Morgunblaðið - 06.10.2008, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 06.10.2008, Qupperneq 18
18 F MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ í öruggt skjól í nýrri eign Komdu peningunum þínum FAGMENNSKA METNAUR REYNSLA www.bygg.is Glæsilegar, vandaðar íbúðir • Vandaðar innréttingar úr eik frá Brúnás • Innihurðir og flísar frá Agli Árnasyni • AEG eldhústæki frá Ormsson • Gólfhiti í baðherbergi • Álklæðning utanhúss Sími 594 5000 STÓRHÖFÐI 27 akkurat.is Sími 562 4250 www.fjarfesting.is FJÁRFESTING FASTEIGNASALA EHF BORGARTÚNI 31 Kynntu þér eignir á sölu hjá Bygg á heimasíðu þeirra, bygg.is Lundur • Langalína • Jónshús • 17. júní torg Lundur 1-3 Jónshús Langalína 9-11 17. júní torg GLÆSILEGAR SÝNINGARÍBÚIR– hafðu samband og við aðstoðum þig við að finna íbúðina þína Hafið samband við söluaðila og bókið skoðun. Hilmar: 896 8750 Viggó: 824 5066 Mig langar svo til aðrækta rófur, svonastórar og safamiklareins og maður fékk sem krakki. Það var alveg dásam- legt að fá hálfa rófu og skafa hana upp í sig með borðhníf, jafnvel hola hana alveg út þann- ig að aðeins þunnt lag var eftir. Ég hef margreynt rófu- ræktun en það er alveg sama hvernig ég reyni, mér mis- tekst alltaf. Ég veit svo sem hvers vegna; það er verið að refsa mér fyrir að stela rófum úr garðinum í næsta húsi við afa og ömmu á Þing- eyri. Þetta gerðu allir krakkarnir á Balanum og ég tek út refsinguna fyrir allan hópinn. Vandmeðfarnar rauðrófur Ég stal hins vegar aldrei rauðróf- um enda gengur mér sú ræktun al- veg ótrúlega vel. Svona í framhjá- hlaupi man ég ekki eftir neinum sem ræktaði rauðrófur þegar ég var lítil. Fyrstu skrefin í rauðrófurækt- uninni voru svo sem dálítið reikul, eins og fyrstu skref verða oft. Ef ég sáði mjög snemma var viðbúið að nokkrar frostnætur kæmu þegar rauðrófurnar voru að byrja að taka við sér, svo þær færu í njóla. Ef ég sáði seint var viðbúið að spírun yrði sein vegna þurrka og þegar ég sáði á skikkanlegum tíma var viðbúið að ég hefði sáð alltof þétt svo þær næðu varla naglarstærð þegar komið væri að uppskerutíma. Forræktun er lausnin Lausnin mín er að forrækta rauð- rófur líkt og kálplöntur eða sum- arblóm. Ég set svona tvö fræ í hvern sumarblómapott (betra að setja góða sáðmold í pottinn áður), hyl fræið með sandi eða sáðmold og skyggi sáninguna (gott að nota Moggann til þess) þangað til fræið fer að spíra. Þá fjarlægi ég oftast aðra kímplöntuna og viti menn, undir mánaðamótin maí-júní eru komnar góðar smáplöntur. Þetta er sáraeinfalt ef maður sáir fræinu u.þ.b. viku af apríl, passar svo að birtan sé meiri en hitinn og raki alltaf hæfilegur. Svo er það bara hókus-pókus, í september fæ ég þessar líka fínu rauðrófur. Það er alveg sama hvort ég er með af- langar eða hnöttóttar rófur. Þú skalt ekki stela Já, rófur, það er sárara en tárum taki, þótt ég forrækti gulrófurnar alveg eins og rauðrófur og dekri við þær á alla lund, er mér stöðugt refsað; þú skalt ekki stela er eitt boðorðanna tíu. Í ár var það kál- flugan sem refsaði mér, allar gul- rófurnar voru steindauðar um miðj- an júlí, en rauðrófurnar, sem uxu í sama beði, fengu ekki í sig einn ein- asta maðk. En hvaða fjas er þetta um rófur og rauðrófur, er ekki hvort tveggja nær óætt? Soðnar gulrófur borðar maður bara með saltkjötinu á sprengidag og rauðrófur borðar maður helst aldrei. Hér koma rauð- rófutilbrigðin til sögunnar. Sýrðar rauðrófur Rauðrófurnar soðnar í saltvatni þar til þær eru mjúkar. Þá er hýð- inu flett af og þær skornar í sneiðar. Lagðar í lög soðinn úr 3 hl. 5% edik, 2 hl. sykur. Sumir bæta í piparrót eða kúmeni. Notað með svína- eða lambakjöti, lifrarkæfu eða síld svo e-ð sé nefnt. Carmen-tilbrigði Mörtu 2 rauðrófur soðnar í saltvatni ½ rauðlaukur Konfekt-tómatar, ein askja Feta-ostur ½-1 krukka án olíu Kældar rauðrófur skornar í bita, tómatar helmingaðir, fínt saxaður laukur yfir, þá feta-ostur, maldon- salt og góður svartur pipar. Punkt- inn yfir i-ið gerir skvetta af kald- pressaðri extra virgin ólívuolíu. Hlutföllin eru í stíl við Carmen og söngkonuna Mörtu, allt spilað á til- finninguna. Gróft nýbakað brauð með. Ísskáps-tilbrigði Arndísar 2 rauðrófur soðnar í edikblönd- uðu saltvatni Blandað salat, það sem til er í hvert skiptið. Agúrka, helst úr eigin gróðurhúsi Bikar af sýrðum rjóma með 1 msk. af hunangi. Rauðrófur og agúrkur brytjaðar hæfilega, salatið tætt saman við. Sýrði rjóminn yfir, sumir vilja smá- vegis salt, e.t.v. steinselju til skrauts. Beint úr garðinum tilbrigðið 100 g hráar rauðrófur 200 g hráar gulrætur Græni hl. af matarlauk/graslauk/ vorlauk Fræhylki klettasalats 3 msk. furuhnetur Feta-ostur 1/2 bikar sýrður rjómi + tsk. hunang kryddedik + sítrónu-ólífuolía Rauðrófur og gulrætur rifnar gróft á rifjárni, lauk„gras“ í rausn- arlegu magni saxað saman við. Klettasalatið setur mjög snemma í blóm og fræ, en þau eru með ljúfu hnetubragði, sem passar vel með salatinu. Á öðrum árstíma eru furu- hneturnar fínar. Hvaða útálát er valið fer eftir smekk, stundum nota ég allt þetta. Nota jafnvel sem for- rétt. Rússnesk rauðrófusúpa Uppskrift að henni leynist á heimasíðu Garðyrkjufélagsins og ég er illa svikin ef fleiri rauðrófu- uppskriftir rata ekki þangað inn á næstu vikum. Verði ykkur að góðu Rauðrófur með tilbrigðum BLÓM VIKUNNAR Sigríður Hjartar Morgunblaðið/S.Hj. Lostæti Beint úr garðinum og ofan í salatskálina: Rauðrófur eru herramansmatur sem má elda á ýmsa vegu. 675. þáttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.