Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1968, Qupperneq 15
Frá vígslu Sjómannastofunnar Víkur. Árni B. Árnason, framkvæmdastjóri, býSur gesti velkomna og skýrir frá
aSdraganda aö stofnun sjómannastofunnar.
ráðherra 5 manna nefnd til þess að
gera tillögur um að koma á fót sjó-
mannastofum í kaupstöðum og
kauptúnum, þar sem aðkomuskip
leita oft hafnar, og ennfremur að
gera tillögur um fjáröflun í því
sambandi, en í fjárlögum fyrir árið
1968 er gert ráð fyrir 800 þúsund
króna framlagi til sjómannastofa
gegn % annars staðar frá.
í nefnd þessari eiga sæti m.a. full-
trúar tilnefndir af Farmanna- og
Fiskimannasamb. íslands, Lands-
sambandi ísl. útvegsmanna, Sam-
tökum síldveiðisjómanna og Sjó-
mannasambandi íslands.
Auk fjárveitingar þeirrar, 800
þús. krónur, sem eru á fjárlögum
þessa árs í framangreindu skyni,
hafa Sjómannadagurinn í Reykja-
vík og Sjómannasamband íslands
heitið 100 þús. króna framlagi hvor
aðili í sama skyni.
Til þess að ríkissjóðsfjárveitingin
fáist greidd, verður meira fé en
nefndar 200 þús. krónur að koma
annars staðar frá.
Þessvegna vill nefndin hér með
leita eftir sem ríflegustu fjárfram-
lagi frá samtökum yðar til styrktar
stofnun sjómannastofa svo sem áð-
ur er frá greint.
Nefndin hefur þegar leitað sem
ítarlegastra upplýsinga um ástand
þessara mála á eftirgreindum stöð-
um:
ísafirði, Siglufirði, Akureyri,
Raufarhöfn, Seyðisfirði, Neskaup-
VÍKINGUR
stað, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Vest-
mannaeyjum, Keflavík og Reykja-
vík.
Þær upplýsingar leiða í ljós að
ekki muni þurfa ýkja stórt átak til
að koma umræddum sjómannastofu-
málum í viðunandi horf á stöðum
eins og Seyðisfirði, Eskifirði, Fá-
skrúðsfirði og Vestmannaeyjum.
í Keflavík, Neskaupstað og Rvík
eru reknar sjómannastofur og eru
allar líkur til að sjómannastofan á
fyrstnefnda staðnum þurfi nauðsyn-
lega á styrk að halda til reksturs-
ins.“
Eins og fram kemur í bréfinu
höfðu tveir aðilar heitið fjárfram-
lögum í þessu skyni, þ.e. Sjómanna-
dagurinn í Reykjavík og Sjómanna-
samband íslands. Fyrirheit sjó-
mannadagsins var þó bundið við
Raufarhöfn og Seyðisf jörð og einnig
höfðu báðir þessir aðilar fyrirvara
um nauðsyn framlaga frá öðrum að-
ilum.
Tveir aðilar sáu ástæðu til að
svara þessu bréfi nefndarinnar,
Farmanna- og Fiskimannasamband
íslands og Landssamband ísl. út-
vegsmanna.
í bréfi F.F.S.Í. segir „samþykkt
var að fresta ákvörðun um fjár-
framlög í ofangreindu skyni.“
Eins og fram hefur komið, er
nefndin sammála um, að auk þeirra
staða sem hún leggur til að fái
styrk að þessu sinni og uppfylla
skilyrði Alþingis, sé nauðsynlegt að
reka sjómannastofur á Raufarhöfn
og Seyðisfirði, a.m.k yfir síldveiði-
tímann.
Enn vantar þó mikið á nauðsyn-
legan undirbúning og framkvæmdir
heima fyrir á þessum stöðum, svo
starfsemi þessi komist í viðunan-
legt horf.
Sérstöðu Seyðisfjarðar verður þó
að hafa í huga, því enn reka Norð-
menn þar sjómannastofu og eru ís-
lenzkir sem aðrir sjómenn velkomn-
ir að koma þangað.
Áður en lengra er haldið í málum
þessum, virðist nauðsynlegt að
framangreindum tveim sveitarfé-
lögum sé veitt nauðsynleg aðstoð til
að kanna til hlýtar þá möguleika
sem fyrir hendi eru og gera síðan
tillögur um viðunanlega frambúðar-
lausn þess.
Þótt erfiðlega gangi fyrir íslenzk-
um sjávarútvegi nú, virðist ekki
ástæða til að vænta annars, en að
frjáls fjárframlög geti orðið þáttur
í slíkri lausn.
Reykjavík, 18. sept. 1968.
Vonandi verður framhaldið
þeirn stuðningi, er þessi starf-
semi hlaut á síðasta Alþingi. Mér
er kunnugt um staði, þar sem til
stendur að setja á stofn Sjó-
mannastofur á næstu árum, og
mun varla geta orðið af því nema
styrkur komi til frá því opinbera.
7. Stefánsson.
287