Morgunblaðið - 06.06.2008, Blaðsíða 1
föstudagur 6. 6. 2008
íþróttir mbl.is
íþróttir
Michael Jackson tryggði Þrótti 3:2 sigur gegn Fylki >> 4
DRAUMAHÖGGIN SJÖ
BJÖRGVIN ÞORSTEINSSON, SEXFALDUR ÍSLANDSMEISTARI Í HÖGGLEIK,
FÓR HOLU Í HÖGGI ENN OG AFTUR OG STEFNIR Á 52 LANDSMÓT Í RÖÐ >> 2
Reuters
Sprettur Khalid Boulahrouz, Rafael van der Vaart og Giovanni van Bronckhorst hafa ekki langan tíma til þess að koma sér í betra líkamlegt ástand áður en
Evrópumeistaramótið hefst á laugardag í Sviss og Austurríki. Hollendingar eru í C-riðli ásamt heimsmeisturum Ítalíu, Frökkum og Rúmeníu.
ÓLAFUR Örn Bjarnason leik-
maður norska meistaraliðsins
Brann gekkst undir aðgerð á
hné í gær. Ekki var um stóra að-
gerð að ræða og vonast Ólafur
eftir því að geta byrjað að æfa
eftir um 2 vikur en meiðslin í
hnénu hafa verið að angra Ólaf í
þó nokkuð langan tíma.
Ólafur lék allan seinni hálf-
leikinn þegar Brann gerði 1:1
jafntefli við Rosenborg í Þránd-
heimi í fyrrakvöld og þótti
Grindvíkingurinn standa sig vel
en Brann var 1:0 undir þegar
hann kom inná.
Ólafur missti sæti í byrj-
unarliði Brann þegar Mons Ivar
Mjelde, þjálfari Brann-liðsins,
ákvað að færa Azar Karadaz til í
stöðu og spila í miðvarðarstöð-
unni við hlið Kristjáns Arnar
Sigurðssonar. | gummih@mbl.is
Ólafur Örn í
aðgerð á hné
AGA- og úrskurðarnefnd KSÍ úr-
skurðaði í gær Guðjón Þórðarson,
þjálfara ÍA, í eins leiks bann og
knattspyrnudeild ÍA er gert að
greiða 20.000 krónur í sekt vegna
ummæla Guðjóns í sjónvarpsviðtali
eftir leik Keflavíkur og ÍA í Lands-
bankadeildinni þann 25. maí síðast-
liðinn. Eftir umræddan leik var
Guðjón mjög harðorður í garð Ólafs
Ragnarssonar og skaut einnig föst-
um skotum að KSÍ en Skagamenn
töpuðu leiknum, 3:1, þar sem Stefán
Þór Þórðarson fékk að líta rauða
spjaldið. Guðjón getur því ekki
stýrt sínum mönnum á sunnudaginn
en þá sækja Skagamenn lið HK
heim í 6. umferð.| gummih@mbl.is
Guðjón í eins
leiks bann
ÍSLENSKA karlalandsliðið í blaki
lék æfingaleik í gær í Frankfurt
gegn U21-árs landsliði Þjóðverja.
Leikurinn er liður í undirbúningi
karlaliðsins fyrir Evrópumót smá-
þjóða á Möltu. Þjóðverjar höfðu
betur, 3:1, 25:23, 24:26, 25:19 og
25:22. Þjóðverjinn Michael Over-
hage, landsliðsþjálfari Íslands,
leyfði öllum leikmönnum liðsins að
spreyta sig í gær gegn Þjóð-
verjum. Overhage tók við liðinu
þann 10. apríl sl. en hann er þjálf-
ari karla- og kvennaliðs Þróttar í
Reykjavík.
Íslenska liðið staldraði við í 12
tíma í Frankfurt, á leið sinni til
Möltu, og náði að leika einn leik á
þeim tíma. »3 | seth@mbl.is
Tap gegn
Þjóðverjum
Jón Arnór Stefánsson og félagar hans úr Lottom-
atica Roma töpuðu naumlega gegn Siena á úti-
velli, 85:82, í öðrum leik liðanna í úrslitum ítölsku
úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik í gær. Siena er
2:0 yfir í rimmunni. Næstu tveir leikir fara fram í
Róm á sunnudag og þriðjudag en eftir það
skiptast liðin á um að leika á sínum heimavelli.
Jón Arnór skoraði ekki nema 3 stig á þeim 26
mínútum sem hann lék, allt úr vítaskotum, en ís-
lenski landsliðsmaðurinn reif niður 7 fráköst og
var hann frákastahæstur ásamt Gabini sem tók
einnig 7 fráköst. Staðan í hálfleik 48:38 og fyrir
lokafjórðunginn var Siena með 13 stiga forskot.
Siena hefur titil að verja
Montepaschi Siena hefur titil að verja á Ítalíu
en liðið varð meistari í fyrsta sinn árið 2004. Á
undanförnum árum hefur félagið blandað sér í
baráttuna sem eitt besta félagslið Evrópu og tví-
vegis komist í undanúrslit Meistaradeildarinnar.
Siena hafði mikla yfirburði í deildarkeppninni á
Ítalíu í vetur. Liðið tapaði aðeins þremur leikjum
af alls 34. Lottomatica Roma varð í öðru sæti með
23 sigurleiki og 11 tapleiki.
Í fyrstu umferð úrslitakeppninnar mættu Róm-
verjar liði Tisettanta Cantù. Þeirri viðureign lauk,
3:1. Roma og Air Avellino áttust við í undan-
úrslitum og þar hafði Roma betur, 3:0. Air Avell-
ino og Roma voru með sama árangur í deild-
arkeppninni. | seth@mbl.is
Rómverjar nálægt sigri
Jón Arnór reif niður 7 fráköst í naumum tapleik Roma á útivelli gegn Siena