Morgunblaðið - 05.05.2008, Blaðsíða 1
mánudagur 5. 5. 2008
íþróttir mbl.isíþróttir
Axel Stefánsson og lærisveinar fengu lögreglufylgd >> 2
FALLBARÁTTA
ÍSLENDINGALIÐIÐ READING ER KOMIÐ Á FALLSVÆÐIÐ
Í BARÁTTU VIÐ BIRMINGHAM OG FULHAM » 5
STEFÁN Gísla-
son, fyrirliði
Bröndby, kom
sínum mönnum á
bragðið í gær
með því að skora
glæsimark gegn
FC Nordsjælland
í dönsku 1. deild-
arkeppninni í
knattspyrnu, 3:0.
Stefán skoraði
fyrsta mark liðsins þegar 20 mín.
voru til leiksloka með því að
stökkva fram og spyrna knettinum
með viðstöðulausu skoti fyrir utan
vítateigshorn vinstra megin, af 30
m færi, og fór knötturinn yfir
markvörð Nordsjælland og hafnaði
uppi í markhorninu fjær við mikinn
fögnuð áhorfenda og samherja
Stefáns.
Glæsimark
Stefáns
fyrir
Bröndby
Stefán
Gíslason
ÓLAFUR Stefánsson þokast ofar á
listanum yfir markahæstu leik-
menn Meistaradeildar Evrópu í
handknattleik. Ólafur hefur nú
skorað 84 mörk í keppninni og deil-
ir fimmta sætinu með Suður-
Kóreumanninum Yoon hjá Ham-
burg.
Markahæstur er Makedóníumað-
urinn Kiril Lazarov frá Croatia
Zagreb með 95 mörk. Spænski
landsliðsmaðurinn Iker Romero hjá
Barcelona kemur næstur með 93
mörk. Í þriðja sætinu er nú sænski
línumaðurinn Marcus Ahlm hjá Kiel
með 86 mörk. Samherji Ólafs,
Siarhai Rutenka, hefur skorað
marki minna og er fjórði. Á eftir
Ólafi kemur svo Frakkinn snjalli,
Nikola Karabatic, sem er nú með 83
mörk eftir að hafa skorað níu mörk
fyrir Kiel gegn Ciudad í gær. Ahlm,
Rutenka, Ólafur og Karabatic eiga
því allir möguleika á markakóng-
stitlinum þar sem aðrir hafa lokið
keppni.
Síðari úrslitaleikur Kiel og
Ciudad er eftir í Þýskalandi og það
er því ljóst að Ólafur þarf að skora
tólf mörk til þess að vippa sér upp
fyrir Lazarov á þessum lista. Ólafur
hefur aldrei verið jafn marksækinn
fyrir Ciudad í Meistaradeildinni
eins og á þessari leiktíð. Mest hefur
hann skorað 62 mörk fyrir Ciudad í
keppninni en það var leiktíðina
2004-2005.
Ólafur með
84 mörk
Ljósmynd/Ville Vuorinen
Sól í Helsinki Íslenska landsliðið í knattspyrnu kvenna gerði jafntefli við Finnland í vináttulandsleik í Helsinki í gær, 1:1. Hér er Greta Mjöll Samúlsdóttir
í sókn, en fyrir aftan hana er Ólína Sóley Gunnarsdóttir á ferðinni. 25 stiga hiti og sól var á meðan leikurinn fór fram. »8
EKKI blæs byrlega fyrir Ólafi Stef-
ánssyni og samherjum hans hjá
spænska meistaraliðinu Ciudad
Real, eftir tap gegn þýsku meist-
urunum í Kiel, í fyrri úrslitaleik
Meistaradeildar Evrópu í hand-
knattleik í gær. Leikurinn fór fram
á heimavelli Ciudad en eftir jafna
viðureign, sigraði Kiel 29:27 eftir að
hafa verið yfir í hálfleik 14:13. Kiel
eru ríkjandi Evrópumeistarar en
Ciudad sigraði í keppninni árið áð-
ur. Þessi rimma er því draumur
handknattleiksáhugafólks.
Ólafur var eins og jafnan áður í
stóru hlutverki í sóknarleik Ciudad.
Hann lét ekki sitt eftir liggja og var
markahæstur leikmanna liðsins með
sex mörk. Ólafur tjáði Morgun-
blaðinu í gærkvöldi að í herbúðum
Ciudad Real væru menn svekktir
yfir þessum úrslitum en ekki rimm-
unni væri ekki lokið:
20% möguleikar á sigri
,,Þetta er smásjokk fyrir okkur.
Við vissum að Kiel væru góðir en
það kom okkur aðeins á óvart
hversu góðir þeir voru. Þeir voru
bara flottir. Keyrðu á okkur á fullu
og gerðu okkur erfitt fyrir. Það
verður mjög erfitt að fara til Kiel og
vinna þar en ekki útilokað. Þetta er
ekki alveg búið. Ég myndi segja að
við ættum svona 20% möguleika á
sigri. Eins og áður segir mæðir mik-
ið á Ólafi í sóknarleiknum. Að lík-
indum mun hann þurfa að taka enn
frekar af skarið í síðari leiknum,
vegna meiðsla leikmanna á borð við
Urios, Rutenka, Metlicic og Davids:
,,Það þýðir ekkert að vera með ein-
hverjar afsakanir þó að það vanti
menn. Ég tel að við eigum fullt inni
miðað við þennan leik. Nú tekur við
ferli þar sem við reynum að und-
irbúa okkur fyrir seinni leikinn.
Koma okkur í rétt hugarástand til
þess að geta unnið. Þetta verður
jafn stór völlur í Þýskalandi og það
verða jafn margir í liðunum og allt
það,“ sagði Ólafur.
„Smásjokk fyrir okkur“
Ólafur Stefánsson og samherjar í Ciudad í erfiðri stöðu eftir tap gegn Kiel
Sáttur Ólafur segist nokkuð sáttur
við framlag sitt gegn Kiel.
Eftir Kristján Jónsson