Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1992, Page 20
UTAN ÚR HEIMI
farþegarnir ganga um borð þá ganga
þeir framhjá videovél seni tekur af
þeim mynd og skráir á sérstaka tölvu.
Hún útbýr síðan passa sem farþegan-
um er afhentur og að sjálfsögðu með
myndinni af viðkomandi. Síðan
ganga um skipið sérstakir öryggis-
verðir sem krefja farþegana í tíma og
ótíma um passa. Þannig á að hindra
að óboðnir gestir verði á ferð um
skipið. Ekki eru þetta einu ráðstafan-
irnar sent gerðar hafa verið. Mynda-
vélar eru á víð og dreyf um skipið og
er meðal annars ein í frammastri
þess. Ftdlkomnleiki þeirra er með
ólíkindum mikill og er sagt að unnt
sé að sjá hvað klukkan er, haft ein-
hver farþeginn úr á hendi sér. Nú
þýðir lítið fyrir farþegana að læðast
eftir að dimma tekur út á þilfar tekur
til rómantískra athafna nema skapa
um leið skemmtistemningu fyrir
áhöfnina sem fylgist með á mynda-
vélum.
SJÓRÁN
Sjórán eru að verða eitt aðalvanda-
inálið í heimi útgerða í alþjóðasigl-
ingunt. Malaccasund er talið vera eitt
hættulegasta siglingasvæði heimsins
og má segja að þeir sent stunda sjó-
rán séu hver sá sem getur haldið á
vopnum. Ekki eru nein teikn á lofti
um að yfirvöld ætli að grípa til
verndaraðgerða til handa sæfarend-
um en búist hafði verið við að hcr-
skipaverndar væri að vænta. Þetta
báru yfirvöld til baka og sögðu það
vera með öllu tilhæfulaust. En hvað
er að gerast? Nýlega var ráðist á
5000 tonna frystiskip, Swan Reefer,
þar sem sjóræningjarnir voru í 45
mínútur að berja á áhöfn skipsins.
Voru þeir ludónesar og lömdu skip-
stjórann og yfirstýrimanninn og
veittu jrriðja stýrimanni stungusár.
Það sent þeir uppskáru voru 2500
dollarar í ýmsunt gjaldmiðlum, fimm
úr, eitt útvarp og allt innihald klæða-
skáps skipstjórans. Skipstjórinn á
Swan' Reefer telur það vera ógnvæn-
legt hversu ofbeldi hefur aukist og
aðspurður hvort áhafnir skipa þyrftu
að voþnast sagði hann það leiða til
þess eins að sjóræningjarnir kæmu
vopnaðir byssum á móti.
HILMAR SNORRASON
NÝR MÖGULEIKI
Umhverfismálum er stöðugt meiri
gaumur er gefinn og ekki að ástæðu-
lausu. Nýlega var skipið Thamess
Bubbler tekið í notkun á ný eftir
miklar breytingar. Þetta skip er sér-
stakt að því leyti að því er ætlað að
auka súrefnisntagn Thames árinnar.
Mun skipið, sem er rafdrifið, sigla
um ánna í þessum tilgangi og er
ntarkmiðið að ná súrefnismagni
árinnar á það stig að fiskar geti lifað í
henni. Það er |já lnigsanlegt að of-
veiddi þorskurinn af íslandsmiðun-
um geti leitað friðar í 'fhamesánni í
framtíðinni.
upphaf Persaflóastríðsins var gefin
skipun um að korna þessum flota í
gagnið en þá dundu ósköpin yfir.
Þessi gömlu skip reyndust ónýt og
ónothæf. Einungis lítið brot af þess-
um mikla skipastóli gat siglt og af-
gangurinn var rústin ein. Nú fara
þessi skip unnvörpum í brotajárn og
í síðasta mánuði voru 15 skip seld til
niðurrifs. Þannig fór um sjóferð þá.
VARNIR
Öryggisvarnir á skemmtiferðaskip-
um eru að færast á athyglisvert stig.
Allir keppast við að ná í farþegana
sem eiga stóru vasana fulla af pen-
ingum en jteir eru jafnframt þeir
áhugaverðu hjá hermdarverkamönn-
um. Nýjasta nýtt á þesstt sviði var
kynnt við komu nýs skemmtiferða-
skips, Radisson Diantond, en það eru
svokallaðir öryggispassar. Þegar
Thames Bubbler frískar umhverfi þingsins.
Fregnir af úrgangslosun í úthöfin
eru farnar að trufla ferðir skemmti-
ferðaskipa, því farþegar vilja ekki
eyða sumarfríinu sínu í að horfa á
rusl né annan úrgang. Þýska útgerð-
arfyrirtækið Transocean, sem hefur
haldið uppi skemmtiferðum á
heimskautahafsvæði Rússlands hefur
hætt við allar ferðir þangað í kjölfar
fregna um að þar hafi verið losaður í
sjó geislavirkur kjarnaúrgangur. Þess
í stað munu skip félagsins sigla til
Skandinavíu en þær ferðir hefur
félagið rekið með tapi.
VARAFLOTINN
Nú eru nálægt tólf árum síðan
síðast sást stríðsbyggt Libertyskip eða
T2 olíuskip ílytjandi farma um
heimshöfin. Báðar þessar skipagerðir
voru eins og flestum er kunnugt,
smíðaðar á heimsstyrjaldarárunum
síðari, en langlífi Jjeirra var meira en
tnenn þorðu að vona. Þó var það ein
þjóð sem hafði ofurtrú á þessum
skipum en það voru að sjálfsögðu
Bandaríkjamenn. Bandaríski fiotinn
hefur í sinni umsjá stóran fiota af
kaupskipum sem hafður er í við-
bragðsstöðu ef til styrjaldarátaka
kemur. í þessum flota voru liundruð
skipa og var stór hluti Jjeirra frá því á
tímum seinni heimsstyrjaldarinnar,
floti sem Bandaríkjamenn hafa verið
stoltir af að eiga og átti jafnframt að
sýna styrk þeirra í flutningum til
styrjaldasvæða. Og svo kom stríð. Við
20