Mánudagsblaðið - 21.02.1972, Page 8
►jM-** *** X-*.******-*-**-*-*****-*-*-*****><-* **** >►+>♦- XX-X***** * *
úr EINUI
ÍANNAÐ
Svikin framleiðsla — Góður matur — Áhrifalaust bann —-
Hvers geldur skautafólkið? — Sakkarín og sykuriðnaður —
Happdrættisbílaöngþveitið í miðborginni
ÞAÐ ER UNDARLEGT hve svokallað Tindavodka, íslenzk
framleiðsla, fær vaxandi óorð. I fyrstu þótti þetta sæmileg
framleiðsla, en nú telja vodkamenn, að þetta sé vart annað
en vatn og spíritus og langtum neðar að gæðum en innfluttar
vodkategundir. Þó er sýnu verra ef rétt reynist að erlendar
tegundir séu ófáanlegar vikum saman vegna þess að verið
sé að koma því íslenzka út. Og undarlega oft hefur einokunin
orðið uppiskroppa með vodkað, hverjar sem ástæðurnar eru.
•---------------------------
OG TALANDI UM kvöldsins nautnir, þá er orð á því haft
hve góður maturinn var á frumsýningu Þjóðleikhússins á
Óþello (sjá gagnrýni) og telja gourmands að hann hafi verið
hreint afbragð, þó dýr. Oft hefur viljað bregða til hins verra
í þessum efnum í Leikhúskjallaranum, en þetta kvöld sveik
hann engan.
EINHVER RÁÐ eru nú höfð uppi í sambandi við hið heimsku-
lega sígarettu auglýsingabann, sem var samþykkt í þinginu,
flutt af fávísi og samþykkt af almennri hræðslu þingmanna.
Þessi bönn eru með öllu gagnslaus en skapa hins vegar mikið
fjárhagslegt tjón fyrir þjóðina í heild svo ekki sé talað um
dagblöðin. Það verður aumur ferill eins þingmanns, ef hann
verður ekki munaður fyrir annað en að hafa borið fram eina
heimskustu þingsályktunartillögu, sem enn hefur komið frá
Alþingi, og eru þær ekki fáar. Gaman væri að vita hinar opin-
beru tölur um minnkandi tóbaksneyzlu — svo og þá stað-
reynd, að sigarettur, vindlar o. s. frv. eru auglýstar innanhúss
í búðum og þar sem þurfa þykir.
UNDARLEGIR ERU vegir íþróttahreyfingarinnar. Hún styrkir
hinar og þessar greinar íþrótta, en myndast aðeins við að
hreinsa hluta af Tjarnarsvellinu fyrir yngstu borgarana, sem
þar stunda skautaíþróttina. Brennivínsveizlur íþróttahreyfing-
arinnar, sem keyrðu úr hófi fyrir nokkrum dögum, hefðu nægt,
kostnaðurinn, til þess að sjá krökkunum fyrir sæmilegum að-
búnaði á Tjörninni, en æfintýri borgarinnar um skautaís á
Melavellinum hafa ekki séð dagsins Ijós í vetur, sennilega
vegna einmuna tíðar. Það þarf máske að veita Gísla Hall-
dórssyni einhvern rétt til að byggja yfir hluta Tjarnarinnar til
;að borgaryfirvöldin reyni að liðsinna þessum litlu greyjum
að einhverju ráði.
SAKKARIN-NEYTENDUR urðu felmtri slegnir í síðustu viku
er út spurðist að læknar, sumir, álitu að þetta gerviefni gæti
verið hættulegt lífi manna, eða a. m. k. orsaka ýms veikindi.
Hætta þessi er þó mjög dregin í efa, þó sakkarín-iðnaðurinn
vestra sem nemur 500 milljónum dollara á ári, hafi kippt
verulega við sér.Nú mætti það vera sakkarín-mönnum nokkur
huggun, að rannsóknir og tilraunir um áhrif þessa efnis, voru
greiddar af sykuriðnaðinum, en sakkarín er, á sinn hátt, sett
honum til höfuðs.
ÞAÐ ER MERKILEG stefna umferðaryfirvaldanna að leyfa
happdrættisbílum að standa daglangt í mestu annagötu borg-
arinnar, Austurstræti, og hafa þannig einskonar sérréttindi
yfir hinn venjulega borgara og bíl hans. Reynt hefur verið
að afsaka þetta með því, að um happdrætti góðgerðargfélaga
væri að ræða og vera kunna þeir til, sem álíta t. d. Sjálfstæð-
isflokkinn góðgerðárfélag. Það er skylda umferðaryfirvald-
anna að hætta þessu óréttlæti og skrípaleik við mestu um-
ferðar- og viðskiptagötu höfuðstaðarins. Burtu með happ-
drættis-dótið.
ÞAÐ VÆRI máske ekki úr vegi, að hinn ötuli bardagamaður
gegn eiturlyfjum, sem kært hefur læknastéttina, reyndi að
fylgjast með þegar uppdópuðu fólki bregður fyrir á sjón-
varpsskerminum. Ekki alls fyrir löngu sást mjög uppdópuð
„dama" í „fjöldasenu" á skerminum og full ástæða til að
„kanna málið“ eins og ráðherrar komast að orði.
Einn karlmaður og
fimmtíu léttlyndar
Þótt brezku Bítlarnir upphaflega
hafi slitið samstarfi sínu og leyst
upp hljómsveit sína, fer því fjarri
að þeir hafi sétzt í helgan stein.
Vinsældir þeirra kunna að hafa
dvínað hjá kynslóð táninga, enda
eru þeir orðnir „gamlir karlar",
gott ef ekki ellihrumir, í hennar
augum, en þeir hafa aflað sér ann-
arra velunnara. Hvarvetna er sótzt
eftir þeim og þeir eru oftast önn-
um kafnir, enda þótt þeir gætu
sjálfsagt allir varið því sem eftir
er af ævidögum þeirra til þess ein-
göngu að njóta lystisemda heims-
ins, svo miklum sjóðum söfnuðu
þeir þau árin sem þeir héldu hóp-
inn og reyndar streyma peningarn-
ir stöðugt í þá sjóði.
En þeir hafa reyndar haft lag
á því að láta yndi og erfiði fara
saman. Þetta á a. m. k. við um
Ringo Starr, eins og sjá má af
myndinni sem hér birtist. Sumir
myndu sjálfsagt fúsir til að borga
Ringo hefur ekki lerigur bítlahár.
það dýrum dómum að fá að um-
gangast þann fríða svannaflokk sem
á myndinni sést, en Ringo : fær
vænan skilding fyrir það. 'Myndin
er af atriði í kvikmynd sem harin
Ieikur eitt aðalhlutverkið í. Kvik-
myndin er úr „villta vestrinu" (en
er reyndar tekin á Spáni) og Ringo
leikur þar stigamann sem gerir sér
lítið fyrir og rænir einum fimmtíu
léttlyndum stúlkum sem eru á leið
saman til að freista gæfunnar á
Frægt -
ríkt -
umdeilt
fólk
sinn sérstaka hátt í gullgrafaraþorpi
einu í Mexíkó. Ekki er þess getið
hvað Ringo gerir við allt þetta
kvennastóð — en sennilega á hann
ekki í neinum vandkvæðum með
það.
Curd Jiirgens heldur á skilnaðar-
orsökinni.
Hjónabandssælu
lokið
Það þykir jafnan tíðindum sæta
ef kvikmyndastjörnur af báðum
kynjum lafa í hjónabandi nokkuð
að ráði framyfir hveitibrauðsdag-
ana. Þýzki kvikmyndaleikarinn
Curd Júrgens, sem leikið hefur í
ótal kvikmyndum í mörgum lönd-
um, hefur verið ein þeirra undan-
tekninga sem sagðar eru sanna regl-
una: Hann hefur um árabil verið
kvæntur sömu konunni, Simone að
nafni, en nú er sú hjónabandssæla
einnig á enda: Þau hafa ákveðið
að skilja.
Þýzk blöð hafa fyrir satt að
skilnaðarorsökin sé ung frönsk leik-
kona, Daniéle Gaubert, en þau
Júrgens léku saman í kvikmyndinni
„Stefnumót í Stuttgart".
Vinsældir Shake-
speares tryggðar
Þjóðleikhúsið hefur nú enn ráðizt
í að taka’ eitt . af snillarverkum
Shakespeares til sýriingar, að’ þessu
sinni Othello. Vonandi verður sýn-
ingin leikhúsinu til sóma og að-
sókn að hénni svo mikil að .„stykk-
ið standi undir sér". Ekki mun af
veita, þar sem búið er að auglýsa
uppboð á leikhúsbyggingunni
végna vangoldinna opinberra
gjalda.
Shakespeare stendur að vísu enn
fyrir sínu, en þó þykir sumum leik-
húsmönnum ástæða til að hafa vað-
ið fyrir neðan sig þegar verk eftir
hann eru tekin til sýningar. Ýms-
utri brögðum er beitt til þess að
tryggja aðsóknina, eins og t. d. að
lá’ta heimsfrægar kvikmyndastjörn-
ur á borð við þau hjónin Liz Taylor
og Richard Burton fara með aðal-
hlutverkin, eða þá að sníða verk
Shakespeares að smekk manna nú
á dögum, gera t. d. úr þeim söng-
leiki („Kiss me Kate") eða. láta
persónurnar Jdaéðast samkvæmt
tízku nútímans o. s. frv.
. Stjórnendum „Mermaid"-Ieik-
hússins í London datt snjallræði í
hug þegar þeir tóku fyrr í vetur
Shakespearesverk til sýningar, en
það var einmitt Othello. Þeir létu
Desdemónu, eða réttara sagt leik-
konuna sem fer með það hlutverk,
vera nakta í rúminu í afbrýðissen-
unni sem er hátindur verksins. Og
reyndar er það alis ekki fráleitt,
því að það er í fullu samræmi við
Framhald á 7. síðu.
i