Morgunblaðið - 25.04.2008, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
úrslit
ÍSLANDSMEISTARALIÐ Vals í
knattspyrnu hrökk í gang í síðari
hálfleik gegn ÍA í undanúrslitum
deildarbikarkeppninnar í gær í
Kórnum. Skagamenn voru 1:0 yfir í
hálfleik, en í þeim síðari opnaðist
leikurinn upp á gátt og fögnuðu
Valsmenn sigri, 5:2.
Skagamenn skoruðu fyrsta
markið leiksins á 18. mín. – Bjarni
Guðjónsson skoraði örugglega úr
vítaspyrnu, sem dæmd var á Gunn-
ar Einarsson.
Varnarlína ÍA var mjög þétt í
fyrri hálfleik – liðið var með fimm
leikmenn í vörn og nýr króatískur
vinstri bakvörður, Igor Bilokapic, á
eflaust eftir að efla sóknarleik liðs-
ins.
Það tók Valsmenn ekki langan
tíma að jafna leikinn í síðari hálf-
leik. Sóknarleikur Valsliðsins var
mjög öflugur þegar á leið leikinn
og virðast meistararnir sterkir þeg-
ar á reynir. Pálmi Rafn Pálmsson
skoraði úr vítaspyrnu á 51. mín.,
eftir að Baldur Aðalsteinsson var
felldur í vítateignum. Aðeins fimm
mín. síðar varði Kjartan Sturluson
vítaspyrnu frá Bjarna Guðjónssyni.
Í kjölfarið opnaðist leikurinn upp á
gátt. Pálmi Rafn kom Val yfir með
skalla af stuttu færi á 62. mín., en
Helgi Pétur Magnússon jafnaði fyr-
ir ÍA – með skalla á 69. mínútu eftir
laglegan undirbúning Stefáns
Þórðarsonar.
Danski framherjinn Dennis Bo
Mortensen tók við keflinu og skor-
aði í næstu sókn Vals og hann var
aftur á ferðinni á 84. mín. þegar
hann kom Íslandsmeisturunum í
4:2. Daníel Hjaltason skoraði
fimmta markið á 90. mín., en
Skagamenn léku einum færri síð-
ustu 15. mínúturnar eftir að Dario
Cingel fékk rautt spjald fyrir brot
úti á miðjum velli.
Valsmenn settu fimm mörk á ÍA
FRAM mætir Val í úrslitum deildabikars-
ins í knattspyrnu en Framarar höfðu betur
gegn Breiðabliki í Egilshöllinni í víta-
spyrnukeppni eftir að staðan hafði verið
2:2 eftir framlengingu. Staðan var marka-
laus eftir venjulegan leiktíma þar sem
varnarmanninum Guðmanni Þórissyni var
vikið af velli á 80. mínútu. Mikið fjör var í
framlengingunni. Blikarnir komust í tví-
gang í forystu með mörkum frá Prince
Rajcomar úr vítaspyrnum en Grímur
Björn Grímsson og Heiðar Geir Júlísson
svöruðu fyrir Framara en Heiðar náði frá-
kastinu eftir að Casper Jacobsen hafði var-
ið vítaspyrnu frá Ingvari Ólasyni.
Í vítaspyrnukeppninni skoruðu Hjálmar
Þórarinsson, Óð
Árnason, Sam Tillen
Jón Orri Þórðarson
ir Framara en að
Arnór Sveinn A
steinsson og Pr
Rajcomar náðu
skora fyrir Kópavo
liðið.
Úrslitaleikur Fr
og Vals verður í Kó
um fimmtudaginn
maí. Valur lék til úrslita í keppninni í fy
en tapaði fyrir FH. Framarar hafa e
leikið ít lúrslita í keppninn en ætla sér
ur því félagið verður 100 ára 1. maí.
Fram vann í vítakeppni
Prince
Rajcomar
KÖRFUKNATTLEIKUR
Keflavík - Snæfell 98:74
Íþróttamiðstöðin í Keflavík, úrvalsdeild
karla, Iceland-Express-deildin, úrslit,
þriðji leikur, fimmtudaginn 24. apríl 2008.
Gangur leiksins: 0:2, 2:4, 9:4, 13:13, 15:19,
23:21, 29:21, 33:23, 35:30, 40:32, 42:36,
44:42, 46:45, 58:47, 66:51, 69:54, 72:59,
82:61, 89:66, 98:74.
Stig Keflavíkur: Tommy Jonson 24, Gunn-
ar Einarsson 20, Magnús Gunnarsson 16,
Bobby Walker 11, Jón Nordal Hafsteins-
son 9, Sigurður Þorsteinsson 8, Anthony
Susnjara 6, Vilhjálmur Steinarsson 3, Arn-
ar Freyr Jónsson 1.
Fráköst: 23 í vörn – 9 í sókn.
Stig Snæfells: Ingvaldur Magni Hafsteins-
son 16, Sigurður Þorvaldsson 16, Anders
Katholm 16, Slobodan Subasic 8, Hlynur
Bæringsson 8, Justin Shouse 7, Guðni Val-
entínusson 2, Gunnlaugur Smárason 1.
Fráköst: 33 í vörn – 16 í sókn.
Villur: Keflavík 22 – Snæfell 27.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Rögn-
valdur Hreiðarsson.
Áhorfendur: Um 1.500.
NBA-deildin
Úrslitakeppni, leikir í fyrrinótt:
Detroit – Philadelphia.........................105:88
Staðan er jöfn, 1:1
Boston – Atlanta....................................96:77
Boston er 2:0 yfir.
LA Lakers – Denver .........................122:107
Lakers er 2:0 yfir.
KNATTSPYRNA
Lengjubikar karla
Undanúrslit:
Valur - ÍA.................................................. 5:2
Pálmi Rafn Pálmason 2., Dennis Bo Mor-
tensen 2, Daníel Hjaltason - Bjarni Guð-
jónsson, Andri Júlíusson.
Fram - Breiðablik .................................... 2:2
Grímur Björn Grímsson 102., Heiðar Geir
Júlísson 114. - Prince Rajcomar 95., 111.
Fram hafði betur í vítakeppni, 4:2.
B-deild, 1. riðill:
Dalvík/Reynir - Höttur ............................ 2:1
Tindastóll - Magni .................................... 2:1
UEFA-keppnin
Undanúrslit, fyrri leikir:
B. München - Zenit St. Pétursborg ....... 1:1
Franck Ribery 18. - Lucio sjálfsmark 60.
Glasgow Rangers - Fiorentina............... 0:0
Svíþjóð
GAIS - Gefle.............................................. 2:0
Malmö FF - Norrköping.......................... 2:1
Örebro - Halmstad ................................... 0:1
Sundsvall - Trelleborg ............................. 2:2
AIK - Djurgarden .................................... 1:1
Staða efstu liða:
Kalmar 7 6 1 0 15:3 19
Malmö FF 7 3 4 0 10:6 13
Djurgården 7 3 4 0 9:6 13
Gautaborg 6 3 3 0 12:3 12
Halmstad 7 3 2 2 10:8 11
Hammarby 7 3 2 2 9:8 11
Elfsborg 7 2 4 1 7:3 10
Danmörk
FC Kaupmannahöfn - AGF..................... 1:1
Nordsjylland - Esbjerg............................ 3:2
AaB - Randers .......................................... 3:0
í kvöld
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Víkin: Víkingur - ÍR ...................................19
Ásvellir: Haukar 2 - Selfoss.......................19
Kaplakriki: FH - Grótta.............................19
KNATTSPYRNA
Lengjubikar karla
Reykjanesh.: Grindavík - ÍBV..............20.30
Selfoss: Hamar - ÍH ...................................19
Varmá: Hvíti riddarinn - Snörtur .............20
Lengjubikar kvenna
A-deild, úrslitaleikur:
Egilshöll: KR - Valur .................................19
C-deild:
Akraneshöllin: ÍA - ÍBV ............................21
„Við tókum sjálfa okkur í ærlega
naflaskoðun eftir fyrstu tvo leikina á
móti ÍR og það sést á leik okkar.
Þetta er ekki sama liðið og lék fyrstu
tvo leikina við ÍR-inga. Það er miklu
meiri ánægja að vinna og við minntum
sjálfa okkur á það hvað sigurvíman er
yndisleg. Það sem keyrir okkur áfram
er sigurvíman og Snæfell átti ekki
séns í okkur í þessari seríu,“ sagði
Gunnar eftir sigurinn í gær.
Hann var sáttur við eigin hlut. „Ég
er mjög sáttur við hvernig ég spilaði.
Vörnin skapaði þennan sigur eins og
svo oft áður – ekkert annað,“ sagði
Gunnar.
Tommy Johnson átti mjög góðan
leik í gær í liði Keflavíkur eins og
raunar í allri úrslitakeppninni. „Ég er
sáttur með hvernig ég spilaði. Sóknin
há okkur er venjulega allt í lagi en við
urðum að taka okkur á í vörninni eftir
hafa lent undir í undanúrslitunum og
við gerðum það. Þetta er allt saman í
kollinum á manni og við tókum bara
aðeins til þar,“ sagði Johnson.
„Eins og við lékum í kvöld þá held
ég að Snæfell hafi ekki átt mikla
möguleika. Við lékum vel í öðrum
leiknum á útivelli og komum mjög
ákveðnir til þessa leiks og okkur tókst
vel upp í vörninni, en hún skiptir auð-
vitað miklu máli,“ sagði Johnson.
Lélegur varnarleikur
felldi okkur
„Við gátum ekki stoppað þá í vörn-
inni. Það var sagan í þessum þremur
leikjum, þeir skora 100 stig á okkur í
síðustu tveimur leikjum sem er eitt-
hvað sem við ætluðum ekki að láta
gerast,“ sagði Sigurður Þorvaldsson,
leikmaður Snæfells. „Lélegur varnar-
leikur var það sem felldi okkur í úr-
slitunum gegn Keflavík og við verðum
að skoða það sem fór úrskeiðis og
reyna að bæta úr því fyrir næstu leik-
tíð.“
Það var greinilegt að leikmenn
Snæfells voru strax farnir að huga að
næstu leiktíð í gær þegar Morgun-
blaðið ræddi við þá. „Ég veit að í mínu
liði eru alvöru menn sem vilja alltaf
gera betur og ná betri árangri. Eftir
svona útreið í úrslitum um Íslands-
meistaratitilinn hljóta menn að hugsa
um næsta vetur og finna leiðir til þess
að verða enn betri.“
Sigurður leyndi því ekki að hann
var ósáttur við dómarapar leiksins.
„Við erum að sjálfsögðu hundfúlir
að þetta skyldi enda svona, 3:0, en
mér fannst margt vera á móti okkur
og þá sérstaklega í þessum leik. Við
fengum ekki tækifæri til þess að leika
vörnina eins og við erum vanir að
gera. Dómararnir sáu um það og ég
viðurkenni það alveg að ég er m
ósáttur við dómgæsluna.“
Ósáttur með sjálfan mig
Justin Shouse, leikstjórnandi Sn
fells, var niðurlútur þegar hann
leikmenn Keflavíkur lyfta Íslandsb
arnum á loft. Justin lenti í villuva
ræðum í síðari hálfeik og fór af v
snemma í fjórða leikhluta með fim
villur. „Ég er ósáttur við sjálfan m
Ég lék illa þegar mest á reyndi og
er ekki gaman fyrir mig eða liðið
enda tímabilið með þessum hæt
sagði Shouse en hann hefur leikið m
Snæfellsliðinu undanfarin tvö
„Eins og staðan er núna þá veit
ekki hvort ég verði áfram í Sty
ishólmi. Ég vildi ekki ræða mikið
framtíðina á meðan úrslitakeppnin
fram. Núna er henni lokið. Mér he
liðið vel undanfarin tvö ár. Geof Ko
er frábær þjálfari og leikmannah
urinn er einstakur. Ef allt gengur u
þá vonast ég að sjálfsögðu til þess
við getum mætt allir aftur til le
næsta haust og gert enn betur,“ sa
Shouse.
Morgunblaðið/Árni Sæbe
Bestur Gunnar Einarsson var valinn besti leikmaður úrslitarimmunnar og var vel að því kominn og fagnaði með leikmönnum og stuðningsmönnum.
Var hungraður í að vinna
titil eftir tvö mögur ár
GUNNAR Einarsson var valinn besti
maður úrslitaseríunnar og var vel að
því kominn enda átti hann frábæra
leiki á móti Snæfelli. „Ég var búinn
að segja að ég var orðinn hungraður
í að vinna titil eftir tvö mögur ár þar
sem við misstum af honum tvö ár í
röð. Strákarnir voru það líka og nú
erum við í það minnsta komnir með
bikarinn á nýjan leik og sjáum svo til
hvernig þetta verður næsta vetur,“
sagði Gunnar eftir sigurinn í gær-
kvöldi.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
og Sigurð Elvar Þórólfsson
Gunnar Einarsson besti maður úrslitarimmunnar Sterk vörn Keflavíkur skapaði
sigurinn Fóru í ærlega naflaskoðun Slök vörn Snæfells gerði út um þá
íþróttir