samanlagt.
Karolin Thomas, Kerstin Garefre-
kes og Conny Pohlers skoruðu mörk
þýska liðsins.
Frankfurt leikur til úrslita í fjórða
skipti en liðin mætast heima og
heiman í maí.
Forráðamenn Frankfurt hafa
þegar gert ráðstafanir til að spila
sinn heimaleik á aðalleikvanginum í
borginni en þeir reikna með yfir 20
þúsund áhorfendum.
Umeå mætir Frankfurt
Rúrik Gísla-son, leik-
maður danska úr-
valsdeildarliðsins
Viborg og ís-
lenska 21-árs
landsliðsins í
knattspyrnu,
verður frá keppni
í þrjár vikur eftir
að hafa meiðst í leik Viborg og AGF í
úrvalsdeildinni í fyrrakvöld.
Rúrik meiddist á ökkla eftir 20
mínútna leik en hann var þá búinn að
vera mjög aðgangsharður við mark
AGF og tvívegis verið nærri því að
skora. Í frétt á vef Viborg segir að
óttast hafi verið að meiðslin væru al-
varlegs eðlis en sem betur fer hafi
komið í ljós að svo væri ekki og
sjúkraþjálfari liðsins segir að hann
verði leikfær eftir þrjár vikur eða
svo.
Kári Árnason lék á ný með AGF íleiknum við Viborg. Kári hafði
misst af fyrstu leikjum AGF eftir
vetrarfríið vegna meiðsla en hann
spilaði allan leikinn á miðjunni hjá
Árósaliðinu.
Ólafur Karl Finsen, 16 áradrengjalandsliðsmaður í knatt-
spyrnu úr Stjörnunni, er farinn til
Hollands þar sem hann er til reynslu
hjá AZ Alkmaar út þessa viku. Ólaf-
ur lék þrjá leiki með U17 ára lands-
liðinu á síðasta ári og skoraði eitt
mark og er gjaldgengur í það áfram
á þessu ári.
Jan Koller, hinn hávaxni knatt-spyrnumaður frá Tékklandi,
hefur tilkynnt að hann muni hætta
að leika með landsliðinu eftir úr-
slitakeppni EM í Sviss og Austurríki
í sumar. Koller er 35 ára gamall og
hefur skorað 52 mörk í 85 lands-
leikjum fyrir Tékka en hann leikur
með þýska liðinu Nürnberg og kom
þangað frá Mónakó í byrjun árs.
GuðmundurSteph-
ensen, Íslands-
meistari í borð-
tennis, er í 241.
sæti á nýjum
heimslista sem
gefinn var út í
gær. Hann hefur
fallið um fimm
sæti frá síðasta lista og tíu sæti frá
áramótum. Kínverskir borðtennis-
menn eru í fjórum efstu sætunum.
Kansas Jayhawks sigraði Memp-his Tigers, 75:68, í fram-
lengdum úrslitaleik í bandarísku há-
skólakeppninni í körfuknattleik,
NCAA, í San Antonio í fyrrinótt og
hreppti titilinn í fyrsta skipti í 20 ár.
Mario Chalmers var hetja Kansas-
liðsins en hann tryggði liðinu fram-
lenginguna með þriggja stiga körfu
þegar 2 sekúndur voru eftir af venju-
legum leiktíma en Memphis var með
níu stiga forystu tveimur mínútum
fyrir leikslok.
Fólk sport@mbl.is
Það er ekki alveg víst að Barcelona
geti haft það þægilegt á Camp Nou í
kvöld þegar liðið tekur á móti
Schalke. Börsungar höfðu betur í
fyrri leiknum, 1:0 með marki tánings-
ins Bojan Krkic.
Ef allt væri eðlilegt hjá félaginu þá
ætti að vera nokkuð þægilegt að
mæta til leiks með 1:0 sigur á útivelli
og fyrir framan 95.000 stuðnings-
menn. En þrátt fyrir stjörnumprýtt
lið Barcelona eru stuðningsmennirnir
ekki sáttir með framgang liðsins í
spænsku deildinni og eftir marka-
laust jafntefli við Getafe um helgina
hefur liðið aðeins sigrað í einum leik
af síðustu sex og Real Madrid er nú
sjö stigum á undan þegar sjö umferð-
ir eru eftir. Þetta eru stuðningsmenn
Börsunga ekki sáttir við.
„Þegar illa gengur þurfum við sam-
stöðu og liðið á skilið meiri virðingu
fyrir það sem það er að reyna að
gera,“ segir Frank Rijkaard, þjálfari
liðsins og er ekki kátur með stuðn-
ingsmenn þess.
Hann getur ekki stillt Ronaldinho
upp í liði í dag því brasilíski snilling-
urinn verður frá næstu fimm vikurn-
ar vegna meiðsla og þær raddir ger-
ast enn háværari að hann fari frá
félaginu í sumar og hafa Manchester
City og AC Milan helst verið nefnd til
sögunnar.
Argentínski framherjinn Lionel
Messi er enn frá vegna meiðsla en
Decu hinn portúgalski er orðinn leik-
fær. Líklegast er að sókn liðsins verði
borin uppi af táningnum Krkic, en
hinn 17 ára gamli framherji varð
næstyngsti leikmaðurinn til að skora í
Meistaradeildinni þegar hann skoraði
á móti Schalke í síðustu viku. Leik-
menn Schalke gera sér grein fyrir að
það verður á brattann að sækja hjá
þeim. „Við sáum í fyrri leiknum að
það er vel hægt að leggja Barcelona
og ég ætla ekki að mæta til leiks til að
horfa á stjörnurnar – ég ætla að berj-
ast við þær og gera það sem ég get til
að ná fram sigri,“ sagði miðjumaður-
inn Jermaine Jones, en hann var í
leikbanni í fyrri leiknum og er til í
slaginn í kvöld.
Ferdinand hugsanlega með
Á sama tíma í Meistaradeildinni í
fyrra vann Manchester United stór-
sigur á Roma, 7:1, og það yrði saga til
næsta bæjar ef Englandsmeistararn-
ir glutruðu niður tveggja marka for-
skoti á heimavelli sínum í kvöld.
Nemanja Vidic, varnarmaðurinn
sterki hjá United, getur ekki verið
með í kvöld en Sir Alex Ferguson
heldur vonina um að Rio Ferdinand
geti spilað en meiðslin sem hann hlaut
í leiknum við Middlesbrough reynd-
ust ekki alvarleg. Gary Neville og
Mikael Silvestre verða báðir í leik-
mannahópi United og fari svo að
Ferdinand geti ekki spilað mun Ne-
ville eða Silvestre fylla hans skarð.
,,Ég verð að tefla fram liði sem
tryggir okkur í undanúrslitum og þar
að leiðandi kem ég ekki til með að
hvíla lykilmenn þrátt fyrir að fram
undan sé leikur við Arsenal,“ sagði
Ferguson á fréttamannafundi í gær.
,,Vonandi náum við að skora fyrsta
markið í leiknum en með því myndum
við létta pressunni af okkur og valda
Roma meiri vandræðum. Ég þekki
mitt lið það vel að ég veit að við reyn-
um að gera þetta og sækja á Roma
eins vel og við getum,“ sagði Fergu-
son.
Rómverjar, sem verða án fyrirlið-
ans Francesco Totti, eru ekki alveg
tilbúnir að játa sig sigraða. ,,Ég er
sannfærður um að ef okkur tekst að
spila okkar besta leik þá getum við
slegið Manchester United út,“ sagði
Brasilíumaðurinn Rodrigo Taddei í
liði Roma. ,,Auðvitað vitum við að það
verður á brattann að sækja en það
eru 90 mínútur eftir og við munum
gefa allt í þær.“
Reuters
Undirbúningur Eiður Smári Guðjohnsen og Samuel Eto’o fara yfir málin með Frank Rijkaard á æfingu fyrir Evrópuleik gegn Schalke.
Óvænt ef Barcelona og
Man. Utd fara ekki áfram
MANCHESTER United og Barce-
lona standa vel að vígi fyrir síðari
leiki sína í átta liða úrslitum Meist-
aradeildarinnar í knattspyrnu og
allt útlit er fyrir að þau mætist í
undanúrslitum keppninnar síðar í
þessum mánuði. Englandsmeist-
ararnir fá Roma í heimsókn á Old
Trafford en United hafði betur í
fyrri leiknum, 1:0. Á Camp Nou tek-
ur Barcelona á móti Schalke en
Börsungar fögnuðu sigri í fyrri
leiknum í Gelsenkircken, 1:0.