Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1992, Side 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1992, Side 16
V I K I N G U R þess þegar skip koma til veiða innan íslensku fiskveiðilögsögunnar. Þar er það skilyrði okkar megin frá að veiði- ferð heíjist og Ijúki á Islandsmiðum og aflanum sé landað án þess að veitt sé til viðbótar utan okkar lögsögu. Meðan þessi ágreiningur er uppi liggur eng- inn samningur fyrir. Auk þessa hafa EBfulltrúar talið ýmis vandkvæði á framkvæmd og greiðslu kostnaðar vegna veiðieftirlitsmanna. Þrátt fyrir það að FFSÍ hafi hafnað núverandi kerfi, hefur ekki verið um sameiginlega afstöðu að ræða hjá öll- um sjómannasamtökum og félögum. Sjómannasamband íslands hefur mælt með kvótakerfinu alla tíð og ger- ir enn. Þar á bæ segjast menn ekki koma auga á annað betra kerfi. For- ystumenn Vélstjórafélags Islands hafa mælt með kerfinu eins og það er og talið að sala aflaheimilda þjónaði hags- munum sjómanna jafnt sem annarra. Þó virðist breytt afstaða hafa komið fram hjá þeim um þetta atriði. Sjó- mannasambandið hefur hinsvegar lýst algjörri andstöðu við sölu á óveiddum fiski í sjó, sérstaklega ef sjó- menn taka þátt í kvótakaupum. Ekki fæ ég samt séð hvernig menn geta mælt með kerfinu, sem ávallt byggir á sölu fisksins í sjónum, en mótmælt samt óveiddum fiski sem söluvöru. Þessi mismunandi afstaða forystu- manna sjómanna og samtaka þeirra veldur því meðal annars að kerfið hef- ur fengið að þróast að vild eftir óskum stórútgerðarmanna innan LIU og vinnuveitenda. Þessi ósamstaða hefur líka orðið mikil þolraun á samstarf og samtakamátt sjóntanna. í raun má segja að félagsmál sjómanna og kjara- samningar þeirra bíði skaða af þessari sundruðu afstöðu til þessa grundvall- armáls. Kjaramál Eins og allir vita hefur ekki verið létt verk að koma saman kjarasamningum við launamenn nokkur s.l. ár. Kjara- samningar hafa einkennst af stórum samflotum sem gjarnan hafa fengið nafnið þjóðarsátt. Það er í sjálfu sér ekki slæmt að ná heildar kjarasamn- ingum á breiðum vettvangi. Hinu er ekki að leyna að í skjóli stórra samflota hafa vinnuveitendur komist upp með að ýta til hliðar ýmsum sérmálum stéttanna. Eg hygg að starfsumhverfi okkar sjómanna, og reyndar líka fisk- Frá Vestmannaeyjum. verkafólks, hafi á s.l. áratug tekið hvað mestum breytingum samfara nei- kvæðum afleiðingum kvótakerfisins. í skjóli samflotsins hafa forystumenn LIÚ komist upp með að láta ýmsum sérsamningum ólokið og yfirleitt verið langt undir þeim sérsamningum sem gerðir haf'a verið við útgerðarmenn beint um nýjar veiði- og verkunarað- ferðir. Það er orðin full þörf á jrví að fiskimenn, hvaða starfsstétt sent þeir tilheyra, fari að starfa meira sarnan innan sinna félagssvæða. Ég vildi helst sjá alla fiskimenn í einu stéttarfélagi, t.d. Fiskimannafélag Vestmannaeyja, Fiskimannafélag Vestfjarða og svo framvegis. Næðist þessi árangur um samstöðu væri næsta víst að sameinuð fiskimannastétt gæti náð fram því starfsumhverfí við stjórn fiskveiða sem við teldum ásættanlegt. Það er raunar furðulegt að fiskimenn og fisk- vinnslufólk skidi ekki leggjast á eitt við að móta þær reglur að réttarstaða þeirra til vinnunnar og atvinnuöryggis móti stjórnkerfi fiskveiðanna. Það er 16

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.