Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1968, Page 18
ar voru málefnalegar og öllum til
sóma er þar mættu.
Hér er í fyrsta sinn reynt að leiða
saman, til vinsamlegra umræðna um
sameiginlegt hagsmunamál, mis-
munandi starfshópa og sérfræðinga.
Tel ég að vel hafi tekizt, og hafi
Sjómannasamband íslands þökk
fyrir frumkvæðið.
Vonandi verður hér upphaf þess,
að nánara samband myndist milli
sjómanna, útgerðarmanna og vís-
indamanna en verið hefur til þessa.
Umræður sem þessar feykja margri
svartri þoku til hliðar og sameina
krafta og þekkingu, sem til þessa
hefur verið allt of f jarrænt.
Að lokum var samþykkt að til-
nefna 9 manna nefnd frá ýmsum
samtökum er geri tillögur um skipu-
lagningu fiskveiðilandhelginnar. —
Skal nefndin hafa samráð við hina
pólitízku nefnd, sem Alþingi íslend-
inga kaus á dögunum til að fjalla
um málefni, er fyrst og fremst
snerta sjómenn og útgerðarmenn
þessa lands.
Ö. S.
í þvottavéla-auglýsingu fyrir
nokkuð mörgum árum stóð eftir-
farandi: „Styttið ekki ævi konunn-
ar yðar með hinni gömlu og úreltu
þvottaaðferð. Notið heldur raf-
magn.“
*
„Það var svei mér feit og falleg
kýr, sem stóð þarna úti hjá vegin-
um,“ sagði velklæddur borgarbúi,
sem lagt hafði leið sína heim á
reisulegan bóndabæ.
Bóndinn leit grunsemdaraugum á
manninn. „Segið mér; eruð þér frá
skattheimtunni, eða hafið þér ekið
yfir beljuna?"
*
„Ég frétti að Andrés og Pétur
hefðu slegist í gær.“
„Það er þó ómögulegt; ég sem
hélt að þeir væru óaðskiljanlegir.“
„Það voru þeir líka í gær. — Það
þurfti fjóra menn til að skilja þá.“
*
„Ef þú lokar ekki fyrir útvarpið,
kona, verð ég vitlaus."
„Þú ert það þegar; ég lokaði fyrir
það fyrir tíu mínútum."
FISKVEIÐAR í
ÍSLENZKRI LANDHELGI
Stjórn F.F.S.l. hefur ætíð verið því fylgj-
andi og gert um það margvíslegar samþykkt-
ir á undanförnum árum að gerðar verði al-
varlegar ráðstafanir til að skipuleggja fisk-
veiðar landsmanna innan íslenzkrar land-
helgi, með það fyrir augum sérstaklega, að
takmarka og útiloka spillandi og gjöreyðandi
veiðarfæri er leiða til rányrkju.
Um leið og stjórn F.F.S.Í. fagnar því að
hafist hefur verið handa með skipun nefndar
til að gera tillögur um fiskveiðar í landhelgi,
getur stjórnin ekki annað en mótmælt hinni
flokkspólitísku útnefningu nefndarmanna.
Stjórn F.F.S.I. leyfir sér að mótmæla því,
að gengið skuli vera framhjá F.F.S.I. og öðr-
um þeim aðiljum, sem í einlægni og með al-
þjóðar hagsmuni fyrir augum hafa barizt
gegn hverskonar rányrkju og veiðimisnotkun
innan landhelginnar.
Til að öllum megi vera ljósar óskir og
sjónarmið F.F.S.Í. skorar stjórn sambands-
ins á Alþingi og ríkisstjórn að tryggja það
að í engu verði slakað á eftirfarandi lág-
markskröfum:
1. Að engin botnsköfuveiðarfæri eða
nótaveiðatæki verði leyfð í fjörð-
um eða flóum og ekki innan fjög-
urra mílna landhelgi nema undir
ströngu almennu og vísindalegu
eftirliti.
2. Að öll netaveiði innan þessara tak-
marka verði háð ströngu eftirliti
með tilliti til þess að netaveiðin úti-
loki ekki línuveiðarnar á ýmsum
tímum.
3. Að bönnuð verði veiði á hrygnandi
fiski á ákveðnum hrygningasvæð-
um yfir hrygningatímann.
4. Að bönnuð verði veiði á fiskung-
viði innan allrar landhelginnar
nema til manneldis samkvæmt
ákveðnum reglum og undir vísinda-
legu eftirliti, samkvæmtþjóðfélags-
legum þörfum.
Væntir stjórn F.F.S.Í. að fullt tillit verði
tekið til þessara áskorana og nefndin endur-
skipulögð.
290
VÍKINGUR