Morgunblaðið - 05.05.2008, Page 8
8 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
OTTMAR Hitzfeld, þjálfari Bayern
München, getur yfirgefið liðið sæll
og glaður eftir að 21. Þýskalands-
meistaratitillinn hjá Bayren var í
höfn í gær – er Bæjarar gerðu jafn-
tefli við Wolfsburg, 0:0.
Þegar þrjár umferðir eru eftir
hafa Bæjarar tryggt sér meist-
araskjöldinn, sem þeir misstu til
Stuttgart sl. keppnistímabil. „Það
er alltaf mikill heiður að taka á
móti þýska meistaratitlinum. Það
verður aldrei breyting á því,“ sagði
Hitzfeld, sem hefur sex sinnum tek-
ið á móti meistaratitlinum sem
þjálfari.
„Þetta hefur
verið nokkuð
sérstakt keppn-
istímabil hjá okk-
ur. Leikmenn
hugsuðu strax
stórt og ætluðu
sér meistaratit-
ilinn. Það var að
sjálfsögðu mikil
pressa á okkur,
enda margir nýir leikmenn í okkar
herbúðum. Sumir þeirra tala ekki
þýsku, þannig að umgjörðin í
kringum æfingar voru oft sér-
stakar. Við náðum tvennunni – urð-
um bæði Þýskalandsmeistarar og
bikarmeistarar. Það var sárt að
komast ekki í úrslitaleikinn í
UEFA-keppninni í Manchester. Við
sofnuðum á verðinum.“
Ítalski landsliðsmaðurinn og
markahrókurinn Luca Toni sagði
að það væri mjög ánægjulegt að
verða þýskur meistari á fyrsta
keppnistímabili sínu með Bayern.
„Eftir áfallið í UEFA-keppninni
munum við koma saman og gleðjast
í kvöld og ég horfi spenntur fram á
veginn – við eigum eftir að fagna
fleiri titlum á næstu árum,“ sagði
Toni.
Hitzfeld yfirgefur Bayern ánægður
Hitzfeld fagnar.
ÍSLENSKA karlalandslið í tennis
lagði Rúanda og San Marínó að velli í
4. deild, Evrópu og Afríkuriðli, sem
fór fram í Yerevan í Armeníu. Þar
með tryggði liðið sér sigur og leikur í
3. deild.
Öruggur sigur vannst á Rúanda,
3:0. Viðureignin hófst með því að Raj
Bonifacius vann örugglega í einliða-
leik 6:0 og 6:0.
Arnar Sigurðsson fagnaði einnig
öruggum sigri 6:1 og 6:1.
Andri Jónsson og Magnús Gunn-
arsson unnu tvíliðaleik 6:7, 7:6 og 7:6
Andri Jónsson og Arnar Sigurðsson
voru heldur betur í sviðsljósinu þeg-
ar San Marínó var lagt að velli. Þeir
tryggðu Íslandi sigur, 2:1, með því að
vinna í tvíliðaleik.
Raj Bonifacius tapaði fyrsta leik-
urinn á móti Domenico Vicini, 7-6 og
6-2.
Arnar vann síðan Fabio Zonzini
6-2, 6-1 í seinni einliðaleiksleikurinn.
Í tvíliðaleiknum unnu þeir Andri og
Arnar – þá William Forcellini og Vic-
ini 6-2 og 6-3.
Ísland hafði áður unnið Namibíu,
3:0. Íslenska landsliðið tapaði því
ekki leik í keppninni. Namibía varð í
öðru sæti, San Marínó í þriðja og
Rúanda í fjórða sæti.
Ísland með gull í Armeníu
Ólöf MaríaJónsdóttir
endaði í 57.-62.
sæti á Opna
skoska meist-
aramótinu sem
lauk þá laug-
ardaginn í Aber-
deen á Skotlandi.
Ólöf lék samtals á
13 höggum yfir pari – lék lokahring-
inn á 76 höggu. Gwladys Nocera frá
Frakklandi sigraði á 5 höggum und-
ir pari samtals, en hún fékk um 35
milljónir kr. fyrir sigurinn. Ólöf
María fékk rúmlega 72.000 kr. í
verðlaunafé.
Kobe Bryant, Los Angeles La-kers, er leikmaður ársins,
MVP, í NBA-deildinni í fyrsta sinn á
ferlinum samkvæmt heimildum
bandaríska dagblaðsins Los Angeles
Times. David Stern, fram-
kvæmdastjóri NBA-deildarinnar
mun afhenta Bryant viðurkenn-
inguna í næstu viku en heim-
ildamaður dagblaðsins er tengdur
fjölskyldu Bryant. Margir leikmenn
komu til greina í kjörin í ár og þar
má nefna, Chris Paul (New Orleans
Hornets), Kevin Garnett (Boston
Celtics) og LeBron James (Clevel-
and).
Bryant hefur leikið gríðarlega velí vetur með LA Lakers þrátt
fyrir að hafa gagnrýnt forráðamenn
liðsins sl. sumar og á sama tíma fór
hann fram á það að fá að fara frá fé-
laginu. Lakers var með besta árang-
ur allra liða í Vesturdeildinni, 57
sigra og 27 tapleiki. Bryant, sem er
29 ára, skoraði 28,3 stig að meðaltali
í leik í vetur en hann var með 31,6
stig að meðaltali í fyrra. Varn-
arleikur hans þótti betri í ár en áður
og eins og stigaskor hans gefur til
kynna valdi hann oftar að gefa bolt-
ann á samherja sína í stað þess að
skjóta á körfuna sjálfur.
Peter Lawriefrá Írlandi
sigraði á Opna
spænska meist-
aramótinu í golfi í
gær en þetta er
fyrsti sigur hans
á Evrópumóta-
röðinni. Lawrie
hafði betur gegn
Spánverjanum Ignacio Garrido í
bráðabana um sigurinn en Garrido
var með fimm högga forskot á Law-
rie fyrir lokadaginn. Þeir léku báðir
72 holur á 15 höggum undir pari en
Lawrie setti niður langt pútt fyrir
fugli á lokaholunni og komst þannig í
bráðabana um sigurinn.
Joachim Löw, landsliðsþjálfariÞýskalands í knattspyrnu, segir
að það sé mikið áfall fyrir þýska liðið
að miðjumaðurinn Bernd Schneider
geti ekki leikið á EM í Austurríki og
Sviss í sumar. Hann meiddist í leik
með Leverkusen á föstudag og það
er ljóst að hann verður ekki leikfær
fyrr en næsta keppnistímabil.
Fólk sport@mbl.is
,,Þetta var hörkuleikur. Mikil bar-
átta enda tvö sterk lið að mætast og
það var virkilega gaman að horfa á
þennan leik. Það sáust marktæki-
færi á báða bóga en ef allt er gert
upp held ég að við höfum þar haft yf-
irhöndina. Edda Garðarsdóttir skor-
aði frábært mark með langskoti.
Þrumaði af löngu færi boltanum sem
sveif yfir markmanninn og í fjær-
hornið. Virkilega vel gert hjá henni,“
sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson
landsliðsþjálfari þegar Morgunblað-
ið sló á þráðinn til hans í gær. Hann
sagði leikmenn íslenska liðsins hafa
sótt í sig veðrið í síðari hálfleik: ,,Í
fyrri hálfleik var smávegis basl á
okkur þar sem okkur gekk til dæmis
illa að finna Margréti Láru. Það
gekk betur í síðari hálfleik og þá
færðist meiri yfirvegun yfir leik liðs-
ins. Í kjölfarið fylgdu nokkur góð
marktækifæri. Við fengum svo á
okkur jöfnunarmarkið þegar fjórar
mínútur voru komnar fram yfir
venjulegan leiktíma og það var mjög
svekkjandi. Þess vegna erum við að-
eins fúl með úrslitin en í það heila
tekið var leikurinn mjög góður. Við
græddum mikið á því að spila þenn-
an leik og leikur liðsins var mjög
góður. Þetta var miklu sterkara lið
hjá Finnum en þegar við lékum við
þær um daginn á Algarve.“
Álaginu dreift
Sigurður segist sáttur við líkam-
legt ástand leikmanna en þær hafi
komið vel út í þrekprófum sem hann
hafi lagt fyrir þær að undanförnu.
Hann segir þó smávægileg meiðsli
og æfingaálag hrjá liðið: ,,Ég skipti
sex leikmönnum inn á í síðari hálfleik
til þess að dreifa álaginu. Það eru
þrír til fjórir leikmenn sem eru ekki
alveg 100% heilir heilsu. En engu að
síður verða allir með í leiknum á mið-
vikudaginn. Við reynum náttúrlega
að stýra álaginu og á þessu stigi
málsins er mikilvægara að skoða
leikmenn en ná góðum úrslitum. Þó
svo að við séum að reyna að venjast
því að vinna leiki. Á þessum árstíma
sést náttúrlega smámunur á Erlu
Steinu og Dóru Stefánsdóttur ann-
ars vegar og öðrum leikmönnum
hins vegar. Þær spila erlendis og eru
í betri leikæfingu heldur en hinir
leikmenn liðsins sem eru ekki byrj-
aðir að spila á grasi. Þær eru ryðg-
aðri en viljinn er þeim mun meiri til
þess að standa sig vel. Það er eitt-
hvað sem er styrkleiki hjá íslenska
landsliðinu.“
Lítil tilraunastarfsemi
Sigurður Ragnar segir ekki mikla
tilraunastarfsemi vera í gangi í Finn-
landsferðinni eins og stundum tíðk-
ast þegar um vináttuleiki er að ræða:
,,Ég vinn með mjög svipaðar
áherslur og í æfingamótinu á Alg-
arve á dögunum þar sem við unnum
fjóra leiki. Ég hef verið að keyra
töluvert á svipuðu byrjunarliði. Það
hafa kannski verið ein til tvær breyt-
ingar milli leikja. Kjarninn í liðinu
hefur verið sá sami og er orðinn
ágætlega samæfður enda höfum við
fengið marga vináttuleiki. Það hefur
verið stígandi í liðinu og það er ég
mjög ánægður með. Mér finnst að
það séu tvær til þrjá stöður í liðinu
sem ekki er búið að negla niður. Við
erum því aðeins að leita fyrir okkur í
þeim stöðum og bíða eftir því að ein-
hverjir leikmenn stimpli sig ræki-
lega inn í landsliðið og negli þær
stöður. Við nýtum því leikina til þess
að skoða leikmenn í þessum tveimur
til þremur stöðum á vellinum sem við
erum óviss um.
Sandra stóð á milli stanganna
Sandra Sigurðardóttir, markvörð-
ur Stjörnunnar, stóð í marki íslenska
liðsins í leiknum en María B. Ágústs-
dóttir mun taka stöðu hennar í síðari
leiknum. Sigurður segist hafa ákveð-
ið fyrir fram að leyfa þeim að spreyta
sig sinni í hvorum leiknum en þær
hafa litla sem enga reynslu af
A-landsliðinu: ,,Sandra spilaði allan
leikinn og stóð sig frábærlega vel.
Sérstaklega kom eitt skipti þar sem
hún varði fáránlega vel en þá voru
allir búnir að sjá boltann í netinu.
Auk þess var hún mjög óheppin þeg-
ar Finnarnir skoruðu. Þá kom skot
af stuttu færi úr þvögu. Söndru tókst
að slá boltann en þaðan fór hann í
stöngina og inn. Virkilega vel gert
hjá henni að ná til boltans en þar fyr-
ir utan var hún mjög örugg í öllum
fyrirgjöfum og slíku. Í það heila tek-
ið bara mjög góður leikur hjá henni,“
sagði Sigurður um markmannsstöð-
una sem verið hefur í umræðunni.
Ljósmynd/Ville Vuorinen
Í sókn Margrét Lára Viðarsdóttir, miðherji landsliðs kvenna í knattspyrnu, sækir hér að finnska markinu í Helsinki í gær.
Glæsimark Eddu
gegn Finnum í Espoo
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
knattspyrnu gerði í gær 1:1 jafn-
tefli gegn Finnlandi í vináttulands-
leik í Espoo. Edda Garðarsdóttir
skoraði mark Íslands á 57. mínútu
með glæsilegu skoti af 25 metra
færi en Finnum tókst að jafna leik-
inn í uppbótartíma. Liðin mætast
aftur ytra á miðvikudag og verður
það síðasti leikur íslenska liðsins
fyrir næsta leik í undakeppni EM
2009. Þá heldur liðið til Serbíu í lok
mánaðarins en tekur svo á móti
Slóvenum og Grikkjum í júní.
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is