Morgunblaðið - 06.10.2008, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2008 F 15
Stefán Hrafn Stefánsson hdl,lögg.fasts.
Sími: 534 8300 • Fax: 534 8301
Kirkjustétt 4 • 113 Reykjavík
www.storborg.is
SKÚLAGATA 51- TIL SÖLU EÐA LEIGU
• Glæsilegt atvinnuhúsnæði með tveimur lyftum og inndreginni efstu hæð með glæsilegum útsýnissvölum
þar sem m.a. eru samþykktar hótelíbúðir.
• Fjölbreyttir notkunarmöguleikar svo sem fyrir heilbrigðisþjónustu, skrifstofur, hótelrekstur eða höfuðstöðvar
fyrirtækis / stofnunar.
• Húsið er 5020 fm þar af 730 fm í bílastæðahúsi. Næg bílastæði.
• Húsið afhendist strax í núverandi ástandi eða lengra komið
og innréttað- allt eftir óskum viðkomandi.
• Frábær staðsetning með glæsilegu útsýni og með miklu auglýsingargildi.
• Leiguverð er kr. 1.950 per fm og söluverð er kr. 275 þús per fm.
• Seljandi er tilbúin að lána traustum kaupanda allt að 70-80% kaupverðs.
Glæsilegt atvinnuhúsnæði neðst í Borgartúni - við sjávarsíðuna - til afhendingar strax
Þegar október gengur í garðer ekki nokkur vafi á því aðþað er komið haust. Von-andi hefur það í för með sér
að nokkurt hlé verði á þeirri yfir-
gengilegu vætutíð sem hefur dunið á
þessu eylandi í norðurhöfum, raunar
heldur vætan áfram að koma en nú
sem snjór. Það minnir okkur á það að
huga þarf að skófatnaði bílanna, ekki
gengur lengur að láta þá renna um
götur og vegi á oft og tíðum lélegum
sumarbúnaði. Sérkenni landans
koma oft skýrast í ljós einmitt á
haustin þegar allt verður víðáttu-
vitlaust á öllum dekkjaverkstæðum á
fyrstu hálku- og snjóadögum, fyr-
irhyggjan ekki okkar sterkasta hlið,
það sannast í fleira en fjármálum.
Ekki sofna á verðinum
En húseigendur þurfa að hyggja
að fleira. Því hefur verið haldið fram
að aðeins tvennt geti fengið húseig-
anda til að hyggja að lögnum og
lagnakerfum í húsi sínu; í fyrsta lagi
ískuldi á heimilinu eða ökklavatn
þegar stigið er fram úr rúmi að
morgni.
Auðvitað eru þetta nokkrar ýkjur
en vissulega er það einkenni Íslend-
inga að fyrirbyggjandi aðgerðir eða
skipulagt viðhald er nokkuð sem þeir
hafa ekki mikinn áhuga á, en þó hefur
það nokkuð batnað á síðustu árum.
En veturinn er á næsta leiti og þá
er ekki úr vegi að huga að því hvað
hver og einn ætti að athuga – eða láta
athuga – svo hann geti verið í þokka-
legum málum á komandi vetri, hvorki
í ískaldri íbúð né ökklavatni.
Gull í pípunum
Það er víst nánast ætlast til þess á
þessum síðustu tímum að vera uppi
með barlóm, en látum fréttastofur
ljós- og prentmiðla um það, þeir
standa sig geysivel í því hlutverki.
Það kemur fyrir að einn og einn
maður komi á skjá eða blaðsíðu og
stingi svolítið í stúf, haldi því fram að
við Íslendingar búum við aðstæður
sem flestar þjóðir mættu og ættu að
öfunda okkur af. Eitt er víst að heita
gullið sem veltur upp úr jörðinni af
eigin rammleik eða með hjálp tækn-
innar og mannsins, heita vatnið, er
ótrúlegur munaður sem ekki á sinn
líka á byggðu bóli. Vissulega kemur
heitt vatn víðar úr jörðu á jarðkringl-
unni en hvergi á þessum sama hnetti
hefur þessi auðlind verið jafn-vel nýtt
sem hérlendis.
Það er ágætt að vera minntur á
það þegar víða sjást blikur á lofti að
við eigum okkar gull eða ígildi þess.
Er allt eins og það á að vera?
En til að koma sér að efninu þá var
erindið það að minna alla húseig-
endur á að huga að lagnakerfum sín-
um í tíma, ekki draga það eins og
dekkjaskiptin. Það er ótrúlega al-
gengt að hitakerfi húsa eru í megn-
asta ólagi og það er látið dankast
mánuð eftir mánuð, ár eftir ár. Það er
nokkuð þekkt í fjölbýlishúsum að svo
virðist sem hitakerfi gangi af gömlum
vana en svo er nú ekki raunin. Oft er
það einhver ráðagóð eldri kona eða
maður sem hefur komist upp á lag
með að opna ýmsa ventla þegar kóln-
ar og loka þeim aftur þegar hlýnar.
En þetta getur tæpast talist hita-
stýring í samræmi við nútímann og
þá möguleika sem til eru.
En nú væri ekki úr vegi að kanna
hvort þrýstijafnarinn, þetta ótrúlega
snjalla tæki, er í lagi eða hvort hann
er orðinn stirður, jafnvel fastur. Ofn-
lokana þarf einnig að athuga, pinnar
þeirra eiga það til að festast og gefa
sáralítið eða ekkert rennsli inn á ofn-
inn. Þetta hefur kannski ekki komið
að sök í sumar en þegar kólnar þá
kemur gallinn í ljós, hiti ekki nægur
þegar á þarf að halda.
Er snjóbræðslan í lagi?
Svo eru það allar snjóbræðslurnar.
Hefur eitthvað verið fiktað við ýmsa
krana að vorlagi til að tryggja að
snjóbræðslan taki ekki til sín vatn
yfir sumarið? Flestar snjóbræðslur
við minni hús eru sem betur fer með
einföldum og beintengdum búnaði.
Þetta eru þær snjóbræðslur sem oft
hafa gengið áfallalaust í áratugi en
það er gott að muna að allir lokar og
allur búnaður, hve einfaldur og ágæt-
ur sem hann er í upphafi, á það til að
stirðna og jafnvel festast. Þetta getur
orsakað það að snjóbræðslukerfið
vinnur ekki eins vel og áður, lítil or-
sök sem oft skaðar góða virkni.
Hirða þarf um blöndunartækin
Þá má ekki gleyma einu sem er yf-
irleitt öskubuskan á heimilinu sem
enginn hugsar um en það eru sjálf-
virku hitastýrðu blöndunartækin.
Hver sá sem selur slík tæki ætti að
láta þeim fylgja nákvæmar leiðbein-
ingar og það á íslensku, hvernig skuli
hirða tækin. Sérstaklega ætti að
fylgja þeim áætlun um hvenær og
hve oft á að skipta um einstreym-
isloka í tækjunum. Þeir verða óþéttir
á nokkrum árum og afleiðingin er oft
millirennsli, oftast að heitt vatn renn-
ur inn í kaldavatnskerfið, jafnvel með
þeim afleiðingum að það stendur
gufumökkur upp úr klósettinu þegar
sturtað er.
Vöntun á góðri handbók
En hvað segja húseigendur um það
að þeir fengju í hendur handbók sem
leiðbeindi þeim um allt sem varðar
lagnir og lagnakerfi í húsum?
Slík handbók þyfti að vera auð-
skilin, ekkert hátimbrað tækniorða-
lag. Þar mættu jafnvel koma fram
leiðbeiningar um hvað hin „hand-
lagna húmóðir“ getur gert til að
bjarga sér sjálf og hvað hún ætti ekki
að hætta sér í bardaga við.
Svo er ekki loku skotið fyrir að
karlarnir geti í sumum tilfellum einn-
ig gert gagn á þessu sviði eins og öðr-
um.
Haustið er komið og fyrsti snjór fallinn
LAGNAFRÉTTIR
Sigurður Grétar Guðmundsson
siggigretar@internet.is
Morgunblaðið/
Snjóbræðslukerfi Þetta er hin gamla góða dæmigerða tenging á snjóbræðslukerfi, einföld en örugg. Samt er hún
ekki fullkomin því þarna vantar magnstilliloka á beina innrennslið frá hitaveitu.
Það er ótrúlega algengt að hitakerfi
húsa séu í megnasta ólagi …
Höfundur er pípulagningameistari.