Morgunblaðið - 05.05.2008, Blaðsíða 5
rgu-
ðust
, en
mm-
paði
eist-
num
að-
orni
ann-
ldur
uson
millj.
egir
Old
ited
að
eru
sem
r og
yrir
stle
Við
erð-
t lið
t fé-
óðar
tt.
w
um
ð
ta
ð-
ri
vo
lu
u
ea í
u
r
.
get-
Ef
rar
r
að-
úr-
pu
k
ð
n
m
inn
tir
m
yk-
ði
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2008 5
Franz Beck-enbauer,
forseti Bayern
München, er afar
óhress með leik
sinna manna
gegn rússneska
liðinu Zenit St.
Pétursborg, sem
tapaðist, 4:0. Þar
með komst Bayern ekki í úrslit
UEFA-keppninnar. Hann sagði að
sumir leikmennirnir hefði verið eins
og skokkarar á ferð um torg og
garðana í München. Fyrir viðureign
Bayern við rússneska liðið spáðu
flestir því að Bæjarar myndu vinna
UEFA-bikarinn, sem þeir unnu síð-
ast 1996.
Alessandro Del Piero, fyrirliðiJuventus, segir að hann verð-
skuldi að vera kallaður á ný í ítalska
landsliðshópinn fyrir Evrópukeppn-
ina í Austurríki og Sviss. Del Piero
hefur leikið mjög vel í vetur með Ju-
ventus og skorað 18 mörk. „Ég á
heima í ítalska landsliðinu og það
væri frábært að leika með því í Evr-
ópukeppninni.“
Roberto Donadoni, landsliðsþjálf-
ari Ítalíu, sagði í síðustu viku að Del
Piero, 33 ára, ætti góða möguleika á
að vera kallaður á ný í landsliðið. Del
Piero hefur leikið 85 landsleiki fyrir
Ítalíu og skorað 27 mörk í þeim.
Leikmenn AC Milan komu í vegfyrir það að nágrannarnir hjá
Inter fögnuðu Ítalíumeistaratitl-
inum á San Siro-vellinum í gær, með
því að fagna sigri, 2:1. Leikmenn
Roma, sem unnu Sampdoria, 3:0,
eiga enn von á að verða meistari
þegar tvær umferðir eru eftir. Sig-
urinn var sætur fyrir AC Milan, því
að með honum náðu leikmenn liðsins
fjórða sætinu, sem gefur rétt til að
leika í Meistaradeild Evrópu, þar
sem Fiorentina tapaði fyrir Cag-
liari, 2:1.
Við vorumákveðnir að
gera allt sem við
gátum til að
leggja Inter að
velli þegar við
fengum fréttirnar
um að Fiorentina
hafði tapað. Við
náðum því sem
við ætluðum okkur og nú er það í
okkar höndum að halda fjórða sæt-
inu,“ sagði Brasilíumaðurinn Kaka,
sem lagði upp fyrra markið og skor-
aði það seinna fyrir AC Milan, 2:1.
Ítalski landsliðsmaðurinn Christi-an Panucci skoraði fyrsta mark
Roma gegn Sampdoria, 3:0. David
Pizarro, miðjumaður frá Chile og
brasilíski bakvörðurinn Cicinho
skoruðu hin mörkin.
Fólk sport@mbl.is
Steve Coppell, knattspyrnustjóri
Reading, sagði fyrir leik liðsins gegn
Tottenham á heimavelli á laugardag,
að ekkert nema sigur kæmi til greina,
ef lið hans ætlaði sér að halda sæti
sínu í úrvalsdeildinni. Honum varð
ekki að ósk sinni, því að það voru leik-
menn Tottenham sem fögnuðu sigri á
eina marki leiksins, sem
Robbie Keane skoraði á 16. mín.
Þar með var níunda tap Reading á
heimavelli staðreynd. Coppell sagði
að róðurinn yrði erfiður, en heppnin
yrði að vera með hans mönnum ef
ætti að fara illa. „Það sem stuðnings-
menn okkar ræða mest um þessa
dagana er hvað langt er síðan við höf-
um skorað mörk. Við höfum ekki
skorað mark í sex síðustu deildar-
leikjum okkar – frá því að við unnum
Birmingham 22. mars, 2:1.“
Ívar lék allan leikinn með Reading,
en Brynjar Björn var ekki með vegna
meiðsla.
Reading á eftir að leika á útivelli
gegn Derby og það er ekkert víst að
sigur þar dugi liðinu til að halda sæti
sínu í úrvalsdeildinni. Það veltur allt á
því hvað leikmenn Fulham gera gegn
Portsmouth. Reading og Fulham eru
með 33 stig, en markatala Fulham er
betri. Birmingham er með 32 stig.
Fulham á eftir að leika gegn
Portsmouth á útivelli og Birmingham
tekur á móti Blackburn.
Roy Hodgson, knattspyrnustjóri
Fulham, var mjög ánægður með sína
menn gegn Birmingham, enda var
mikið í húfi. Ekkert annað en sigur
dugði leikmönnum Fulham, sem þeir
náðu, 2:0. Þar með voru leikmenn
Fulham komnir upp úr fallsæti í
fyrsta skipti á árinu. Já, á hárréttu
augnabliki. „Þetta var stórkostlegt
og ég er í sjöunda himni. Það reikn-
uðu ekki margir með þessu afreki hjá
okkur er við heimsóttum Manchester
City um sl. helgi. Staðan var þá þann-
ig að við vorum í næstneðsta sætinu –
fjórum stigum á eftir Birmingham.
Nú erum við komnir úr fallsæti, einu
stigi fyrir ofan Birmingham, sem er í
næstneðsta sætinu. Framhaldið er í
okkar höndum. Við verðum að leggja
Portsmouth að velli í síðasta leik okk-
ar til að vera öruggir um að halda
sæti okkar í úrvalsdeildinni. Það
verður erfiður leikur fyrir okkur, en
ég treysti mínum mönnum fullkom-
lega eftir tvo sigurleiki í röð, þar sem
við höfum skorað fimm mörk,“ sagði
Hodgson, sem sagði að sínir leik-
menn hefðu leikið mjög yfirvegað
gegn Birmingham. „Vörn okkar var
sterk og við náðum yfirhöndinni á
miðjunni. Strákarnir léku á fullu all-
an leikinn.“
Glæsilegur sigur Fulham skaut Reading niður í fallsæti fyrir lokaumferðina
Ívar og Brynjar Björn
í alvarlegri fallhættu
TVEIR glæsilegir sigrar Lundúna-
liðsins Fulham – fyrst gegn Man-
chester City á útivelli fyrir rúmlega
viku, 3:2, og þá heimasigur á Birm-
ingham sl. laugardag, 2:0, hafa orð-
ið til þess að liðið skaust upp úr fall-
sæti, en í það sæti er nú komið
Íslendingaliðið Reading, sem þeir
Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn
Gunnarsson leika með. Derby er
þegar fallið úr úrvalsdeildinni. Tvö
lið fylgir liðinu eftir – Fulham,
Reading eða Birmingham.
Í HNOTSKURN
»Fulham hefur unnið tvo síð-ustu leiki sína og er í fyrsta
skipti komið úr fallsæti á árinu.
»Reading og Fulham eru með33 stig, en markatala Fulham
er betri. Birmingham er með 32
stig. Derby er fallið, með 11 stig.
»Fulham á eftir að leika gegnPortsmouth á útivelli. Read-
ing sækir Derby heim og Birm-
ingham tekur á móti Blackburn.
Reuters
Það var mark Erik Nevland, leikmaður Fulham, sendir hér knöttinn fram hjá Maik Taylor, markverði Birmingham, í leik liðanna á Craven Cottage, 2:0.
ARSENE Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, á að fá minnst
25 millj. punda til að kaupa nýja leikmenn í sumar – fyrir næsta
keppnistímabil. Þessi upphæð getur þó hækkað, ef Alexander
Hleb verður seldur til Inter Mílanó, og ef Mathieu Flamini fer
til AC Milan. Eigendur Arsenal segja að Wenger fái þá peninga
sem hann þarf til að styrkja leikmannahóp sinn, en knatt-
spyrnusérfræðingar á Englandi telja að Arsenal nái ekki að
veita Manchester United og Chelsea keppni nema að liðið fái
sterkan markvörð, miðvörð, skapandi miðvallarleikmenn og
markaskorara. Og þá er haldið fram að Arsenal þurfi að finna
nýjan fyrirliða í staðinn fyrir William Gallas, sem hefur ekki náð
að höndla þá stöðu – er of yfirlýsingaglaður í fjölmiðlum.
Eftir að Philippe Senderos gerði slæm mistök í Evrópuleik
gegn Liverpool, sem kostuðu að Arsenal komst ekki í undan-
úrslit, var ljóst að Arsenal vantar illilega öflugan miðvörð. Þá er
rætt um að Theo Walcott taki stöðu Emmanuel Eboue úti á
hægri vængnum og Carlos Vela, 19 ára leikmaður frá Mexíkó,
sem var lánaður til Osasuna, komi aftur og verði í lykilhlutverki
á miðjunni við hlið Case Fabregas.
Wenger fær peninga
til að kaupa leikmenn
GEYSILEGUR fögnuður braust út á Britannia Stadium í
Stoke og í borginni þegar ljóst var að hið fornfræga lið Stoke
City var komið á ný í efstu deild á Englandi – í fyrsta skipti í 23
ár, eða síðan 1985. Það var knattspyrnustjórinn Tony Pulis sem
stýrði liðinu upp í úrvalsdeildina.
Stoke nægði jafntefli í síðasta leiknum til að tryggja sér úr-
valsdeildarsæti og Pulis lét lið sitt leika varnarleik, eins og
hann er þekktur fyrir – harðan varnarleik, langspyrnur og
hlaup, sem er leikstíll Stoke. Það var mikil spenna í loftinu á
Britannia-vellinum undir lokin, en hurð skall nærri hælum við
mark Stoke á 82 mín., þegar knötturinn hafnaði á tréverkinu á
marki liðsins.
WBA tryggði sér einni sæti í úrvalsdeildinni, en fjögur félög
leika um eitt laust sæti í deildinni. Það eru Hull, Bristol City,
Crystal Palace og Watford sem fara í umspil um eitt sætið.
Watford mætir Hull í undanúrslitunum og Crystal Palace
leikur gegn Bristol City. Sigurvegarar úr þessum viðureignum
mætast síðan í úrslitaleik á Wembley.
Scunthorpe, Colchester og Leicester féllu í 2. deild.
Stoke City aftur
í hóp þeirra bestu
ARSENE Wenger, knattspyrnustjóri Arsen-
al, setti Jens Lehmann, markvörð, inn á sem
varamann þegar Arsenal lagði Everton að
velli á Emirates Stadium í London í gær, 1:0.
Hann staðfesti eftir leikinn að þetta hefði ver-
ið kveðjustund hjá Lehmann, sem væri á för-
um frá félaginu. Nicklas Bendtner skoraði
sigurmark Arsenal með skalla á 77. mín.
Wenger sagði að Brasilíumaðurinn Gil-
berto hafi ekki verið að leika sinn síðasta leik
fyrir Arsenal. „Ég vil halda honum. Ég skil
vel að hann vilji fá að leika meira en hann hefur leikið á þessari
leiktíð,“ sagði Wenger, sem var spurður um
Alexander Hleb, sem hefur verið orðaður við Inter á Ítalíu.
„Við viljum halda hóp okkar saman og Hleb á eftir tvö ár af
samningi sínum við Arsenal.“ Um Mathieu Flamini sagði Wen-
ger að það kæmi í ljós innan við sólarhring hvað hann gerði.
„Hann er með lausan samning og hefur farið fram á himinhá laun
sem við erum ekki tilbúnir að greiða.“
Kveðjuleikur
hjá Jens Lehmann
Jens Lehmann