Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1992, Page 21
Lífeyrissjóður
sjómanna
Sbr. 7. mgr. 3. gr. laga nr. 27/1991, ásamt upplýsingum um starfsemi sjóðsins
Efnahagsreikningur 31.12.1991
Veltufjármunir Skammtímaskuldir Hreint veltufé í þús. kr. 1.793.604 -1.958 1.791.646
Fastafjármunir Langtímakröfur Áhættufjármunir Eignarhlutir í sameignarfélögum .. Varanlegir rekstrarfjármunir 10.831.487 -0 -0 13.459
Langtímaskuldir -0
Hrein eign til greiðslu lífeyris 12.636.592
Yfirlit um breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris fyrir árið 1991
Fjármunatekjur, nettó Iðgjöld Lífeyrir Kostnaður (rekstrargjöld — rekstrartekjur) Matsbreytingar í þús. kr. 944.656 1.324.647 - 353.371 -29.913 658.544
Hækkun á hreinni eign á árinu ... Hrein eign frá fyrra ári 2.544.563 10.092.029
Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris 12.636.592
Ýmsar kennitölur:
Lífeyrir sem hlutfall af iðgjöldum .... 26,7%
Kostnaður í hlutfalli af iðgjöldum .... 2,35%
Kostnaður í hlutfalli af eignum
(meðaltali hreinnar eignar í árslok og
ársbyrjun)................................... 0,27%
Úr skýrslu stjórnar
Á árinu 1991 greiddu 1.121 launagreiðendur iðgjöld
til sjóösins fyrir 7.272 sjóðfélaga. í árslok 1991 voru á
skrá hjá sjóönum samtals 30.962 einstaklingar.
Lífeyrisgreiðslur sjóðsins á árinu námu alls kr. 344,3
milljónum og hafa hækkað frá árinu 1990 um 25,8%.
Bótaþegar voru samtals1398. Ellilífeyrir nam kr. 156,2
milljónum (45,4% af heildarlífeyrisgreiðslum), örorku-
lífeyrir kr. 122 milljónum (35,4%), makalífeyrir kr. 45,3
milljónum (13,2%) og barnalífeyrir kr. 20,8 milljónum
(6%). í desember 1991 var fjöldi lífeyrisþega sem hér
segir: Ellilífeyrisþegar 687, örorkulífeyrisþegar 303,
makalífeyrisþegar 293 og börn sem greiddur var lífeyr-
ir til voru 279. Til Umsjónarnefndar eftirlauna voru
greiddar 10,1 milljón króna sem er 17,3 milljónum
króna lægri fjárhæð en árið 1990.
Hrein eign til greiðslu lífeyris nam kr. 12.637 milljón-
um í árslok. Á árinu hækkaði hún um 2.544 milljónir
króna eða um 25,2%.
Skuldabréfakaup ársins námu samtals 2.550 millj-
ónum króna. Keypt voru skuldabréf af sjóðfélögum
fyrir kr. 144 milljónir, af Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir
kr. 760 milljónir, húsbréf fyrir kr. 526 milljónir, banka-
bréf fyrir kr. 539 milljónir, skuldabréf bæjar- og sveitar-
félaga fyrir kr. 139 milljónir, skuldabréf Atvinnutrygg-
ingarsjóðs útflutningsgreina fyrir kr. 157 milljónir,
spariskírteini ríkissjóðs fyrir kr. 89 milljónir og banka-
víxlar fyrir kr. 103 milljónir. Önnur skuldabréfakaup
námu 93 milljónum króna.
í ársbyrjun 1991 var samið við Húsnæðisstofnun
ríkisins um kaup á skuldabréfum stofnunarinnar fyrir
37% af ráðstöfunartekjum sjóðsins og kaup á húsbréf-
um fyrir 18% af ráðstöfunartekjum. Var þetta gert til
þess að tryggja sjóðfélögum fullan lánsrétt hjá Hús-
næðisstofnun samkvæmt húsnæðislánakerfinu frá
1986.
Sjóðurinn sendir árlega út yfirlit yfir réttindi sjóöfé-
laga og á árinu 1991 var í fyrsta sinn gefinn út kynning-
arbæklingur með helstu upplýsingum um réttindi sjóð-
félaga og starfsemi sjóðsins. Bæklingurinn var sendur
öllum sjóðfélögum sem greitt höfðu iðgjöld á árinu
1990 og einnig öllum lífeyrisþegum sjóðsins.
Stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna.