Morgunblaðið - 09.05.2008, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
úrslit
KNATTSPYRNA
Spánn
Espanyol - Atletico Madrid .................... 0:2
Sergio Leonel Aguero 27., Diego Forlan 30.
Staðan:
Real Madrid 36 26 3 7 77:32 81
Villarreal 36 22 5 9 59:40 71
Barcelona 36 18 10 8 69:37 64
Atl. Madrid 36 18 7 11 64:44 61
Sevilla 36 18 4 14 69:48 58
Santander 36 16 8 12 41:41 56
Mallorca 36 13 14 9 63:50 53
Dep. La Coruna 36 15 7 14 46:44 52
Bilbao 36 13 10 13 39:39 49
Almeria 36 13 10 13 39:42 49
Espanyol 36 13 9 14 42:48 48
Real Betis 36 12 10 14 44:48 46
Getafe 36 12 9 15 43:47 45
Valencia 36 13 6 17 40:60 45
Valladolid 36 11 10 15 41:56 43
Zaragoza 36 10 11 15 46:56 41
Osasuna 36 11 7 18 35:42 40
Recreativo H. 36 10 10 16 37:59 40
Murcia 36 7 9 20 32:58 30
Levante 36 7 5 24 30:65 26
Ítalía
Bikarkeppnin, undanúrslit
Catania - Roma......................................... 1:1
Cristian Silvestri 29. - Alberto Aquilani 26.
Roma vann samanlagt, 2:1, og mætir Int-
er Mílanó í úrslitum.
Holland
Aukakeppni um Meistaradeildarsæti
Heereveen - NAC Breda ......................... 2:0
Aukakeppni um UEFA-sæti
Nijmegegn - Groningen........................... 1:0
Svíþjóð
Úrvalsdeild
Gefle - Sundsvall....................................... 2:0
Halmstad - Ljungskile............................. 3:2
Malmö - Gais ............................................. 1:1
Norrköping - AIK .................................... 1:2
Staðan:
Kalmar 10 7 1 2 18:7 22
Gautaborg 10 5 4 1 17:7 19
Elfsborg 10 5 4 1 11:3 19
AIK 10 5 3 2 8:8 18
Malmö FF 10 4 5 1 16:11 17
Djurgården 10 4 5 1 11:9 17
Helsingborg 10 4 3 3 18:14 15
Halmstad 10 4 3 3 13:11 15
Hammarby 10 4 3 3 11:9 15
GAIS 10 2 6 2 7:9 12
Ljungskile 10 3 1 6 9:17 10
Trelleborg 10 2 3 5 8:11 9
Örebro 10 2 3 5 4:11 9
Gefle 10 2 2 6 7:11 8
Sundsvall 10 1 2 7 9:18 5
Norrköping 10 0 4 6 7:18 4
Danmörk
Úrvalsdeild
AaB - AGF ................................................ 3:1
Lyngby - Horsens .................................... 4:1
Nordjælland - FC Köbenhavn ................ 1:2
Staðan:
AaB 29 19 5 5 54:34 62
Midtjylland 29 15 8 6 42:30 53
København 29 14 9 6 40:26 51
OB 29 12 14 3 42:19 50
Horsens 29 12 8 9 40:39 44
Nordsjælland 29 11 8 10 45:45 41
Esbjerg 29 11 6 12 53:47 39
Brøndby 29 10 9 10 40:38 39
Randers 29 10 7 12 36:31 37
AGF 29 6 7 16 28:45 25
Lyngby 29 3 8 18 30:61 17
Viborg 29 4 5 20 25:60 17
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni NBA
LA Lakers - Utah............................. 120:110
Lakers er 2:0 yfir
Orlando - Detroit ................................ 111:86
Detroit er yfir, 2:1
Trevor Im-melman frá
Suður-Afríku,
sem sigraði á
Mastersmótinu í
golfi á Aug-
ustavellinum, hef-
ur dregið sig úr
keppni á
Players-meistara-
mótinu sem hófst í
gær vegna veikinda. Umboðsmaður
Immelman segir að kylfingurinn hafi
ekki treyst sér í mótið vegna maga-
kveisu.
Ástralinn Harry Kewell yfirgefurLiverpool í sumar. Rafael Bení-
tez knattspyrnustjóri Liverpool
greindi frá því í gær að samningar við
leikmanninn og umboðsmann hans
hefðu ekki tekist og Kewell yrði laus
allra mála í sumar. Kewell, sem er 29
ára gamall, hefur verið í herbúðum
Liverpool í fimm ár en hefur á þess-
um tíma misst mikið úr vegna
meiðsla.
Benítez sagði að hugsanlega gætifarið svo að Norðmaðurinn John
Arne Riise færi frá liðinu í sumar.
,,Riise á eitt ár eftir af samningi sín-
um en hann veit að ef okkur berst til-
boð, gott tilboð fyrir hann og félagið,
þá gæti svo farið að hann yfirgæfi
okkur í sumar. En hann er ennþá
okkar leikmaður og ég er ánægður
með hann því hann er mikill og góður
atvinnumaður,“ sagði Benítez á vef
félagsins.
Þýska hand-knattleiks-
liðið Flensburg
sem Alexander
Petersson og
Einar Hólmgeirs-
son leika með en
Einar yfirgefur í
sumar, hefur sam-
ið við Svartfelling-
inn Alen Murato-
vic sem leikur með spænska liðinu
Valladolid. Muratovic, sem var
markahæsti leikmaður Svartfellinga
á EM í Noregi í vetur, á að fylla skarð
Króatans Blazenkos Lackovic sem
gengur í raðir Hamborgar-liðsins í
sumar.
Sylvain Distin hefur verið útnefnd-ur leikmaður ársins hjá
Portsmouth af Hermanni Hreið-
arssyni og félögum hans í liðinu. Dist-
in kom frá Manchester City síðast-
liðið sumar og hefur leikið
lykilhlutverk í varnarleik liðsins. Þrír
af leikmönnum liðsins í dag voru
valdir í besta Portsmouth-liðið frá
upphafi, David James, Sol Campbell
og Glen Johnson.
Frakkar lögðu Serba, 2:0, í undan-
keppni Evrópumóts kvennalandsliða
í knattspyrnu í gær en þjóðirnar leika
í sama riðli og Ísland. Frakkar eru
efstir í riðlinum með 18 stig eftir sjö
leiki en Íslendingar eru í öðru sæti
með 9 stig eftir fjóra leiki. Ísland
sækir Serbíu heim í lok mánaðarsins
og verður að sigra til að eygja mögu-
leika á að skáka Frökkum.
Fólk sport@mbl.is
,,Skammarlegt“ er fyrirsögnin í
blaðinu Mundo Deportivo og blaðið
Sport kemur þessum skilaboðum
áleiðis til leikmanna liðsins; ,,Þið haf-
ið vanvirt Barcelona-búninginn.“ Í
Sport kemur einnig fram; ,,Heiðurs-
vörðurinn fyrir leikinn var ekki það
versta. Það sem á eftir kom var miklu
verra. Vörnin var eins og smjör og
það þarf ekki endurnýjun í liðið held-
ur þarf að eiga sér stað bylting.“
Stuðningsmennirnir æfir
Nokkrir tugir stuðningsmanna
Barcelona létu leikmenn Barcelona
og forráðamenn þess fá það óþvegið
eftir háðuglega útreið liðsins. Stuðn-
ingsmennirnir hópuðust að rútubif-
reiðinni sem flutti liðið á flugvöllinn
eftir leikinn þar sem þeir hrópuðu
ókvæðsorðum að leikmönnum og for-
ráðamönnum félagsins og ekki síst að
forseta Barcelona, Joan Laporta.
Mikil ólga er í herbúðum Barcelona,
jafnt innan sem utan vallar, og stuðn-
ingsmenn félagsins eiga erfitt með að
sætta sig við að vera 17 stigum á eftir
erkióvinunum í Real Madrid og
standa uppi með engan titil í hönd-
unum annað árið í röð.
Börsungar í forkeppni
Meistaradeildarinnar
Þegar tvær umferðir eru eftir af
spænsku 1. deildinni þykir einsýnt að
Barcelona hafnar í þriðja sæti sem er
versti árangur Katalóníuliðsins í
fimm ár. Þetta þýðir að Barcelona
verður að fara í forkeppni Meistara-
deildarinnar á næsta tímabili en tvö
efstu liðin, Real Madrid og Villareal,
fara beint í riðlakeppnina.
Talið er að fylgismenn Barcelona
muni láta óánægju sína enn meira í
ljós á sunnudaginn þegar Barcelona
mætir Mallorca í síðasta heimaleik
sínum á leiktíðinni. Það verður síð-
asti heimaleikur liðsins undir stjórn
Franks Rijkaards en Hollendingur-
inn, sem hefur verið við stjórnvölinn í
5 ár, hættir í sumar og tekur Josep
Guardiola verður við starfi hans.
Reuters
4 gegn 1 Xavi, Toure Yaya, Eiður Smári og Thierry Henry í baráttu við Pepe í leiknum á Santiago Bernabeu.
,,Þið vanvirtuð
búning Barcelona“
Sautján stig skilja Barcelona og Real Madrid
DAGBLÖÐIN í Katalóníu tæta lið
Barcelona í sig eftir skell þess á
Santiago Bernabeu í Madrid í
fyrrakvöld þar sem Börsungar
steinlágu, 4:1, fyrir Spánarmeist-
urum Real Madrid og máttu teljast
stálheppnir með að fá ekki verri út-
reið. Þriðja sætið verður hlutskipti
Barcelona og það er eitthvað sem
stuðningsmenn liðsins eiga erfitt
með sætta sig við.
Í HNOTSKURN
»Josep Guardiola tekur viðþjálfun Barcelona af Frank
Rijkaard í sumar.
»Guardiola er 37 ára gamallog er afar vinsæll hjá stuðn-
ingsmönnum Barcelona.
»Guardiola lék með liðinu fráárinu 1990 til 2001, samtals
263 leiki og þá lék hann 47 leiki
fyrir spænska landsliðið.
»Guardiola var í fyrra ráðinnþjálfari varaliðs Barcelona.
JOSEP Guardiola tekur við þjálfun
Barcelona af Frank Rijkaard í
sumar að því er Joan Laporta for-
seti félagsins tilkynnti í gær og
velta katalónskir fjölmiðlar því nú
fyrir sér hvaða leikmönnum nýi
þjálfarinn kemur til með að losa
sig við. Samkvæmt dagblaðinu
Sport sem gefið er út í Barcelona
eru 11 leikmenn sem Guardiola
vill að yfirgefi félagið. Í þeim hópi
er Eiður Smári Guðjohnsen sem er
að enda sitt annað tímabili með
Börsungum en á tvö ár eftir af
samningi sínum.
Hinir tíu leik-
mennirnir sem
fá reisupassann
taki Guardiola
við eru:
Ronaldinho,
Jose Manuel
Pinto, Thierry
Henry, Edmil-
son, Giovani,
Lilian Thuram,
Oleguer, Yaya Youre og Albert
Jorquera.
Guardiola tekur við
Eiður Smári
Guðjohnsen
SPÁNVERJINN Sergio Garcia lék
vel á fyrsta keppnisdegi á Players
meistaramótinu sem hófst í gær á
TPC Sawgrass vellinum í Flórída í
gær. Hann er efstur á 6 höggum
undir pari eftir að hafa fengið 7
fugla og 1 skolla. Bandaríkjamenn-
irnir Kenny Perry og Paul Goydos
eru á 4 höggum undir pari. Phil
Mickelson, sem hefur titil að verja
á mótinu, er á 2 höggum undir pari
sem skilaði honum í 8.-22. sæti.
Englendingurinn Justin Rose
mætti til leiks með nýja aðstoð-
armann en hann
sagði kylfusveini
sínum til margra
ára upp störfum
fyrir mótið. Rose
sagði að sam-
starfið hefði ekki
gengið vel en svo
virðist sem verk
sé að vinna hjá
Rose og nýja
manninum því hann lék ekki vel í
gær. Tiger Woods er ekki á meðal
keppenda á mótinu.
Sergio Garcia lék vel á TPC
Sergio Garcia
íþróttir
ALI
Stjör
urinn
hand
mön
gær.
Þe
Mark
Kris
Línu
Pavl
Vins
Dag
Vins
Alin
Hæg
Sólv
Hæg
Birg
Miðj
Eva
Þjálf
Aðal
og R
Best
Fram
Best
Alin
A
Eftir
gumm
SKA
dans
leika
gam
urne
þar s
en M
alliði
H
Jóns
unum
því e
tveir
Sigu
Un
verið
D
m
Hæt
í skíð
GUÐMUNDUR E. Stephensen,
margfaldur Íslandsmeistari í borð-
tennis, hóf í gær þátttöku í lokaúr-
tökumóti fyrir Ólympíuleikana í
Peking í sumar. Mótið fer fram í
Ungverjalandi og í gær mætti Guð-
mundur Rúmenanum Constantin
Cioti sem er í 110. sæti á heimslist-
anum. Guðmundur varð að láta í
minni pokann, 4:2.
Í dag mætir Guðmundur Shen
Qiang frá Kanada sem er í 391. sæti
á heimslistanum. Guðmundur sem er
í 205. sæti á heimslistanum verður að
sigra til halda áfram keppni og
freista þess að vinna sér sæti á Ól-
ympíuleikunum.
Karlalandsliðið tekur þátt í
Norður-Evrópumótinu í borðtennis,
sem fram fer í Maribo í Danmörku
9.–11. maí. Liðið skipa Daði Freyr
Guðmundsson, Magnús Finnur
Magnússon og Richard Magnason,
allir úr Víkingi. Ísland leikur í riðli
með Eistlandi, Lettlandi og Svíþjóð í
liðakeppni.
Guðmundur
byrjaði með tapi