Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1992, Síða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1992, Síða 14
V I K I N G U R til þess að stofna mjög staðfastan og sjálfum sér fullnægjandi ofsatrúar- söfnuð, sem tekið geti hvaða kenning- ar, sem settar eru fram í nafni hagræð- ingar og kvótans, upp á sína arma. Það ríkir trúfrelsi á íslandi, guði sé lof fyrir það. Ég ætla samt að leyfa mér að vona að þessi hópur telji ekki í framtíðinni nema örfáa einstaklinga, sem yrðu þá eins og minnismerki um liðna tíð. Veðsettur, skjalfestur og stimplaður Ég tel það afar nauðsynlegt að meirihluta vilji skapist til þess með þjóðinni að vinna sig út úr því kerfi sem við höfum fest okkur í við stjórn fiskveiða. Ég veit vel að það verður unnið að því að viðhalda þessu kerfi og ef vel er skoðað munu það verða pen- ingastofnanir þessa lands, bankar og sjóðir, sem vilja ríghalda í kerfið vegna þess að þar er óveiddi fiskurinn í sjón- um kominn skjalfestur ogstimplaður í bak og fyrir á veðsettan pappír. Fátt þykir nú betri eign en veðsett aflahlut- deild. Hún telst ekki fasteign og er þessvegna seljanleg hvert á land sem er. Eftir situr fólkið í sjávarplássunum í verðlausri fasteign, húsinu sínu, sínu eigin ævistarfí, atvinnulaust með óvissa framtíð. FFSÍ lýsti þeim vilja sínum að við værum tilbúnir að vinna að lausn á því vandantáli, sem sala á óveiddum ftski er í dag og gæti orðið í framtíðinni, og erum því reiðubúnir að vinna að frek- ari útfærslum eða hugmyndum sem gætu leitt til farsællar lausnar. Allt það sem varað var við í fyrirvara FFSI er hægt og sígandi að koma í ljós. Auk þess hafa komið fram ný vandkvæði, sem enn hafa styrkt þá skoðun FFSI að kerfið geti ekki orðið þjóðinni til hags- bóta þegar til framtíðar er litið. Þessi rök eru meðal annars eftirfarandi: Stjórnvöld geta ekki stýrt þeim hluta fiskveiðiflotans sem best er fallinn til þess að nýta vannýttar fisktegundir, í þessu tilfelli stærstu og afkastamestu frystitogarar, sem hafa alla burði til þess að ná árangri á djúpslóð. Utgerð- ir ftskiskipa, sem hafa yfirburðaaf- komu, kattpa sér þann kvóta sem gef- ur mestan arð og taka þannig til sín verðmætustu tegundir eins og þorsk. Þetta veldur því að ekki er hægt að stýra þessum hluta flotans í að stækka þá auðlind sem fæst með því að veiða og vinna vannýttar tegundir. Verði Gömul mynd af varðskipinu Albert, þar sem hann fær á sig brot við syðri hafnar- garðshausinn í Vestmanna- eyjum. núverandi kerfi staðfest til framtíðar, verðá okkar stærstu og afkastamestu skip fljótlega komin með svo miklar aflaheimildir í núverandi kvóta- bundnum tegundum að enginn tími er aflögu til annarra veiða. Að nýta djúpslóð Viljum við virkilega gera gangskör að því að veiða meira á djúpu vatni og fisktegundir sem við nýtum lítið í dag, þá á að beina þessum flota, stóru frystiskipunum, í þessar veiðar. Nú er það ekki svo að sumar útgerðir hafi ekki staðið vel að verki á þessum svið- um; t.d. hafa frystiskipin frá Hafnar- firði sýnt góðan árangur í úthafskarfa- veiðinni. Það sem ég á hins vegar við er að takmarka eigi aðgang stóru frysti- skipanna að almennum botnfiskveið- um, t.d. við 8-9 mánuði á ári, ogbeina 14

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.