Mánudagsblaðið - 23.10.1972, Síða 1
24. árgangur f@íán»dagur 23. október 1972 40. tölublað
Bjálfalán Alþýðubankans
Hve mikiB var /ánað
vafasömu fyrirtæki?
Allar líkur benda nú til þess,
að bankastjóri Alþýðubankans
hafi glapizt á að lána milljónir
— átta — að sögn til fyrirtæk-
ís, sem er eða mun verða bráð
lega mjög undir smásjá hins
opinbera. Bankastjórinn, sem
er því reyndari bitlingafræðing
ur, sem hann er reynslulausari
í peningafróðleik, mun hafa
haft viðskipti fyrir hönd félags
samtaka um ferðalög til út-
landa — einskonar orlofsferð-
ir og notið þar fyrirgreiðslu. í
einhverju þakklætisskyni mun
hann svo hafa veitt téðu fyrir-
tæki þessa hjálp.
FÉ HINNA SNAUÐU
Taka ber fram, að þessi
hjálp er auðvitað aðeins banka
viðskipti. Hins vegar má efa
að reyndur og ábyrgur banka-
stjóri sem hefur til varðveizlu
fé almennings og þá ekki sízt
hinna kúguðu á íslandi, myndi
þannig ráðstafa fé bankans,
sem innleggsmenn .hafa sveit-
að saman.
LITT HÆFUR
Það hefur oft verið rætt, að
sumir bankastjörar hafi komið
að stofnunum sínum harla
reynslulitlir. Þó mun með ein-
dæmum að menn hafi skipað
jafn ábyrgðarmikla stöðu eins
algjörlega þekkingarlausir og
bankastjóri Alþýðubankans.
Bankastjórinn er reyndur raf-
virki en fáir telja hann ennþá
aflvaka í þesari nýju stétt,
hvar hann nú skipar sess.
BITLINGAR
Pólitískt líf hans, og pólitik
kom honum í embættið, er ein
bitlingakeðja — svo geysileg
— að jafnvel hörðustu krötum
hefur þótt nó.g um, og kalla
þeir þó ekki allt ömmu sína í
þeim efnum. Hann hefur aldrei
starfað í banka, verið borgar-
fulltrúi og snati fyrir krata allt
sitt líf.
Leikfang Mánudagsblaðsins
ÁBYRGÐ RÁÐHERRA
Það hlýtur að vera ábyrgð-
arhjuti fyrir ráðherra að skipa
mann yfirmann og alvald fjár-
málastofnana, sem hvergi hef-
ur komið nærri bankamálum í
nokkurri mynd. Slíkur maður
þarf að vega og meta aðstæð
ur hverju sinni, bera skyn-
bragð á hvar fé það sem út
er lánað fer og hverjir séu
möguleikar til endurgreiðslu.
ENDURGREIÐSLAN?
Gaman væri að vita hve
miklar líkur séu á því, að
fé það sem nú var ausið
óvarlega í stofnun sem
berst í bökkum, komi til
baka til Alþýðubankans á-
samt vöxtum og öðru. Það
hlýtur að vera að jafn vitur
maður og Alþýðubankastjór
inn hafi gefið bankaráði
sínu einhverja haldbæra
skýringu á útláni sínu. Sú
tíð er horfin, að bankaráð
leyfi útsláttarsemi með fjár-
muni sem banka er treyst
fyrir nema á móti komi fullt
öryggi og trygging.
Skyldi rafvirkinn geta það?
EITUR OG VÆNDI
íslenzkra unglinga í Höfn
íslenzkir foreldrar 15—18
ára stúlkna og pilta í Kaup-
mannahöfn eru margir hverjir
annaðhvort kærulausustu eða
trúgjörnustu kvikindi í heimi.
Nýkominn ferðamaður hefur
tjáð oss, að þessi börn liggi
i eitri, vændi og allskyns óþrif-
um í Höfn, orðin alræmd fyrir
einmuna ólifnað og skepnu-
skap.
Danska lögreglan hristir höf-
uðið yfir þessu fólki, skilur
ekki foreldra þess né heldur
eindæma framferði, trúgirni og
hættulegan aulahátt þessara
gjörspilltu smáborgara, sem
eru að reyna að flytja bíó-
mynda-stæla sína inn á heims
borgarsviðið.
Talað er um að hreinsa al-
mennilega til í Höfn, senda
þetta spiilingardót heim,
hreppaflutningi. Foreldrum
heima á Íslandi virðist þetta
„kommune"- og eiturlyf jalíf
sér óviðkomandi. Hinsvegar
væri það ekki fjarri lagi að for
eldrar þessara ræfla verði látn
ir greiða fargjöldin fyrir þá
hingað — ella krefjast að þeir
verði kyrrir ytra. Menn muna
stúlkukjánann — heimskonuna
íslenzku — sem ætlaði að
draga burst úr nefi ísraelslög-
reglunnar og uppskar tveggja
ára fangelsi fyrir eitursmygl.
Við höfum engin efni á að
litillækka okkur í augum ann-
arra þjóða með því að iáta,
íslenzku utanrikisþjónustuna
biðjast vægðar fyrir þetta ó-
lánsfólk.
Er það satt, að rannsóknarar
hass-málsins í Hafnarfirði hafi
stuðst við hjálp systur eins
lögregluþjónsins og „frásagn-
ir“ fyrrverandi popp-siðurit-
stjóra Morgunblaðsins?
Skelfast íslenzkir sósíalistar
sósíalismann?
Hugmyndir vinnuveitenda — 900% i kjarabætur!!!
(Sjá J. Þ. Á., 5. síðu).
Hinn raunverulegi
GODFATHER
í dag birtir blaðið þá fyrri af tveim greinum um
Mafiuna í tilefni myndarinnar The Godfather, sem
Háskólabíó sýnir. Hér er sönn frásögn, rituð af
einum af lögfræðingum ríkissaksóknara Banda-
ríkjanna. — (Sjá 3. siðu).
Óstöðugt
fótatak
Á 2. síðu heyrist Fótatak
Leikfélags Reykjavíkur. — Sjá
leikdóma.
Menntunaraeði
hættulegt
„Þfóðhetjan"
og biskupinn
4. síðan fjallax um mennt-
unaxbrjálæði og hættu þá sem
af því stafar. — Kakali rasðir
„þjóðhetjuna” Helga skyrslettu,
frámunalega lélega afstöðu yf-
irvaJda og biskups. — Hvað
kostar af svívirða Krist? spyr
höfundur.
Sjónvarpið syðra
Á 6. síðu er sjónvarpið góða
— sunnan að — ýmsir nýir
þættir og skemmtiatriði.
Hverskyns karl-
maður — prófun
Áttunda síðan spyr hrein-
lega: Hvers konar karhnaður
ertu í garð kvenna? Þarna get-
urðu prófað þig samkvæmt sál-
fræðilegum rannsóknum þýzks
prófessors. — Og svo Ur einu
í annað.
Barnaslysin: |
ERLÖGGAN
5EK?
Almenningi- er nú farið að
blöskra sá barnadauði og slys,
sem hafa orðið í umferðinhi
undanfarin ár og virðast auk-
ast með ári hverju. Auðvitað
má teija að orsökin liggi að
nokkru leyti í aukinni umferð
og fjölgun innferðartækja.
En á hitt hefur ekki verið
bent til þessa: Er ekki lögregl-
an .götueftirlitið, ábyrgt, beint
eða óbeint, fyrir þessum hörm-
ungarslysum? Daglega — í
miðborginni, steinsnar frá höf-
uðstöðvum lögreglunnar og að
viðstöddum eftirlitslögreglu-
mönnum í Austurstræti, Banka-
stræti, Lækjargötu og Aðal-
stræti, svo ekki sé taiað um
svoköllúð úthverfi, — eru böm
á öllum aldri hjólandi í öfuga
átt á einstefnugötum, á gang-
stéttum, „gegnum" ljós, upp
og niður Bankastræti, án
minnsta tillits til umferðar-
reglna, sem Umferðarnefnd
státar af að kenna í skólum.
OG LÖGREGLAN SKIPTIR
SÉR EKKI HIÐ MINNSTA
AF ÞESSU!
Það er kominn tími til að
lögreglustjórinn, svo ekki sé
talað um vaktstjórana, hætti
þessum prímadonnuleik sínum
og sinni þeim störfum, sem al-
menningur krefst að sinnt sé.
Sumum borgurum þykir hart að
búa að því, að blóði barna
þeirra sé ausið út og streymi
um götur borgarinnar vegna
afskipraleysis þeirra af hjól-
reiðamönnum, hvort heldur á
vélknúnum tækjum eða stign-
um.