Morgunblaðið - 21.10.2008, Qupperneq 1
ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 2008
„VIÐ erum að
sjálfsögðu
ánægðir með út-
komuna og von-
andi verður þessi
sigur til þess að
við fáum tæki-
færi til þess að
keppa á fleiri al-
þjóðlegum mót-
um,“ sagði bad-
mintonmaðurinn
Magnús Helgason úr TBR í gær en
hann fagnaði sigri í tvíliðaleik með
félaga sínum, Helga Jóhannessyni,
á alþjóðlegu badmintonmóti í Sló-
vakíu um helgina.
Þeir léku til úrslita gegn Jakub
Bitman frá Tékklandi og Zvonimir
Durkinjak frá Króatíu. Þar höfðu
Íslendingarnir betur, 21:11 og
21:14.
Bitman og Durkinjak voru fyrir
mótið taldir sigurstranglegir í tví-
liðaleiknum. Þeir eru númer 53 á
heimslistanum en Helgi og Magnús
eru í 197. sæti á sama lista.
„Ég gæti trúað því að við mund-
um fara upp um 50 sæti á heimslist-
anum eftir sigurinn. Við höfum
ekki tekið neina ákvörðun um að
einbeita okkur sérstaklega að tví-
liðaleiknum. Það kemur bara í
ljós.“
Magnús og Helgi fengu rúmlega
115 þúsund kr. fyrir sigurinn í Sló-
vakíu. „Þetta er ekki eins og að
vinna golfmót á Evrópumótaröð-
inni, aðeins lægri upphæð. Það var
á dagskrá okkar að leika á tveimur
mótum um mánaðamótin nóv-
ember/desember í Wales og Eng-
landi. Við eigum eftir að fara yfir
stöðuna með forsvarsmönnum
TBR. Kannski verður niðurstaðan
sú að við notum verðlaunaféð til
þess að fjármagna næstu keppn-
isferð að hluta,“ sagði Magnús.
seth@mbl.is
Magnús og
Helgi á
sigurbraut
Magnús Ingi
Helgason
ÞAÐ ríkir glund-
roði í herbúðum
sænska úrvals-
deildarfélagsins
Djurgården, þar
sem Sigurður
Jónsson er að-
alþjálfari. Þrír
stjórnarmenn fé-
lagsins hættu
störfum í byrjun
síðasta mánaðar og þeirra skarð
hefur ekki verið fyllt, og er Sig-
urður því í mikilli óvissu um fram-
tíð sína og liðsins.
„Við verðum að finna út úr
þessu áður en áfram er haldið.
Það þarf að finna út hverjir ráða
hérna, það er einfaldlega réttmæt
krafa leikmanna og þjálfara. Við
getum ekki beðið þangað til í apríl
með að fá slíkt á hreint,“ sagði
Sigurður í samtali við sænska mið-
ilinn Expressen.
„Ég veit ekkert um mína fram-
tíð, það verður að vera stjórn hjá
félaginu fyrst. Við þjálfarar og
leikmenn vonumst að sjálfsögðu til
þess að þetta taki ekki of langan
tíma. Það yrði verst fyrir Djurg-
ården,“ bætti Sigurður við.
Gengi Djurgården hefur verið
undir væntingum á leiktíðinni og
nú þegar fjórar umferðir eru eftir
á liðið enga möguleika á meist-
aratitlinum, og situr í áttunda sæti
deildarinnar. Sigurður neitar því
ekki að ástandið hjá félaginu hafi
komið niður á spilamennsku liðs-
ins.
„Það er enginn vafi um það,
þegar maður skoðar félögin sem
eru að berjast á toppi deild-
arinnar. Þar ríkir enginn glund-
roði innanbúðar.“ sindris@mbl.is
„Siggi Jóns“ í
mikilli óvissu
Sigurður Jónsson
SJÖ rússneskar frjálsíþróttakonur voru í
gær dæmdar í tveggja ára keppnisbann
fyrir að hafa svindlað í lyfjaprófum vorið
2007. Sannað þótti m.a. með DNA-prófum
að þær hefðu skilað inn þvagprufum sem
ekki voru þeirra eigin. Konurnar voru
settar í tímabundið bann í júlí síðast-
liðnum á meðan málið var enn í rannsókn,
og gátu því ekki tekið þátt í Ólympíu-
leikunum en þar voru sumar þeirra taldar
líklegar til afreka. Þeirra á meðal er
1.500 metra hlauparinn Tatyana Tom-
ashova sem tvívegis hefur orðið heims-
meistari í greininni.
Ólíkar meiningar virðast vera um frá
hvaða dagsetningu árin tvö skuli talin.
Rússneska frjálsíþróttasambandið sagði
frá því að þar sem prófin hefðu farið fram
vorið 2007 myndi bannið látið gilda til
vors 2009 þrátt fyrir að konurnar hefðu
keppt á mótum fram í júlí á þessu á ári.
„Alþjóða frjálsíþróttasambandið [IAAF]
rannsakaði málið í 16 mánuði og á meðan
vissum við ekkert um hver niðurstaðan
yrði, fyrr en þær voru dæmdar í bannið
núna í júlí. Konurnar misstu af aðalhluta
tímabilsins og voru sviptar öllum verð-
launum og metum sem þær höfðu náð frá
því að prófinu voru framkvæmd,“ sagði
Mikhail Butov, formaður rússneska sam-
bandsins. Hjá IAAF er meiningin hins
vegar önnur og á bannið að gilda til júlí
árið 2010.
„Það eru engar líkur á því að við leyf-
um Rússum að láta bannið gilda frá því að
prófin voru tekin,“ sagði talsmaður IAAF
í samtali við AP-fréttastofuna.
sindris@mbl.is
Þvagið var ekki þeirra
Morgunblaðið/Ásdís
Svindlari Olga Jegerova, fyrrverandi heimsmeistari í
hlaupum, er ein sjömenninganna.
DRAUMUR Elísabetar Gunnarsdóttur varð að
veruleika í gær þegar tilkynnt var að hún yrði
næsti þjálfari sænska kvennaliðsins Kristianstad
en Elísabet hefur sem kunnugt er þjálfað Val um
árabil með frábærum árangri en vitað hefur verið
lengi að hugur hennar stefndi ofar en það um
nokkra hríð.
Sjálf viðurkennir Elísabet að tilboð Kristians-
tad hafi ekki verið það eina á borði hennar en
margt hafi mælt með því og hún hafi slegið til.
„Félagið er vel statt fjárhagslega og dyggilega
stutt af stuðningsmönnum enda er liðið frá litlum
bæ og um það ríkir góð stemning. Mig minnir að
1.500 manns komi á leik þess að meðaltali og það
heillar mig og fjölskylduna að sinna slíku starfi í
smábæ en ekki í stærri borg. Það gefur meiri tíma
til að sinna þjálfuninni. Þetta er tækifærið sem ég
beið eftir.“
Elísabet veit hvað hún syngur
Elísabet fer utan á föstudaginn kemur til að
skrifa formlega undir samning og skoða aðstæður
í þaula. Ein íslensk stúlka leikur með liðinu, Erla
Steina Arnardóttir, og segir hún það tilhlökkunar-
efni að fá Elísabetu til starfans. „Engin spurning
að það verður frábært enda þekki ég hana að góðu
einu. Fyrrverandi þjálfari hefur verið hér í átta
eða tíu ár og að vissu leyti er kominn tími til að
breyta til og Elísabet veit hvað hún syngur þegar
kemur að þjálfun. Margar stúlknanna eru einmitt
að forvitnast hjá mér um hana og ég gef henni
toppeinkunn.
albert@mbl.is
„Tækifærið sem ég beið eftir“
Elísabet Gunnarsdóttir tekur við þjálfun sænska kvennaliðsins Kristianstad
Mörg lið höfðu áhuga á að tryggja sér starfskrafta íslenska þjálfarans
Morgunblaðið/hag
Til Svíþjóðar Elísabet Gunnarsdóttir, fráfarandi þjálfari Vals, hefur ráðið sig til Svíþjóðar á næstu leiktíð.
íþróttir
Stórleikur Páll Axel fór á kostum
í Ljónagryfjunni 4
Íþróttir
mbl.is