Morgunblaðið - 05.05.2008, Side 2
2 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar
sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
REAL Madrid tryggði sér Spán-
armeistaratitilinn í knattspyrnu
með sögulegum endaspretti gegn
Osasuna í gærkvöldi, 2:1. Þegar
þrjár umferðir eru eftir á Spáni er
Real með 10 stiga forskot á Villa-
real, sem er í öðru sæti og fjórtán
stiga forskot á Barcelona, sem er í
þriðja sæti.
Real lék með 10 leikmenn nær
allan seinni hálfleikinn, eða eftir að
Fabio Cannavaro fékk að sjá rauða
spjaldið í upphafi
hálfleiksins.
Þegar átta
mín. voru til
leiksloka skoraði
Patxi Punal úr
vítaspyrnu fyrir
Osasuna og allt
benti til þess að
Real myndi tapa.
En tvö mörk frá
þeim Arjen
Robben og Gonzalo Higuain á loka-
sprettinum tryggðu Real sigur og
sinn 31. meistaratitil í knattspyrnu.
Eiður Smári Guðjohnsen lék síð-
ustu 12 mín. er Barcelona vann
stórsigur á Valencia á Camp Nou,
6:0. Eiður Smári kom inn á sem
varamaður fyrir Deco.
Lionel Messi skoraði fyrsta mark
Barcelona úr vítaspyrnu á fimmtu
mín. og þremur mín. síðan var Xavi
búinn að bæta við marki. Thierry
Henry, sem skoraði tvö mörk, skor-
aði þriðja markið á 14. mín. Það var
svo Bojan Kiric sem skoraði tvö
mörk.
Real Madrid Spánarmeistari
Bernd Schuster,
þjálfari Real.
LEIKMENN HK í Kópavogi gerðu
jafntefli við Stjörnuna í lokaleik sín-
um í N1 deildinni í Digranesi, 32:32.
Þeir tryggðu sér annað sætið á Ís-
landsmótinu og tóku á móti silfur-
verðlaunum frá Einari Þorvarðar-
syni, framkvæmdastjóra HSÍ, eftir
leikinn.
Þetta er annað árið í röð sem HK-
menn hafna í öðru sæti í N1-deild-
inni, en þeir börðust við Valsmenn
um Íslandsmeistaratitilinn fram í
síðustu umferð keppnistímabilið
2006-2007.
Leikur HK við Íslandsmeistarana
var fjörugur, en Haukar voru með
þriggja stiga forskot í leikhléi, 15:12.
Rétt fyrir leikslok leit allt út fyrir að
meistararnir færu með sigur af
hólmi, en HK-menn náðu að skora
síðasta mark leiksins og jafna við
mikil fögnuð í Digranesi, 32:32.
Ólafur Bjarki Ragnarsson var at-
kvæðamesti leikmaður HK og skor-
aði 8 mörk. Hjá Haukum skoraði
Kári Kristján Kristjánsson 8 mörk
og Gísli Jón Þórisson sjö mörk.
Akureyringar lögðu leikmenn ÍBV
að velli í KA-heimilinu 42:33 og leik-
menn Aftureldingar kvöddu úrvals-
deildina með sigri á Stjörnunni,
26:22.
HK-menn með silfur
Flensburgkastaði nán-
ast frá sér mögu-
leika á að hreppa
þýska meist-
aratitilinn í hand-
knattleik þegar
liðið tapaði fyrir
Magdeburg á úti-
velli á laugardag í
þýsku 1. deildar keppninni, 32:28.
Kiel stendur nú með pálmann í
höndum en meistararnir hafa
þriggja stiga forskot á Flensburg
þegar tvær umferðir eru eftir.
Alexander Petersson og Einar
Hólmgeirsson skoruðu eitt mark
hvor fyrir Flensburg en markahæst-
ur var Daninn Lars Christiansen
með 9 mörk.
Logi Geirsson skoraði fjögur afmörkum Lemgo sem sigraði N-
Lübbecke, 33:31, en með liðinu leika
Birkir Ívar Guðmundsson og Þórir
Ólafsson, sem var ekki í hópnum.
Gylfi Gylfason skoraði tvö mörkfyrir Wilhelmshavener þegar
liðið gerði jafntefli við Groswall-
stadt, 30:30.
Jalisky Garcia skoraði 6 af mörk-um Göppingen sem vann góðan
útisigur á Essen, 30:27.
Peter Schmeichel, fyrrverandimarkvörður Manchester Unit-
ed og danska landsliðsins í knatt-
spyrnu, spáir því að það verði ann-
aðhvort Mark Hughes eða Roy
Keane sem koma til með að taka við
hlutverki Sir Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóra Man. Utd, þegar hann
hættir, en Ferguson er nú 66 ára.
Hann segist þó ekki vera á þeim
buxunum að hætta strax. Schmeic-
hel segir að þeir Hughes, sem er
knattspyrnustjóri hjá Blackburn, og
Keane, sem er knattspyrnustjóri hjá
Sunderland, þekki vel til á Old Traf-
ford þar sem þeir voru báðir afar
vinsælir leikmenn.
Enski lands-liðsmað-
urinn David
Beckham átti
stórleik með liði
sínu LA Galaxy í
bandarísku at-
vinnumanna-
deildinni um
helgina – þegar
liðið gerði 2:2 jafntefli við Real Salt
Lake, 2:2. Galaxy lenti 2:0 undir, en
Beckham kom sínum mönnum til
bjargar og jafnaði metin með tveim-
ur mörkum.
Þýski landsliðsmarkvörðurinnTimo Hildebrand, sem leikur
með Valencia á Spáni, hefur verið
orðaður við Bayern München, sem
arftaki Oliver Kahn, fyrirliða liðsins.
„Ég hef ekki áhuga á að verma vara-
mannabekkinn hjá neinu liði,“ sagði
Hildebrand.
Fólk sport@mbl.is
,,Ég er svona að koma niður,“ sagði
Axel þegar Morgunblaðið innti hann
eftir því í gær hvort hann væri kom-
inn niður á jörðina. Axel segir að
stemningin hafi verið ósvikin: ,,Það
er mikill handboltaáhugi í bænum.
Fólk fjölmennti til Bergen þrátt fyr-
ir að það sé um sjö tíma akstur þang-
að. Þegar við komum til baka feng-
um við svo frábærar móttökur þar
sem nánast allir bæjarbúar voru
samankomnir til þess að fagna okk-
ur. Við fengum lögreglufylgd síðasta
spölinn inn í borgina.“
Þetta er aðeins í annað sinn sem
Elverum verður Noregsmeistari en
fyrra skiptið var árið 1995. Þá lék
einnig Íslendingur með liðinu, Matt-
hías Matthíasson ÍR-ingur. Þetta er
því mikið afrek hjá Axel sem er nú í
þeirri sérkennilegu stöðu að gera
Elverum að meisturum en fyrr í vet-
ur ákváðu forráðamenn félagsins að
endurnýja ekki samninginn við Axel.
Frá því hefur verið gengið að
Christian Berge, fyrrum leikmaður
Flensburg, verður eftirmaður hans
hjá félaginu.
Fyrirspurnir hafa þegar borist
Axel segir sína framtíð vera
óráðna en hann þjálfaði áður Þór í
fjögur ár: ,,Það hafa nokkrar fyrir-
spurnir borist. Ég er í mastersnámi
og það þyrfti verulega spennandi til-
boð að berast til þess að ég myndi
flytja frá Noregi. Það er svekkjandi
að þurfa að sleppa hendinni af liði
sem maður er búinn að byggja upp.
Ég hef fulla trúa á því að liðið geti
verið í toppbaráttu næstu árin. Í
nóvember voru menn eitthvað ósátt-
ir við gengi liðsins. Ég vildi fram-
lengja samning minn við félagið en
forráðamenn liðsins vildu það ekki.“
Boðflennur í kveðjupartíi
Elverum hafnaði í fimmta sæti í
deildarkeppninni og sló út Runar í
tveimur leikjum í úrslitakeppninni.
Undanúrslitin og úrslitin voru spiluð
í Bergen á föstudag og laugardag.
Elverum sigraði Haugasund í und-
anúrslitum og skellti svo deildar- og
bikarmeisturum Drammen í úrslit-
unum eins og áður segir. Með Dram-
men leika tveir af dáðustu hand-
knattleiksmönnum Norðmanna, þeir
Glenn Solberg og Frode Hagen. Úr-
slitaleikurinn var kveðjuleikur
þeirra þar sem þeir hafa ákveðið að
leggja skóna á hilluna. Það má því
segja að Íslendingarnir hafi verið
boðflennur í kveðjupartíi þeirra fé-
laga, þar sem almennt var reiknað
með að þeir myndu kveðja með sigri
og bæta þriðja titlinum í safnið. Ingi-
mundur og Sigurður Ari skyggðu
hins vegar á þá en Sigurður skoraði
átta mörk í leiknum og Ingimundur
sjö: ,,Þeir voru frábærir í leiknum
eins og reyndar allir mínir leikmenn.
Siggi og Diddi hafa vaxið mjög á
þessum tíma sem þeir hafa leikið í
Noregi,“ sagði Axel um framlag
þeirra félaga. Sveitungi Axels, Sam-
úel Ívar Árnason, lék með liðinu fyr-
ir áramót en hann fluttist búferlum
til Oslóar og gat því ekki klárað leik-
tíðina.
,,Þetta var frábært“
Eyjamaðurinn Sigurður Ari tjáði
Morgunblaðinu að sigurinn hefði
verið mikil upplifun: ,,Þetta var frá-
bært. Við höfðum unnið Drammen í
deildarkeppninni og vissum því að
það væri hægt að vinna þá. Þó úrslit-
in hafi komið flestum á óvart þá viss-
um við sjálfir að þetta væri hægt,“
sagði Sigurður og bætti við: ,,Það
var líka frábært að kveðja Axel með
titli. Það var virkilega ánægjulegt.“
Sigurður er búinn að gera tveggja
ára samning við félagið og Ingi-
mundur hefur gert munnlegt sam-
komulag um að leika áfram með El-
verum.
Morgunblaðið/Kristján
Sigurvegari Axel Stefánsson, þjálfari Elverum, og lærisveinar hans fögnuðu Noregsmeistaratitlinum í handknattleik karla.
„Fengum lögreglufylgd
síðasta spölinn í bæinn“
ÍSLENDINGALIÐIÐ Elverum varð
á laugardaginn Noregsmeistari í
handknattleik karla. Liðið kom
geysilega á óvart með því að leggja
firnasterkt lið Drammen að velli
33:31 í úrslitaleik í Bergen. Axel
Stefánsson, fyrrum þjálfari Þórs á
Akureyri, hefur þjálfað liðið síðast-
liðin tvö ár og með liðinu leika þeir
Ingimundur Ingimundarson og Sig-
urður Ari Stefánsson. Fóru þeir
mikinn í leiknum og skoruðu sam-
tals fimmtán mörk. Þeir munu leika
áfram með liðinu en Axel er á för-
um.
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Elverum varð óvænt norskur meistari undir stjórn Axels Stefánssonar