Morgunblaðið - 06.06.2008, Síða 4

Morgunblaðið - 06.06.2008, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson thorkell@mbl.is „ÉG er auðvitað mjög ósáttur. Við vorum léleg- ir í fyrri hálfleiknum en komum sterkir til leiks í þeim síðari og höfðum gullið tækifæri til að komast í 3:1 og gera þannig út um leikinn. Þannig að við getum bara sjálfum okkur um kennt að hafa ekki klárað þennan leik,“ sagði Leifur Sigfinnur Garðarsson, þjálfari Fylkis, eftir 3:2 tap hans manna fyrir Þrótti í gær- kvöld. „Menn eru að tapa leikjum út og suður og vinna líka, þannig að jafnvel þótt við höfum tapað þessum leik og það á marki sem kom á síðustu andartökum leiksins þá dregur það ekki neitt úr okkur. Það er leikur eftir þennan leik og mótið rétt að byrja,“ sagði Leifur. Akureyringurinn Jóhann Þórhallsson átti fín- an leik í liði Fylkis, skoraði mark og kom sér í fín færi í leiknum. „Við vorum algjörlega með þetta í höndunum. Spiluðum eins og fávitar síð- asta korterið og köstuðum þessu bara einfald- lega frá okkur. Ég fékk gott færi til að skora mitt annað mark í leiknum en misnotaði færið herfilega. Þetta var bara virkilega lélegt hjá okkur og við getum sjálfum okkur um kennt hvernig fór. Reyndar er ég sjálfur ekki í nógu góðu formi, en það afsakar ekkert að hafa ekki nýtt tvö dauðafæri sem ég fékk í leiknum. En ég verð kominn í betra form von bráðar. Það er ekki nokkur spurning,“ sagði Jóhann Þór- hallsson annar markaskorara Fylkis eftir leik- inn. Jóhann sem gekk til liðs við Árbæjarliðið frá KR fyrir tímabilið og hefur nú skorað fjög- ur mörk það sem af er Íslandsmótinu. Leifur:„Ég er mjög ósáttur og við getum sjálfum okkur um kennt“ Fylkir 2 Þróttur R. 3 Fylkisvöllur, úrvalsdeild karla, Lands- bankadeildin, fimmtudaginn 5. júní 2008. Mörk Fylkis: Þórir Hannesson 17., Jóhann Þórhallsson 60. Mörk Þróttar: Magnús Már Lúðvíksson 37., Hjörtur Júlíus Hjartarson 79. (víti), Michael Jackson 90. Markskot: Fylkir 12(11) – Þróttur 23 (13). Horn: Fylkir 2 – Þróttur 8. Rangstöður: Fylkir 1 – Þróttur 5 Skilyrði: Suðvestan stinningskaldi og rign- ing með köflum. Völlurinn blautur en leit vel út. Lið Fylkis: (4-4-2) Fjalar Þorgeirsson – Andrés Már Jóhannsson (Kjartan Ágúst Breiðdal 46.), Kristján Valdimarsson, Val- ur Fannar Gíslason, Þórir Hannesson – Guðni Rúnar Helgason, Ian Jeffs (Ólafur Stígsson 46.), Peter Gravesen, Halldór Hilmisson – Allan Dyring (Hermann Að- algeirsson 78), Jóhann Þórhallsson. Gul spjöld: Kristján Valdimarsson 13. (brot), Guðni Rúnar Helgason 24. (brot), Þórir Hannesson 74. (brot). Rauð spjöld: Kristján Valdimarsson 81. (brot). Lið Þróttar: (4-4-2) Bjarki Freyr Guð- mundsson – Eysteinn Pétur Lárusson (Jón Ragnar Jónsson 72.), Þórður Steinar Hreiðarsson, Michael Jackson, Kristján Ómar Björnsson – Dennis Danry, Hallur Hallsson, Haukur Páll Sigurðsson, Rafn Andri Haraldsson – Adolf Sveinsson (Magnús Már Lúðvíksson 21.), Hjörtur Júl- íus Hjartarson. Gul spjöld: Hallur Hallsson 16. (brot). Rauð spjöld: Engin. Dómari: Eyjólfur M. Kristinsson, FH, 4. Aðstoðardómarar: Einar K. Guðmundsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson. Áhorfendur: 841. „LYKILLINN að sigrinum í kvöld, var fyrst og fremst dugnaður og seigla og ekki síst það að við gefumst aldrei upp. Við áttum auðvitað að klára færin sem við fengum í fyrri hálfleik og gera út um leikinn strax þá. En við höfum marga dugn- aðarforka í okkar liði sem gefast aldrei upp, þannig þetta hafðist að lokum hjá okkur í þessum leik,“ sagði Gunnar Oddsson sigurreifur að loknum 2:3 sigri Þróttar á Fylki í Árbænum. „Við þrífumst á bardaganum í leiknum, erum fastir fyrir og sterk- ir í föstum leikatriðum. Þeir björg- uðu á línu og voru í umtalsverðum vandræðum þegar við fengum föst leikatriði. Ég er mjög ánægður að liðið hafi haldið mjög vel spilandi Fylkisliði niðri í þessum leik og er virkilega sáttur með að fara heim með þrjú stig af erfiðum útivelli eft- ir sigur á liði sem var búið að vinna þrjá leiki í röð á undan þessum. Við náðum að setja góða pressu á Fylki í leiknum sem varð til þess að mér fannst Fylkismenn ekki ná að spila þann bolta sem þeir eiga að geta gert best. Það gagnaðist okk- ur vel, í það minnsta nógu vel til þess að við höfðum sigur að lokum. Sjálfstraustið eykst bara með hverjum leiknum hjá okkur og við lítum bara björtum augum fram á við, fullir tilhlökkunar að takast á við næstu verkefni,“ sagði Gunnar. Þróttarar sem eru nýliðar í deild- inni eru nú í 7. sæti með 8 stig að loknum sex umferðum. Fylkir situr hins vegar í 5. sæti og hefur 9 stig. | thorkell@mbl.is „Höfum marga dugn- aðarforka“ Gunnar Oddsson Fylkir M Þórir Hannesson Guðni Rúnar Helgason Halldór Arnar Hilmisson Jóhann Þórhallsson Þróttur M Michael Jackson Dennis Danry Haukur Páll Sigurðsson Hjörtur J. Hjartarson Magnús Már Lúðvíksson Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is Þegar uppbótartíminn var að fjara út skallaði Jackson boltann í netið eftir hornspyrnu Rafns Andra Har- aldssonar og tryggði Þrótturum sætan sigur en breski miðvörðurinn var einnig á markalistanum í leikn- um gegn Keflavík um síðustu helgi þar sem Þróttur vann með sömu markatölu og í gær. Þetta var þriðja viðureign Fylkis og Þróttar í efstu deild á Fylkisvellinum og hef- ur Þróttur unnið alla leikina. Báðir þjálfararnir gerðu eina breytingu á liðum sínum sem unnu góða sigra í 5. umferðinni. Daninn Allan Dyring kom inn í lið Fylkis fyrir Ólaf Inga Stígsson og Hjörtur Júlíusson tók stöðu sína á ný í framlínu Þróttara á kostnað Bras- ilíumannsins Ismael Silva Fran- cesco. Þróttarar mættu ákveðnir til leiks á blautum Fylkisvelli og fyrsta stundarfjórðunginn fór leik- urinn nær eingöngu fram á vall- arhelmingi Fylkis. En í sinni fyrstu sókn í leiknum skoraði Þórir Hann- esson fyrir Fylki á 17. mínútu – hans fyrsta mark í Landsbanka- deildinni. Nokkrum mínútum síðar þurftu Þróttarar að gera breytingu á sínu liði. Adolf Sveinsson fór meiddur af velli og Magnús Már Lúðvíksson tók stöðu hans. Magnús kom mjög ferskur inn í leikinn og það var einmitt hann sem jafnaði metin á 37. mínútu og þremur mín- útum síðar var hann óheppinn að bæta ekki öðru við en eftir glæsi- legt þríhyrningsspil við Hjört Hjartarson small skot Magnúsar í stönginni og það í annað sinn sem marksúlan bjargaði Árbæingum á upphafsmínútunum þegar Adolf þrumaði boltanum í stöngina. Jóhann Þórhallsson skoraði sitt fjórða mark í deildinni þegar hann kom Fylki í 2:1 eftir klukkutímaleik og hann var klaufi að skora ekki aftur skömmu síðar en Bjarki Freyr markvörður Þróttarara sá við honum. Leikmenn Þróttar héldu ótrauðir áfram og uppskáru mark úr víti sem Hjörtur Hjartason skor- aði úr á 79. mínútu og Michael Jackson skoraði sigurmarkið en tíu mínútum áður hafði Fylkismaður- inn Kristján Valdimarsson fengið reisupassann. Fylkismenn náðu þokkalegum köflum inn á milli en einhvern veg- inn náðu þeir sér aldrei almenni- lega á flug. Þeir voru ekki nógu vel Morgunblaðið/Golli Liðugur Haukur Páll Sigurðsson og félagar hans úr Þrótti „stálu“ sigrinum gegn Fylki á lokasekúndum í Árbænum. Jackson hetja Þróttara  Nýliðarnir stöðvuðu sigurgöngu Fylkis  Þróttur upp fyrir KR og Val MICHAEL Jackson stal senunni, líkt og nafni hans frá Bandaríkjunum gerði svo oft á tónlistarsviðinu á ár- um áður, þegar nýliðar Þróttara lögðu Fylkismenn að velli, 3:2, í Landsbankadeildinni í Árbænum í gærkvöldi. Þetta var fyrsti leikurinn í 6. umferðinni og markaveislan heldur því enn áfram og mér er til efs að Íslandsmótið hafi byrjað bet- ur en í ár. 1:0 17. Valur Fannar Gíslason átti glæsilega sendingu inn fyrirvörnina á Þóri Hauksson sem sýndi mikla yfirvegun og skor- aði af öryggi. 1:1 37. Há sending barst inn á vítateig Fylkis. Hjörtur J. Hjart-arson náði að koma boltanum til Magnúsar Más Lúðvíkssonar sem skoraði með föstu skoti. 2:1 60. Þórir Hannesson átti skalla í stöng eftir aukaspyrnuGuðna Rúnars Helgasonar. Jóhann Þórhallsson náði frákast- inu og skoraði með góðu skoti. 2:2 79. Valur Fannar braut á Hirti Júlíusi Hjartarsyni innan teigsog úr vítaspyrnunni sem dæmd var skoraði Hjörtur Júlíus af miklu öryggi. 2:3 90. Michael Jackson skallaði í netið eftir hornspyrnu frá RafniAndra Haraldssyni. einbeittir og markvissir í leik sínum en vissulega hefðu þeir getað staðið uppi sem sigurvegarar. Guðni Rún- ar Helgason og Þórir Hannesson stóðu einna helst upp hjá Fylk- ismönnum sem fyrir leikinn í gær höfðu unnið þrjá leiki í röð og stefndu að því að vinna fjóra leikin í röð í fyrsta sinn í efstu deild í sex ár. Það er gaman að vera Þróttari í dag og full ástæða til að hrósa bar- áttuglöðum leikmönnum liðsins. Þeir hafa sýnt mikinn karakter og eftir jarðarfaraleik gegn Fjölni í 1. umferðinni hafa nýliðarnir sýnt hvað í þá er spunnið og dugnaður leikmanna mikill. Michael Jackson og Dennis Danry falla afar vel inn í lið Þróttara og báðir voru atkvæða- miklir í gær. Hallur Hallsson og Haukur Páll eru miklir vinnuþjark- ar og ávallt skapast hætta í kring- um Hjört Júlíus Hjartarson. Þá átti Magnús Már mjög góða innkomu og lífgaði upp á sóknarleikinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.