Morgunblaðið - 22.04.2008, Qupperneq 19
Leikskólinn Tjarnarland á Egils-
stöðum hefur verið tilnefndur til for-
eldraverðlauna Heimils og skóla,
landssamtaka foreldra. Verðlaunin
eru veitt árlega til þeirra sem þykja
hafa stuðlað að eflingu samstarfs for-
eldra og kennara, foreldrasamvinnu
og hefða í skólastarfi. Þetta árið bár-
ust 35 tilnefningar. Starfsfólk Tjarn-
arlands segist að vonum bæði ánægt
og stolt yfir tilnefningunni. Litið sé á
hana sem ákveðna uppskeru og sigur
fyrir það öfluga skólastarf sem byggt
hafi verið upp af starfsfólkinu, með
faglegan metnað í öndvegi.
Eitthvað er að rofa til í málefnum
Valaskjálfar, sem áður var vé gleði,
glaums og sviðstilþrifa, en hefur
starað tómum og döprum skjám út í
samfélagið í lengri tíma. Fljótsdals-
hérað hefur nú auglýst eftir leigu- og
rekstraraðila að félagsheimilishluta
og eldhúsi hússins.
Sveitarfélagið gerði fyrir skömmu
leigusamning við núverandi eiganda
Valaskjálfar um þennan hluta húss-
ins, en hótelhlutinn er rekinn af eig-
andanum. Ætlar nú sveitarfélagið að
framleigja sinn leiguhluta og fá þar
inn veitinga-, skemmti- og menning-
arstarfsemi. Valaskjálf hefur farið
ört milli eigenda undanfarin ár og
það gert að verkum að sú menning,
sem þarf undir sig stóran sal, svið
eða hvort tveggja, hefur nánast verið
á vergangi. Dansleikjahald hefur t.d.
verið í algjöru lágmarki síðustu miss-
erin, við lítinn fögnuð yngra fólksins
og annarra dansglaðra í Egilsstaða-
bæ. Er nú von til að úr rætist, þ.e. ef
einhver vill gefa sig í þennan rekstur.
Og þá dunar dansinn í sumar.
Nú geta vegfarendur um Egilsstaði
séð að eitthvað er að gerast í upp-
byggingu á væntanlegum nýjum
miðbæjarkjarna. Hið mikla gróð-
urhús Gróðrarstöðvarinnar Barra við
Kaupvang, en það keypti Malar-
vinnslan til að byggja á lóðinni ný
hús, er að falla í valinn. Þá eru í gangi
framkvæmdir við Fagradalsbraut og
víðar, þar sem vaskir menn moka
skurði og setja saman miklar lagnir.
Nýr miðbær er sannkallað tilhlökk-
unarefni og á að rísa nú á næstu ár-
um. Þó að Egilsstaðir séu fallegur
bær, vantar einmitt þennan mið-
punkt sem allt hverfist um í
skemmtilegum bæjum.
Fagnaðarefni var að heyra að Kári
Ólason, Jökuldælingur og Egils-
staðabúi, hefði keypt húsnæði hinnar
gjaldþrota Trésmiðju Fljótsdalshér-
aðs og þaðan eru nú farin að heyrast
sagarhljóð og verklegir dynkir á nýj-
an leik. Kári á verktakafyrirtækið
Héraðsfjörð ehf. og framleiðir nú
húseiningar í skemmu, sem búið er
að smíða upp og gera almennilega.
Auk skemmunnar er á lóðinni hús
sem áður hýsti húseiningaverk-
smiðju og skrifstofur. Kári ætlar að
skipta hluta af því upp í fjórar
smærri einingar og auglýsa til leigu
fyrir smærri atvinnustarfsemi. Ekki
veitir af.
Djasshátíð Egilsstaða er í undirbún-
ingi og nú haldin í 21. skipti. Skammt
er stórra högga á milli; í fyrra voru
James Carter, hinn heimsfrægi barí-
tónsaxófónleikari og Deitra Farr,
engu minna þekkt söngkona, burðar-
ásar hátíðarinnar. Í sumar eru það
Larry Carlton gítarleikari, Blood-
group, Sigurður Flosason og Bláir
skuggar og norska sveitin Beady
Belle. Larry Carlton hefur spilað
með allskonar stórkanónum gegnum
tíðina og má þar nefna Joni Mitchell,
Quincy Jones og Steely Dan. Carlton
hefur þrisvar hlotið Grammy-verð-
laun fyrir gítarleik sinn. Djasshátíðin
flæðir um allt Austurland og verður
haldin síðari hluta júnímánaðar.
EGILSSTAÐIR
Steinunn Ásmundsdóttir
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Snjókarl Það styttist nú óðum í að veturinn láti í minni pokann.
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 2008 19
dreifa megi veislugest-
um um grundir.
Þrifin voru boðin út á
evrópska efnahags-
svæðinu eins og lög
gera ráð fyrir og barst
hagstæðasta tilboðið frá
Póllandi. Þannig að lítið
þarf að hafa fyrir þeirri
hlið mála. Veitingarnar
verða heldur ekki
vandamál en þær koma
frá vottaðri þjónustu úti
í bæ.
x x x
En það eru fleirispenntir en móð-
irin á heimilinu. Ferm-
ingarbarnið sjálft talar tungum af eft-
irvæntingu og er í verstu hrotunum
með óráði. Kippir í móðurkynið,
hugsar Víkverji. „Pabbi, hvað á ég að
gera? Það er vika í ferminguna,“
sagði blessað barnið síðastliðinn
sunnudag og það perlaði af enninu.
Tja, það er nú það? Hvað geta menn
gert til að stytta biðina? Lesið bók
eða farið í kalt steypibað.
Þá eru veislugestir ekki síður
spenntir, einhverjir meira að segja
svo spenntir að þeir mættu viku of
snemma – í sínu fínasta pússi. Gátu
hreinlega ekki beðið. Þessu fólki var
færður samskonar bréfpoki til að
anda í og Víkverji hefur verið að
dreifa á heimilinu síðustu daga. Síðan
var það sent heim aftur.
Það er mikill viðbún-aður á heimili Vík-
verja þessa dagana.
Ferming stendur fyrir
dyrum. Sjálfur er Vík-
verji staðráðinn í að
halda ró sinni vegna
þessa merka viðburðar
en spúsa hans hefur
tekið annan pól í hæð-
ina. Þessi glímuskjálfti
er að vísu ekki nýr af
nálinni á þeim bænum,
fjórða barnið á heim-
ilinu er að fermast,
þannig að Víkverji er
farinn að kunna sæmi-
lega á þetta ferli. Til að
gefa lesendum gleggri
mynd af ástandinu vísar Víkverji til
orða svila síns sem fullyrðir að þegar
þær systur undirbúa fermingu sé það
eins og þegar annað fólk býr sig undir
heimsstyrjöld. Þar hittir sá glöggi
maður svo sannarlega naglann á höf-
uðið. Öllu er tjaldað til.
x x x
Það gerir ástandið óvenju eldfimtnú að veislan verður haldin
heima sem þýðir að búið er að end-
ursmíða húsið frá grunni á liðnum
vikum. Svo að segja. Þá fóru hekk-
klippurnar á loft um helgina (mergjað
orð hekkklippur, þrjú samliggjandi
ká) þannig að allt er að verða klárt í
nánasta umhverfi hússins. Nú er bara
að fá Sigga storm í lið með sér svo
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Rúnar Kristjánsson áSkagaströnd orti við
andlátsfregn heiðursmannsins
Geirs Gunnarssonar:
Lifði trúr í vinstri von,
vaskur, hress og glaður,
Geir hinn mæti Gunnarsson,
gegnheill sómamaður.
Upp í víddir eilífðar
arnarflugs hann njóti,
vígður sæmd til vina er þar
vini taka á móti.
Og Rúnar yrkir í tilefni af
mótmælum og ólympíuleikum:
Margt er í Tíbet talað,
trúlega um frelsi hjalað.
Fólk gengur með asa
um götur í Lhasa,
en getur ei reiðinni svalað!
Þar ræður hin kröftuga kynngi,
sem kann ekki að fara í hringi.
Í reiði til helsis,
í hugsjón til frelsis
er hætt við að Kínverjar springi!
„Látnir tína upp plastpoka“ var
fyrirsögn á Mbl.is, sem hleypti öllu í
uppnám hjá Sálarrannsóknar-
félaginu, að því er bloggarinn Már
Högnason heldur fram. Og
auðvitað kastar hann fram stöku:
Fyrirsagnir fínar skrifa
fimir blaðamenn.
Nú ég veit að látnir lifa
á Langholtinu enn.
VÍSNAHORNIÐ
Um látinn heiðursmann
pebl@mbl.is
Umsóknarfrestur er til 30. maí
Kynntu þér námið á www.hr.is
VIÐSKIPTAFRÆÐI
VIÐ HÁSKÓLANN Í REYKJAVÍK
Viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík er fjölbreytt og krefjandi nám sem opnar þér dyr að
margvíslegum starfstækifærum, góðum launum og framhaldsnámi.
Við stefnum að því að vera fyrsta val fólks sem vill læra viðskiptafræði á Íslandi.
• BSc-nám í viðskiptafræði við HR einkennist af framúrskarandi kennslu.
• Námið er í stöðugri þróun og í sterkum tengslum við atvinnulífið.
• Við sýnum í verki að hver einasti nemandi í HR skiptir máli.
Við stefnum að því að vera fyrsti valkostur þeirra sem vilja ráða nýútskrifaða viðskiptafræðinga.
• Viðskiptafræðingar frá HR eru framúrskarandi vel að sér á helstu sviðum viðskiptafræðinnar.
• Viðskiptafræðingar frá HR geta unnið sjálfstætt sem einstaklingar og eru öflugir liðsmenn
á sínum vinnustöðum strax frá fyrsta degi.
Kynntu þér nám við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík á vef deildarinnar, www.vidskiptafraedi.is.
Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni,
ekki í síma eða á netinu.
Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is
Elsta fyrirtækjasalan á landinu.
Skemmtileg fyrirtæki
1. Plastframleiðsla, skemmtilegur smáiðnaður sem getur
verið hvar sem er á landinu, skemmtileg aukavinna í
bílskúrin eða með öðru.
2. Gúmmíframleiðsla miklir möguleikar hægt að hafa hvar
sem er, rífandi dæmi fyrir duglegan mann.
3. Einstök gjafavöruverslun á sérstöku andlegu og
umhverfisvænu sviði,mjög skemmtilegur vettvangur.
4. Þekkt hverfisverslun, vilt þú vera kaupmaðurinn á
horninu, frábær kjör.
5. Vínheildverslun, lítið fyritæki sem henta myndi vel
með öðru.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn